Tíminn - 01.11.1951, Síða 2
2.
TÍMINN, fimmtudaginn 1. nóvember 195Í.
247. blaff.
| Jrá kafi til hetöa
Jjtvarpib
Útvarpið í dag:
Kl. 8,00 Morgunútvarp. — 9,10
Veðuríregnir. 12,10—13,15 Hádeg
isútvarp. 15,30—16,30 Miðdegis-
útvarp. 18,25 Veðurfregnir. 18,30
Dönskukennsla; II. fl. — 19,00
Enskukennsla; I. fl. 19,25 Þing-
fréttir. — Tónleikar. 19,40 Lesin
dagskrá næstu viku. 19,45 Aug-
lýsingar. 20,00 Fréttir. 20,20 ís-
lenzkt mál (Björn Sigfússon há
skólabókavörður). 20,35 Tónleik
ar: Strengjakvartett í a-moll op.
29 eftir Schubert (Björn Ólafs-
son, Josef Felzmann, Jón Sen
og Einar Vigfússon leika). 21,00
Skólaþátturinní Helgi Þorláks-
son kennari). 21,30 Einsöngur:
Mario Lanza syngur (plötur).
21,45 Upplestur: Séra Sigurður
Einarsson les frumort kvæði.
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
22,10 Sinfónískir tónleikar (plöt
ur). 23,05 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Kl. 8,00 Morgunútvarp. — 9,10
Veðurfregnir. 12,10—13,15 Hádeg
isútvarp. 15,30—16,30 Miðdegis-
útvarp. 18,15 Framburðar-
kennsla í dönsku. — 18,25 Veður
fregnir. 18,30 íslenzkukennsla;
I. fl. — 19,00 Þýzkukennsla; II.
fl. 19,25 Þingfréttir. — Tónleik-
ar. 19,45 Auglýsingar. 20,00 Frétt
ir. 20,30 Samfelld kvöldvaka um
Grænland (Gils Guðmundsson
ritstjóri tekur saman efni henn-
ar). 22,00 Fréttir og veðurfregn
ir. 22,10 „Frm á elleftu stund“,
saga eftir Agöthu Christie; III.
(Sverrir Kristjánsson sagnfræð
ihgur). 22,30 Tónleikar (plötur).
23,00 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
Ms. Hvassafell losar koí í Eyja
firði. Ms. Arnarfell fór frá Mal
aga 26. 10. áleiðis til Reykjavík
ur, væntaslegt hingað n. k. laug
ardag. Ms. Jökulfell fór frá Car
denas á Kúbu 29. 10. áleiðis til
New York. •
Eimskip:
Brúarfoss fór frá Gautaborg
29. 10. til Reykjavíkur. Detti-
foss fer frá Patreksfirði siðdegis
í dag 31. 10. til Grundarfjarðar,
Sands og Reykjavíkur. Goða-
íoss kom til Reykjavíkur 28. 10.
frá New York. Gullfoss kom tii
Reykjavíkur 29. 10. frá Leith og
Kaupmannahöfn. Lagarfoss fór
frá Reykjavík 31. 10. til New
York. Reykjafoss er í Hamborg.
Selfoss fór frá Húsavík 26. 10.
til Belfzyl í Hollandi. Tröllafoss
kom til Reykjavíkur 27. 10. frá
Halifax og New York. Bravo kom
til Reykjavíkur 29. 10. frá Hull.
Ríkisskip:
Hekla fer frá Reykjavík í laug
ardaginn vestur um land í hring
ferð. Esja er á Austfjörðum á
suðurleið. Herðubreið er á
Breiðafirði. Skjaldbreið á að
fara frá Reykjavík í dag til
Skagafjarðar og Eyjafjarðar.
Þyrill er á leið til Hollands. Bald
ur átti að fara frá Reykjavík í
gærkveldi til Gilsfjarðar.
Áætlunarferðir
frá Kaupfélagi Árnesinga
Frá og með 1. nóvember 1951
Að leika sér á hjólaskautum
er ekki einungis barnaleikur
heldur einnig mikil íþrótt
frægra fjölleikamanna, sem
ferðast borg úr borg og sýna
Iistir sínar. „Parið“, sem hcr sést,
er meðal hinna frægustu í grein
inni og hafa heillað áhorfendur
í Wembley í haust. Þau heita
Eileen McDonald og Tony
Mirelli.
Flugferdir
Loftleiðir.
I dag verður flogið til Akur-
eyrar og Vestmannaeyja. Á morg
un er áætlað að fljúga til Akur
eyrar, Sauðárkróks, Siglufjarð-
ar og Vestmannaeyja.
Árnað heilla
Hjónabönd.
Ungfrú Þórhildur Guðjónsdótt-
ir, Marðarnúpi og Jón ísberg,
sýslumannsfulitrúi á Blönduósi,
voru gefin saman síðastliðinn
laugardag.
Einnig voru gefin saman á
laugardaginn var ungfrú
Margrét Björnsdóttir frá Mið-
Hópi í Austur-Hún. og Jón
Kristjánsson, Köldukinn, Aust-
ur-Hún.
Trulofun.
Nýlega hafa opinberað trúlof
un sína ungfrú Hólmfríður Hólm
geirsdóttir frá Stafni í Reykja-
dal í S.-Þing., og Sveinbjörn Þ.
Eiglsson, Úlfsbæ í Báröardal.
Úr ýmsum áttum
Gesfur í bænum:
Ágúst Jónsson, bóndi að Hofi
í Vatnsdal. Lætur hann vel af
búskaparhorfum nyrðra. Skepnu
höld góð, en heyfeng segir
Ágúst í lélegra lagi.
Munið fundinn.
Konur í Félagi Framsóknar-
kvenna í Reykjavík eru minnt
ar á að fjölmenna á fundinn í
Aðalstræti 12 í lcvöld.
„Akademían“.
Mörgum fannst það broslegt,
þegar flutt var á alþingi frum
varp um „akademíu", sem átti
að vera málverndarstofnun.
Jón Leifs hefir nú borið fram
þá tillögu, að þessi málvernd
arstofnun verði nefnd
akademi, og beygist orðið eins
og endemi. Mun mörgum þykja
sú tillaga öllu skemmtilegri en
akademiunafnið, en fara við-
líka á þessari fyrirhuguðu
stofnun. Islenzk tunga er ekki
á bláhjarni.
„Heima er bezt“.
Nóvember-hefti „Heima er
bezt“ er komið út. Þar er meðal
annars frásögn gamals Rang-
æings, Sigurbergs Þorbergsson-
ar frá Tjörvastöðum, skráð af
Magnúsi Jóhannssyni í Hafnar
nesi, Hestavísur eftir Benedikt
Gíslason frá Hofteigi, Þegar Jón
Sigurðsson mætti ekki til alþing
is, frásögn eftir Kristján frá
Garðsstöðum, Reykjavíkurþátt-
ur eftir Elías Mar, grein eftir
Óskar Aðalstein um Marthinus
Simson, ljásmyndara á ísafirði,
sem frægur er fyrir skrúðgarð
sinn í Tungudal, en annars þús
und þjalasmiður, Söguleg svaðil
för 1864 eftir Magnús Jóhanns-
son og fleiri frásagnir.
Heimshjálp barna í Kóreu.
„Fjórar systur“ hafa sent
Tímanum 100 krónur til heims- !
hjálpar heimilislausra barna í
Kóreu, sem stofnað hefir verið
til af séra Albertz, verkamála- j
og félagsmálaráðherra í Neðra- 1
Saxlandi. Hefir iiann stofnáð
Konto 3000 í Niedersáchsiche'
Landesbank í Hannover vegna
þessarar hjálparstarfsemi. —'
Hér með kvittast fyrir gjöfina ;
frá „fjórum systrum".
Útvarpsblaðið,
13. tölublað 1. árgangs er kom
ið út. Af efni þess má nefna: ■
Komir þú á Grænlandsgrund,
grein um Grænlandskvöldvöku.
Grein um óskastundina, sagt
er frá þremur leikritum, frásaga
af mikilsverðri símaþjónustu.
Yfirlit er um erlendar útvarps-
stöðvar og loks er svo dagskrá
in myndskreytt að vanda. |
I I
Kennarar við
gagnfræðaskólastigið.
| Eftirtaldir skólastjórar og
kennarar hafa verið skipaðir til
j starfa við skóla gagnfræðastigs
ins í Reykjavík: Ástráður Sigur
1 steindórsson, Adolf Guðmunds-
1 son, Daníel Ágústínusson, Guð-
mundur Þorláksson, Guðrún
Helgadóttir, Gunngeir Péturs-
son, Helga Þórðardóttir, Helgi
Þorláksson, Hjáimar Ólafsson,
Ólafur S. Ólafsson, Sigurður H.
Sigurðsson, Skúli Þórðarson,
Sveinbjörn Sigurjónsson, Hall-
dór Guðjónsson, Kristjana Stein
grímsdóttir, Skarphéðinn Har-
aldsson, Vignir Andrésson,
Andrés Davíðsson, Ólafur H. Ein
arsson, Rögnvaldur Sæmunds-
son, Jón Á. Gissurarson, skóla-
stjóri, Friöbjörn Benónýsson,
Gunnar Bergmann, Lilja Kristj-
ánsdóttir, Þráinn Löve, Árni
Þórðarson, skólastjóri, Jón ís-
leifsson, Kristján Benediktsson
og Ragnar Georgsson.
Settir hafa verið við skóla
gagnfræðastigsins í Reykjavík:
Guðni Jónsson, skólastjóri, Bína
Kristjánsson, Björn Bjarnason,
Sigurður Ingimundarson, Sverr
ir Kristjánsson, Jens Magnús-
‘ son, Jóhann Briem, Björn Þor
steinsson, Haraldur Magnússon,
Óskar Magnússon, Sverrir Arn
grímsson, Jón Jóhannesson,
handav.k., Sólveig Búadóttir,
handav.k., Guðmunda Andrés-
dóttir, teiknik., Karl Guðmunds
son, Finnur Einarsson, Eir.ar
Guðmundsson, Eiríkur Hreinn
Finnbogason, Hildur Knútsdótt
ir, Bjarni Ólafsson, handav.k.,
Guðný Helgadóttir, handav.k.,
og Sigríður Jónsdóttir, handav.k.
t Barnakennarar: Þessir kennar-
, ar hafa verið scttir til eins árs
við barnaskóla Reykjavíkur:
Anna Magnúsdóttir, söngk., Þór
I tfnn Haraldsdóttir, handavtk.,
1 Erla Stefánsdóttir, Jón Árna-
son, Reidar Albertsson og Elín
Vilmundardóttir.
Samþykkt hefir verið að ráða,
samkvæmt tillögum skólastjóra
Miðbæjarskólans, eftirtalda
stunda- og forfallakennara: Jó
hönnu Jóhannsdóttur (söngur).
Rósu Björk Þorbjörnsdóttur og
Aðalheiði Magnúsdóttur.
Verknámsdeildin: í samráði
við menntamálaráðherra og
fræðslumálastj. hefir Magnúsi
Jónssyni námsstjóra verið falið
að hafa á hendi skólastjórn verk
námsdeflda gagnfræðastigsins.
Samþykkt var að ráða eftir-
talda stundakennara: 1 bókleg
um greinum: Rút Halldórsson,
Gest Magnússon, Friðriku Gests (
dóttur og Finn Eiryfsson, er
kennir hluta af kennsluskyldu |
sinni í verknámsdeildum. í verk
legum greinum: Martein Sívert
sen (smíðar) og Svanhvítu Frið
riksdóttur (handavinnu).
RetgUjavíte
Stoteteseyvi
Etjvavfoatetei
Selfoss
Meevmger&i
Frá Stokkseyri kl. 9,45 f. h.
Frá Eyrarbakka kl. 10 f. h.
Frá Selfossi lcl. 10,30 f. h. og kl. 3,30 e. h.
Frá Hveragerði kl. 11 f. h. og kl. 4 e. h.
Frá Reykjavík kl. 9 f. h. og kl. 5,30 e. h.
Flfóíap ferðir — Traísstlr og góðir bílar
Afgreiðsla í Reykjavík hjá Frímanni, Hafnarhúsinu.
— Aígreiðsla austan fjalls í útibúum vorum, og á Sel-
fossi í Ferðaskrifstoíu K. Á.
Kaupfélag Árnesinga
Atvinnuleysisskráning
í Hafnarfirði
Atvinnuleysisskráning samkv. lögum nr. 57, frá 7.
maí 1928, fer fram í Vinnumiðlunarskrifstofu Hafnar-
fjarðar, Vesturgötu 6, dagana 1. og 2. nóvember kl. 10
—12 f.h. og kl. 2—7 e. h. hvorn dag.
Hér með eru allir sjómenn, verkamenn, verkakonur
og iðnaðarfólk hvatt til að mæta til skránnigar og vera
við því búið að gefa nákvæmar upplýsingr um atvinnu
sína, tekjur á árinu, heimilishagi og annað það, er
verða má til að gefa sem gleggsta mynd af atvinnu-
ástandi bæjarbúa og afkomumöguleikum þeirra.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði,
30. nóvember 1951.
Helgi Hannesson.
tnntntn:::::
»»»«>♦•♦*».
♦♦• •»•*»•••<
«♦♦*♦♦«♦??>»♦?♦??
I ■ ■ ■ B ■ I
AUGLÝSING
um umferð í Reykjavík
Samkvæmt ályktun bæjarstjórnar Reykjavíkur frá 18.
f.m., eru bifreiðastöður bannaðar á eftirgreindum
stöðum:
1. Á Vesturgötu meðfram norðurgangstétt, frá Aö-
alstræti að Norðurstíg.
2. Á Vesturgötu meðfram suðurgangstétt, frá Vest-
urgötu 5 að Garðastræti.
3. Á Tryggvagötu meðfram norðurgangstétt, frá
Pósthússtræti að Ægisgötu.
4. Á Hverfisgötu við suðurgangstétt, á þeim stöð-
um, þar sem gatan hefir ekki fulla breidd.
Þetta tilkynnist hér með öllum, er hlut eiga að máli.
Lögreglusíjórinn í Reykjavík, 31. október 1951,
SIGURJÓN SIGURÐSSON.
.■.v.v.v.v.v.v.v.v.v
■ ■ ■ ■ ■ I
Frændj minn
BJARNI DANÍELSSON
málarameistari frá Hellissandi
Andaðist í Landsspítalanum þriðjudaginn 39. október
Fyrir hönd frænda og vina
Kristín Eliníusdóttir.
Gcrlst áskríf cnalur að TÍMANIJM