Tíminn - 21.03.1951, Síða 7
67. blað.
TÍMINN. miðvikudaginn 21. marz 1951.
7.
Biinaðarþmg'
(Framhald af 1. síðu.)
tjl þakkarskyldu minnar, þar
sem engum mun Ijósar en
mér, hvað á hefir skort í
starfi mínu á það sem átt
hefði að vera og ég hefði
kosið að væri. En mér var
það mikil hamingja að mega
fylgjast með allt þetta tíma-
bil öllum hinum merkilegu
og margháttuðu störfum fyr-
ir íslenzkan landbúnað, sem
þessi m kilsverðu félagssam- ]
tök hafa innt af hendi. Og
mér, hvað hefir skort í
gleði er ég lít yfir þetta tíma- ]
bil, að geta sannfært mig um ‘
hversu félagssamtök okkar (
hafa eflst og þroskast með,
hverju árinu fyrir vaxandi
samstarf og aukinn félags-
þroski íslenzku bændastétt-
arinnar.
Um leið og ég nú endur-
tek þakkir minar til Búnaðar
þingsins öll þessi ár, vil ég
flytja búnaðarmálastjórum
þeim, sem ég hefi starfað
með þetta tímabil, þakkir
fyrir ágæta samvinnu, svo og
hinum mörgu starfsmönnum
félagsins, sem ég hefi notið
með prýðilegra samskipta. —
Að síðustu vil ég færa þeim
meðstjórnendum mínum.sem
nú hafa verið um langt skeið
þeim Jóni Hannessyni og
Pétri Ottesen, alúðarþakkir
fyrir framúrskarandi gott
og árékstrálaust samstarf
frá fyrstu stund til síöasta
dags.
Vil ég svo enda þessi orð
mín með því, að óska Bún-
aðarfélagi íslands, bænda-
stéttinni íslenzku og íslenzku
þjóðinni allra heilla og guðs
blessunar um ókomin ár.
„Eins og breytt um svip
við fráför hans“.
Þorsteinn Sigurðsson, bóndi
að Vatnsleysu, stóð því næst
upp og- þakkaði Bjarna Ás- 1
geirjssyni af hálfu Búnaðar-;
íélagi íslamds fyrir mikil og
góð störf 1 þágú'búnaðarsam- *
takanna. Hann sagði, að við
brottför hans „væri eins og
breyttl um “sviþ í Búnaðar-:
félagi íslands. En við því
væri ekkert að segja. Bjarni
hefði verið valinn til ann-
arra mikilvægfa trúnaðar-
starfa fyrir þjóð sína, og sann
arlegá sé það ánægjuefni, er
góðir menn -og. glæsilegir úr
bændastétt eru valdir til
Slíks trúnaðar.
Sigurðúr Jónsson, bóndi í
Stafafelli, stóð:því næst upp
og þakkaði Bjarna Ásgeirs-
syni af hálfu fundarmanna
fyrir réttsýna og glögga fund
arstjórn. Árnaði hann Bjarna
allra heilla og blessunar í
framtíðinni og mælti þar fyr
ir hönd allra fundarmanna.
Ályktun búnaðar-
þings ura útflutn-
ing dilkakjöts
Búnaðarþing 1951 skor- i
ar á framleiðsluráð land-i
búnaðarins: ;
1. Að beita sér fyrir því
að komið verði á nimskeiði
fyrir kjötmatsmenn og!
slátrara í landinu, í því
skyni.að tryggja sem bezta;
verkun og samræmi í gæða'
mati dilkakjöís.
2. Að hlutast til um að
framvegis vcrði haldið opn
um þeim erlendu mörkuð-
um fyrir dilkakjöt, sem
hagstæðir ern eða opnast
kunna, eftir því, sem inn-
anlandsástæður leyfa.
3. Að nokkur hluti þess
gjaldeyris, sem fæst fyrir
útfluttar landbúnaðarvör-
ur, verði fenginn bændum
eða verzlunarsamtökum
þeirra í hendur, til frjálsr-
ar ráöstöfunar á skráðu
gengi.
4. Að við verðákvörðun
landbúnaðarafurða verði
séð fyrir þvi, að vörur.sem
seldar verða á erlendum
markaði hærra verði cn
sem svarar gildandi verð-
Iagsgrundvelli, verði ekki
látnar hafa álirif til lækk-
unar á verðlagi þeirra inn-
anlands.
f
(i
Frakklandsforseti
á leið til Ameríku
Auriol Frakklandsforseti
lagði af stað með frönsku
skipi í gær ále ðis til Ameríku,
þar sem hann mun bæði
heimsækja Truman forseta
og forsætisráðherra Kanada.
Er þetta fyrsta opinbera
he'msókn Frakklandsforseta
til Ameríku. Fór forsetinn
með bifreið til hafnar, þar
sem járnbrautarverkfall er í
þe'm héruðum Frakklands.
Htbnilii ~f,ínurnn
Sæmilegur afli hjá
Bíldudalsbátum
Frá fréttaritara Tímans
í Bíldudal.
Hér er nú góður afli, upp í
tíu smálestir á bát í róðri.
Hafa gæftir verið sæmilegar
og afli viðhlítandi síðastlið-
inn hálfan mánuð.
Tveir bátar stunda sjó frá
Bíldudal.
Þjóðnýting olínnnar
staðfest í íran
Efri deild persneska þings-
ins samþykkt í gær einróma
að þjóðnýta olíuvinnsluna og
verða lögin staðfest í dag.
Konungur leidd í gær herlög
í gildi í Teheran og verður
svo í dag. Rólegt var í borg-
nni í gær, en þó hófust nokk
ur ný verkföll. Tal ð er vist
að þjóðnýting olíuvinnslunn
Ur komi til framkvæmda eftir
þrjá mánuði. Franska utan-
rík sráðuneytið telur, að þjóð
nýtingin muni hafa í för með
sér allverulega hækkun olíu-
verðs í Vestur-Evrópu. Þar eru
nú notaðar árlega um 60 millj.
lesta af olíu og kemur um
helmingur þess frá Persíu.
Símaviðgerðarmenn á
ieiö fil Hornafjarðar
Fórii meíS Ármanni í fyrrinótt, og' fSutti
ski(»i3i ciiinig cfni til viðgcrðar
Blaðið átti í gær tal við Hjalta Jónsson, bónda í Hólum
i Hornafirði og spurði hann um samaskemmdirnar þar á
ciögunum og hvort viögerð væri hafin. Sagði hann, að svo
væri ekki, enda væri erfitt um vik vegna sífclldrar snjó-
komu. Er nú kominn meiri snjór á þessum slóðum en dæmi
eru íil lengi og algerlega haglaust, en það er fátítt mjög
á þcssum slóöum.
Lokið er nú aö gera við
símaskemmdir þær, sem urðu
á Almannaskarði og austar
og er símasamband því kom-
ið á við Austfirði.
ísingin 25 sm. að ummáli.
ísingin, sem hlóðst á sima-
línuna milli Hóla og Hafn-
ar á dögunum var víðast um
25 sm. að þvermáli, og er sá
klakahólkur víðast utan um
símalínuna, hvort sem hún
hangir uppi eða ekki. Staur-
arnir sem brotnuðu, þver-
kubbuðust flestir við jörð, og
er bráðabirgðaaðgerö því tal-
in mjög erfið.
Viðgerðamenn auslur
með Ármanni.
Eins og skýrt var frá hér
í blaðinu í gær, var ráðgert,
að viðgerðamenn færu með
flugvél austur, en það hefir
] dregizt að flugveður gæfist,
| og lögöu þeir því af stað með
j vélskipinu Ármanni i fyrri-
“nótt. Flytur Ármann einnig
I eitthvað af efni til viðgerðar.
j Vegir ófærir.,. ........
Vegir austur í Hornafirði
jhafa verið ófærir eftir snjó-
j komuna, en í gær byrjaði ýta
að ryðja af veginum til Hafn-
ar. Fyllti þó þá slóð þegar
aftur, og er tilgangslitið að
ryðja fyrr en snjókomunni
linnir.
Vtíilr Tímans!
Kynnið Tímann kunningj-
um ykkar og nágrönnum, ef
þeir eru ekki lesendur hans.
Útvegið nýja áskrifendur
að TÍMANUM.
Stjðja Spáu iil upp-
fiiku í S. 1*.
Talsmaður brezku stjórn-
arinnar sagði í gær, að Bret-
ar mundu beita sér fyrir því
að styðja það, að Spánn yrði
sem fyrst tekinn í bandalag
Sameinuðu þjóðanna.
Skíðaferðir
frá Ferðaskrifstofu ríkisins
um bænadagana og páskana.
Á fimmtudag og föstudag,
sunnudag og mánudag verð-
ur brottfarartími alla dag-
ana kl. 9,30 til 10 og kl. 13,30.
— Laugardag brottfarartími
kl. 14. — Ekið i Hveradali og
Lækjarbotna.
í morgunferðunum verða
farþegar sóttir í úthverfin á
eftirgreinda staði, eins og
hér segir:
Kl. 9,20 vegamót Kaplaskjóls
og Melavegar. Kl. 9,25 vega-
mót Hringbrautar og Hofs-
vallagötu. Kl. 9,30 vegamót
Fálkagötu og Melavegar. Kl.
9,30 Sunnutorg. Kl. 9,25 vega-
mót Suðurlandsbrautar og
Langholtsvegar. Kl. 9,45 vega
mót Miklubrautar og Löngu-
hlíðar. Kl. 9,30 Sundhöll. KI.
9,40 vegamót Laugarnes- og
Sundlaugarvegar. Kl. 9,50
Hlemmtorg.
í sambandi við ferðirnar
eftir hádegið verða íarþeg-
ar sóttir 20 minútum fyrir
brottfarartíma á eftirgreinda
staði:
Sunnutorg, horn Laugar-
nesvegar og Sundl.v., Hlemm-
torg, horn Miklubrautar o^
Lönguhlíðar, horn Kapla-
skjólsv. og Melavegar og
Hringbrautar og Hofsvalla-
götu.
Fcrðaskrifstofa ríkisins,
simi 1540.
Bifreiðarstjóri
með meiraprófi óskar eftl
fastri atvinnu við fyrirtæfii
úti á landi.
Átta ára reynsla við margs
konar akstur. Einnig vanur
bílaviðgerðum. Meðmæli ef
óskað er. — Æskilegt að húi
næði fylgi.
Tilboð sendist skrifsto
Tímans merkt: „Bilstjóri.“ |
Einnig upplýsingar i sima
80 414.
Stái iðiaaðar f KiidEia*
í París 12. anríi
Franska stjórnin hefir boð
áð 11 fundar utanríkisráð- :
herra þeirra sex Evrópuríkja,1
sem að Schuman-áætluninni j
standa. Hefst fundurinn í
París 12. april og verður rætt I
um framkvæmd áætlunar-
ir.nar.
Rafmagns-
ofnar
229 volt, 925 wött
Kr. 290.00.
Sendum gegri póstkröfu.
Véía- og raftækjaverzhmin
TTýggVagötu 23. Sími 81 279.
MENNINGARTENGSL ÍSLANDS OG RÁÐSTJÓRNARRÍKJANNA:
:
Tónleikar Sovétlistamannanna
verða vegna gífurlegrar aðsóknar og fjölda áskorana endurteknir með nýrri efnisskrá í Austurbæjarbíó kl. 9
í kvöld. — Aðgöngumiðar seldir í Bókabúðum Lárusar Blöndal, Sigfúsar Eymundssonar, Máls og menningar
og Kron 1 dag kl. 1 e. h. —
EVBorgiinliladíð:
Vísír:
Tónlistargagnrýnendur blaðanna segja um fyrstu tónleikana:
Nadeza Kazantzevda er stórbrotin söngkona og býr yfir geysimik-
illi kunnáttu ....... hinna miklu yfirburöa frúarinnar, sem Iistakonu,
sem ræður yfir nær ótakmarkaðri tækni. Var meðferð hennar á söng-
lögunum fram úr skarandi og aríurnar mjög giæsilegar. Er frúin meist-
ari í flúrsöng (koloratur). Hæð raddarinnar mikil og tindrandi og feg-
urð og mýkt hennar mikii, einkum á miðtónunum.
Walter lék ........ með miklurn glæsibrag, hniímiðuðum og hár-
fínum áslætti.
Síðan söng Kazantzevda. Var unun að hlýða á sönginn og fór ekki
á rnilli inála, að þarna var á ferðinni þrautþjálfuð og hámenntuð söngkona.
Walter hóf tónleikana .... kynntumst við honum sem nærfærn-
ura og skapríkum listamanni, öryggi og yfirlætisleysi einkcnnir tækni
hans og í tón hans er þægileg fylling.
Ilm söng Kazantzevdu: Röddin er einstök að fegurð, mild og blæ-
brigðarík og vald söngkonunnar yfir henni slíkt, að furðu vekur.
♦
♦
▼
t
1