Tíminn - 18.10.1950, Blaðsíða 8

Tíminn - 18.10.1950, Blaðsíða 8
„ERLEIVT YFIRLIT“ I DAG: Doutjlus Mac Arthur 34. árg. Reykjavík „A FÖRYI/M VEGl“ t DAG: Þegar t/reiði er þakkaður 18. október 1950. 231. blað. Rjúpan sé friðuð næstu 10° 15 ár eða ófriðuð næstu 3 ár Fyrir alþingi liggnr nú í annað sinn þáltill. um alfriðun rjúpu. Samþykkti þingið slíka ályktun í vor en ráðuneytið hefir nú óskað nýrrar ályktunar af ástæðum sem skýrðar eru í eftirfarandi bréfi, scm það hefir sent öllum þingmönnum. | Méraðshátíð Fram I I sóknarmanna í I I Kjalarnesþingi I ,,Hinn 19. apríl 1950 álykt- aði Alþingi ,,að fela ríkis- stjórninni að alfriða rjúpu fyrir skotum til 31. desember 1953.“ Samkvæmt lögum nr. 27/ 1924 eru rjúpur alfriðaðar 1. janúar—15. október árlega. Ennfremur segir svo i lögun- um: „Nú fækkar rjúpunni svo, að ástæða þykir til þess, að friða hana allt árið, og er þá ríkisstjórninni heimilt að skipa svo fyrir með reglugerð um eitt ár í senn.“ Þar sem ráðuneytið telur sér auðvitað skylt að fara að vilja Alþingis í málinu, en er hinsvegar kunnugt, að nátt- úrufræðingar hallast ekki að friðunarráðstöfun, leyfir ráðu neytið sér að senda yður og öðrum háttvirtum alþingis- mönnum álitsgerð, er dr. Finn ur Guðmundsson ritaði um málið að beiðni þess, dags. 16. ágúst s. 1. Eins og álitsgerðin ber með sér, telja náttúrufræðingar sannað, að hin mikla fjölgun og síðan skyndileg fækkun rjúpna lúti vissum lögmálum, og hafi friðanir litil áhrif i því sambandi. Bendir dr. Finn ur á niðurstöður erlendra vís indamanna og eigin athug- anir máli sínu til stuðnings og vekur athygli á, að rjúp- unni sé nú tekið að fjölga án friðunarráðstafana og muni án þeirra ná hámarksfjölgun á árunum 1951—1953. Þar sem rjúpan er hinn mesti nytjafugl, er nauðsyn- legt að komast að raun um, hvort réttara er kenning nátt úrufræðinga, sem segja að rjúpunni fjölgi og fækki á víxl eftir vissum lögmálum. eða hinna, er telja hóflausa veiði orsök rjúpnaþurrðar- innar og friðun því nauðsyn- lega, ef rjúpunni eigi að fjölga á ný. Leggur ráðuneytið áherzlu á, að sannrevndar verði þær kenningar, sem uppi eru í þessu máli. Ef kenning nátt- úrufræðinga er rétt, ætti rjúpunni að halda áfram að ÍFramhai.l a 7 sióu.) Maður drukknar í Reykjavíkurhöfn Um sjöleyt'ð í gærmorgun féll maður fram af trébryggju austan við kolakranann við Reykjavíkurhöfn, og drukkh- aði hann. Maður þessi hét Halldór Ólafsson, til heimilis að Miðstræti 5, 35 ára, ókvænt ur. Mun hann hafa verið ölvaður. Menn urðu þess varir, er hann féll í sjóinn, og var lög- reglunni gert viðvart. Náði hún honum fljótlega, og voru lengi gerðar lífgunartilraun- ir, bæði af lögreglunni og i Landsspítalanum. En þær báru ekki árangur. Kafli um ísland í Frönsk bókagjöf til Háskólans Frakkarnir tveir, sem dvelj ast hér á landi til að undir- búa kafla um ísland í leið- sögubók fyrir ferðamenn um Norðurlönd. komu hingað i háskólabókasafnið um leið og þeir skoðuðu háskólann. Þótti þeim þar tiltölulega lítið af frönskum bókmenntum. Á- kvað forstjóri Nagei-útgáfu- fyrirtækisins i París, sem er annar mannanna því að gefa háskólabókasafninu franskar bókmenntir, 200—300 bindi. Er þetta vegleg gjöf, sem kem ur sér vel í gjaldeyrisvaúidræð unum. — Franskt bókaútgáfufyrir- tæki, er gefur út leiðsögu- bækur fyrir ferðamenn, ætl- ar að gefa út bók um Norð- urlönd. Eru tveir af stjórn- endum fyrirtækisins komnir hingað til lands, þeir dr. Lois Nagel og Albert Martineau, er veitir forstöðu þeirri deild Nagel-bókaútgáfunnar, er sér um útgáfu leiðsögubókanna. í bókinni um Norðurlönd, sem alls verður um 600 blað- síður, er gert ráð fyrir, að 100 blaðsíður verði um ísland. Er koma áðurnefndra manna hingað í sambandi við efnis- söfnun til islenzka kaflans. Þeir félagar ræddu við blaðamenn á Hótel Borg í gær, og gerðu sér þá tíðrætt um möguleika þá, er ísland hefir til að verða fjölsótt ferðamannaland. Telja þeir hverina með stórfenglegri náttúrufegurð landsins nægja til þess, að ísland gæti orð- ið eftirsótt ferðamannaland og þjónustan við ferðamenn- ina gæti þá ef til vill orðið jafn þýðingarmikill liður í þjóðarbúskapnum og síldveið arnar, og miklu áreiðanlegri tekjustofn, segja hinir sér- fróðu Frakkar, er ættu að þekkja manna bezt, hvað ferðafólki hentar. | Framsóknarfélag Kjal- § í arnesþings. sem stofnað I | var í fyrra, heldur héraðs- | 1 hátíð næsta smtnudag 22. i I akt. að Fciagsgarði I Kjós. I i Ræöumenn verða þar | | Rannveig Þorsteinsdóttir | 1 alþingismaður og Hermann \ | Tónasson, iandbúnaðarráð i i herra. Guðmundur Jónsson i Í syngur cinsöng við undir- i i leik Friiz Weischappels. = Í Samkoman hefst kl. 9,30 i I og ferðir verða lir Reykja- í | vík frá Ferðaskrifstofunni f | klukkan 8,30. Sóknin að Pyongyang var mjög hröð í gær Suðurlierinn á nti ófurna 20—30 km. til hurgarinnar og mætir lítilli mótisp.vrnu Bandarískar hersveitir tóku í gær borgina Hwangju, sem er 23 mílur sunnan við Pyongyang vestarlega á skaganum. Borg þessi er mikilvæg járnbrautarstöð og gefur vald yfir nokkrum aðalvegum til höfuðborgarinnar. iiiiiiiiiiiiiiiiiai)iiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiitiiiiiiii!ii)iiiii Veglegt afmæiishóf héraðssambandsins Skarphéðins Héraðssambandið Skarp- héðinn minntist 40 ára afmæl is síns með hófi að Selfossi síðastliðinn laugardag. Var þangað boðið öllum gömlum starfsmönnum og stjórnend- um sambandsins, helztu styrktarmönnum þess og í- þróttamönnum frá afmælis- mótinu í sumar og auk þess átta mönnum frá hvei’ju sambandsfélagi og nokkurra fyrirmanna úr héraði. Hófið hófst klukkan fjög- ur, og voru gestir á þriðja hundrað. Ingimar Jóhannes- son kennari rakti sögu sam- bandsins, Sigurður Greipsson rakti íþróttastarfsemi þess, Ungmennafélag Hrunamanna sýndi leikþætti, Einar Sturlu- son frá Fljótshólum söng ein- söng við undirleik Gunnars Sigurgeirssonar, en síðan voru fluttar margar stuttar ræð- ur. Enn fremur voru veitt verðlaun fyrir íþróttaafrek á afmælismótinu í sumar. Þor- steinn Sigurðsson írá Vatns- leysu stjórnaði almennum söng. Hófinu lauk laust fyrir mið nætti. — Sókn suðurhersins norður á bóginn var mjög hröð í gær og sóttu hersveitir fram allt að 40 km. sums staðar og átti hann víðast eftir 25—30 mílur ófarnar til Pyongyang. Mættu hersveitirnar lítilli mótspyrnu noröanmanna og gafst fjöldi þeirra upp í gær og afhenti vopn sín. Á austurvígstöðvunum eru hersveitir Suður-Kóreumanna komnar inn á miðjan skag- ann beint austur af Pyong- yang og eiga litlu lengra ófar- ið til borgarinnar en hersveit irnar að sunnan. Hersveitir Suður-Kóreu- manna hafa einnig haldið á- fram sókn sinni norður strönd ina frá Wonsan fyrir Choson- flóann og eru fremstu sveitir komnar allt að járnbrautar- borginni Hamhung, og eru þessar hersveitir þá komnar um 150 mílur eða 240 km. norður fyrir 38. breiddarbaug. Truman flutti ræðusína í nótt Truman forseti Bandaríkj- anna kom t'l Kaliforníu í gær j morgun og dvaldist þar í gær. | í nótt kl. 4 eft'r ísl. tíma mun ! hann flytja útvarpsræðu í San Francisko og verður henni útvarpað víða um heim. Búizt er við að Truman hafi mikilvægan boðskap að flytja. Valdsvið örygg- ísráðsins rætt Stjórnmálanefnd allsherj- arþingsins ræddi tiHögur ríkj anna sjö um víkkað vaidsvið öryggisráðs ns. Áður en fund- ur hcfst í nefndinni áttu þeir fund mcð sér Dulles, fulltrúi Bandaríkjanna og Vishinsky um ágreiningsmál ríkja sinna í þessum málum, og sátu full- trúar þeirra einnig fundinn. Fundurinn var lokaður og ekki v'tað um árangur hans. Raufarhafnarmálið enn óupplýst Tíðindamaður frá Tíman- um átti i gær tal við Svein Sæmundsson yfirlögreglu- þjón, sem enn er á Raufar- höfn við rannsókn þjófnaðar- málsins. Sagðist honum svo frá, að ekkert hefði komið fram við hina löngu og yfir- gripsmiklu rannsókn, er gæti gefið vísbendingu um það, hver valdur væri að þjófnað- inum. Allir menn í þorpinu hefðu verið komnir i fastasvefn klukkan þrjú umrædda nótt og enginn svo litið út eftir það, enda niðamyrkur, unz hinir fyrstu komu á fætur um sjöleytið. Það mun hafa komið til tals, að Sveinn Sæmundsson og Axel Helgason, sem er hon um til aðstoðar, fari frá Rauf arhöfn með Esju á morgun. En með þeirri ferð mun sýslu maður Þíngeyinga koma til Raufarhafnar. Koninir (il §ai»on Frcnsku hershöfð'ngjarn- ir, sem franska stjórn;n sendi til Indó-Kína komu til Saigon í gær. Munu þeir athuga þar herstjórn Fx-akka og vígstöð- una og gera síðan tiUcgur um það, hvernig sókn af hálfu setuliðs Frakka skuli hagað, og hve mikinn liðsauka og vopn sé nauðsynlegt að fá. Hofsósbátum Frá fréttaritara Tímans á Hofsósi. Frá Hofsósi stunda nú róðra 18—20 trillubátar og tveir vél bátar. Hefir afli verið allgóð- ur. Trillubátarnir fá 2000— 3000 pund i róðri. Hraðfrystihús Kaupfélags Austur-Skagfirðinga kaupir allan fiskinn. og er þorskur- inn saltaður, en ýsan öll fryst á Ameríkumarkað. Til jafn- aðar rnunu vinna í hraðfrysti húsinu 24—26 manns. Barn veikist af skordýraeitri Borgarlæknirinn i Reykja- vík hefir beðið blað-ð að flytja eft'rfarandi aðvörun frá sér: „Samkvæmt upplýsingum frá Landsspítalanum hefir barn ve'.kzt eftir að hafa borð að skordýraeitur, sem heitir DATOR ROACH HIVES. Er þvi lýst íem togleðurskenndri plötu í sívölum pappahólk. Borgarlæknirinn varar því ein dregið við að hafa eitur þetta á stöðum þar sem börn ná til þess og óskar ennfremur eftir upplýsingum um, hvort vitað sé, að skordýraeitur það, sem hér greinir, sé nokkurs stað- ar á boðstólum". Blaðið átti i gærkveldi tal við lyflæknisdeild Landsspítal ans og spurði um þetta til- felli. Þetta er fimm ára gömul telpa og var henni farið að batna. En það er ástæða til að minna fólk á, að hafa að- vörun borgarlæknis í hyggju. Vatnajökulsleiðang- urinn vekur at- hygli erlendis Ekstrablaðið í Kaupmanna- höfn, sem undanfarið hefir birt fjölda greina, frásagna og mynda frá íslandi, birti allrækilega frásögn af för Árna Stefánssonar og félaga hans á Vatnajökul, er þeir björeuðu líkkistunni og hund inum Carló úr flaki Geysis, og aftasta síða blaðsins var öll þakin myndum frá þess- um atburði. Er þar að makleikum borið hið mesta lof á þol og þrek leiðangursmanna/ 28 menn farast í í flugslysi í London Brezk Dakota-flugvél, er hafði nýlega haflð sig til flugs frá Northon-flugvellinum við London á leið til Skotlands, steyptist til jarðar í úthverfi London í gær. Var flugstjór- inn snúinn við og ætlaði að lenda aftur vegna vélbilun- ar, en komst ekki alla leið á flugvöllinn. Lenti flugvélin á húsþaki og féll síðan brenn- andi niður í garð. í flugvél- Jnni voru .21 farþegar og fimm manna áliöfn. Fórust allir sem í vélinni voru nema einn maður, sem slapp með moiðsli. Meðal þej.rra,, sem fórust var lítið barn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.