Tíminn - 17.12.1950, Síða 1
RtUtjórt:
Þónrtnn Þórarinnom
FrtttarUstjórl t
Jón Helgaton
Útgefandi:
rramtóknarflokkurinn
Strifttofur | Kdduhúrlnu
Fréttasimar:
I1302 og 81303
AfgreiOsluslml 2323
Auglýsingasimi 81308
PrentsmiSjan Sdda
34. árgangur.
Reykjavík, sunnudaginn 17. des. 1950
283. blað
Fer nær helmingur
af sementinu til
einskis?
í viðtali, er ritið íslenzkur
iðnaður birti nýlega við
Harald Ásgeirsson verkfræð
ing, sem annast rannsóknir
á byggingarefni hjá iðnaðar
deild háskólans, er haft eft-
ir honum, að 45% af sem-
enti því, sem notað er tii
bygginga hér, sé sóað til
einskis. Hann segir, að
steypa hér sé yfirleitt lélegri
en hún þyrfti að vera, jafn-
vel þótt sementið sé mjög
sparað.
Hér er snert við efni, sem
marga varðar og alla óbein-
línis, og hljóta þessi um-
mæli verkfræðingsins að
vekja ekki litla athygli.
Nauðsynlegustu vefn-
aðarvörur á frílista
Reynt á þann liátt að bseta nr mestn þörf
heimilanna á þessuni nanðsynja vörnm.
Samkvæmt ákvörðun, sem ríkisstjórnin tók á fundi sínum
í gær, má fastlega vænta þess, að bætt verði í náinni fram-
tíð úr mesta vefnaðarvöruskorti heimilanna.
Sex ára telpa Iend-
ir fyrir bíl og höf-
uðkúpubrotnar
í fyrradag varð sex ára-
telpa, Ingibjörg Helga Júlíus-
dóttir, til heimilis að Skúla-
götu 66 í Reykjavik, fyrir bíl á
móts við húsið Laugaveg 151.
Þetta gerðist klukkan hálf
sjö um kvöldið. Bifreiðin R-
962 var á leið vestur Lauga-
veg, er telpan kom frá nyrðri
gangstéttinni og hljóp yfir
götuna og fyrir bílinn. Bíl-
stjórinn beygði til vinstri og
lenti á húsvegg neðan við
verzlunina Ás, en litla telpan
annað tveggja hljóp á bílinn
eða varð fyrir honum með
þeim afleiðingum, að hún
höfuðkúpubrotnaði.
Hún missti ekki meðvitund
og var flutt í Lanspítalann,
þar sem hún liggur nú.
Rannsóknarlögreglan vill
hafa tal af þeim, sem kynnu
að hafa orðið sjónarvottar að
þessu slysi.
Þjóðleikhúsið sýnir leikinn „Konu ofaukið“ eftir Knud
Sönderbyy í kvöld í síðasla sinn fyrir jói. Allir ættu að sjá
þetta ágætis leikrit og hinn tilkomumikla leik Arndísar
Björnsdóttur I hlutverki frú Tang. Myndin hér að ofan er
af Arndísi Björnsdóttur og Róbert Arnfinnssyni, sem leikur
son hennar, Eirík, af miklum ágætum.
Vetrarhjálpin kveður
dyra hjá bæjarbúum
Vctrarhjálpin cr í þann veginn að taka til starfa í Reykja-
vík. Fyrir henni munu að þessu sinni standa Guðmundur
Vignir Jósepsson lögfræðingur, Jónas B. Jónsson fræðslufull-
trúi og Ragnar Lárusson fátækrafulltrúi. Verður aðsetur
hennar í Heklu við Lækjartorg, og er síminn 80785
72 bciðnir í gær.
Vetrarhjálparinnar er á-
reiðanlega hin fyllsta þörf,
ekki síður nú en áður, og sýn-
ir það meðal annars ástandið,
að þegar í gær bárust 72
beiðnir um hjálp. "
Söfnunin.
Söfnun peninga og fatnað-
ar handa vetrarhjálpinni
mun hefjast eftir helgina.
Munu þá ská'tar fara um bæ-
inn og leita eftir gjöfum, og
Blaðadeilur á ísa-
firði út af tog-
arastrandinu
Miklar deilur eru risnar á
ísafirði út af strandi enska
togarans „Northern Spray“,
er rak þar upp á dögunum.
Blaðið Skutull á ísafirði hef-
ir hafið harðar ádeilur á skip
stjórann á „Maríu Júlíu“ og
hafnsögumanninn á ísafirði
fyrir að fara ekki skipinu til
hjálpar nógu snemma, að því
er blaðið telur..
Erfiðlega gengur að ná skip
inu á flot aftur. Fyrst reyndu
tveir enskir togarar að draga
það út, en síðan „Ægir“. Nú
er búið að taka fiskinn úr
skipinu, og verður enn reynt
að ná því á flot um næsta
stórstraumsflóð.
er þess þá vænzt, að fólk hafi
gjafir sínar tilbúnar, svo að
skátunum verði söfnunin ekki
óeðlilega tafsöm, og svo hitt,
að fólk verði örlátt við snauða
samborgara sína.
Sæbjörg aðstoðar
Vefnaðarvörur á frílista.
Þessi ákvörðun ríkisstjórn-
arinnar er á þá lund, að
nokkrar vefnaðarvörur og
saumavörur verði settar á frí-
lista eða innflutningur á
þeim gefinn frjáls. Vörur
þessar eru hvítt léreft, flónel
hvítt og mislitt, tvisttau,
tvinni, nálar, tölur, smellur
og rennilásar.
Með því að gefa innflutning
þessara vara frjálsan, ætti
að vera tryggt, að nóg verði
flutt inn af þeim vefnaðar-
vörum, sem heimilin vanhag-
ar nú mest um.
Aðrar vörur á frílista.
Áður hafa kornvörur og
sykur verið á frilista, og hafa
bankarnir fullnægt beiðnum
um yfirfærslur, er þeim hafa
borizt vegna þessara vara.
Gjaldeyrisafkoman betri.
Frílistavörurnar hafa nú
verið auknar vegna þess, að
gjaldeyrisafkoman út á við
hefir heldur faiúð batnandi
seinustu mánuðina. Vonir eru
til þess, að bráðlega verði
hægt að bæta við fleiri vör-
um á frílista, ef útflutnings-
atvinnuvegirnir verða ekki
fyrir truflunum af völdum
verkfalla og aflabrögð bregð-
ast ekki. Ef togaraverkfallið
hefði ekki orðið jafn lang-
vinnt, mundi hafa verið hægt
fyrir nokkru að auka verulega
frílistavörum
| Fjárlögin fyrr af-
I greidd en um
langt skeið
I Atkvæðagreiðsla við I
| þriðju umræðu f járlag- ;
] anna fór fram á fundi Sam ]
I einaðs Alþingis í gær og ]
| voru þau að henni lokinni ]
I afgreidd sem lög frá Al- i
| þingi.
Í Þaö er nú orðið alllangt i
Í siðan, að Alþingi hefir af- \
Í greitt f járlög fyrir áramót. ]
I Fjárlög þessa árs voru t. d. f
Í ekki afgreidd frá þinginu i
Í fyrr en 12. maí í vor, f jár- ]
] lögin 1949 voru afgreidd ]
Í17. maí 1949, f járlögin 1948 I
] voru afgreidd 23. marz 1
Í 1948 og f járlögin 1947 voru i
f afgreidd 29. apríl 1947.
Í Nær engar tillögur voru I
Í samþykktar við 3. umræðu ]
] f járlaganna að þessu sinni, ]
Í nema þær, sem f járveit- f
] inganefnd eða ríkisstjórn- |
Í in stóðu að.
] Nánari grein fyrir f jár- |
I lagaafgreiðslunni verður ]
f gerð síðar hér í blaðinu. f
Viðskipti við Pól-
land fyrir 45-50
miljónir
Hinn 15. desember var und
irritaður í Varsjá viðskipta
samningur milli íslands og
Póllands fyrir árið 1951.
Samkvæmt samningi þess-
um er gert ráð fyrir að Pól-
verjar kaupi allt að 50.000
tunnur af saltsíld, 2.000 smá-
lestir af hraðfrystum fiski,
1.000 smálestir af þorskalýsi
og enn fremur brotajárn og
saltaðar gærur.
Frá Póllandi kaupa íslend-
ingar einkum kol, járn og
stál, rúgmjöl, sykur, kartöflu
mjöl, vefnaðarvöru, nokk'uð
af pappír, salti og fleiri vör-
um.
Gert er ráð fyrir, að við-
skiptin geti numið allt að
45—50 millj. króna á hvora
hlið.
Björgunarskipið Sæbjörg
fór í gær til aðstoðar vélbátn- j innflutning á
um Heimakletti frá Reykjavík °g fjölga þeim.
og kom með hann til hafnar.-------------------------
hér *
mSLZ Arekstur í Miðnessjó
! Valur ,e„ti i *-
stöðin væri biluð. I rekstri við útlendan togara 1
Sæbjörg, er var nýkomin Miðnessjó í fyrrinótt, og lask-
til Reykjavíkur til að sækja aðist Valur sv0> að hann
sér eldsneyti og vistir, lét verður að lara 1 sllPP-
begar úr höfn til þess að fara1 .................
bátnum til aðstoðar. En þar ]
um 4 klst. þangað til björg- I Aðalíundur Fram-1
unarskipið væri komið á stað I r Tl "1 =
inn, bauðst b.v. skúii Magnús \ soknarielags KviR-1
son, er var á leið til útlanda,1 ] ° =
til þess að draga Heimaklett 1
áleiðis á móti^ Sæbjörgu til ]
frekari öryggis, en Heima-11 |
klettur dró upp segl og kvaðst I Framsóknarfélag Rej'kja |
geta siglt eða'haldið sér við,, ] vikur hel(1ur aðalfund sinn |
þangað til að Sæbjörg kæmi. ‘ * * ’
ur annað kvöld
Sæbjörg hefir nú aðstoðað
samtals um 50 skip á þessu
ári og sumum þeirra hefir
hún veitt aðstoð við mjög erf
iða aðstöðu, og má þar sér-
staklega nefna 47. bátinn, m.
s. Ernu, er hún sótti suður fyr
ir Reykjanes fimmtudaginn
30. nóvember s. 1., og lenti þá
í hinu mikla fárviðri, sem
skall á þann dag.
; í fundarsajl Edduhússin
| við Lindargötu á morgún, |
] mánudaginn 18. þ. m. kl. ]
] 8,30 síðdegis. Á fundinum ]
I fara fram venjuleg aðal- ;
] fundarstörf og síðan verð- ]
1 ur rætt um félagsstarfið í.j
] framtíðinni.
] Félagsmenn, fjölmennið
] á fundinn og mætið stund
] víslega. ;
Kosið í nýbýlastjórn
og fiskimálanefnd
í gær fóru fram eftirgreind-
ar kosningar í sameinuðu
þingi:
Endurskoðunarmenn lands-
reikninga: Jörundur Brynj-
ólfsson, Jón Pálmason, Sigur-
jón A. Ólafsson.
Fiskimálanefnd: Lúðvík
Kristjánsson, Þórarinn Þór-
arinsson, Sverrir Júlíusson,
Þorleifur Jónsson, Lúðvlk
Jósefsson. Varamenn: Jón
Sigurðsson, Hallgrímur Odds-
son, Jakob Hafstein, Davíð
Ólafsson, Áki Jakobsson.
Nýbýlastjórn: Haukur Jör-
undsson, Steingrímur Stein-
j þórsson, Jón Pálmason, Jón
i Sigurðsson, Ásmundur Sig-
iurðsson. Varamenn: Bjarni
| Ásgeirsson, Þorsteinn Eiríks-
json, Ingólfur Jónsson, Þor-
steinn Þorsteinsson, Tryggvi
Pétursson.
Nefnd til þess að úthluta
listamannalaunum: Þorkell
Jóhannesson, Ingimar Jóns-
son, Þorsteinn Þorsteinsson,
Magnús Kjartansson.