Tíminn - 17.08.1950, Side 2
2.
Utvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20.00 Fréttir, 20.30 Útvarps-
hljómsveitin: Þýzk alþýðulög.
20.45 Erindi: Úr Englandsför;
siðara erindi (Bjarni Ásgeirs-
son alþm.). 21.10 Tónleikar
tplötur). 21.15 Dagskrá Kven-
réttindafélags Islands. — Upp-
iestur: „Landskuld", smásaga
eftir Guðrúnu H. Finnsdóttur
(Herdís Þorvaldsdóttir leikkona
les). 2Í.35 Sinfóniskir tónleikar
(plötur); a) Fiðlukonsert í e-
moll eftir Mendelssohn. 22 00
Fréttir og veðurrregnir. 22.10
Framhald sinfónisku tónleik-
anna: b) Sinfónía nr. 3 í F-dúr
eftir Brahms. 22.40 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Eimskip:
Brúarfoss fór frá Kiel 15.8. til
Alaborgar og Reykjavíkur. Detti
ioss kom til Hull 15. 8., fer það-
an aftur til Rotterdam, væntan-
lega 19. 8. Fjallfoss fór frá Siglu
firði 11.8. til Gautaborgar. Goða-
foss er í Keflavík.. Gullfoss fór
frá Leith 15.8. til Kaupmanna-
hafnar. Lagarfoss er á Isafirði,
fer þaðan í kvöld 16 8. til Akra-
ness. Selfoss er á Siglufirði.
Tröllafoss fór frá New York 7.8.,
væntanlegur til Reykjavíkur í
nótt 17. 8.
Ríkisskip. ______
Hekla er væntanleg til Glas-
gow i kvöld. Esja er á Austfjörð-
um á suðurleið. Skjaldbreið fór
frá Reykjavík kl. 21 í gærkvöldi
til Snæfellsneshafna, Gilsfjarð-
ar og Flateyjar. Þyrill er í
Reykjavík. Ármann er á Aust-
fjörðum.
Flugferðir
Flugferðir Loftleiða
Innanlandsflug:
1 dag er áætlað að fljúga til
Vestmannaeyja kl. 13,30. Til
Akureyrar kl. 15,30. Einnig til
Isafjarðar og Patreksfjarðar. Þá
verða og farnar tvær ferðir
milli Akureyrar og Siglufjarðar.
Fyrri ferðin frá Akureyri kl. 10.
00 og seini ferðin frá Akureyri
kl. 18.00.
Millllandaflug:
Geysir, Skymaster-flugvél
Loftleiða h. f. kom frá Kaup-
mannahöfn í gær kl. 15,30. Ráð-
gert hafði verið, að vélin hefði
viðkomu i Hamburg í heimleið-
inni, en svo varð þó ekki, þar
sem í Ijós kom á síðustu stundu,
að skilríki þýzku knattspyrnu-
mannanna, sem vélin átti að
taka, voru ekki í lagi. Er enn
ekki vitað hvort eða hvenær
þeir verða sóttir.
Geysir fór í gærkvöldi inn yf-
ir Grænlandsjökul Var vélin
væntanleg úr þeirri ferð
snemma í morgun. Fiugstjóri á
Geysi þessa ferð var Smári Karls
scn. Var ráðgert að vélin hefði
hér skamma dvöl, og legði af
stað í aðra Grænlandsferð íyr-
ir hádegi í dag.
Ur ýmsum áttum
Rerjaferð
Átthagafélag Kjósverja hefir
i hyggju að fara í berjaferð n.
k. sunnudag 20. þ. m. Lagt verð-
ur af stað kl. 8,30 f. h. og fariö
í gott berjaland í Kjósinni. Ef
Kjósverjar hér í bæ hafa hug
á að taka þátt ^förinni verða
þeir að hafa tilkynnt þátttöku
sína fyir fimmtudagskvöld. All
TÍMINN, fimmtudaginn 17. ágpst 1950.
178 blað.
kap til keiia
Þessi fallegi kjóll úr blómofnu
silki vakli mikla athygli í;
Wimbleoon fyrir skömmu. í
Hatturinn þótti einnig mjög
sérkennilegur og fallegur
ar nánari upplýsingar um ferð-
ina geta menn fengið í símun-
um 7429 — 80 792 — 6516 og
3249. —
Berjaferð Breiðfirðinga
Barðstrendingafélagið gengst
fyrir hinni árlegu berjaferð
sinni næsta sunnudag. Verður
farið upp í Kjós. Lagt af stað
klukkan 8 árdegis og komið aft-
ur til bæjarins um kvöldið. Þeir,
sem ætla að taka þátt í ferð-
inni verða að kaupa farmiða á
Ferðaskrifstofunni fyrir klukk-
an 5 á föstudag.
Hraðkeppnismót í útihandleik
Næstkomandi laugardag hefst
hraðkeppnismót í útihandknatt
leik kvenna. Að þessu sinni sjá
Haukar í Hafnarfirði um mót-
ið. Fer það fram í Engidal við
Hafnarfjörð, en þar fór fram
íslandsmót í handknattleik
kvenna fyrr í sumar.
Fjögur félög taka þátt í mót-
inu: Fram og Ármann, Rvík, og
Týr frá Vestmannayjum og
Haukar í Hafnarfirði.
Sjómannafélag Reykjavíkur,
heldur fund í Alþýðuhúsinu
í kvöld klukkan 20,30. Verður
þar rætt um kaupdeiluna á tog-
urunum.
Gjafir og áheit
til Óháða fríkirkjusafnaðar-
ins í Rvík: Ó. J. Á. kr. 1000.00, D.
G., áheit, kr. 25,00 Beta, áheit,
kr. 50,00. í. Þ. kr. 200.00. Magn-
ús kr. 64.00. Ónefnd kona, áheit,
kr. 10.00. J. Á. kr. 64.00. B. E. kr.
32.00. E. B. kr. 32.00. H. T„ áheit,
kr. 100.00. — Ýmsar smærri
gjafir samt. kr. 170.00.
Árnað heilla
Hjónaband.
I gær voru gefin saman í
hjónaband af séra Jóni Thorar-
; ensen ungfrú Kristín A. Claes-
, sen og Guðmundur Benedikts-
; son, stud. jur.
afólk finnur . . .
mhald af 1. slBu.)
ammt frá sæluhúsfhu
ú þeir veg yfir 50 me'tra
ran kafla. Var það malar
mbur, sem ófær var sökum
liðarhalla. Tókst að gera
arna braut sem greiöfær er
ílum.
Austur með Loðmundi
Úr Kerlingarfjöllum var farið
á laugardagsmorgun og ekið
inn með Innra-Ásgarðsfjalli
og stefna tekin suðaustur að
Loðmundi. Var ekið austur í
Illahraun við Hofsjökul og
þaðan að Hnífá. Þar var
beygt vestur Fjórðungssand
og yfir Norðlingaöldu vestur
að Dalsá. Farið yfir hana á
bílunum um kvöldið og tjaid
að handan árinnar.
Áin var ill yfirferðrar, grýtt
og hál í botninn, en heldur
vatnslítil.
Suður um Þjórsárdal ,
Á sunnudaginn var haldið
í suðvestur fyrir upptök Geíd-
ingaár og Gljúfurár, lijá
Blautukvísl. Farið var yfir
Skúmstunguheiði. Ekið yar
niður að Háafossi, í Hólaskóg
og þaðan sem leið liggúr . til
Giljár í Þjórsárdal og þaðan
til Reykjavíkur.
Þessi leið niður með Þjórs-
á hefir ekkí áður verið'far-
in á stórum bílum, en éinu
sinni mun hafa verið farið
þessa leið á jeppa. * !”
Yfirleitt er leiðin híeldur
greiðfær. Fyrst liggur leiðin
úr Kerlingarfjöllum um sanda
mikla, en hjá Blautukvísl
versnar vegurinn til muna og
er mjög illur yfirferðar á
köflum, það sem eftir er leið-
arinnar í Hólaskóg.
TENGILL H.F.
Heiði við Kleppsveg
Sim) 80 694
annast hverskonar raflagn-
ir og viðgerðir svo sem: Verk
smiðjulagnir, húsalagnir,
skipaiagnir ásamt viðgerðum
og uppsetningu á mótorum,
röntgentækjum og heimilis-
vélum.
Odýrast, þægilegast og stytst
að ferðast með
M.s. Laxfoss
Afgreiðsla skipsins í Reykja
vík tekur daglega á móti vör-
um til
Akraness
Borgarness og
Vestmannaeyja
Framgjöld eru allt að 30%
ódýrari en aðrir geta boðið á
sömu flutningaleiðum.
H.f. Skallagrímur.
Straujárn og raf-
magnsvöflujárn
væntanleg á næstunni. Tök-
um á móti pöntunum.
Sendum gegn póstkröfu
um land allt.
NORÐURLJÓS S/F
Raflækjaverzlun
Baldursgötu 9. Sími 6464
ÚÚniÍiÍ Tiittahh
Tómar flöskur
Hér eftir látum vér borga 50 aura fyrir tómar flösk-
ur, séu þær sóttar heim til manna. Hinsvegar kaupum
vér tómar flöskur í Nýborg á 60 aura.
Hringið í einhvern eftrtaldra síma þegar þér óskið
að losna við tómu flöskurnar yðar, og munuð þér þá
samtímis geta selt komumönnum öll glös og allar
krukkur, sem þér óskið að losna við.
Símarnir eru: 4714, 80818 og 2195.
Látið eigi undir höfuð leggjast að hringja ef þér
eigi kjósið fremur að koma sjálf með flöskurnar í
Nýborg.
Áfengisverzlun Ríkisins
AUGLÝSING nr. 171950
frá skömmtimarstjóra
Ákveðið hefir verið að reiturinn „Skammtur 15“
(fjólublár) af núgildandi „þriðja skömmtunarseðli
1950“ skuli gilda fyrir einu kílógrammi af sykri til sultu
og saftgerðar á tímabilinu frá og með 17. ágúst til og
með 30. september 1950.
Reykjavik 16 ágúst 1950
Skömmtunarstjóri
♦♦♦♦♦♦♦
TILKYNNING
til leigntaka frá stjórn Leigjenda-
félags Reykjavíkur
í tilefni af auglýsingu frá félagsmálaráðuneytinu,
viðvíkjandi hámarkshúsaleigu, sem birt hefir verið i
blöðum og útvarpi nú nýlega, vill stjórn Leigjendafélags
Reykjavíkur, benda félagsmönnum sínum og öðrum
leigutökum á, að samkvæmt úrskurði húsaleigunefnd
ar Reykjavíkur, sem auglýstur hefir verið í dagblöð-
um bæjarins, helst leigumat óbreytt í húsum, sem
byggð eru fyrir 4. maí 1940, en leigan hækkar aðeins
samkv. húsaleiguvísitölu.
Reykjavík 11. ágúst 1950
Stjórn Leigjendafélags Reykjavíkur
Ráðsmannsstaða óskast
Þýzkur maður sem hefir búfræðimenntun óskar eft-
ir ráðsmannsstöðu á sveitaheimili helzt á Suðurlandi,
talar íslenzku er 28 ára gamall giftur en barnlaus. Á-
skilur að kona hans fái vist, helzt ráðskonustöðu á
sama heimili. Hefir góð meðmæli frá Þýzkalandi og
einnig frá stóru heimili hér sunnanlands sem hann
hefir unnið á síðastliðið ár. Upplýsingar í síma 6729
frá 7—8 e. m.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦t f»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»♦♦* +♦♦♦♦♦♦♦»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦