Tíminn - 27.10.1950, Síða 5

Tíminn - 27.10.1950, Síða 5
239. blað. TÍMINN, föstudaginn 27. október 1950. 5. Föstud. 27. okt. Hvernig á að hindra íogaradeilur? Þegar þetta er skrifað veit enginn ennþá hver úrslit verða í atkvæðagreiðslu sjó- manna um samningstilboð og sáttatillögur í togaradeilunni. Sú deila er nú búin að valda fjögra mánaða stöðvun flot- ans og kosta þjóðina tugi milljóna króna í erlendum gjaldeyri. Slíkir atburðir eru næsta alvarlegir og koma sárt við þjóðarbúskap, sem stendur höllum fæti fyrir. Öllum hlýt- ur að vera ljóst, að slíkt er ó- gæfæ og óska þess, að svona hlutir þurfi helzt aldrei að gerast. Slíkar deilur eru þjóð- inni svo dýrar. í síðustu togarastöðvun á undan þessari fluttu þeir Skúli Guðmundsson og Hall- dór Ásgrímsson frumvarp um togaraútgerð. Þar var gert ráð fyrir því, að þegar ágreining- ur um kaup og kjör hindraði togara frá veiðum, mætti ieysa málið með því, að taka skipin leigunámi og leigja þau félagsskap skipverja. Það er enginn efi, að með þessu frumvarpi var stefnt að þeirri tilhögun, sem ein er friðvænleg og líkleg til fullra bóta. Með því að skipverjar sjálfir beri ábyrgð og ágóða af útgerð sinni er komizt fram hjá tortryggni og deil- um um það, hvernig skipta skuli aflanum. Það verður naumast irið- vænlegt í íslenzku atvinnu- lífi fyrr en svo er komið, að starfsmenn atvinnuveganna finni það og treysti því, að þeir sjálfir beri út býtum eft- ir því hvernig er unnið og hvernig gengur. Þess vegna hlýtur það að vera framtíð- arlausnin að koma þarna á tengslum á milli. Eins og nú standa sakir, er því sízt að neita, að mörgum virðist sem ýmsir menn hafi haft aðstöðu og tækifæri til að gera sig auðuga með láns- fé úr bönkunum og vinnu annarra. Og það er engin von til þess, að heiðarlegum starfs mönnum finnist þessi skipan svo fullkomin, að ástæða sé til að bera djúpa virðingu fyrir henni. Það er ekki hægt að loka aug unum fyrir því, að menn hafa fengið tækifæri til að draga mikinn auð til einkaeyðslu út úr atvinnulífi þjóðarinnar. Svokallaðir eigendur hafa löngum notað sér þau tæki- færi. Og þau blöðin, sem mest tala um ónærgætnar kröfur við sligaða atvinnuvegi, tala aldrei um þessa hluti fremur en þeir væru ekki til. Þessi fjárdráttur frá at- vinnulífinu er eitt af því, sem verður aö laga, ef friður á að ríkja í atvinnumálum þjóð arinnar. Leiðin til þess er sú, að þeir, sem vinna fram- leiðslustörfin, reki fram- leiðsluna sjálfir. Því er ekki að neita, að- það hefir staðið og stendur nokk- uð í vegi þess, að slík skipan komist á, aö hún viröist enn ekki eiga nægu fylgi að fagna meðal sjómanna. Þar virðist ríkja um of, eins og víöar, sá hugsunarháttur, að hafa sinn ERLENT YFIRLIT: Getulio Darnelleus Vargas Fyrrverandi cinraeðiisherra BraKÍlíu vinn- ur mikinn sigur í frjálsum kosniii.uuni Það gefur bezt til kynna, h re stórt og strjálbýlt land Brazilía er, að það tók eina tuttugu daga að ljúka talningu atkvæða í forsetakosningunum, er fram fóru þar 3. þ. m. Brazilía er líka eitt af stærsþ/löndum veraldar og það þeirra, sem hefir mesta möguleika til að margfalda í- búatölu sína, en hún er nú um 50 milj. Forsetakosningunni að þessu sinni lauk með miklum sigri Getulio Vargas, er var forseti Brazilíu á árunum 1930—45 og í raun réttri einræöisherra lands ins þann tíma. Árið 1945 hrakti herinn hann frá völdum, er horf ur þótti á, að hann myndi van- efna loforð sitt um frjálsar kosn ingar. Forseti var þá kosinn Dutra hershöfðingi, frambjóð- andi svonefndra socialdemo- krata, en stjórn hans hefir ekki reynzt vinsælli en svo, að fram- bjóðandi flokks hans varð hinn þriðji í röðinni, en sjálfur mátti Dutra ekki gefa kost á sér sam kvæmt stjórnarskránni. Sá, sem kom næstur Vargas, var Gomez hershöfðingi, frambjoðandi í- haldsmanna, er var aðalkeppi- nautur Dutra í forsetakosning- unum 1945. Vargas var fram- bjóðandi svokallaðs verkalýðs- flokks, enda átti hann mest fylgi meðal verkamanna og smá bænda. Annars er flokkaskipt- ing allt önnur í Brazilíu en t. d. í Evrópu og því lítið hægt að dæma flokkana eftir nöfn- iim þeirra. Þannig mun f’.okkur Gomez vera frjálslyndari en flokkur Dutra, þótt nöfnin bendi til annars. Starfsferill Vargas. Getulio Vargas, sem nú verður forseti Brazilíu í annað sinn, varð 67 ára garnall á s. 1 vori. Hann er kominn af bændaætt- um og ólst upp í sveir. Sextán ára gamall hóf hann nám við herforingjaskóla, en lagði síðar fyrir sig ’aganám og lauk lög- fræðiprófi 1907. Síðan fékkst hann við lögfræðistörf og blaða mennsku og lét allmikiö til sin taka i héraðsmálum. Árið 1923 var hann kjörinn þingmaður. Þremur árum síðar varð hann fjármálaráðherra. Árið 1928 var hann skipaður fylkisstjóri í Bio Grande de Sul og vorið 1930 var hann frambjóðandi í íorseta kosningunum. Fylgismemi hans töldu að hann hefði unr.ið, en úrsiitin verið fölsuð. Þeir gerðu sér því lítið fyrir og gerðu stjórn arbyltingu. Þannig varð Vargas forseti og þessari tign hélt hann um 15 ára skeið. Vargas hafði áður en hann_ varð forseti tekið þátt í allmörg um byltingum og byltlngatii- raunum, sem þá voru tíðir at- burðir í Brazilíu. Fyrir fram- göngu sína í þes.sum efnum hafði hann hlotið herforingja- titil. Margar tilraunir voru líka gerðar til að steypa honum af stóli, en honum tókst að bæla þær niður fljótlega. Vinsældir þær, sem hann vann sér sem forseti, stöfuðu ekki sízt af því, að honum tókst að koma á stöð ugri stjórn og afstýra losi því og ringulreið, er áSur fylgdi hinum tíðu stjórnarskiptum. Vinsæll forseti. Margt fleira en þetta var þess valdandi, að Vargas varð vin- sæll forseti meðal almennings. Hann kom á ýmsum merkileg- um félagslegum umbótum, er bættu kjör og aðstöðu alþýðu. Meðal annars veitti hann verka lýðssamtökunum aukin réttindi og hlynnti að samvinnufélags- skapnum á margan hátt. Hann jók mjög og bætti skólahaldið. Oft var talað um alþýðlegt ein- ræði í sambandi við stjórn hans. Peron Argentínuforseti hefir að ýmsu leyti tekið stjórn Vargas sér til fyrirmyndar, enda hefir honum tekist að ná alþýðuhylli. Vargas var hins vegar ólíkur Peron að því, að hann barst lítið á og gerði lítið til að auðga sjálf an sig. Hann lifði óbrotnu og yfirlætislausu lífi og fékk því það orð á sig, að hann væri heið virður stjórnandi. Yfirleitt var stjórn hans mild og beitti and- stæðingana stórum minni harð- ýðgi en t. d. stjórn Perons gerir. Vargas kom sjaldan fram op- inberlega og hélt sjaldan ræður. í viðtölum við menn gerði hann meira að því að hlusta en tala sjálfur. Hann þótti sérlega lag- inn í umgengni við menn og kom því máli sínu oftast fram, án þess að beita hörku. Hins vegar skorti hann ekki einbeitni og hugrekki, ef því var að skipta. Það var t. d. frægt, að einu sinni varðist hann, ásamt f jórum varð mönnum og dóttur sinni í þak- herbergjum forsetahallarinnar, er uppreisnarmönnum hafði tek ist að ná henni á vald sitt áður en herinn kom á vettvang. f tómstundum sínum hefir Vargas lagt mikla stund á út- reiðar og golf. Hann hefir og mikla ánægju af bókalestri. Sigur Vargas. Eftir að Vargas var hrakinn frá völdum 1945, settist hann að á búgarði sínum og hafði um hríð hægt um sig. Hins veg- ar tók að bera meira á honum, er nálgast tók forsetakosning- arnar, en lengi vel lét hann þó svo, að hann myndi ekki gefa kost á sér. Það var ekki fyrr en hann fann, að almenningsálitið var honum hliðhollt, er hann á- kvað endanlega að gefa kost á sér. Þeirrar skoðunar hefir nokk- uð gætt, að Vargas myndi verða hlut tryggan, án nokkurrar áhættu. Við nánari athugun munu sjómenn vafalaust sjá, að þeim er fyrir beztu, að þeir verði beinir þátttakendur í framleiðslunni. Reynslan hefir og sýnt, að bæj arútgerðarfyrirkomulag- ið er engin lausn á þessu máli. Bæjartogararnir hafa engu síður verið stöðvaðir en þeir togarar, sem eru í emka- rekstri. Hér þarf því að finna grundvöll fyrir nýtt fyrir- komulag. Það er að vísu eftir að þreifa fyrir sér með heppi- legustu tilhögun viö togara- rekstur á þeim grundvelli, sem frumvarp þeirra Skúla markaði. En það er verkefni, sem verður að taka fyrir af fullri alvöru. Þjóðin á hér svo mikið í húfi, að hún þolir ekki að þessi atvinnutæki séu stöðvuð mánuðum saman allt af öðru hvoru. Það er stundum of seint að fara að hugsa fyrir úrræð- um, þegar í óefni er komið. En það skulu menn hafa hug- fast, að enda þótt togaradeila sú, sem nú hefir stöðvað skip- in þriðja hluta ársins kunni að leysast í bili, er sama hætt an þó yfirvofandi eftir sem áður. Og það veit enginn nær næsta stöðvun skellur á. Þess vegna þarf að hugsa fyrir heppilegri framtíðar- skipan togaraútgerðarinnar með það fyrir augum að sorg- arsagan frá 1950 endurtaki sig ekki. Það er eitt af því, sem gera verður, til að tryggja sjálfstæði og hagsæld þess- arar þjóðar á komandi tím- um. — VARGAS andstæður Bandaríkjunum, ef hann kæmist til valda á ný. Þetta er m. a- byggt á því, að hann hefir látið þau orð falla, að Bandaríkin hafi verið á bak við það, er honum var steypt af stóli 1945. Það hefir ýtt undir þennan orðróm, að kommúnist- ar hafa látið svo sem þeir styddu Vargas í forsetakosningunum, enda þótt lítil vinátta væri með þeim og honum áður. Líklegt þykir þó, að valdataka Vargas muni ekki hafa neinar breyting ar á utanríkisstefnu Brazilíu í för með sér. Vargas var t. d. fyrir styrjöldina talinn hliðholl ur Mussolini og Hitler, en samt snerist hann gegn þeim og gekk í lið með Bandaríkjunum í styrj öldinni. Kosningasigur Vargas þykir sýna, að stjórn hans á árunum 1930—45 hafi fallið alþýðunni vel og hún hafi því kosið að fá hann aftur sem forustumann. Hins vegar þykir það ekki spá góðu fyrir lýðræðislegum stjórn arháttum í Suður-Ameríku, að tvö stærstu ríkin þar, Argen- tína og Brazilía, hafa valið sér stjórnendur, sem eru einræðis- sinnáhir. Það þykir ekki ólíklegt, að þetta ýti undir einræðis- hyggju í hinum minni ríkjum Suður-Ameríku. -----------------v------------ Raddir nábúanna Mbl. ræðir í forustugrein í gær um innrás kínverskra kommúnista i Tibet: „Engum dylst að kommún- istar eru með þessari nýju of- beldisárás að breiða yfir hrak- farir sínar í Kóreu. Þeim er ljós hinn geysilegi álitshnekk- ir, sem stefna þeirra hefir beð- ið við Kóreuævintýrið. Þann á- litshnekki treysta þeir sér ekki til þess að vinna upp nema með nýrri styrjöld og nýju of- beldi. Þannig leiðir ein ofbeldisár- ásin aðra af sér. 1 þetta skipt- ið er það ekki þátttökuríki Sameinuðu þjóðana, sem á er ráðist. Til þess treysta komm- únistar sér ekki í bili. Þeir hafa séð að hin ungu friðar- samtök mannkynsins eru öfl- ugri og ákveðnari í að verja heimsfriðinn og frelsi þjóð- anna en þeir gerðu sér í hug- arlund. Þess vegna hika þeir í bili við að fremja nýtt ofbeldi gagnvart meðlimum þeirra. En enginn veit, hvenær hin alþjóð legu skemmdaröfl kommúnism ans telja sig orðin nægilega öflug til þess að bjóða Sam- einuðu þjóðunum byrginn. Þess vegna byggist heimsfriðurinn fyrst og fremst á því að hinar frjálsu þjóðir treysti varnir sín ar og séu sem bezt viðbúnar að verja lönd sín og mannrétt- indi“. Innrás kommúnista í Tíbet sýnir, að kommúnistar eru ekki hættir við yfirganginn, þótt þeir hafi beðið ósigur í Kóreu. Honum halda þeir á- fram, unz tekizt hefir að koma á nógu öflugum alþjóða samtökum til aó treysta frið- inn. Stefán Pétursson og fréttastofan Ritstjóri Alþ;ýðublaðsins er öðru hvoru að reyna að láta líta svo út, að hann og flokk- ur hans séu andstæðir íhald- inu. Þetta gengur honum þó mjög erfiðlega, því að alltaf, þegar eitthvað er blakað við íhaldinu, rennur honum blóð ið til skyldunnar og snýst jafn vel fyrr til varnar en ítiaidið sjálft. Glöggt dæmi um þetta er að finna i Alþýðublaðinu í gær. Hér í blaðinu hefir það verið átalið, að dómsmála- ráðherra skuli láta önnur lög gilda fyrir Vetrarklúbbinn en Sjálfstæðishúsið. Mbl. hefir ekkert reynt að verja þetta, enda er það ekki hægt. Ste- fán Pétursson veður hins veg ar fram á ritvöllinn í gær og telur það fyllstu ósvinnu að ætla Vetrarklúbbnum „full- komlega“ sama rétt og Sjálf- stæðishúsinu! Þá er Stefán ekki minna reiöur yfir því, að Tíminn skuli ekki hafa tckið undir ádeilur íhaldsblaðanna á „taumlausan kommúnistaá- róður ríkisútvarpsins^,* Verð- ur ekki annað skilið en Ste- fán álíti, að Tíminn hafi með þessu unnið sér til algerrar óhelgi. í tilefni af þessari ádeilu Stefáns þykir þeim, sem þetta ritar, rétt að taka það fram, að hann hefir ekki orðið var við hinn „taumlausa komm- únistaáróður í útvarpinu“ og hefir hann þó hlustað á fregn ir þessar eins og hver ann- ar, og einnig fylgst með er- lendum fréttum eftir öðrum leiðum alveg á borð við Ste- fán Pétursson. Viðkomandi erlendum fréttum virðist Rík isútvarpið hafa valið sér hina beztu heimild, sem völ er á til að byggja á heiðar- legan og hlutlausan frétta- flutning, en það er brezka útvarpið. Brezka útvarpið hef ir valið sér þá starfsaðferð, eins og beztu ensku blöðin, að segja ekki aðeins frá mál- stað og málflutningi þjóðar sinnar og samherja hennar, heldur einnig frá því, sem and stæðingarnir hafa fram að færa. Brezka útvarpið hefir með þessu síður en svo geng- ið í þjónustu „taumlauss kom múnistaáróðurs,“ heldur verð ur einmitt kommúnistaáróðr inum bezt mætt með því að málin séu lögð heiðarlega og hlutlaust fyrir hlustendur og þeir geti síðan dæmt sjálfir, hvor málstaðurinn sé betri. Hitt gæti orðið kommúni5t- um mikil hjálp, ef annað- hvort væri ekkert sagt frá afstöðu þeirra eða hún rang- tiilkuð, því að slíkt væri merki um ótta við málflutning þeirra. Það er t. d. áreiðan- legt, að blað eins og „The New York Times,“ sem skýr- ir jafnt frá málflutningi and stæðinga og samherja og birt ir t. d. ræöur Vishinskys og Maliks orðréttar, er miklu hættulegri andstæðingur kommúnista en amerísku aft urhaldsblöðin, sem ýmist segja ekkert frá ræðunum eða rangfæra þær. Árásirnar á fréttaflutning Ríkisútvarpsins virðast stafa einna mest af því, að vissir menn þola ekki brezku frétt- irnar. Hinir sömu menn virt- ust hins vegar kunna því vel, þegar áróðursfréttir nazista frá Berlín voru þuldar í út- varpið. Ástæðan er sú, að þessir menn þola ekki frjáls- (Framhald á 6. síðu.) 4 4

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.