Tíminn - 28.04.1951, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttarítstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur í Edduhúsi
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
35. árgangur.
Reykjavík, laugardaginn 28. apríl 1951.
m
94. blaö,
Útburður á Keflavíkurflugvelli
Hvar «ru bæirnir
Fjög’iirra til finmi íminaða i'óslur i’iintltð
þar á vellinum bak vió auðan bragga
Þau tíðindi gerðust á Keflavíkurflugvelli í fyrradag, að
Jtar fannst féstur, sem lagt hafði verið .út á snjóskafl á
i;fviknum stað, og er ekki enn vitað, hvernig þessu víkur við.
Vartn Björn Ingvarsson, fulltrúi sýslumannsins í Gullbringu
«»g Kjósarsýslu að rannsókn málsins í fyrradag og gœr, en
ckkert hefir verið látið uppi um árangur af henni.
Kvikmynd um líf
danskra sjómanna
í stríðinu
Félagið Danmark hér í bæ
efnir til sýningar fyrir félags
menn sína og gesti þeirra
nú í kvöld í Stjörnubíó
klukkan 23 á dönsku
kvikmyndinni: „Stöt stár
den danske sömand‘“, er fjall
ar um örlög sjómanna í Dan-
mörku á stríðsárunum. Sýn-
ingin verður endurtekin fyrir
almenning á sunnudaginn kl.
3 síðd. Mynd þessi hefir ver-
ið sýnd í Danmörku og víð-
ar og hlotið hina beztu dóma.
Bæjarstjórakjöri á
ísafirði frestað
Frá fréttaritara Tímans
a ísafirði.
Bæjarstjörn ísafjarðar hef
ir ákveðið að fresta kjöri nýs
bæjárstjóra, en í þess stað
var sámþykkt að, ráða Pál Guð
mundsson til innheimtu til
bráðabirgða.
Fyrrv. bæjarstjóri, Steinn
Leós, sagði starfinu upp með
sex mánaða fyrirvara.
Loks hefir verið ákveðiö að
leita tilboða um leigu á báð-
um kúabúum bæjarins, að
Seljalandi og Kirkjubóli.
Var í umbúðapappír.
Fóstrið fannst á afvikn-
um stað bak við bragga,
sem er auður, en nú í við-
• gerð, og var umbúðapappír
utan um það. Mun pappír
þessi verða rannsakaður
vandlega, ef hann gæti
gefið einhverjar bending-
ar, sem stuðluðu að því, að
þetta mál upplýsist.
4—5 mánaða
gamalt.
Læknar voru tilkvaddir til
þess að skoða fóstrið, fyrst
þeir Baldur Johnsen og
Árni Björnsson, og síðar Karl
G. Magnússon héraðslæknir
í Keflavík. En síðan var
fóstrið sent rannsóknarstofu
háskólan^ til frekari rann
sóknar.
Samkvæmt mælingum og
athugunum munu læknarnir
telja, að fóstrið sé fjögurra til
! fimm mánaða gamalt, og
ekki nema hálfur til einn sól
arhringur frá því það kom úr
móðurkviði, er það fannst.
Málið í rannsókn.
Þetta óvenjulega mál er nú
í rannsókn. Var Björn Ingvars
son, fulltrúi sýslumanns í
Gullbringu- og Kjósarsýslu
við rannsókn málsins syðra í
fyrradag og gær, en ekkert
hefir verið látið uppi um það,
hvernig árangur sú rannsókn
hefir borið.
Fennti aftur að
skíðaflugvélinni
Á miðvikudagskvöld'ö
brast á stórhríð á Vatna-
jökli, og stóð hún í allan
fyrradag. Fyllti þá aftur
allt, sem Vatnajökulsleið-
angur Loftleiða hafði graf
ið umhverfis skíðaflugvél-
ina.
í gaer var gott veður á
jöklinum, og hófu leiðang-
ursmenn þá uppmokstur á
nýjan leik, og voru þeir
langt komnir við það starí
í gærkvöldi.
í gaer flaug flugvél, sem
Grenivíkurbátar
hæstir í Hafnarfirði
Afli Faxaflóabáta hefir ver
ið ákaflega rýr að undanförnu
Hafnarfjarðarbátar hafa ver
ið með 3—9 skippund i róðri
undanfarna daga. Vertíðin
þar er heldur léleg, það sem
af er, eins og víðast. Hæstu
bátar eru Von frá Grenivík
með 312 smálestir í 51 róðri.
Næstur Vörður frá Grenivík
með 302 lestir i 50 róðrum. —
Hafbjörg 277 lestir í 53 róðr-
um, Sævar, Neskaupstaö, með
275 lestir í 48 róörum og ís-
leifur, Hafnarfirði, 235 lestir
í 53 róðrum.
Skagfirðingar vilja
ráða bygginga-
fulltrúa
Frá fréttaritara Tímans
á Sauðárkróki.
Á aöalfundi Búnaðarsam-
bands Skagfirðinga, sem hald
ínn var nýlega, var samþykkt
að fela stjórn sambandsins
og oddvita sýslunefndar að
ráða byggingafulltrúa tii
starfa í sýslunni, að fengnu
samþykki teiknistofu land-
búnaðarins.
Hjá búnaðarsambandinu
starfa- nú tveir ráðunautar,
Egill Biarnason jarðræktar-
ráöunautur á Uppsölum og
Haraldur Árnason frá Sjávar
borg, sem er nýráðinn bú-
f j árræktarráðunautur.
Allmikið af stórvirkum vél-
(Framhald á 2. síðu.)
Myndin er af Norðfjarðarsveit, tekin úr 600 metra hæð á
annan sumardag. Á myndinni eiga að sjást 11—12 bæir.
Hvar eru þeir? Þeir sýnast eins og steinvölur á órofa-fönn-
inni. (Ljósm.: Björn Björnsson, Neskaupstað).
LEIÐAI\GFR JÓfVS KYÞÓRSSOVÁR:
Fjörutíu daga hörð
útivist á Vatnajökii
„Við vorum fjörutíu daga frá því að við lögðum á jökul-
inn og þar til við komum til Hafnar í IIornafirði“, sagði Jón
Eyþórsson veöurfræðingur .við tíðindamann Tímans i'
gær. „Á þessum tíma voruin við oft hríðartepptir og stund-
um dögum saman, lengst átta daga í grenjandi norðanhrífi
á Köldukvíslarjökli“.
Óhagstætt veður —
ferðast í blindþoku.
— Þótt veðrið væri óhag-
stætt og oft hart, komumst
við, með því að nota hverja
færa stund,. yfir mikið af því,
sem við ætluðum aö gera, en
þó ekki allt, enda hafði ég
varla búist viö því, nema við
yrðum sérstaklega heppnir,
sagði Jón Eyþórsson ennfrem
ur.
Við ferðuðumst mikið í þoku
eftir áttavita og vegmæli.
Gáturn við mælt, þótt þoka
(Framhald á 7. síðu.)
Önnur ráðgáta á Keflavíkurvelli:
Ströng reglugerð,sem takmarkaði
frjálsræði, en reyndist fölsun
í gærmorgun barst út meðal starfsfólk á Keflavíkurflug-
velli fjölrituð reglugerð, þar sem mjög strangar skorður
voru reistar við frjálsræði ýmsra starfsmanna, íslenzkra og
amerískra. Yfirmenn á flugvellinum könnuðust hins vegar
ckki við þessa reglugerð, og enda mun hún hafa verið
fölsuð, þrátt fyrir stimplun, er á henni voru.
varðmaður fylgja hópnum.
Ströng fyrirmæli.
Þessi dularfulla reglugerð
var á ensku, og var þar meö-
al annars kveðið svo á, að
starfsmenn, sem ætluðu til
Reykjavíkur, yrðu að sækja
fór með flutning austur að | um það með þriggja daga fyr
Kirkjubæjarklaustri yfir irvara og fylla út í því skyni
jökulinn eg varpaði niður
til þcirra ýmsu, sem þá
vanhagaði um.
sérstakt eyðublað. Yrðu síðan
allir, er fararleyfi fengju að
fara í einum hópi og myndi
Þar var einnig sagt, að ný
ir lásar yrðu látnir fyrir
bragga, og myndi varðmenn
gæta þeirra og annað eftir
því. Einnig átti samkvæmt
þessu plaggi að banna komur
gesta á völlinn.
Olli óró.
Plögg þessi uppgötvuðust á
borði í gistihúsinu í gærmorg
un, og komust þannig í hend-
ur allmargra af starfsfólkinu
er varð mjög undrandi á þess
um fyrirmælum. Varð nokk-
ur • óró meðal starfsfólksins
af þessum sökum, og munu
ýmsir hafa látið í ljós, að þeir
óskuðu fremur að hætta störf
um en búa við þetta.
Fölsun.
Brátt kom þó á daginn, að
reglugerð þessi var ekki gefin
út af þeim aðilum, sem stimpl
ar bentu til því aö yfirmenn
flugvallarins könnuðust alls
ekki við hana.
(Framhald á 2. síðu.)
Verðlaunakeppni
um skreytingu há-
skólalóðarinnar
Fimm uppdráttum var skil
að í samkeppni þeirri, serr.i
efnt var til um skreytingu ht.
skólalóðarinnar, og hlutu þríi'
verðlaun. Voru þeir geröir ah
myndhöggvurunum Ásmundi
Svelnssyni, sem hlaut fimm
þúsund króna verð-
laun, Guðmundi Einarssyni,
sem hlaut þrjú þúsund krór.i
ur, og Aage Nielsen Edwin,
sem hlaut tvö þúsund krón-
ur.
Uppdráttur Ásmundar
Sveinssonar þótti bezta lausn
in um staðsetningu högg-
mynda á lóöinni og skiptingi
grasreita og gangstíga á efn
hluta hennar. Uppdráttur
Guðmundar Einarssonar
sýndi gott heildarskipulag;
og betri lögun gosbrunns.
í uppdrætti x4age Nielsens
Edwins var mjög skemmtileg;
tillaga um gosbrunn.
í dómnefndinni voru Mati,
hías Þórðarson prófessoi,
Alexander Jóhannesson próf-
essor, Flnnur Jónsson listmá.t
ari, Hörður Bjarnason skipu-
lagsstjóri og Gunnlaugur Hal.t
dórsson arkitekt.
Uppdrættirnir verða al-
menningi tíl sýnis í þjóðminja
safninu frá næsta mánudegt
til föstudags klukkan 5—7.