Tíminn - 10.05.1951, Side 2
2.
TÍMIM, fimmtuÆag'an 13. maí 1351.
132. biiMV.
ÚtvarpÍð
■Útvarpið í dag:
8.30—9.00 Morgurlútvarp. —
10.10 Veðurfregnir. 12.15—13.15
Hádegisútvarp. 15.30 Miðdegis-
útvarp. — 16.25 Veðurfregnir.
19.25 Veðurfregnir. 19.30 Tónleik
ar: Danslög (plötur). 19.40 Les-
in dagskrá næstu viku. 19.45
Auglýsingar. 20.00 Fréttir. 20.30
Dagskrá slysavarnadeildarinn-
ar Ingólfs í Reykjavík. 21.30 Tón
leikar (plötur). 21.35 Dagskrá
Kvenfélagasambands íslands. —
Erindi: Alþjóðasamband há-
skólakvenna (Rannveig Þor-
steinsdóttir alþm.). 22.00 Frétt-
ir og veðurfregnir. 22.10 Sin-
fónískir tónleikar (plötur):
„Sögusinfónía“ eftir Jón Leifs
(Leikhússhljómsveitin í Hels-
inki flytur; Jussi Jalas stjórn-
ar). 23.15 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Sambandskip:
Hvassafell lestar saltfisk fyrir
Vesturlandi. Amarfell lestar
saltfisk á Akranesi. Jökulfell er
á Akureyri.
Ríkisskip:
Hekla er í Reykjavík og fer
þaðan seinni partinn í dag aust
ur um land til Siglufjarðar.
Esja var á Reyðarfirði i gær á
Suðurleið. Herðubreið var á
Grundarfirði í morgun á vest-
urleið. Skjaldbreið fór frá
Reykjavík í gærkvöldi til Skaga
fjarðar- og Eyjafjarðarhafna.
Þyrill er í Reykjavík. Ármann
var í Vestmannaeyjum í gær.
Oddur er í Reykjavík og fer
þaðan í dag með hey til Aust-
urlandsins.
Eimskip:
Brúarfoss er í Reykjavík.
Dettifoss fór frá Alexandria 8.5.
til Hull og London. Fjallfoss er
í Reykjavík. Goðafoss er i Kefla
vík, fer þaðan í kvöld 9.5. til
Akraness og Reykjavíkur. I.agar
foss fór frá Reykjavík 2.5. til
New York. Selfoss fór frá Reykja
vík 7,5. til Norður- og Austur-
landsins. Tröllafoss fór frá Nor-
folk 3.5. til Reykjavíkur. Dux
kom tii Reykjavíkpr 9.5. frá Ham
borg. Hilde kom til Reykjavíkur
9.5. frá Leith. Hans Boye fermir
í Álaborg og Odda í Noregi um
miðjan mai til Reykjavíkur.
Katla fór frá New York 8.5. til
Reykjavíkur. Diibeck fór frá
Hull 8.5. til Reykjavíkur. Teddy
kom til Reykjavíkur 8.5. frá
Kaupmannahöfn. Force fór frá
Hull 3.5. til Reykjavikur.
Flugferðir
Loftleiðir:
í dag er áætlað að fljúga til:
Vestmannaeyja og Akureyrar.
Á morgun er áætlað að fljúga
til: Vestmannaeyja, Akureyrar
og Sauðárkróks.
Úr ýmsum áttum
Frá Hjúkrunarkvennaskóla
Isiands.
Eftirtaldar hjúkrunarkonur
voru brautskráðar úr Hjúkrun-
arkvennaskóla Islands 5. maí
1951:
Aðalheiður Steina Scheving,
Vestmannaeyjum, Ásta Gústafs
dóttir, Vestmannaeyjum, Dag-
björt Guðríður Þórðardóttir,
Flatey á Breiðafirði, Guðlaug
Ágústa Hannesdóttir, Reykja-
vík, Kristbjörg Líney Sigurðar-
dóttir. Heiðarhöfn á Langanesi,
Málfríður Finnsdóttir, Hvilft í
Önundarfirði, Ólafía Margrét
Guðjónsdóttir, ísafirði, Sigrún
Jónatansdóttir, Vestmanna-
eyjum, Sigurborg Helgadóttir,
Unaðsdal í Snæfjallahreppi,
Sigurlín Margrét Gur.narsdótt
ir, Akranesi, Þórdís Todda Guð-
mundsdóttir, Bíldsfelli í Árnes-
sýslu, Þórunn Þorvaldsdóttir,
Skúmsstöðum í Rangárvalla-
sýslu.
Ráðningarstofan.
Eins og kunnggt er, starfar
Ráðningarstofa landbúnaðar-1
ins í Alþýðuhúsinu við Hverfis-!
götu. Hafa nú 88 bændur snúið j
sér til hennar með beiðnir um
útvegun fólks til sumarstarfa.'
En 155 manns hefir leitað til'
hennar um útvegun á atvinnu:
í sveit. Nokkrar ráðningar hafa
verið gerðar. Sími skrifstofunn '
ar er 80088.
Vorar seint.
Ekki er nema vika síðan að
Tjörnin hér í Reykjavík varð
íslaus. Og ennþá blasir við, úr 1
bænum að sjá, stór snjóskafl
niður við fjöruborðið sunnan í
móti í Engéynni við Reykjavík- |
urhöfn. Nær ekkert er farið að'
grænka í görðum í bænum, þó
má sjá aðeins grænlitað í ein- !
staka stað í skjóli sunnan í
móti.
1 dag byrjar 4. vika sumars og
á morgun er lokadagurinn.
Skátaskólinn á Úlfljótsvatni.
Þeir, sem ætla að sækja um
dvöl á skátaskólanum að Úlf-
ljótsvatni í sumar, verða að
hafa látið umsóknir berast til
fræðslufulltrúans í Hafnar-
stræti 20, Reykjavík, fyrir 20.
maí.
Sögusinfónían eftir Jón Leifs
verður flutt í útvarpið í kvöld
kl. 22,10 undir stjórn Jussi Jglas.
Hefir hljómsveitarstjórinn ný-
lega skrifað til íslands og lýst
aðdáun sinni á verkinu, sem
hann telur að eigi mikinn „dul-
búinn kraít að geyma. Um
tengdaföður síns, Sibeliusar, á
verkinu segir hann:
„Sibelius, sem er næstum því
sérfræðingur í sögunum, sagði,
að hann finndi í siníoníunni
einmitt hinar sönnu rætur fs-
lendingasagnanna með þeirra
hafi til heiía
harða búningi og þrótti". —
Siþeliug er talir.n frægasta tón-
skáld núlifandi. — Sögusirtfón-
ían er aðeins til í tveim ai'rit-
um ennþá, og er eitt eintakið
týnt i Englandi.
Ferðafélag íslands
ráðgerir að faca skemmtjför
á Snæfellsnes og Snæfellsnes-
jökul, yfir Hvítasunnuna. Lagt
af stað ki. 2 á laugardae og eklð
vestur að Hamraendum I Breiðu
vík og tjaldað nálægt Stapa-
felli. Gengið á jökuíinn á Hvíta
sunnudag og bá á skíðum, sem
er mikið léctara. Fyrst komið í
sæluhús féiagsins, sem er í
jökulrör.dinn: í 800 metra hæð
og fengið sér hressingu, síðan
gengið á hæstu tinda jökuisins
ef bjart er. Á anr.an hvitasunnn
dag skoðað ýmisiegt markvert
á nesinu, t. d. komið í Söngheiii,
að Stapa, Malarrifi, Búðum og
í Búðahraun. Fólk þarf aS hafa
með sér tjöld, viðíeguútbúngð
og mat. í góðu skyggni er cá-
samlegt útsýni af Snæfeiisjökll.
Komið heim aftur á mánudags-
kvöld. Áskriftarlisti liggur
frammi á skrifstofu Kr. Ó. Skag
fjörðs Túngötu 5, og séu ailir
búnir að taka íarmiða fvrir há-
degi á föstudag.
FELAGSLIF
F.R.Í.—Ármann—F.I.R.R.
Drengjamót Ármanns fer
fram dagana 2.—3. júní n. k.
Keppt verður í eftirtöldum
greinum: 80 m. hl., 4Q0 m hl.,
1500 m hl., 3000 m hl., 1000 m
boðhl., kúluvarpi, spjótkasti,
kringlukasti, sleggjukasti, þrí-
stökki. langstökki, hástökki,
og stangarstökki.
Tílkynningar um þátttöku
sendist til. Bjarna Linnet c/o
Pósthúsinu íyriv 25. moí n.k.
Frj álsíþróttadeíld Ármanns.
Eitt af frumskilyrðum þess, ao sauðfj árbúskapur beri
• -
«1 sig er, aS vandað sé vel til iLflamba á haæstin, en til þess
;! að það sé hægb, er nauðsynlegt að vita mn œtt þeirra.
< Nú er komin út bók til þess að færa í æ'ttirtfg,'aíð'8in“
stakra kinda. SauSíjárbókin er handhæg og.aðgengiieg
«; í'yrir bændur til þess að færa í aiit það helztaysem þéir
•; þurfa að muna um sauðfé sitt. ' "
*; Bókin endist í 1 ár fyrir 620 kindur, eða_i 3 ár fyrir
v rúmlega 200 kxndur, og kosts.r aðeins kr. Í2,00.
Þar sem upplag bókarinnar er mjög takmarkað, er
;* ykkur ráðlagt að panta hana sem allra fyrst.
Ég undirritaður óska hérmeð eítir, að mér ýerði send ;*1
gegn pcstkröfu .... eint. af SauðfjárbókinnL.. ji
■ -•.
Nafn: ...................................EStr :g
Heimili: ............................. Tö-... urh. i
' ...' "-' -- • - V B
Póstafgreiðsla: ......................-.77/.T. J
Uiani.sk.rifi:
SAUÐFJÁRBÓKIN,
Mávahlið’ 39,. Reykjavík,
.Y.V.V.W.V.V.’.V.V.V.V.V.V.V.V.V.W.W.1
iinssccu-
8
::
g
8
Sundhö
•V-
verður framvegis ópin fyrir bæjarbúa, nenta csynd ’B
börn, alian daginn tii ki. 8 siðd. Ósynd börn 'fá' að- H
i::: gang að Sundhöilínni fyrir kí. 8 árdegis og'milli lcl. 4,15
1~ síðdegis til kl. 8.
tftÍMtítf Twahft
Umgengnl utan húss
Enn er mikill klaki í jörðu og erfitt um útivérk af
þeim sökum og jarðvinnsiu er enn óvíða hægt að hefia.
En þótt svo sé, er þó eitt, sem hægt er að goía: að
hreinsa til við bæi og hús. Og þess er alls ekki vanþörf.
★ ★ ★
Það hefir oft áður verið á það minnzt í þessum dálk
um, hvernig víða er útlits í kringum heimili manns,.
Og það er vafalaust ekki vanþörf að gera það einu
sinni enn. Umgengnin utan húss er í fáum orðum sagt
víða um land til stórskammar og hrópandi vitnisburð-
ur um kæruleysi og átakanlegan skort á öllu fegurðar
skyni. Þetta er harður dómur, en hann er sannur,' og
getur hver, sem opin hefir augu sannfært sig um
þetta.
Hér eiga að vísu ekki allir óskilið mál, en þeir, sem
með þessu marki eru brenndir, eru þó undramnrgir,
bæði í sveit og kaupstað. Þeir eru svo margir, að hirðu
leysi i umgengni utan húss verður að teljast þjóðar-
löstur, sem verður að segja stríö á hendur.
★ ★ ★
Stofnun hinna svonefndu fegrunarfélaga eru spor
í þá átt að berjast gegn ósómanum, en þeirra nýtur
ekki enn við, nema í örfáum kaupstöðum. Sveitirnar
hafa enn farið með öllu varhlpta af þeim félagsskap,
og væri þar þó ærið starf fyrir hendi. Við því er ekki
einu sinni að búast, að þar verði stofnuð sérstök fegr-
unarfélög, en ýms félög, sem þar eru fyrir, gætu tekið
þessi mál á stefnuskrá sína og látið að sér kveða á beim
.vettvangi. Mér detta til dæmis í hug ungmennaíélög
og kvenfélög.
★ ★ ★
En hvernig sem þessum málum verður skipað, hlýt-
ur það að verða æ háværari krafa, að betri umgengni
sé gætt utan húss en verið hefir, því að það ástand,
sem rikt hefir víða, er blettur á þjóðmenningu okkar
og alls ekki einkamál eins og sumir kúnna að haida.
J. H.
á Reykjavíkiirfíugvelli verða lokaðar frá hádegti f krnntu
daginn lö. þ. m. vegna jarðarfarar:
I’ÁLS MAGNÚSSONAR, flugro.ans
og
JÓHANNS RIST
7^æ:aK::::.’:::K::;:s!::K!:nH::sK::8Kasc:ccK8»438S8Kœœá<
UUGLÝSING
11311
Bæjarráð hefir ákveöið að stofna til vinnuskóla
fyrir drepgi á aldrinum 13—15 ára og stúlkur 14 og 15
ára. Umsóknir skulu sendar Ráðningarstcfu Reykja-
víkurbæjar Bankastr. 7 fyrir 18. maí n. k. og geíur
hún aliar upplýsingar.
Reykjavík, 8. maí 1951.
Borgarstjórmn i Reykjavík
'.V.V.V.W.VAW.W.W.W.W.'.V.V.V.V.V.VAV.V.W
Vatnsþétt og höggheld
KARLMANNSÚR
KVENÚR
í guUplett og stáli
Sendum gegn póstkröfu
Úra- og skartgripaverzl.
MAGNÚSAR ÁSMUNDS
SONAR & CO.,
Ingólfsstræíi 3.
í
’.VV.V.V.W.W.V.".V.V.V,W,W.WAW.".VAV.V.W
Vinum mínum, einstökum og öllum nær og fjær, sem
sæmdu mig gjöfum, blómum, Ijóðum, heimsóknurn og
heillaskeytum á sextugs-afmæli mínu 26. april. votta.
ég mínar innilegustu hjartans þakkir. — Drofctinn
’olessi ykkur öil og farsæli. .. .
Björgvin Guðmundsson.
»;<■• i wm .—»•<>»