Tíminn - 18.11.1950, Side 1
V
Rttstjóri:
Pórarinn Þórarinston
Trttlaritstjóri:
Jón Helgason
Útgejandi:
Tramsóknarjlokkiirinn
Skrijstofur i Edduliúsinu j»
Fréttasimar:
S1302 og 81303
'i
AfgreiOslusími 2323
Auglýsingasimi 81309 V
PrentsmiOjan Edáa
34. árg.
Reykjavík, laugardaginn 18. nóvember 1950.
258. blaj
\
Fjölmennasía flokksbini
Nær fjögur hundruð fuEStrúar
munu sitja þingið, sem stend-
ur fram á næsta miðvlkisdag
Níunda flokksþing Framsóknarmanna var sett að Hótel
Sorg klukkan tvö í gær. Voru þá komnir til þings yfir þrjú
liundruð fuiltrúar, en allmargir komu síðar í gær og nokkrir
voru enn ókomnir í gærkvöldi. Verða fulltrúar í dag væntan-
lega orðnir hátt á fjórða hundrað, og hefir ekkert flokksþing
Framsóknarmanna verið jafn fjölmennt og þetta.
Formaður Framsóknar-
Jlokksins Hermann Jónasson,
setti þingið og tilnefndi fund
arstjóra í gær Jörund Bryn-
jólfsson alþingismann. Síð-
an var skipað í nefndir, og
Sigurvin Einarsson, formaður
kjörbréfanefndar, lýsti fund-
arsókn og fulltrúafjölda úr
liverju héraði.
Klukkan hálf-fimm hóf
Hermann Jónasson, formáð-
-ur flokksins, yfirlitsræðu um
stjórnmálaástandið í landinu.
•en að henni lokinni var fundi
Jrestað fram yfir kvöldmatar
tíma, og hófst fundur síðan
að nýju í Listamannaskálan-
-um, og fóru þá fram almenn-
ar umræður um stjórnmála-
ástand og stj órnmálahorfur í
landinu.
í dag verða nefndarstörf,
hæði árdegis og siðdegis, en
klukkan tiu að morgni vérð-
ur fundur að Hótel Borg, og
Jlytur þá ritari flokksins, Ey-
steinn Jónsson, yfirlitsræðu
um flokksstarfið, blaðaútgáfu
Jlokksins og undanfarnar
kosningar. En að loknu há-
•degishléi verða almennar um-
ræður um ræðu ritara. Verð-
ur framhaldsfundurinn einn-
ig að Hótel Borg.
Radíómiðunarstöð
S.V.Í. á Garðskaga
Kvcimadcildin 1
Iteykjavík bcr allan
kostnað
Formaður Kvennade'ldar
Slysavarnafélags íslands í
Reykjavík frú Guðrún Jónas
son og frú Gróa Pétursdótt:r
varaform. deildárinnar komu
í gær á skrifstofu félagsins
og afhentu f. h. kvennadeild-
arinnar kr. 12.000.00 — til
greiðslu á leigu í 10 ár fyrir
radiomiðunarstöð þá, sem
Slysavarnafélagið hefir ákveð
ið að koma upp á Garðskaga I
í samvinnu við vitamálastjórn !
ina. En það er landsíminn, t
sem leigir félaginu radiomið- j
unarstöðina fyrir ákveðið í
gjald á ári. Kvennadeildin'
mun og greiða allan kostnað I
við uppsetningu tækjanna,1
verður tækjunum komið fyrir
í sérstakri viðbyggingu er vita
málastjórnin lætur reisa við
hús vitavaröarins á Garð-
(Framhald á 2. síðu.)
Myndír frá setnSngu fSekksþingsins
Myndir þessar voru allar teknar á Hótel Borg í gærdag er 9. flokksþing Framsóknarmanna hófst þar. Á myndunum hér að ofan sést yf r hópa
fundarmanna í „Gyllta“ salnum á Hótel Borg, sem er aðalfundarsalur þings’ns. En fundarmenn komust þó ekki fyrir í salnum og voru hliðar-
salirnir inn af honum einnig þétt skipaðir, meöan á fundinum stóð. Meðfram öðrum aðalvegg salarins hafði verið komið fyrir starfsborðum rit-
aranna og flokksstjórnar og fundarstjóra. En fyrir miðju borðinu var ræðustólíinn. Á efstu mvndinni sést fundarsfjórinn JörUndur Brynjólfsson
alþingismaður i ræðustól. En neðri myndirnar eru teknar yfir salinn af fundarmönnum. Á myndinni til vinstri sést Hermann Jónasscn, formaður
flokksins flytja yfirlitsræðu sina. (Guðni Þórðarson tók myndirnar).