Tíminn - 03.09.1950, Blaðsíða 8

Tíminn - 03.09.1950, Blaðsíða 8
„ERLEYT IFlRtJT ' I DAG: McArthur o«j Truman S4. árg. Reykjavík 3. september 1950 . 192. blað. Sendiherra Hol- lands á förum Hinn nýskipaði sendiherra Hollands á íslandi Jonkheor J. vv. U. S. Hurgronje mun fara til Dublin á morgun. í | viðtali við blaðamenn lét sendiherrann í ljós ánægju yfir dvöl sinni hér á landi og ; sagðíst vilja hafa verið leng- J ur. Þótti honum, sem mcrgum 1 erlendum gesti, landið vera! fagurt og litskrúðugt. Sendiherrann gat þess, að sér væri sérstök ánægja að vera sendiherra Hollands á íslandi, vegna þess að hann þekkti forseta íslands frá þeim tíma að þeir voru báðir sendiherrar í Kaupmanna- höfn fyrir síðustu styrjcld. Sagði hann, að það hefði verið sérstök ánægja fyrir sig að afhenda forseta skilríki sír. á afmælisdegi Vilhelminu drottningar, en sá dagur hef ur verið þjóðhátíðardagur Hollendinga í 50 ár. Verzlunarskýrslur sýna, að Hollendingar hafa undan- farna 7 mánuði keypt mest allra þjóða íslenzkar afurðir og vonaðist sendiherrann að áframhald yrði á þeim við- skiptum. Sagði sendiherrann, að í ráði væri að stofna vararæð- ismannsembætti íslands í Rotterdam og Amsterdam. Hurgronje sendiherra hefir um langt skeið gegnt mikils- verðum störfum í utanríkis- þjónustu Hollendinga, m. a. sem fulltrúi Hollands hjá S.Þ. en áður hafði hann verið sendiherra i Kanada og Mexico. Fiskignægðin við Grænland mun endast langan aldur Víðtækrar fÍNkirannsóknir Yorðmanna viíS CsrnMiland sýna, að þar or sjálfstsoður stofn í norska blaðinu Gula Tidend birtist fyrir hálfum mán- uði viðtal það, er hér fer á eftir. Á vegum fiskimálastjórn- arinnar eru vísindamenn í sumar að rannsóknum við Vest- ur-Grænland. Fyrir skömfnu lögðu af stað frá Álasundi tveir lciðangrar með fiskveiðaráðunautana Birgir Rasmus- sen og A. M. Kristensen. Hafði fiskimálastjórnin leigt tvö skip, „Eldöy“ og „Fosnavag" til fararinnar. Áður en lagt var af stað, náði frettamaður G. T. tali af fiskiveiðaráðu- naut Rasmussen. Mynd þessi er frá málverkasýningu Davíðs Kristjánssonar í Listamannaskálanum. Á sýningunni eru 54 málverk. Sýn ingin er opnuð í dag Verkföll breiðast út í V.-Þýzkalandi Verkfall byggingarmanna í V. Þýskalandi hefir breiðst út. 13 þús. byggingarvinnu- menn í Hannover hafa bæzt við þau 16 þús. byggingar- vinnumanna í Frankfurt, en þeir hafa verið viku í verk- falli. Reiman foringi kommun- ista segir, að verkfallið sé gert í mótmælaskyni við af- skipti hinna þriggja her- námsrikja af innanlandsmál efnum Þýskalands. Verka- menn mótmæltu orðum Rei- mans og segja áð verkfalllð sé einungis til að knýja fram nýjar kaupkrcfur. Leiftursókn Norðanmanna í Kóreu stöövuö í gær Bandaríkjanionn liofja gagnárásir í gær tókst her S. Þ. í Kóreu að stöðva sókn Norðanmanna á suður og miðvígstöðvunum þar sem þeir hafa sótt fram með 50 þúsund manna liði undanfárna tvo daga. Norðan- menn halda samt stöðvum sínum er þeir tóku austan ár- innar Naktong og eru þeir skammt frá borginni Taegu. Þýzkir komraúnist- ar hreinsa til hjá sér Nýlega hefir farið fram hreinsun í kommúnistaflokkn um í A. Þýzkalandi og hafa 6 háttsettir menn innan floksins verið reknir úr hon- um. Var þeim gefið að sök að þeir hefðu staðið í sambandi við leynilögreglu Bandaríkj- anna og unnið á móti hags- munum Rússlands og A.- Þýzkalands. Meðal þeirra er fyrrv. ritstjóri málgagns kommúnista Neue? Deuts- land, útbreiðslumáastjóri flokksins, útvarpstjóri, einka ritari Eislers og tveir aðrir háttsettir kommúnistar. Bandaríkjamönnum tókst með liðsauka að taka borg- ina Haman sem er aðeins nokkra kílómetra frá Masan á suðurvígstöðvunum og halda þeir enn borginni. Norð anmenn halda enn nokkrum þjóðvegum sem liggja á milli Taegu og Fusan en Banda- ríkjamenn gera stöðugar á- rásir á sveitir þær sem þar eru. Hersveitir innikróaðar. Nokkrir bandarískir her- flokkar eru innikróaðir vest- an Taegu og eru skotfæri, vistir og matföng flut til þeirra með flugvélum. Á norðurvígstcðvunum urðu sunnanmenn að láta unda síga frá Pohang en liafa tekið sér stöðu sunnar í fjöll unum. Pohang er nú að mestu eyðilcgð eftir stöðugar orrustur sem þar hafa staðið í nærri mánuð. 400 flugvélar tóku þátt í árásum í gær. 200 lestum af sprengjum var varpað á hern aðarlega mikilvæga staði. 3 járnbrautarbrýr voru eyði- lagðar. Samkvæmt fétt frá Was- hington hafa 503 Bandaríkja menn fallið í orustum í Kóreu 4000 hafa særst en 2000 er saknað. Bæiidur flýja héröð á Malakkaskag'a Tvö þúsund bændur hafa flúið héruð þau sem upp- reisnarmenn kommúnista hafa á valdi sínu á Malakka- skaga. Uppreisnarmcnnum tckst að taka nokra tugi til fanga og flytja þá til baka. Meira lið hefur verið sent inn í frumskcgana til að leita að uppreisnarmönnum og hafa þeir orðið að láta und- an síga en gera þó tíðum árásir á sveitaþorp eða sveitir stjórnarhersins. Mikill gröði af Grænlandsveiðunum \orðmpiin og' Fserpy iaig'ar afla |»ar inosi í sumar Fregnir frá Noregi herma, að Norðmenn hafi mokaflað við Grænland í sumar, og muni stórgrcði verða á út- gerð þeirra þar í ár. Þó hefir engin þjóð aflað og grætt þvílikt við Græn- land í sumar og Færeyingar. Er það mest talið því að þakka hve þaulkunnugir þeir eru orðnir cllu þar, og kunni að snúast rétt vjð hverju sem að höndum ber. Sagt er t. d. að þegar þorskurinn fer að vaða í þéttum torfum uppi í yfirborði sjávarins, hætti þeir að nota aðalveiðarfæri sitt, sem nú er orðið, línuna, en grípi handfærin og dragi við stcðulaust margar þúsundir þorska á dag. Hafa slík uppgrip verið dagleg hjá þeim nú í sumar. Þetta er raunverulega að- eins einn leiðangur, sagð: Rasmussen, eða tveir sam- stæðir leiðangrar, en með hvor sitt hlutverk. Skipir bæði munu semsé fylgjast að allan tímann sökum hinna verklegu tilrauna með ýms- um tegundum veiðarfæra, m. a. spænsku pareja-nótinni, en hún er dregin milli tveggja skipa. Við erum vongóðir um, að þessar verklegu tilraunir muni bera góðan árangur, og að þær veiðarfærategundir, sem hér er um að ræða, muni auka allmjög afköst Græn- lands-veiðanna. Það er Krist ensen, sem á að stjórna verk legu tilraununum. Hinum visindalegu rannsóknum á grænlenzka þorskinum og haf rannsóknum þar að látandi á ég að stjórna, segir Rasmus sen. Athyglisverð viðhorf við V.-Grænland. — Er um að ræða sérstök hlutverk i ár? spyr fréttamað urinn. — Við eigum fyrst og fremst að halda áfram rannsóknum þeim, sem hafnar voru með leiðangrunum 1948 og 1949, leggja til grundvallar árang- ur þann, er þá náðist. Við eig um að rannsaka fiskimergð- ina og göngur hennar í hafi, hitastig sjávar og áhrif þeirra á veiðar. Við Vestur- Grænland eru alveg sérstæð viðhorf. Og þaú getá breytzt ár frá ári. Þorskstofninn þar telst til hins islenzk-græn- lenzka þorskstofns og er ekk (Framhald á 7. síðu.) Sveitungar heim- sækja sjötuga húsmóður Hinn 26. ágúst s. 1. átti Jakobína Jóhannesdóttir hús freyja í Hólsgerði í Ljósa- vatnshreppi S,- Þing. sjötugs afmæli. Þann dag heimsóttu hana sveitungar hennar, alls um 150 manns til að árna henni heilla. Auk þess voru stcdd heima börn hennar átta og barnabörn og margt annað frændlið. Jakobína hefir búið 1 Hólsgerði um 40 ár, en mann sinn missti hún fyrir 16 árum. Tók þá Jónas Skúlason sonur hennar við búi með henni. Jakobína er enn vel ern þrátt fyrir mikið ævistarf og þrotalaust erfiði fram eftir búskaparárum. í afmælishófinu mæltu þeir fyrir minni afmælisbarnsins Jón Sigurðsson í Yztafelli og Baldur Baldvinsson á Ófeigs- stöðum. Skemmti fólkið sér við söng og gleðskap lengi dags. Truman varar þjóðir við að hefja styrjöld tr útvarpsræðii Trumans s. I. föstudag Truman forseti Bandaríkjanna varaði allar þjóðir í út- varpsræðu í fyrrakvöld, við því að hefja árásarstyrjöld. Sagði hann að Bandarikin væru reiðubúin að grípa til vopna lil að vernda heimsfriðinn. Sagði hann að atburðirnir í Kóreu hefðu neytt Bandaríkin til að auka herstyrk sinn og framleiðslu hergagna og leggja þannig þungar byrgðar á þjóðina. *' ^ hina síðari. Lét hann í ljós trú á að S. Þ. tækist að leysa það hluverk sem þeim væri ætlað ef lýðræðisþjóðirnar stæðu saman í baráttunni fyr ir heimsfriði. Sagðist hann vona að Kína léti ekki ginna sig inn í Kóreudeiluna en það gæti komið á stað alheimsstyrj- öld. Um Formosudeiluna sagði hann að hún myndi verða leyst á friðsamlegan hátt að styrjöldinni í Kóreu lokinni. Þegar kommúnistar gerðu innrás í Suður-Kóreu hefðu þjóðirnar átt um tvo kosti að velja. Hinn fyrri var að fara samningsleiðina og slá und- an kröfum kommúnista en hin síðari að bjóða þeim byrg inn með hervaldi og svara í sömu mynt. Sagði hapn að hin fyrri leiðin hefði verið reynd við einræðisherra Þýzkalands árið 1938 og hefði hún kostað heimsstyrjöld. Því hefðu Bandaríkin valið

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.