Tíminn - 04.09.1951, Qupperneq 7
198. blað.
TÍMINN, þriðjudaginn 4. september 1951.
7.
Merkileg kvikmynd
Nú í nóvember næstkomandi eru réttir fjórir áratugir síðan
Robcrt Faicon Scott og fjórir félagar hans skildu við sam-
ferðamenn sína, er sneru heim á leið, og héldu áfram suður
ísauðnir Antarktislands'ns í áttina til Suðurpólsins. Þar með
hófst einn hinn átakanlegasti harmleikur í sögu heimsskauta I
rannsóknanna, harmeikur, sem ennþá hrífur hvern, sem'
honum kvnnist, iafnt nú og fyrir fjörutíu árum.
Það þétti ýmsum djarft,
þegar kvikmyndafélagið Eal-
ing Studios í Englandi hófst
handa um það, rétt í stríðs-
lokin 1945, að gera kvikmynd
um suðurskautsle'ðangur
Scotts. Sérstaklega voru ýms
ir þeir, er tekið höfðu þátt í
leiðangrinum, vantrúaðir á
þetta fyrirtæki í fyrstu. En
sú varð þó raunin á, að þegar
þessari kvikmyndagerð lauk,
árið 1948, voru einnig þeir,
er þátt tóku í leiðangrinum
og bezt þekktu til, ásáttir um,
aö hér hefði verið gert lista-
verk, sem fullsæmdi minningu
Scotts. Enda hafði ekkert ver
ið til s])arað. Hinir færustu
og sérfróðustu menn voru með
í ráðurn urn að gera myndina
svo úr garði, að hún gæfi sem
sannasta mynd af leiðangr-
inum og af útliti og skapgerð
leiðangursmanna. Prófessor
Frank Debenham, stofnandi
og fyrrverandi forstjóri Scott
Polar T!.esearch Institute í
Cambritíge, sem er einn af
leiðangursmönnum, hefir rit
að mjög fróðlega grein um
þessa kvikmynd í timaritið
The Polar Record. Segir hann
sig hafa verið, eins og fleiri,
dauftrúaðan á, að slík mynd
gæti orðið velheppnuð, en eft
ir að hafa séð kvikmyndina
er dómur hans, að hún sé al-
veg frábær og gefi furðulega
nákvæma og sanna mynd af
leiðangrinum jafnvel í flestum
smáatriðum. Margar persón-
urnar séu svo likar, að furðu
sæti. (Þess má geta í þessu
sambandi, að þeir, sem hafa
séð son Scotts, Peter Scott,
fuglafræðing, á ferðum hans
hér um land í sumar, munu
fljótt sjá, hversu líkur hon-
um Scott kvjkmyndarhmar
er). Debenham bendir á nokk
ur atriði, þar sem ekki hafi
verið alveg fylgt sannsögu-
legrj viðburðarás. T. d. er í
kvikmyndinni Scott látinn
fi’étta um fyrirætlun Amund-
sens að halda til Suðurskauts
ins, er skip Scotts, Terra Nova,
er að láta úr höfn á Nýja
Sjálandi. Raunverulega var
það mánuði áður, sem Scott
fékk frá Amundsen hið iakón
iska skeyti: „Am going south“,
en Debenham segir, að þeim
Scott og félögum hans hafi
ekki orðið ljóst, að Amundsen
raunverulega ætlaði sér til
Suðurpólsins, fyrr en „Terra
Nova“ af tilviljun rakst þrem
mánuðum síðar á skip Amund
sens „Fram“. En þetta og önn
ur smáatriði breyta í engu
heildardómi um myndina.
Þetta er óefað ein hin allra
merkilegasta mynd, sem hér
hefir verið sýnd. Það er oft
skammazt yfir því, þegar kvik
myndahús hér sýna lélegar
myndir, en því meiri ástæða
er til að mæla með virkilega
góðum myndum, þegar þær
eru sýndar. Kvikmyndin
„Scott of the Antarctic“ er
mynd, sem enginn ætti að
setja sig úr færi að sjá.
Siguröur Þórarinsson.
Þegar þorjiin ....
(Framhald af 4. síðu)
stund til að íhuga hvað „þörf
in prédikar“, eða öllu heldur
hvað minningarnar um trú-
aða menn segja þér, þá er ég
viss um, að þú rnyndir síðan
alla æfi blessa þá tómstund.
Það kostar ekki fé — að biðja
Krist að staðnæmast hjá sér
og „gjöra dásemdarverk“. For
sjálni, dugnaður og áræði —
eru ágætar stoðir til að forð-
ast hrun dýrtíðarára, — og
það er öðru nær en að Krist-
ur veiki þær stoðir þar sem
hann er boðinn velkominn.
En bresti þig áræði til að
ganga í lærisveinahóp hans í
fullri alvöru, er andlegt hrun
fyrir dyrum áður en þig varir.
Reynslan sannar það, og um
það vitna — meðal margra
annara — kristnir Gyðingar
í ísrael, jafnvel á útifundum
í Tel-Aviv.
Anglýsið í Tíinannm
Kappleikir í
Fáskrúðsfirði
Kappleikir fóru fram á
sunnudaginn á milli ung-
mennafélaganna í Stöðvar-
firði og Fáskrúösfirði. Kepptu
stúlkur í handknattleik, en
piltar í knattspyrnu.
Lauk svo, að Stöðvfirðing-
ar unn.u í knattspyrnunni með
þremur mörkum gegn einu,
en Fáskrúðsfirðingar unnu
handknattleikinn með þrem-
ur gegn tveimur.
F«r forsetans
(Framhald af 8. síðu.)
hann að Núpi í Dýrafirði með
viðkomu að Holti í Önundar-
firði. Að Núpi var saman kom
ið margt manna víðsvegar að
úr Vestur-ísafjaröarsýslu og
íorseta búin ágæt veizla. Séra
Eiríkur Eiríksson, skólastjóri
að Núpi, mælti fyrir minni
Rrseta og bauð hann velkom
inn. Séra Sigtryggur Guðlaugs
son sýndi forseta hinn fagra
blóma- og trjágarð Skrúð, er
hann hefir ræktað að Núpi.
Var setiö í góðum fagnaði að
Núpi frá kl. 6 til 11 síðdegis,
ei. þá fór forseti og föruneyti
hans um borð í Ægi, sem lá á
Dýrafirði,
Gerist áskrifendur að
JJímanum
Ásbriftarsími 2323
lÞRÓTTIR
(Framhald af 5. síðu)
Guðmundur Lárusson Á 11,1
sek. B-riðill. 1. Grétar Hin-
riksson Á 11,2 sek. 2. Jafet
Sigurðsson KR 11,3 sek 3.
Ingi Þorsteinsson KR 11,5 sek.
Langstökk: 1. Valdimar
Örnólfsson ÍR 6,63 m. 2. Björn
Berntsen UMFR 6,16 m. 3.
Baldur Alfreösson KR 5,81 m.
Kiúlifvairp: 1. Þorsteinn
Löve ÍR 13,42 m. 2. Ástvaldur
Jcnsson Á 13,29 m. 3. Rúnar
Guðmundsson Vöku 12,75 m.
1500 m hlaup: 1. Stefán
Gunnarsson Á 4:24,0 mín. 2.
Guðjón Jónsson Á 4:28,0 mín.
3. Hilmar Elíasson 4:29,4 mín.
4. Þórir Þorsteinsson Á 4:29,8
mín .
Hástökk: 1. Birgir Helgason
KR 1,76 m. 2. Gunnar Bjarna
son ÍR 1,65 m. 3. Baldur Al-
freðsson KR 1,65 m.
400 m hlaup: 1. Guðmund-
ur Lárusson Á 55,4 sek. 2.
Ingi Þorsteinsson KR 55,5 sek.
Spjótkast: 1. Magnús Guð-
jónsson Á 51,93 m. 2. Þor-
steinn Löve ÍR 50,30 m.
1000 m boðhlaup: 1. A-sveit
Ármanns 1:57,3 mín (nýtt ísl.
met). 2. KR 2:01,0 mín 3. B-
sveit Ármanns 2:13,6 mín.
Söltimin
(Framhald af 1. slðu.)
að fara aö veiða til bræðslu,
auk þess sem eitthvað kann
að veröa fryst, en bræðslu-
síldin gefur mun minna af sér
en saltsíldin.
LÉREFT
ÞJÓÐLEIKHÚSID
„RIGOLETTO4!
eftir G. VERDI.
Hljómssveitarstj. Dr. V. Urbanciö
Lcikstjóri: Simon Edwardsen.
í aðalhlutverkum:
Eva Berg — Stefán íslandi
Guömundur Jónsson.
Sýningar: fimmtudag — föstu-
dag — sunnudag kl. 20.00
Aðgöngumiðasala hefst þriðju
dag kl. 13,15. Tekið á móti pönt
unum. — Sími 80000.
Verð aðgöngumiða frá 35 til
60 krónur.
6 volta
12 volta
32 volta
15, 25, 40, 60 og 100 watta
nýkomnar.
Sendum gegn póstkröfu.
Véla- og raftækjaverzlunin
Tryggvagötu 23. — Sími 81 279
Þorvaldiir Garðar
Kristjánsson
málflutningsskrifstofa,
Bankastræti 12.
Símar 7872 og 81 988.
LÉREFT
Ofangreint merki trygging fyrir, að léreftið er 1. flokks vara og selt fyrir lægsta
markaðsverð.
Hinar miklu verksmiðjur Wild & C. í Torina, er framleiða allar tegundir af lérefti,
og selja framleiðslu sína til flestra landa í Evrópu og Ameríku, hafa veitt firma voru
einkarétt til að annast sölu á framleiðslu sinni hérlendis.
FYKST.V SENDINGIN KOMIN TIL LANDSINS.
Vinsamlegast sendið pantanir yðar sem fyrst, því birgöir eru takmarkaðar.
Þórður Sveinsson & Co.T h.f.
Símar 4491 — 3701
BOSCH hljóðbylgju-þvottatækið
er eitt af síðustu afrekum vísinda og tækni.
B O S C H hljóðbylgu-þvottatækið er sett í venjulegan þvottapott eða bala og þvær
þvottinn þegar cftir að hann hefir verið lagur í bleyti á venjulegan hátt,
eða um leið og hann er soðinn.
B O S C H hljóðbylgju-þvottatækið þvær eins vel og nokkur þvottavél, en sparar pláss
og er ódýrt og reksturskostnaður afar lítill.
B O S C H hljóöbylgju-þvottatrækið slítur ekki þvottinum, eins og hinar eldri gerðir
þvottavéla.
B O S C H hljóðbylgju-þvottatækið kostar KR. 1 300,00 — og ætti því hvert heimili að
geta eignast það. ^
B O S C H hljóðbylgju-þvottatækið er komið á markaðinn.
Pantanir óskast sóttar sem fyrst.
Sendum gegn póstkröfu
LJÓSAFOSS H.F.
RAFTÆKJAVERZLUN OG VINNUSTOFA
Laugaveg 27, Reybjavík
Símar 2303 og 6393