Tíminn - 17.08.1950, Síða 7
178. blað.
TÍMINN, fimmtudaginn 17. ágúst 1950.
7,
Enn um Fríkirkjii.
(Framhald af 3. slSu.J
næði fyrir okkar guðsþjón-
ustur, en réðum til okkar guð
fræðikandidat, krefðumst
opinberrar viðurkenningar á
okkur sem- frikirkjusöfpuði
og vígslu þess kandidats, sem
við hefðum til okkar ráðið.
Mundi kirkjumálastjórnin
viðurkenna okkur og leyfa
vígslu þess prestsefnis, sem
við hefðum til okkar ráðið.
Ég geng í mikinn efa um,
að svo mundi veröa. En ná-
kvæmlega eins stóð á með Ó-
háða fríkirkjusöínuðinn í
Reykjavík. Ég hefi því enn
ekki getað viðurkennt vigslu
hr. Emils Björnssonar, sem
réttmæta. Er það skoðun mín,
að biskup lands vors hefði átt
að neita að vígja hann, eins
og á stóð, enda þótt maður-
inn sé í alla staði ágætur og
prýðilega hæfur til að taka
að sér prestsþjónustustarf.
Pétur Jaköbsson.
Meistaramótið
(Framhald af 3. siðu.)
Finnbjörn Þorvaldsson, ÍR,
10,8, 3. Örn Clausen, ÍR, 10,9
sek., 4. Pétur Fr. Sigurðsson,
KR, 11,2 sek.
Þrístökk: — ísl.m. Krist-
leifur Magnússon, ÍBV, 13,95
m., 2. Jón Bryngeirsson, ÍBV,
13,64, 3. Oddur Sveinbjörns-
son, Hvöt, 13,39 m., 4. Hiálm-
ar Torfason, HSÞ, 13,34 m.
1500 m. hlaup: — ísl.m.
Pétur Einarsson, ÍR, 4:09.4
mín., 2. Stefán Gunnarsson,
Á, 4:16,2, 3. Sigurður Guðna-
son, ÍR, 4:16,2 mín., 4. Krist-
ján Jóhannsson UMFE, 4:22,2
mín.
Sleggjukast: — ísl.m.: Þórð
ur Sigurðsson, KR, 43,02 m.,
2. Páll Jónsson, KR, 40,56 m.,
3. Gísli Sigurðsson, FH, 34,22.
80 m. grindahlaup kvenna:
— ísl.m.: Margrét Hallgríms-
dóttir, UMFR, 15,1 sek., 2. Haf
dís Ragnarsdóttir, KR, 15,1,
3. Edda Björnsdóttir, KR, 16,4
sek.
Kringlukast kvenna: — ísl.
m.: Ruth Jónsson, UMFG, 33,
03 m., 2. María Jónsdóttir, KR
32,57 m., 3. Margrét Margeirs-
dóttir, KR, 30,16 m., 4. Stein-
vör Sigurðardóttir, UMFR 27,
78 m.
/'7//í//r/r/r/
/f/anc/vz
i/to'-ÍÁas&tpá sieÁa-6600. s ttot
öld borð og belt-
• matnr
aendum út um allan bse
SlLD & FISKUR.
Viðtal við landnáms-
st jóra
(Framhald af 1. síðu.)
nessýslu, Rangárvallasýslu,
Austur-Skaftafellssýslu, Aust
ur-Barðastrandarsýslu, Aust-
ur-Húnavatnssýslu og Skaga
firði, og eru byggðahverfi ráð
gerð á þeim stöðum. Einnig
eru í samningum landkaup í
Ljósavatnshrepþi í Suður-
Þingeyjarsýslu og viðar í at-
hugun.
Framræsla hafin.
í Ölfusinu er búið að ræsa
fram 460 ha lands, jafna ruðn
ing á 250 ha. og kílræsa 300
ha, plægja og herfa 60 ha.
Búið er að sá í 15 ha. Ætlun-
in er sú að skila landinu und
ir býlin ræstu og brotnu að
miklu leyti og fimm ha. lands
fullræktuðum. Á þessu svæði
i Ölfusinu er gert ráð fyrir 9
býlum.
Á Hvolsvelli í Rangárvalla-
sýslu er fullbúið eitt býli og
þegar tekið í ábúð. Þarna er
ráðgert að reisa 5 býli.
í Þinganesi í Hornafirði eru
400 ha. ræktanlegs lands,
sem ætlað er að reisa á 7 býli.
Unnið hefir verið þar að fram
ræslu í sumar, og er opnum
skurðum að mestu lokið.
Á Reykhólum í A.-Barða-
strandasýslu hefir verið unn
ið að framræslu síðan í byrj-
un júlí. Þar er á annað hundr
að ha. lands. Ekki er ákveðið
hve mörg býli verða reist þar
enda verða sum þeirra með
öðrum hætti en annars stað-
ar að þvi leyti, að þau munu
byggjast á garðrækt og því
ekki þurfa eins mikið land
og hin, sem að mestu byggj-
ast á grasnyt.
Á Víðimýri í Skagafirði er
unnið að framræslu í sumar,
en skipulag um það hverfi
hefir ekki verið gert enn.
Einnig hefir nýbýlastjórn
, keypt land í Lýtingsstaða-
hreppi og mun ræsa það og
rækta jafnhliða Viðimýrar-
landinu og láta mönnum í té
til nýbýlastofnunar.
Vélakostur Nýbýla-
stjórnar.
Vélakostur sá, sem Nýbýla-
stjórn hefir til umráða við
framkvæmdir þessar, er 3
skurðgröfur, 3 dráttarvélar og
1 nýfengin stór beltisdráttar-
vél. Að svo miklu leyti, sem
þessi vélakostur hefir ekki
hrokkið til, hefir landnáms-
stjóri leigt verkfæri til fram-
kvæmda hjá ræktunarsam-
böndunum. Aftur á móti hef-
ir nýbýlastjórn á nokkrum
stöðum látið ræsa fram land
fyrir einstaklinga, er voru að
byggja nýbýli, og gert þeim
það fært með því móti.
Þarf 60—70 nýbýli
á ári
Árið 1948 fór fram athugun
á býlafækkun frá þvl 1940. Á
þvi árabili höfðu íarið í eyði
302 jarðir en samtimis verið
reist 159 nýbýli. Fækkunin var
því 143 býli. Síðan munu eyði-
býlin fremur hafa byggzt
aftur og fækkunin orðið
minni. — Annars tel ég, að
byggja þurfi 60—70 býli á ári
til að halda við býlafjölda í
landinu og vega upp á móti
þeim jörðum, sem fara í eyði
og hljóta að fara í eyði af eðli
legum ástæðum við nauðsyn-
lega samfærslu byggðarinnar,
segir Pálmi.
Byggt á fimmta
hverju býli
Þegar gert er yfirlit yfir í-
búðarhúsabyggingar í sveit-
um landsins síðustu tíu ár-
in, kemur í ljós, að byggð hafa
verið nær 1324 íbúðarhús, þeg
ar nýbýlin eru með talin, og
lætur því nærri, að byggt
hafi verið á því sem næst
fimmta hverju býli á landinu
þennan áratug.
Vaxandi erfiðleikar
— Annars eru nú með
hinni sívaxandi dýrtíð mikl-
ir og vaxandi örðugleikar á
því, að ungir og félitlir menn
geti klofið það að stofna til
nýbýla með þeirri hjálp, sem
við getum látið í té eftir lög-
unum, segir Pálmi að lokum.
Fé byggingarsjóðsins er allt
of lítið, og hann getur ekki
nándar nærri því veitt þau
lán, sem beðið er um og heim-
ilt er samkvæmt lögunum, og
hefir því ekki verið hægt að
framfylgja ákvæðunum um
hámark lánveitinga.
Lögin voru sett og sjóður-
inn stofnaður á tímum allt
annars verðlags og annars
f jármálagrundvallar en nú er,
og eins og málum er nú hátt-
að svara tekjur sjóðsins og
lánsmöguleikar hvergi nærri
til þess byggingarkostnaðar,
sem nú er orðinn.
Fyrir tveim árum gat sá tal-
izt fær um að leggja út i ný-
býlisstoínun sem átti fram að
leggja 50—60 þús. kr. samfara
hagsýni og dugnaði, en nú get
ég varla ráðlagt nokkrum að
byrja með minna en 100 þús-
und. Það er ekki glæsilegt að
hvetja menn til að binda sér
þunga skuldabagga með óhag
stæðum vöxtum og greiðslu-
skilmálum um fram hin föstu
lán, sem fást og eru mjög hag-
stæð. Slíkt getur orðið mönn-
um sá fjötur um fót, sem ger-
ir þeim ókleift að komast
á kjöl i búskapnum. En að-
sóknin og lánbeiðnir eru allt-
af miklar, og það sýnir, að
margir ungir menn hér á landi
hafa mikinn hug á að stofna
nýbýli, ef þeir sjá leið til að
klifa þann þrítuga hamar.
Austurferðir frá
Reykjavfk
Daglegar ferðir austur og
suður:
Til Laugarvatns,
í Grímsnes,
í Biskupstungur
Til Geysis í Haukadal.
Bæði til Gullfoss og Geysis
á fimmtudögum og sunnu-
dögum.
Flyt tjaldútbúnað fyrir
ferðafólk. Gengisfellingin
hefir ekki haft áhrif á öll
lífsþægindi enn. Fargjöld
hafa ekki hækkað með sér-
leyfisbifreiðum á annað ár.
Afgreiðsla í Ferðaskrifstof-
unni. — Sími 1540.
Ólafur Ketilsson.
íslenzk frímerki LÖGUÐ t'__
Notuð íslenzk frimerkl kaupl Tinuii! snins
ég ávalt hæzta verðl. * JÓN AGNARS Frímerkjaverzlun P. O. Box 356 — Reykjavik TlMlNN á hvert íslenzkt heirrrill. ■ w send gegn póstkröfu um allfl land. Fínpúsningsgerðin Reykjavík — Simi 6909
Nýja fasteignasalan Hafnarstræti 19. Sími 1518. Annast sölu fasteigna, skipa, bifreiða og verðbréfa. Við- talstími kl. 11—12 og 2—5 virka daga nema láugardaga kl. 11—12. Fasteignasölu- miðstöðin Lækjargötu 10 B. Sími 6530 Annast sölu fasteigna, skipa, bifreiða o. fl. Enn- 1 fremur alls konar trygging-
Jajjttatit
et vinsælosta blað unga fólksins.
Flytur ijölbreyttai gieinar um er-
lenda sem innlenda jazzleikara.
Sérstaka' frétta- spurninga- texta-
oa harmonikusíður.
ar, svo sem brunatryggingar,
innbús-, líftryggingar o. fl. 1
umboði Jóns Finnbogasonar
hjá Sjóvátryggingarfélagi ís-
lands h. f. Viðtalstími alla
virka daga kl. 10—5, aðra
tíma eftir samkomulagi.
Nafn ====«===» %>l€) IC Enginn íþróttaunnandi getur verið án Sportsblaðsins, sem flytur nýjustu fréttir frá öllum löndum. Einnig birtast i blað- inu innlendar og erlendar grein- 1 ar um íþróttir. Sportblaðið kemur út einu sinni í viku og kostar árgangurinn 30,00 krón- ur. Gerizt áskrifendur. Nafn -
Heimill
■ Staður
Jaizblaðið Rdncrgötu 34 — Röy>. QVíkc • i
Augtij/ii í Títnanuin OtÚMihiÍ TimaHH Staður SPORTBLAÐIÐ, Vesturgötu 34, Reykjavík.
| Góð jörð
Óskast til kaups, tilboð sendist á afgreiðslu Tímans \
| |
| sem fyrst merkt: „GÓÐ JÖRГ
Vatnsþéttir lampar og raf-
lagnir
Raftækjaverzlunin
LJÓS & HITI h. f.
Laugaveg 79. — Sími 5184.
/t^cigíegci nútl
diÍLaLjöt
Sambafld íslenzkra samvinnufélaga
Sími 2678
Bú vélar
TIL SÖLU: DRÁTTARVÉL (Case) með sláttuvél og
ýtu, áburðardreifari, múgavél, rakstrarvél, snúnings-
vél, allar sem nýjar. — Ennfremur nokkrar kýr. — Til-
boð merkt „Búvélar“ sendist blaðinu fyrir 15. sept. n. k.