Tíminn - 08.08.1951, Side 5
176. blað.
TÍMIXN, nuftvikudaginn 8. ágúst 1951.
*mt%M
Miðvikud. 8. áffúst
ERLENT YFIRLIT:
Hinn nýkrýndi Beigíukonungur
— cr talinn líkur föðurafa sínum.
Hækkun útsvaranna
Mikla og almenna athygli
hefir ákvörðun Sjálfstæðis-
manna um að hækka aukaát-
svörin um 10%, vakið í bæn-
um. Hefir kent áhyggna og ó-
hugs hjá fjölda manna. Menn
spyrja hvern annan:
Er Reykjavík svo á vegi
stödd, að þessa sé þörf? Hvað
hefir gerst síðan í vetur þeg-
ar útsvörin voru ákveðin, sem
geri þetta að knýjandi nauð-
syn?
Mönnum er í fersku minni
síendurtekin skrif bæjar-
st j órnarmeirihlutans um
framúrskarandi fjármála-
stjórn í höfuðstaðnum. Marg
ir hafa sett traust sitt á þessi
fræði.
En nú efast menn. *
Sjálfstæðismenn létu sér
lengi duga eina milljón króna
til að stjórna hverjum 1000
íbúum í Reykjavík. En nú
þurfa þeir eina og hálfa millj.
til þess. Þetta fer hraðvax-
andi á hvern mann eftir því
sem ibúunum fjölgar. Er þar
merkileg öfugþróun.
En menn undrast mest
hversvegna þeir sáu þetta
ekki strax í vetur. Ekkert hef
ir gerst enn, sem þá var ekki
fyrirsjáanlegt.
Ríkið samdi sín fjárlög fyr
ir áramót. Ekkert bendir til
að illa fari hjá því. Þvert á
móti.
Hversvegna getur Reykja-
vík ekki eins staðið við sín
fjárlög?
Borgarstjórinn segir að dýr
tiðin hafi aukist síðan í des-
ember. En menn vissu það í
desember, að hún myndi auk
ast. Enda játar Mbl. það fyrir
munn borgarstjóra, að vísi-
töluuppbót á föst laun hækki
aðeins um nokkur hundruð
þúsund krónur.
En borgarstj órinn segir, að
3—3,5 millj. af aukaniðurjöfn
uninni fari til gatnagerðar.
Þetta eru að vísu þarfar fram
kvæmdir, en engin bráð nauð
syn. Mesta nauðsyn þjóðar-
heildarinnar, er að beina allri
vinnuorkunni að framleiðslu
verðmæta úr skauti náttúrunn
ar um hábjargræðistímann.
Hitt er alrangt sem Mbl. seg
ir í ritstjórnargrein á laugar-
daginn að fulltrúi Framsókn-
armanna í bæjarstjórninni
vilji eingöngu mæta hækkun
inni með því að draga úr verk
legum framkvæmdum. Hann
benti fyrst og fremst á, að
spara ætti í rekstri bæjarins.
Um þetta er bókuð tillaga í
gerðabók bæjarstjórnar. Er
þessi málsmeðferð Mbl. hlá-
leg og lýsir ekki miklu trausti
á málstað meirihlutans.
Að sjálfsögðu benti fulltrúi
Framsóknarmanna einnig á
sparnaðartillögur nefndarinn
ar frá I vetur, um rekstur
sjúkrahúsa og vistheimila, þar
sem vissum Sjálfstæðismönn
um fannst að mætti spara um
nokkur hundruð þúsund.
Og t. d. á Farsóttarhúsinu
einu um 100 þús. árlega.
En um þetta larigar meiri-
hlutann ekki til að ræða. Og
það er af mörgu fleiru að
taka um ráðdeildarleysi og
eyðslu hjá bæjarstjórnar-
meirihlutanum. Hér í blaðinu
hefir þetta verið rakið og
bent á fyrirhyggjulitla út-
þenslu bæjarins, vafstur í
byggingum, :. bílakostnað.
Það var þröng á þingi í salar
kynnum belgíska þinghússins.
Þar voru samankomnir ráðherr
ar, þingmenn, sendiherrar er-
lendra ríkja og fleira stórmenni.
Klukkan 11 gekk hávaxinn ung
ur maður í salinn. Hann var
einn og gekk hægt og virðulega.
Stór augun á bak við dökk horn
spangagleraugun voru hátið-
leg. Þegar hann kom að hásæt-
inu, er sótt hafði verið upp á
geymsluloft þinghússins og
skreytt að nýju og síðan komið
fyrir andspænis dyrunum, nam
ungi maðurinn staðar. Hann
rétti upp hægri höndina og
mælti: „Ég heiti þvi að virða
stjórnarskrá og lög belgísku
þjóðarinnar og varðveita sjálf-
stæði hennar“. Andartaki síð-
ar, nákvæmlega 120 árum eftir
að Belgía varð sjálfstætt ríki,
sat Baudouin Albert Karl Leo-
pold Axel Marie Gustaf, her-
togi af Brabant, greifi af Hain-
! aut; fimmti konungur Belgíu, í
' hásæti sínu í fyrsta sinn.
Er athöfninni í þinghúsinu
' var lokið, settist hinn ný-
krýndi konungur upp í gljáandi
svartan bíl og ók til konungs-
hallarinnar, en kirkjuklukkur
hringdu og fallbysssudrunur
kváðu við. — Síðar um daginn
kom hann út á hallarsvalirnar
og leyfði um 60 þúsund af þegn
um sínum að hylla sig í ná-
kvæmlega 50 sekúndur. Hvarf
hann þá á braut, og sást ekki
meir þrátt fyrir fagnaðarlæti
fólksins. „Aumingja drengur-
inn, hann hlýtur að vera þreytt
ur“, sagði kona ein í hópnum.
„Hvernig getum við vitað það
ef við fáum ekki einu sinni
að sjá hann“ anzaði önnur.
„Þegar öllu er á botninn hvolft,
krefjumst við ekki mikils af
drengnum“.
Lítils er krafist.
Fáar þjóðir, þar sem konungs
stjórn er enn við líði gera minni
kröfur til þjóðhöfðingja sinna
en belgíska þjóðin. Hún ætl-
ast til þess af konungi sínum,
að hann kunni vel að hegða
sér hverju sinni, sé umburða-
lyndur og virði vel góðar borg-
aralegar hugsjónir. Nær helm-
ingur belgísku þjóðarinnar er
Vallónar. Þeir tala frönsku og
eru flestir á öndverðum meiði
við kirkjuvaldið. Hinn helming
urinn er Flæmingjar, sem búa
í norðurhluta landsins, eru
j skyldir Hollendingum, tala hol-
lenzku (flæmsku) og eru ka-
þólskir. Belgíska þjóðin þarf
þvi á konungi að halda sem ein
ingartákni. Og belgísku konung
arnir hafa löngum vitað, hvað
þeim bar að gera. Afi Baudou-
ins, Albert konungur, var einn
vinsælasti þjóðhöfðingi Evrópu.
En hann gleymdi aldrei þeirri
lexíu, er afi hans og fyrirrenn-
ari hafði lært í reynzlunnar
skóla: 1 Belgíu er ætlast til þess
að konungurinn stjórni án þess
að hann ráði nokkru.
Gleðisnauð æska.
Baudouin konungur er fædd-
ur árið 1930 og er tæplega 21
árs að aldri. Æska hans hefir
verið fremur gleðisnauð. — Eitt
af því fyrsta, er hann man eftir,
er þegar afi hans, Albert kon-
ungur. fórst af slysförum, en
þá var Baudouin 4 ára. Ári síð-
ar fórst móðir hans, Astrid
drottning, sem annáluð var fyr-
ir fegurð og yndisþokka, i bif-
reiðaslysi í Sviss, en Leopold
konungur ók bifreiðinni. — Eft
ir hinn hörmulega dauða drottn
ingarinnar fluttist konungs-
fjölskyldan til Laeken-hallar-
innar ,skammt frá Brússel. Þar
hófu Leopold konungur og móð
ir hans, Elisabeth drottning, á-
samt heilum hópi af barnfóstr-
um, kennslukonum og kennur-
um fyrir alvöru að ala upp til-
vonandi konung landsins, eftir
öllum þeim kúnstarinnar regl-
um, er nauðsynlegar teljast þeg
ar tilvonandi þjóðhöfðingjar
eiga í hlut. — Baudouin ólzt
upp eftir nákvæmri stundaskrá.
Á morgni hverjum fór hann á
fætur kl. 7 ásamt bróður sín-
um og systur. Áður en þau
snæddu morgunverð, buðu þau
ömmu sinni góðan dag og síð-
an urðu þau að gera leikfimis-
æfingar, en það leiddist Bau-
douin óskaplega, einkum gramd
ist honum að systir. hans skyldi
vera fimari en hann. — Þegar
hann var orðinn sjö ára, var far
ið með hann til borgarinnar á
hverjum morgni, þar sem hann
sat yfir lexium sínum í skóla-
stofum, sem höfðu verið sér-
staklega gerðar handa honum
í konungshöllinni. Þegar hann
var átta ára var honum leyft
að gerast skáti, en drengirnir,
sem fengu að vera í hans flokki,
voru vandlega valdir af embætt
ismönnum. Annars fékk iitli
prinsinn ekki að leika sér með
jafnöldrum sínum. Hann var
oftast með einkakennara sín-
um. Gatien du Parc greifa, sem
var strangur og sást aldrei
brosa. — Skemmtilegustu stund
strætisvagna o. s. frv. Hér skal I
til viðbótar, að gefnu tilefni]
Mbl., en bæjarbúum til athug
unar, dregið fram dæmi, sem
lýsir vel sparnaðarandanum
hjá stjórnendum höfuðborgar
innar.
í skattskrá Reykjavikur
1 má lesa um hvað mönnum er
I gert að greiða í skatta til
' ríkis og bæjar. Þar má sjá
ihvað forráðamönnum bæjar-
'ins og aðalstofnana hans, er
!gert að greiða árið 1951. En
samkv. skattskránni eiga eftir
taldir menn að greiða þetta,
1 og eru skattar og útsvar talin
' saman:
Borgarstjórinn kr. 43019.00
Borgarritari kr. 25269.00
Hafnarstjóri kr. 36553.00
ÍRafmagnsstjóri kr. 28020.00
' Hitaveitustjóri kr. 24679.00
Forstjóri strætisv. kr. 44184.00
j Ekki skal dregið í efa að
þetta séu allt mikilhæfir
1 menn og vel vinnandi og þvi
( beri að greiða þeim gott kaup.
En þegar skattar þeirra fara
| upp í 43 til 44 þúsund á ári,
fá menn með venjulegum gáf
^skilið, að spaílega
sé haldið á fé bæjarins í
launagreiðslum til þeirra. Til
þess þarf sérstaka Mbl. hæfi-
leika.
Öllum öðrum mun skiljast
að hægt er að spara víðar en
á verkamönnum. Og menn
spyrja: hvort mun þá ekki
víðar pottar illa hirtir, og að
ýmsir fái aukaskófir, fyrst svo
er með hið græna tréð?
Við rólega yfirvegun munu
flestir mæla, að hækkun út-
svaranna nú. séð neyðarráð-
stöfun. Við skoðanakönnun
myndi mikill meirihluti bæj-
arbúa vera móti henni. En
sé bærinn í fjárþroti og kenn
ingin um góða fjármálastjórn
skrum eitt og skjall, beri að
mæta örðugleikunum með
sparnaði í rekstri bæjarins.
Meiri skattar og álögur verða
ekki inntar af hendi nema
með ýtrustu sjálfsafneitun og
sparnaði skattþegnanna.
Og hversvegna að heimta
sparnað af öðrum. en ekki af
sjálfum sér?
Öll rök virðast mæla með
því, að tillöguna um hækkun
Útsvara eigi að kveða niður.
5.
Baudouin (til hægri)
ir Baudouins voru, þegar hann
fór i sumarfrí með systkinum
sínum. Þau dvöldust þá í litlu
húsi í norðvesturhluta lands-
ins. Fylkisstjórinn þar, Henri
Baels, átti unga og fallega dótt
ur, Liliane, sem kom oft og lék
sér við litlu prinsana og prins-
essuna. Liliane var kát og fjör-
ug og varð brátt eftirlæti barn-
anna. Þau buðu henni að heim-
sækja sig til Laeken-hallarinn-
ar. Þar kynntist hún föður barn
anna, Leopold konungi, og þar
með hófst eitt þeirra konung-
legu ástarævintýra, er einna
mest hefir verið rætt og ritað
um á seinni árum. Því lyktaði
íjórum árum síðar með því að
konungurinn gerði alþýðustúlk
una að prinsessu og kvæntist
henni. — Ekki jók það á vin-
sældir hans í Belgíu. Þjóðin
mundi enn og unni Astrid
drottningu.
Baudouin var níu ára gamall
þegar heimstyrjöldin siðari
braust út. Árið 1940, 18 dögum
eftir að Þjóðverjar gerðu inn-
rásina í Belgiu, gafst faðir hans
upp, og kaus að dveljast i Beigiu
sem fangi Þjóðverja. — í júní
1944, er hersveitir bandamanna
færðust nær, voru liinir kon-
unglegu fangar fluttir til gam-
allar hallar við Elbu og þar
dvöldust þeir í níu mánuði. í
marz 1945 fór Leopold siðan með
fjölskyldu sína til Austurríkis,
en tveimur mánuðum síðar kom
sjöundi bandaríski herinn þang
að, og þar með var fangavist
konungs á enda.
Belgiska þjóðin gat ekki fyrir
gefið konungi sínum að hann
skyldi gefast svo skjótt upp fyr
ir innrásarherjum nazista. Bróð
ir hans, Karl, var gerður að
landsstjóra. Leopold fór til Sviss
með fjölskyldu sína og neitaði
að afsala sér konungdómi.
Leopold afsalar sér völdum.
Baudouin gekk í gagnfræða-
skóla í Genf. Kennurum hans
bar saman um að hann væri
samvizkusamur og iðinn, en
ekki að sama skapi góður náms
maður, nema í stærðfræði. —
Félögum hans í skólanum geðj-
aðist vel að honum. en fannst
hann vera ákaflega feiminn.
Hann gerði aldrei að gamni
sinu, sást aldrei í fylgd með
stúlku. Hann dáði engann
mann eins og föður sinn. — Ár-
ið 1948 fór Baudouin til Banda-
rikjanna í fylgd með föður sin-
um. — Heima í Belgíu var þoft
inmæði stjórnmálaleiðtoganna
á þrotum, því að Leopold neit
aði stöðugt að afsala sér kon-
ungdómi. — Loks náðist þó sam
komulag milli Leopolds og Max
Buset, leiðtoga jafnaðarmanna,
um að Leopold afsalaði sér völd
um í hendur Baudouin, þegar
er hinn ungi sveinn væri nógu
gamall til þess að taka við kon-
ungdómi.
Síðasta árið.
Fáir Belgar sáu krónprinsinn
síðasta árið sem hann vann að
því að búa sig undir að taka
við konungdómi. Á hverjum
morgni, í því nær heilt ár kom
hann til borgarinnar í stórum
svörtum bil, er staðnæmdist við
hallarhliðið, án þess að nokkur
veitti því athygli. Á morgnana
las hann, undirritaði ýmis skjöl
eða tók á móti stórmennum. Um
hádegisbilið hélt hann aftur til
Laeken-hallarinnar. Hann lifði
mjög reglusömu lifi, og skemmti
sér lítið sem ekkert. í samkvæm
um sást hann stundum drekka
glas af víni, en oftast drakk
hann einhverja svaladrykki.
Hann var venjulega kominn i
bólið klukkan 10. — Hann dáð-
ist enn ákafiega að föður sín-
um og var reiður þjóð sinni
fyrir framkomu hennar við
Leopold. Stöku sinnum kom í
ljós, að Baudouin var ekki skap-
laus. Eitt sinn lét hann ráð-
herra, er var and-konungssinni,
standa allan tímann, sem þeir
ræddust við. En þótt hann væri
nú í þann veginn að verða kcn-
ungur, þá virtist faðir hans enn.
líta á hann sem dreng, er'vart
væri vaxinn úr grasi. Einn af
þeim fáu gestum, er til Laeken
hallarinnar komu. segir eítir-
farandi sögu: „1 desember síð-
astl. kom Baudouin eitt sinn of
seint til hádegisverðar. Faðii*
hans hafði látið bíða með maJ,-
inn í 15 mínútur og var orðinn
þungur á brúnina yfir óstund-
vísi sonar síns. Þegar Baudcuin
loks kom móður og másandi
inn i borðsalinn heilsaði hann.
' að hermannasið og sagði: „Þi3
verðið að fyrirgefa mér. Mér
finnst þetta voðalega leiðinlegí.
En ég gat ekki gert að því. Ég
' tafðist, af því að ég þuríti að
taka á móti Acheson, Bevin og
Schuman“. Konugurinn kink-
aði kolli hátiðlegur í bragði og
benti syni sinum að setjast.
Samvizkusamur, einlægur,
gáfaður.
Baudouin hefir nú komið olt
opinberlega fram. Belgískum
ráðherrum og stjórnmáialeið-
togum kemur saman um, a3
hann sé samvizkusamur, ein-
lægur og gáfaður. Jafnvel eixt
óvinur föður hans, jafnaðar-
mannaleiðtoginn Paul Henri
Spaak, er hrifinn af Baudouin.
og telur hann óvenju góðurn
gáfum gæddan. Ýmsir segja aík
hann líkist í ýmsu Albert kon-
ungi, afa sinum, er var ástsæl-
asti konugur, sem belgíska þjóð
in hefir átt.
Sem Ronungur mun Baudou-
in halda áfram að gera skyldu
sína, gera ætíð og ævinlega það,
sem ætlast er til að hann geri,
en ekkert meira. Þegar þar að
kemur, verður ætlast til þess að
hann kvænist, og munu aönr
sjá um að velja fyrir hann kvon
fangið. á sa.ma hátt og aörir
munu skrifa fyrir hann ræöurn.
ar, sem hann ílytur. Ekki mun
ennþá búið að velja handa hon-
um eiginkonu, en 18 ára gömul
belgísk prinsessa, Elisabeth de
Mérode, mun i\afa komio til
greina.
Leopold, faðir Baudouins, fær
eftiriaun, er nema 120 þusund
bandarískum dollurum á ári, og
mun hann sennilega dveijast
áíre n í Beigiu, sem gestur son
ar síns. Og hinn ungi konangur
mun hafa me. -frá fleiri ráögjafa
sér við hlið. — En það vanda-
mál, sem hann verður að sigr-.
ast á af eigin rammleik, er að
vinna hug og hjarta belgísku
þjóðarinnar. Þeir sem málun-
um eru kunnugastir segja, að:
svo virðist sem mörgum sé þeg-
ar orðið hlýtt til hans. 1 mann-
þrönginni á strætum Brússel-.
borgar á krýningardaginn var.
gömul kona, serri heyrðist taufa
um leið og hinn nýkrýndi kon-
ungur ók framhjá í bifreið
sinni: „Auminginn iitli. aleinn
í stóra bílnum sínum“.
Frímerkjaskipti
Sendið mér 104 isienzk frf-
merkl. Ég scndl yður um h»I
200 erlend frimexki.
JON 4GNARB.
Frlmerkjaverzlun,
P. O. Box 350. Reykjavfk