Tíminn - 17.11.1950, Qupperneq 6

Tíminn - 17.11.1950, Qupperneq 6
TÍMINN, föstuðaginn 17. nóvember 1950. 257. blað Við maettumst a að morg'ni Bráðfyndin og spennandi f gamanmynd frá 20th Cent- | ury Fox. = Aðalhlutverk: William Egthe, Ilazel Court. Sýnd kl. 9. Þegar köttnrinn er { ekki heima Sýnd kl. 5 og 7. ... ; tripoli-bío| Sími 1182 Græna lyftan (Mustergatte) Aðalhlutverk: Heins Rumann Sýnd kl. 5, 7 og 9. ■nniniiiiiiiiiiiiinmuii iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinnu > r ^ = NYJA BIO Anna og Siams- konungur (Anna and the King of Siam) Hin tilkomumikla stórmynd, eftir samnefndri sögu, sem birtist í styttri þýðingu í tímaritinu Úrval. Aðalhlutverk: Rex Harrison, Irene Dunne, Linda Darnell. Sýnd kl. 5 og 9. Bönnuð innan 12 ára. BÆJARBÍÓ HAFNARFIRÐI Carnegie Hall Hin stórfenglea og ógleyman lega músíkmynd Sýnd kl. 9. Champion Ákaflega spennandi ný amerísk hnefaleikamynd. Sýnd kl. 7. Bönnuð innan 16 ára. ELDURINN gerir ekki boð á undan sér. Þeir, sem eru hyg.gnir, tryggja strax hjá Samvinnutryggingum Nýja fasteigna- ! salan Hafnarstræti 19. Sími 1518 Viðtalstími kl. 10—12, 1—3 og 4—6 virka daga nema iaugardaga kl. 10—12. Fasteigna-, bif- reiða-, skipa- og verðbréfasala Bergur Jónsson | Málaflutningsskrifstofa | Laugaveg 65. Sími 5833. | Heima: Vitastíg 14. Köld borð og heitur matur sendum út um ailan bæ. SÍLD & FISKUR | Austurbæjarbíó Atómnjósnir Bönnuð innan 16 ára Sýnd kl. 9. Úveðnr í Suður- höfum Sýnd kl. 5 og 7. Bönnuð innan 12 ára. iiimii*iiiiiiiiii*iii*iiiiiiiuiiinii*i*-oiii*i(iiiiiiiw«a» TJARNARBÍÓ Ranðii skórnir (The Red Shoes) Hin heimsfræga enska ball- ettmynd eftir ævintýri H. C. Andersen. Aðalhlutverk: Moira Shearer, Anton W'albrook. Sýnd vegna fjölda áskorana, en aðeins í örfá skipti, því að myndin verður send með næsta skipi til Englands. ________Sýnd kl. 5 og 9_____ Aukamynd tekin af Óskari Gíslasyni: Fegurðarsam- keppnin í Tívólí, Flgdagur- inn 1950. Sýnd kl. 5, 7 og 9. ..................... iiimr-Miiim.iiiiiiiiinivuiiio'iM-uiiiiiiiiMManm GAMLA BÍÓ Gimstcinaránið í Mexieo (Mystery in Mexico) Spennandi ný amerísk leyni- lögreglumynd. Aðalhlutverk: William Lundigan, Jacoueline White, Richardo Cortez. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð innan 14 ára. iiiMiiiiiiiuiiiiiiiinmBiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiMMiiiiiuiiaa HAFNARBÍÓ Konan með örið (En kvinnas Ansikte) Efnisrík og hrífandi sænsk stórmynd. Aðalhlutverk: Ingred Bergmann, Tore Svennberg, Anders Henrekson, Georg Rydeberg. Bönnuð innan 12 ára. Sýnd kl. 9. Haltn mér — slepptu mér Hin vinsæla gamanmynd með: Eddie Bracken, Veronica Lake. Sýnd kl. 5 og 7. Raflagnir — Viðgerðir Raftækjaverzlunln LJÓS & HITI h. f. | Laugaveg 79. — Sími 5184 | I Fasteígnasölu h = = miðstoðin I Lækjarg. 10B. Sími 6530 I Annast sölu fastelgna, \ \ skipa, bifreiða o. fl. Enn-1 i fremur alls konar trygging | | ar, svo sem brunatrygging | I ar, innbús-, líftryggingar | | o. fl. í umboði Jóns Finn- | I bogasonar hjá Sjóvátrygg-1 ; ingarfélagi íslands h. f. | | Viðtalstími alla virka daga | \ kl. 10—5, aðra tíma eítlr | I samkomulagi. Guðspekifélagið 75 ára (Framhald af 3. slSu.J Felt, flutti þar fyrirlestur um egyftskar fornleyfar“. . . .Fróð leik sinn hafði fyrirlesarinn náð í með því að grúska í hieróglyfum, og hélt hann því m. a. fram, að Forn-Egyftar hefðu haft vald yfir ýmsum óþekktum öflum og huliðs- verum. „Þetta óvenjulega efni kveikti í áheyrendunum löng un til meiri fróðleiks — enda' voru þetta allt menn, sem1 fengist höfðu við rannsóknir' á dularfullum fyrirbrigðum. I Olcott ofursti var meðal j þeirra (Olcott var í her Banda i ríkjanna en hafði kynnst H. ( P. B. í sambandi við rannsókn á reimleikum, sem taldir voru 1 eiga sér stað á sveitabæ nokkr1 um þar vestra). Stóð hann upp að fyrirlestrinum lokn- um og stakk upp á því, að fengnu leyfi H. P. B., að menn stofnuðu félag til að rannsaka betur þetta og aðra dulræna hluti“. Var því vel tekið og ákveðið að mynda félagið. „Þannig voru ytri tildrög til þess, að Guðspekifélagið var stofnað og var Olcott ofursti kosinn fyrsti forseti þess“. Með þessum línum er að- eins vakin athygli á Guðspeki félaginu með það tvennt fyrir augum: að þeir er vilja vita eitthvað meira fái lítinn veg- vísi til að geta haldið áfram, og í öðru lagi til þess að þakka þeim, er stofnuðu félagið og þeim er haldið hafa starfinu áfram, því að það er víst að guðspekin „hefir veitt þús- undum manna um allan heim hamingju, frið og takmark til að keppa að“. Aðalatriði félagssamtaka þessara er: „að mynda kjarna úr bræðralagi mannkynsins, því að allir menn eru runnir upp frá einni rót“. Guðspekin krefst þess, „að menn dragi sínar ályktanir sjálfir, en láti ekki aðra hugsa fyrir sig, því síður að menn fari blint eftir almennings áliti. Menn verða að kynna sér hana fordómalaust og án fyr- irframsannfæringar. Hún kemur sem aldagömul lífs- speki, sem heimfæra má á ó- tal vegu til viðburða daglegs lífs“. g. b. b. JOHIl KNITTEL: FRUIN A GAMMSSTÖÐUM 157. DAGUR Erlent yfirlit (Framhald af 5. siOu.) nefndir hafa verið sem for- setaefni, eru oftar nefnd- ir en Lodge í seinni tíð. Lodge ætli að vinna ævistarf sitt í öldungadeildinni, eins og afi hans hafi gert. í 111 iti ÞJÓDLEIKHÚSIÐ Föstudag PABBI ★ Laugard kl. 20 PABBI Aðgöngumiðar seldir frá kl. 13,15 til 20.00. Daginn fyr ir sýningardag og sýningar- dag. — Tekið á móti pönt- unum. — Sími 80 000. — Ég hlýt að vera yndisleg mannvera, fyrst ég er mán- uðum saman gerð að umræðuefni allra kvenna í upplandi Bernar. Allt, sem mér er heilagt — allt göfugt, sem kann að finnast í fari mínu, er dregið fram með glóandi töngum, og fleygt fyrir svín. En hvað þýðir að spyrna við broddum? Ekkert. Látið þá misbjóða mér — látið þá fletta mér í sundur og svívirða mig í augsýn allrar þjóðarinnar. Ég er ekki hrædd. Gottfreð skal sanna, að hann hefir ekki steypt sér í þetta hyldýpi fyrir konu, sem ekki kann að þjást.... Von Breitenwyl! Hlífið mér ekki, en notið alla hugkvæmni yðar til þess að bjarga Gottfreð. Þá skal ég verða yður þakklát, þrátt fyrir allt, sem á mig er lagt. LXI. Klukkan sex að morgni annars dags júnímánaðar hringdu kirkjuklukkurnar í Obwyl. Það var gamall siður, að þær gæfu til kynna, að réttur væri settur. Þær voru fimm kirkj uklukkurnar. Tingilí — tang — tong! Tong — tingilí — tang — tong! Tong — tang! Tang! Tong! Tang — tong! Þær ómuðu í nær tíu mínútur. Svo færðist hátíðleg þögn yfir staðinn. Margir lutu höfði og báðust fyrir. Mennirnir tólf, sem skipuðu kviðdóminn, voru þegar á leið til kast- alans. Þeir voru allir í sínum beztu sunnudagafötum. — Guð veri með þeim, sagði Káppeli söðlasmiður, elzti maðurinn í Obwyl. Hann hafði komið út úr vinnustofu sinni til þess að horfa á dómarana. Megi réttlætinu verða fullnægt! Tólf eins og postularnir. .. . — Sjáðu svörtu krákurnar, sem eru á flugi yfir kastalan- um, afi, sagði ung kona, sem stóð fyrir aftan hann. — Það eru tuttugu ár siðan Maria frá Ytraskógi var sýkn- uð, og þá voru dúfur á flugi yfir kastalanum — hvítar dúfur. — Þáð verður gaman að vita, hvaða úrskurð þeir fella, sagði unga konan og virti fyrir sér eirgrænt þak og turn kastalans. Gistihús bæjarins voru fuil af fólki. Alls staðar voru ó- kunnugir menn á ferli. Það var undrunarefni, hvernig allt þetta fólk ætlaði að komast inn í réttarsalinn. Hann var að vísu allstór, því að þetta var gamall hátíðasalur frá riddara- tímunum. Dómararnir voru alllengi að sverja eiða sína. Flestir voru mennirnir búsettir í næstu héruðum — tveir úr Arnardaln- um, tveir frá Túni, tveir frá Innravatni og einn frá Beaten- berg. Enginn þeirra var í tengdum við Gammsstaðafólkið. Forseti réttarins var Jakob von Oberspach yfirdómari. Dómarnir Burkhardt og Niederli voru aukadómarar. Ákær- andi var Gutenberg lögmaður. Kviðdómarnir voru flestir smáborgarar, sem báru hina mestu viröingu fyrir auð og háum embættum, og þeir kusu ríkan kaupmann frá Innra- vatni formann sinn. Teresa hafði vaknað mjög snemma um morguninn. Hún var í nýjum svörtum silkikjól og hafði svartan hatt á höfði og svarta hanzka á höndum. Þegar hún hafði búið sig eins cg henni líkaði, settist hún á bekkinn í klefa sínum og beið þess, að hún yrði sótt. En langur tími leið, og enginn kom. Um hádegisbilið kom von Breytenwyl loks inn til henn- ar. — Góðan daginn, sagði hann. Verið nú kjarkgóð. Viður- eignin hefst klukkan tvö. — Verður Gottfreð látinn sitja við hliðina á mér í réttar- salnum? spurði hún. — Þið munuð bæði sitja á sakborningabekknum, og ég sit bak við ykkur, sagði von Breitenwyl. Við syndararnir verð- um öll í einum hópi. Hún dró andann djúpt og titraði ofurlítið. — Klukkan tvö! tuldraði hún. — Ég skal vera hjá yðuf, sagði verjandinn. Verið óhrædd. — Eruð þér viss um, að Gottfreð verði látinn sitja hjá mér? — Já — alveg viss. — Ég gef yður allt, sem ég á, ef þér fáið hann sýknaðan. — Ég geri það, sem ég get. En ég — er ekki ágjarn. — Ég veit það, sagði hún afsakandi og rétti honum hönd- ina. Ég var ekki að gefa það í skyn. Þér hafið verið eini vin- ur minn þessa mánuði. Hann tók utan um hönd hennar og hélt henni í lófa sér dálitla stund. — Borðið nú dálítið, sagði hann. Og dreypið á víni. Hún hristi höfuðið.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.