Tíminn - 30.11.1951, Page 4

Tíminn - 30.11.1951, Page 4
TIMINN, föstudaginn 30. nóvember 1951. 272. blað. «. haldsfélag kastar grímunni í fyrrihluta þessarar grein ar, sem birtist í blaðinu í gær, var sagt frá nokkrum kröfum, sem Fasteignaeigendafélag Reykjavíkur hefir nýlega bor :ið fram. í þeim hluta greinarinnar, sem fer hér á eftir, eru nokkrar af þessum kröfum ræddar nánara .Inni haldi þeirra er lýst í fyrir- sögnum greinarkaflanna og rcéttmæti þeirra síðar gert að umtalsefni í köflunum sjálf- 'um. Fasteignir í Reykjavfk má ekki meta hærra en ennarsstaðar á landinu. Einhver hulinn ótti virðist vera fyrir því hjá félögum Fasteignaeigendafélagsins, að eignir í Reykjavík muni hækka meira en annarsstað- ar á landinu, ef til endurskoð unar kæmi á fasteignamat- inu. _____ Sannast hér hið fornkveðna að slæm samviska kemur ýmsu í Ijós, sem inni fyrir Ibýr. Frumvarp það til Iaga, um endurskoðun fasteignamats- íns, er nú liggur fyrir Alþingi og Fasteignaeigendafélagið er að mótmæla, ákveður hvergi, að fasteignir í Reykja vík skuli hækka meira en ann arsstaðar. En fjárplógsmenn- irnir, sem mestu ráða í Fast- eignaeigendafélaginu vita vel að hús í Reykjavík er mun meira virði fyrir eiganda ainn en sambærilegt hús hvar sem er annarsstaðar á land- inu. Byggingarkostnaður húsa í Reykjavík, er allt að helm- ingi hærri en víðasthvar ann- arsstaðar á landinu, og leiga og söluverð eftir því. Einstaka kaupstaðir komast nokkuð í átt við Reykjavík en engir jafnhátt. Hversvegna snýr Fasteignaeigendafélagið sér ekki að því að reyna að gera húsin hér ódýrari en nú er í staö þess aö einbeita sér að því, að féfletta leigutaka og komast hjá sem mestu af rétt mætum gjöldum til síns sam íélags. Ráöamenn Fasteignaeig endafélagsins muhu vera í hópi þeirra manna, sem mest og bezt reyna að reyta fjár- muni frá hinum dreyföu byggðum. Þeir ættu því að gleðjast yfir því ákvæði um- rædds frumvarps, að allur íasteignaskatturinn skuli renna til þess sveitarfélags, sem fasteignin liggur í. Um það bil helmingur alls fast- eignaverðmætis landsins, mun vera í Reykjavík, og nýtúr Reykjavík þess ein, eft 'ir ákvæðum frumvarpsins. Ég veit vel af biturri reynslu að helst vilja herrarnjr í Fast eignaeigendafélaginu ekkert 'borga til síns bæjarfélags, en þó munu þeir heldur vilja láta aura sína renna í bæjarsjóð en ríkissjóðinn. Vegna húsaleigu- laganna er óréttmætt að íækka fasteignamatið. Fasteignaeigendsifél. heldur þvi fram, að vegna þess að aúsaleiga hafi undanfarin ár '/arla verið fyrir viðhaldi hús anna, þá megi ekki nú hækka :asteignamatið. ?að virðist hlægilegt af fé- "agsmönnum Fasteignaeig- endafélagsins, að neita því, ó láta skattmat fasteigna i na i'ylgja eftir hinum al- í.,.nnu verðlagsbreytingum Eftir Haimes Pálsson frá Uudirfelli í landinu, þegar þeir um langt; skeði hafa barist með hnúum j og hnefum fyrir því, að leig- j an eftir þessar sömu húseign- |ir fylgdi eftir öllum verðlags . breytingum. I Nú hefir þessum herrum' I illu heilli tekist það, að gera! ; húsaleigulögin frá 1943 að | engu. Nær allir leigumálar' húsnæðis eru nú hærri en lagaslitrin frá 1943 leyfa. Enda engir möguleikar aö framfylgja néinum hámarks ákvæðum, þegar öll bindings ákvæöi eru úr lögum felld. En j samræmið í gerðum þessara! manna, er það, að þegar þeir j hafa fengið vilja sínum fram gengt, að eyðileggja öll leigu- ( ákvæði sem halda niðri húsa' leigu, þá neita þeir að greiða j gjöld af fasteignum sínum miðað við hið nýja viöhorf. Þó hafa þessir sömu menn brj ósheilindi til þess að krefj [ ast þess, ef einhver hámarks leiga sé í lögum, þá skuli hún í öllum húsum miðast við kostnaðarverð eins og það er hæst á hverjum tíma. Framkoma þessara mannaj er því í öllum greinum eins og ’ ræningjans sem segir við. vopnlausan vegfaranda „pen ingana eða lífið“. Sanngirni fyrirfinnst engin, því síður snefill af mannúðlegum hugs unum eða réttlætiskennd. Um viðhald húsa á undan- förnum árum þurfa þessir menn ekki að tala, því fæstir þeirra héldu leiguíbúðum nokkuð við. Ef nokkru fé var varið til viðhalds urðu leigu- takarnir að gera það, og þó margar leiguíbúðir hafi drafnað niður, þá munu fýrir framgreiðslurnar, er þessir menn hafa tekið, þegar þeir fengu færi á, fullkomlega vega á móti rýrnun þeirri, er eignir þeirra kunna að hafa orðið fyrir vegna ónógs við- halds. Vegna þeirra eigin í- búða, hefir rangt mat á tekj- um af eigin íbúð, orðið þess valdandi að húseigendur hafa vel flestir sloppið undan öll- um sköttum og útsvari vegna tekna af eigin íbúð. Viðhalds kostnaður (á skattskrá þeirra) hefir orðið meiri en tekjurnar af eigin íbúð. W ; ' .i* Rúsínan í pylsu- endanum. í lok hinnar bráðskemmti- legu ályktunar sinnar segir Fasteignaeigendaf élagið: „Verði fasteignamatiö eitt- hvað hækkað, leggur fundur- inn áherzlu á, að hin ýmsu gjöld, sem miðuð eru við fast eignamat, verði áfram ó- breytt að krónutölu". Þegar allt verðlag í landinu hefir raskast svo, að opinber gjöld almennings eru nær 20 sinnum hærri en 1940, þá koma herrarnir í Fasteignaeig endafélaginu, og kref jast þess að opinber gjöld þeirra af fast eignum verði þau sömu að krónutölu og 1942. Það þarf brjóstheilindi og takmarkaða greind, til að koma með slíkar kröfur fram í dagsljósið. Því gátu nú ekki þessir menn látið sér nægja að hvísla þessu að fulltrúum sínum á Alþingi. Þeir háu herrar, hefðu kunnað að fela hinn raunverulega tilgang. Það fer að minnsta kosti illa á því fyrir Fasteignaeigenda- félagið, að koma með slíkar kröfur opinberlega, á sama tíma og þeir láta fulltrúa sína krefjast þess, að öll leiga eftir húseignir, fylgi fast eftir hinu hækkandi verðlagi og hækkandi krónutölu. Hvert er mat fast- eigna nú? Gildandi fasteignamat er miðað við verðlagsgrundvöll frá árunum 1933—1940. Fyrsta flokks íbúðarhús í Reykjavík er metið til fasteignamats í kring um 42 kr. hver tenings- metir. Kostnaðarverð húsa á árinu 1950 mun hafa verið í kring um kr. 500 hver teningsmetir, og á árinu 1951 er talið að kostnaðarverð íbúðarhúsa í Reykjavík verði 650—700 kr. Söluverð húsa í Reykjavík hef ir um 10 ára skeið verið mun hærra en kostnaðarverð. Öll ný hús eru metin á sama verði og 1942 eða kr. 42 hver ten- ingsmeter. Það skal þurfa kjark til að halda því blákallt fram, að maður sem byggir hús fyrir 400 þús. krónur og hefir í ársleigu eftir það meira en 40 þúsund krónur, skuli ekkj telja þetta hús til eignar nema ca. 30 þúsund krónur. Samkvæmt núgild- andi fasteignamati, yrði íbúð arhús í Reykjavík, sem kostar í ár um 400 þúsund krónur ekki metið að fasteignamati nema tæpar 30 þúsundir. Hámarksleiga í lögum mið- ast við 10% af kostnaðarverði og verður því ársleigan ein- um fjórða hærri en sjálf eign in er talin til skatts. Þetta er grundvöllurinn, sem Fast- eignaeigendafélag Reykjavík ur vill hafa fyrir útsvars- og skattaálagningu. Læt ég svo þjóðinni eftir, að fella dóm sinn um skoðan- ir þessara herra. Islendingaþættii' «,, (Framhald af 3. síðui áð hæíilegt erfiði og frjálsræði er bezti uppalandinn. Börn hans sýna, að Stefán hafði á réttu að standa. Öllum, sem kunnugir voru Mýraheimili og þeir voru margir, er minnisstæður sá andi góðvildar og gestrisni, sem þar ríkti. Vitanlega áttu húsfreyj- urnar í því sinn ríka þátt. Ábúðarjörð Stefáns ber marg ar minjar atorku hans. íbúðar- hús og peningshús byggði hann og bætti jörðina á marga lund. Stefán andaðist 17. janúar s. 1. á heimili Einars sonar síns að Egilsstöðum. Jarðarför hans var gerð með mikilli rausn frá Mýrum 24. sama mánaðar. Þar flutti Friðrik Jónsson, oddviti á Þorvaldsstöðum, vel valin kveðju orð frá sveitungum hins látna. Marinó Kristinsson prestur á Valþjófsstað jarðsöng. Margt var þar venzlamanna og ungra og gamalla samferðamanna Stefáns, sem óskuðu að kveðja hann í hinzta sinn. Gengin var misveðrasöm ævi, vonbrigði og sorgir höfðu ekki sneitt af vegi Stefáns, en líf hans var ríkara af starfi og starfsgleði, vinar og hjálpsemdarhug og sígleði eljumannsins, sem sér verk sín bera ávöxt og sjálft lífsstarfið borið áfram af nýjum kröftum. Slíkir menn eru ungir til hinztu stundar, slíkir menn bera þjóð sína fram á veg þroska og mann dóms. Gilsárteigi, 1. sept. 1951. Sigurbjörn Snjólfsson. Borgari hefir kvatt sér hljóðs í tilefni af því, sem ég sagði um væntanleg forsetaefni á sunnu- daginn var: „Starkaður minn! Það er rétt, sem þú segir í þætti þínum í dag (25. nóv.), að manna á meðal er mikið rætt um, hver erfa muni forsetatign íslands, ef núverandi forseti léti af em- bætti. Ýmsar getgátur eru uppi og bollaleggingar. Þú nefnir ýms nöfn í sam- bandi við virðulegasta embætti lands okkar. Meðal annarra, skelegga pólitíkusa og þekkta bitlingamenn. En nú skal ég segja þér eitt, Starkaður minn. Að áliti fólksins koma slíkir menn ekki til greina í það em- bætti. Þjóðin öll verður að vera einhuga og sameinuð um for- setaefni okkar, en það verður hún aldrei, ef harðsvíraðir fiokksbundnir stjórnmálamenn setjast í þann heiðurssess. í þá stöðu á að velja ópólitískan menntamann, sem verður þjóð okkar til sóma innanlands sem utan. Þú segir, að Thorsararnir muni hafa hug á að hremma stöðuna. En fólki finnst sú ætt ^ vera orðin óhugnanlega voldug! í fjármála- og stjórnmálalífi. þjóðarinnar. Hún hefir sannar- i lega skarað eld að sinni köku j og vinnur vel og dyggilega að því ennþá. — Þó aðallega bak- við tjöldin. Vilji þjóðarinnar á að ráða, þegar að því kemur að kjósa á nýjan íorseta. Pólitískar hags- munaklíkur eiga ekki að hafa forsetaembættið að leikfangi, sem sá hreppir, er hæst býður.“ Svo er hér kominn Rangæing- ingur, er vill leggja orð í belg i tilefni af fuglafriðunarfrum- varpinu: „Komdu sæll, Starkaður minn! Ég er Lýtingur Jónsson bóndi á Lýtingsstöðum í Holt- um. Langt að kominn til að fá að taka þátt í hjalinu í bað- stofunni þinni, en þar er margt gott og þarft til umræðu, eins og vænta má í baðstofu hjá fyr- irmyndarbónda. Það hefir ýmislegt verið rætt þarna í baðstofunni um fugla og fuglafriðun, en það er ein- mitt urn fugla og fuglafriðun. sem ég vil tala hér. Ég er nú ekki vanur að sýna mig mikið á opinberum vettvangi, enda kom inn hér í baðstofuna þína i fyrsta sinn. Það er ill nauðsyn, er rak mig þangað. Ég vil nefni lega hafa frið á mínu landi, (sem er allt Lýtingsstaðaland) fyrir mig og mína fugla, og allt annað, sem því landi, og mér tilheyrir. Þetta vil ég tjá öllum ágengnum og ósiðvöndum lýð, sem verður hér eftir á ferð. 1 liaust hefir orðið ofurlítið vart við rjúpur, en þeirra hefir lítið gætt s.l. ár. Rjúpan var því sérstaklega kær gestur núna, öllum þeim, sem unna ríki friðarins og náttúrunni og er yndi að því að sjá jörð prýdda fögru friðsælu dýralífi. Fyrir allmörgum árum tókst nokkr- um ógæfusömum, og ég vil segja fávísum mönnum, að inn leiða plágur í þetta land. Þar á meðal dýr, sem heitir minkur. Hann gerir margvíslegt og ó- bætanlegt tjón í dýrarikinu okk ar, eins og frægt er orðið. Mink urinn fær líka, sem vönlegt er, kaldar viðtökur og er drepinn án dóms og laga, og gott í ber- högg við hann að ganga þess- vegna. En svo er önnur plága, að ýmsu verri viðureignar en m'nkurinn. Það er mannskepn- an, brjáluð af drápfýsn og eig- ingirni, vaðandi alls staðar y£- ir iönd manna og troðandi nið- ur í skarnið helgan rétt, sem heitir eignarréttur Þessir þckkapiltar laumast í kringum býli bændanna, ekki sízt á sunnudögum, jafnvel meðan hámessa stendur yfir í kirkjunum, keppast þeir við að limlesta og myrða fugla, sem eru undir friðhelgi landeigenda. Það er ekki óalgengt, að þessir blóðugú „sportmenn" séu skríð andi á maganum heim við tún- garða, ef þeir sjá sér færi að ná þessum fuglum, sem við margt fullorðna fólkið gleðjumst, eins og börn, að hafa að nágrönnum og landprýöi. s***m**m*i« Ég skora hérmeð á alla, sem unna friði í ríki náttúrunar að reka þessar mannfýlur af hönd um sér með því að draga þá fyrir lög og rétt, ef þeir láta sér ekki segjast við annað. Einn ig heiti ég á alla góða og siðaða menn, að stuðla að því, að ströng lagafyrirmæli megi verða til, sem skapi öllum mein- lausum dýrum skýlausa írið- helgi alla helga tlaga ársins. Ég þekki nokkrar farandskytt ur og veiöiþjófa, sem verið hafa að verki á landi mínu, og bið að heilsa þeim, án kærleika. Ég hef áhúga fyrir að hitta þá að máli nánar, ef þeir ætla að vera hér að skotæfingum fram- vegis. Þótt þeir kunni að bera sig borginmannlega, og jafnvel sumir að hafa saumnálar að aukavopni, þá stendur mér eng in ógn af því, og teldi það á- nægju mína að geta látið þá standa fyrir máli sínu við rétt- arhöld." Lýtiíigur hefir lokið máli sínu og lýkur þar með umræðum í baðstofunni að sinni. Starkaður. i FYRIRLIGGJANDI: f vatnskassaelement í jeppa. Önnumst viðgerðir á alls ltonar vatnskössum. Einnig nýsmíði og viðgerðir á benzíngeymum og hljóð- deyfurum bifreiða og annarra ökutækja. Framleiðum þakrennur og rör, einnig þakglugga. Sent um allt land gegn póstkröfu. Blikksmiðjan Grettir Brautarholti 24. Símar 2406 og 7529. Áskriftarsími Tímans er 2323

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.