Tíminn - 26.10.1950, Blaðsíða 2
)
frá Húsavík, Akureyri og Sauðárkróki alltaf fyrirliggj
andi í heildsölu hjá
t £a&bah4i íáL Aamfimufálaya
♦ Sími 2673
Tvö herbergi og eldhús óskast handa þingmanni
yfir þingtímann. Upplýsingar í síma 6740.
Tvö herbergi og eldhús óskast handa þingmanni
yfir þingtímann. Upplýsingar í síma 6740.
Byggingarsamvinnufélags Reykjavíkur fyrir 1949 verð-
ur haldinn í Edduhúsinu (fundarsal) 9. nóv. og hefst
kl. 8,30 e. h.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
TÍMINN, fimmtudaginn 26. október 1950.
238. blað.
')rá hafi til heiía
irii.ri«rnm«
dtvarpið
Útvarpið í dag:
8.30—9.00 Morgunútvarp. —
9.10 Veðurfregnir. 12.10—13.15
Hádegisútvarp. 15.30—16.30 Mið
degisútvarp. — (15.55 Fréttir og
veðurfregnir). 18.25 Veðurfregn
ir. 18.30 Dönskukennsla; I. fl.
— 19.00 Enskukennsla; II. fl.
19.25 Þingfréttir. — Tónleikar.
19.45 Auglýsingar. 20.00 Fréttir.
20.30 Tónleikar Sinfóniuhljóm-
sveitarinnar; dr. Victor Urbants
chitsch stjórnar (tekið á segul-
band á tónleikum í Þjóðleik-
húsinu 22. okt.). 21.45 Frá út-
löndum (Axel Thorsteinson).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Tónleikar: Slavneskir dans
ar eftir Dvorák (plötur). 22.30
Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Eimskip:
Brúarfoss fór frá Pireus í
Grikklandi 21.10. til Islands.
Dettifoss kemur til Reykjavíkur
kl. 18.00 í dag, 25.10 frá Leith.
Fjallfoss er í Reykjavík. Goða-
foss kemur til Bergen í dag,
25.10. frá Álaborg. Gullfoss er i
Kaupmannahöfn. Lagarfoss fór
frá Egersund 23.10. til Faxaflóa
hafan. Selfoss fór frá Stokk-
hólmi 21.10. til Ulea í Finnlandi.
Tröllafoss fór frá Reykjavík 18.
10. til New Foundland og New
York.
Ríkisskip:
Hekla er á Austfjörðum á
suðurleið. Esja er í Reykjavík. |
Skjaldbreið fer frá Reykjavík j
næstkomandi mánudag til Húna 1
flóahafna. Herðubreið er í
Reykjavík. Þyrill er væntanleg-
ur til Reykjavíkur í dag að vest |
an og norðan. Þorsteinn fór frá j
Reykjavík í gærkvöldi til Vest- J
mannaeyja. Straumey er á Aust.
fjörðum á norðurleið.
Úr ýmsum áttum
Slátrun
á félagssvæði Kaupfélags Hér-
aðsbúa hófst 29. október og var
slátrað um 29 þús. fjár. Slátrun
in fór fram á þremur stöðum
— Reyðarfirði, þar sem henni
lauk 14. október, og Fossvöilum
og Egilsstöðum, þar sem henni
lauk 21. október. 14. október var
meðalvikt dilka 13,65 kg. Voru
iömbin fremur rýr, en ærnar
aftur á móti vænar og gæru-
þungi mikill.
Kartöflpuppskera
var i haust allgóð á Fljótsdals-
héraði, og dæmi eru um 12—13
íalda uppskeru í þorpinu að
Egilsstöðum. Frostnætur komu
áður en allir voru búnir að ná
upp úr görðunum, en mun þó
ekki hafa orðið neitt teljandi
tjón á uppskerunni.
Ityggingarsamvinnufélag
Reykjavikur heidur aðalfund
sinn í samkomusal Edduhúss-
ins víð Lindargötu 9. nóv. kl.
8.30 siðdegis.
Nýr sendiherra.
Brezka stjórnin hefur skipað
hér nýjan sendiherra, John
Greenway að nafni. Charles
Baxter, núverandi sendiherra
hér er á förum næstu daga.
Féiag ísl. lofskeytamanna.
heldur kvöldskemmtun að Þórs
kaffi í kvöld kl. 21. Aðgöngu-
miðar afhentir í skrifstofu Sjó-
mannablaðsins Vikingur í dag.
Húnvetnineaféiagið
heldur aðalfund sinn í Breið-
firðingabúð næsta þriðjudag
kl. 8.30. Til umræðu eru venju-
leg aðalfundarstörf, lagabreyt-
ingar og hækkun féiagagjalda.
Barðstrendingafélagið
heldur félagsfund í Alþýðuhús-
inu á morgun kl. 8,30. Verður
rætt um vetrarstarfsemina og
að lokum dansað.
Þjóðleikhúsið.
Pabbi er sýndur í kvöld kl.
20. Aðgöngumiðar seldir í dag
kl. 13,15 — 20 siðd.
Kæfa og rúliupylsa.
Fjárhagsráð hefir auglýst
nýtt hámarksverð á kindakæíu
og rúllupylsum og er það hið
sama á þessum vörutegundum:
í heildsölu kr. 18,50 kg. og í
smásölu kr. 23,00 kg.
„Brúin til mánans.“
Leikfiokkurinn „6,í bíl“ sýnir
sjónleikinn „brúin til mánans“
eftir Clifford Odets í Iðnó í
kvöld kl. 8,30.
Skaftfellingafélagið
í Reykjavík heldur vetrarfagn-
að í Breiðfiröingabúð föstudag-
inn annað kvöld kl. 8,30. Margt
til skemmtunar.
Ægir
skipstjóra- og stýrimannafélag
ið heldur fund í dag kl. 14 í
Tjarnarkaffi.
Mildari veðrátta.
er nú á Vestfjörðum en var um
skeið í haust. Fréttaritari Tim-
ans í Súgandafirði, segir, að þar
hafi brugðið til hláku fyxir
nokkrum dögum, en áður var
komipn allmikill snjór í byggð.
Er nú orðið alautt á láglendi,
en snjór niður i miðjar hlíðar.
Ekki er bílfært úr Súganda-
firði til ísafjarðar, því að mikíl
fönn var komin á fjallinu, en
vegurinn hefir ekki verið mok-
aður.
Frá kvenfélagi Hallgríms-
kirkju.
Hin árlegi merkjasöludagur
félagsins er föstudaginn 27. okt.
n. k. Árstíðardagur séra HalK
gríms Pjeturssonar. Þess er
vænst að félagskonur góðfús-
lega hjálpi til með merkjasöl-
una og vitji þeirra á Eiríksgötu
29 til Guðrúnar Fr. Rydén, sem
afgreiðir merkin til kl. 6 síðd.
á föstudaginn.
Allar upplysingar gefnar i
síma 2297.
Fjáröflunarnefndin
Biiið að salla í 85» 10
tunnur
Á laugardaginn var heild-
arsildarsöltunin komin upp í
85 810 tunnur, og var aukn-
ingin í vikunni sem leið 3165
tunnur.
Veiðin var með tregasta
móti þessa viku, en einnig
hamlaði veður veiðum nokkrr
um sinnum. Um helgina var
sáralítil veiði, og þeir bátar
sem lögðu af stað í róður á
sunnudagskvöld, senru flest-
ir aftur vegna versnandi veð
urs.
Hallgrímsmessa
(Framhald af 1. siðu.)
ar fyrir altari.
Við þessa guðsþjónustu
verður- í fyrsta sinn notað
nýtt altarisklæði, sem kven-
félag safnaðarins hefir gef-
ið. Klæðið er rautt að lit með
gullnum, ísaumuðum krossi,
sem frú Unnur Ólafsdóttir
hefir gert. í krossinum eru
ste'nar úr Glerhallarvík.
Ennfremur hefir kvenfélag
ið gefið kirkjunni forkunn-
arfagra patínu úr silfri af
scmu gerð og kaleikinn, sem
kvenféiagið gaf kirkjunni í
fyrra. Báða þessa gripi hefir
Le’fur Kaldal silfursmiður
gert.
Messan sjálf verður í göml
um stíl, eins og guðsþjónust-
ur tiðkuðust á dögum séra
Hallgríms Péturssonar.
Menntamál,
sept. — okt. 1950 er komið út.
Efni: Halldór Halldórsson: Rabb
1 um íslenzka stafsetningu.
Björn Guðfinnson próf.: Þáttur
, úr íslenzkum mállýszurannsókn
' um. Lag eftir Frið.rik Hjartar:
I Móðurmálið. J. B. J.: Vinnubók
í átthagafræði. Stefán Hannes-
son kennari: Ávarp til skóga-
skóla. Mót sambands norlenzkra
1 barnakennara á Akureyri. 11.1
fulltrúaþing S. í. B. Fundur j
gagnfræöa-
stjóra.
og héraðsskóla-
ornum
ve<£i
Öld berserkjanna að renna?
í gamla daga voru uppi ber-
serkir, sem ekki bitu járn, og
eld óðu þeir sér og öðrum til
skemmtunar, rétt eins og krakk
arnir okkar nú á tímum busla
í lækjarsitru. Þeta var nú þá,
og seinna þótti rithöfundum lít
ið bragð að þessum berserkjum
fornaldarinnar, og skópu sér
aðra, sem gátu skotið sér í jörð
uiður, ef mikið lá við.
En viti menn: Árið 1950 eru
:.ppi ósköp venjuiegir menn,
liem í tilraunaskyni eru iátnir
vaða bál, sem tendrað hefur
verið af benzini. Bálið er sagt
nafa verið um þúsund stiga
heitt, og eftir tvær mínútur
komu mennirnir út úr því ó-
skaddaðir.
En þessir náungar voru ekki
óbrynjaðir. Þeir voru í búning-
um, sem reyna átti með tiiliti
til þess, hversu þeir myndu
gefast handa slökkviiiðsmönn-
um. Mestur'híti, er náði til lík-
ama mannanna, var 55 stig.
Búningar þessir eru drifhvít-
ir, og hylja manninn vitaskuld
frá hvirfli til ilja. Þeir eru bún
ir til úr gleri og í þeim eru rnörg
lög af glerull til einangrunar,
svo að hiti og kuldi nær ekki að
komast í gegnum þá.
Þetta er sem sagt nýjung, sem
líklegt er, að komi slökkviliðs-
mönnum að miklu gagni, og
ekki mun langt um líða, þar
til margar slökkviliðssveitir
verða búnar svona tygjum.
En það er líka vist, að þessi
i nýja uppgötvun mun hafa fjöl-
; þættari þýðingu. Hér er íundið
furðulegt efni og aðferð til ein-
! angrunar, eins og önnur til-
raun hefir sýnt. Rjómaís í um-
; búðum af þessu tagi var látinn
j í kökudeig í formi, og formið
látið í bakarofn. Þegar kakan
var fullbökuð var hún tekin út,
ásamt rjómaísnum. Hann hafði
ekkert látið á sjá. Kanna með
heitu kaffi var líka látin í ís-
skáp. Klukustund síðar var kaff
ið sjóðheitt.
J. II. I
ZEISS-IKON-MYNDAVÉLAR,
afgreiddar ‘með stuttum fyrir-
vara, til ljósmyndavöru-verzlana
gegn innflutnings- og gjaldeyr-
isleyfum.
Mynd- og verðskrá hér fyrir hendi
Sendið pantanir til;
ZEISS-IKON — ÍSLANDSUMBOÐ: G. M. BJÖRNSSON
Skclavörðustíg 25 Reykjavík
SKIPAÚTGCKO
RIKISINS
„Skjaldbreiö"
Tekið á móti flutningi til
Súgandafjarðar og Bolungar-
víkur á morgun.
LÖGUÐ
fínpösning
send gegn póstkröfu um alli
land.
Fínpúsningsgprðin
Reykjavík — Simi 6909
M.s. Dronning
Alexandrioe
fer frá Kaupmannahöfn 6. nóv.
ember til Færeyja og Reykjavík
ur.
Flutningur óskast tilkynntur
skrifstofu Sameinaða í Kaup-
mannahöfn hið fyrsta.
Frá Reykjavík fer skipið til
Grænlands og þaðan beint til
Kaupmannahafnar.
Frá Kaupmannahöfn til Fær
eyja og Reykjavíkur 5. desem-
ber.
Frá Reykjavík til Færeyja og
Kaupmannahafnar 14. desem-
ber.
Skipaafgreiðsla Jes Zimsen
Erlendur Pétursson