Tíminn - 20.12.1951, Síða 8

Tíminn - 20.12.1951, Síða 8
85. árgangur. Reykjavík, 20. desember 1951. 289. blað. Vinnuvetlingar með tvöföldu slitþoli Ríý ofni. sem gera vefnaíSarvöru vatns- og rykheltla og mikSn endlngarhetri Nýlega er fundin upp efnafræðileg aðferð til að auka veruleea tlitþol vefnaðarvöru. og er hér á ferðinni nýjung, sem getur haft mikla hagkvæma þýðingu fyrir atvinnulífið í landinu. Vinnu- heimilið að Reykjalundi hefir þcgar gert tiiraunir mcð þessa nýju framleiðslu varðandi vinnuvetiinga. Ný skáldsaga eftir séra Friðrik komin Sjómannastofan býður í jólafagnað Sjómannastofan Tryggva- götu 6 Reykjavík efnir til jóla- fagnaðar á aðfangadag kl. 4 siðdegis, og er hann að sjálf- sögðu helzt ætlaður innlendum og erlendum sjómönnum, sem hér verða staddir um jólin, en eru einhleypir og eiga hér ekki athvarf á *heimilum vina eða kunningja. Þessa menn býður sjómannastofan sérstaklega vel komna á jólafagnað sinn. Afvopnunamefndin kosin í gær Á allsherjarþinginu í gær var kosin nefnd til að undirbúa til- lögur og ráðstefnu um afvopn- unarmál. í nefndinni eiga sæti tólf lönd, hin sömu og eru í öryggisráðinu og auk þess Kan- ada. Nefndin á að hafa lokið athugunum sínum og tillögum fyrir 1. júní í sumar og leggja þær þá fram fyrir Sameinuðu þjóðirnar. Tillaga Rússa um að banna nú þegar kjarnorkuvopn var felld meö 44 atkv. gegn 5. Samþykkt stofnnn iðnaðarbanka Frumvarp um iðnaðarbanka var afgreitt sem lög frá Alþingi í fyrrinótt. Samkvæmt lögun- tnn eru stofnendur hans ein- staklingar og ríki. Ríkið á að leggja fram 3 milljónir í hluta- fé en samtök iðnaðarmanna og iðnrekenda 6 millj. Auk þess eiga einstaklingar að leggja fram fé. Bankinn gerir ráð fyrii að afla sér veltufjár með því að ávaxta sparifé að öðru leyti. Það er annars þýzkur mað- ur, sem er höfundurinn að þess ari merku nýjung. Hefir hann fundið upp efni til að gegn- bleyta með vefnaðarvöru með þeim árangri, sem fyrr greinir. Ennfremur hefir hann fundið upp annað efni til að gera vefn að pannig úr garði,. að hann brennur ekki. Bæði þessi efni eru nú not jð í ríkum mæli víða um Evrópu, ekki sizt í fatnað og útbúnað hermanna. Mjúkt og þjáit sem áður. Þetta nýja efni, sem framleitt er í Danmörk og flutt hingað þaðan, nefnist tripplón. Er nú verið að vinna að því að útbúa 20 þúsund pör af vinnuvetling- um frá Reykjalundi. Halda þeir öllum sínum fyrri eiginleikum. þótt þessu efni sé bætt í þá og eru jafn mjúkir og þjálir sem áöur. Vottorð frá sjómönnum. Að undanförnu hefir vinnu- heimilið að Reykjalundi látið reyna þessa nýju vettlinga i hinum ýmsu starfsgreinum hér á landi. Hafa togarasjómenn lagt framj vottorð um, að vett- lingarnir endist helmingi leng- ur við vinnu á þilfari en hinar eldri gerðir. Smiðir hæla og mjög þessum nýju vettlingum, og segja þá heppilega til vinnu í misjöfnu veðri, þar sem þeir hrinda frá sér vatni. En vefnað- ur, sem efni þetta er notað í, hefir ennfremur þá eiginleika að hrinda frá sér vatni og er vatnshelt, þótt það vökni nokk- uð, en auk þess rykhelt og ör- uggt fyrir ágangi möls. I.ítið eitt dýrari. Vettlingar, sem gerðir eru úr garði með þetta nýja undraefni, verða 12—15% dýrari en venju- legir vinnuvetlingar. Er mikill sparnaður að notkun þeirra engu að síður. Síðar meir verður sjálfsagt hafin framleiðsla á fleiri teg- undum fatnaðar úr þessu efni, t.d. leikföturji barna, algengum I vinnufatnaði og jafnve,! spari- j k’.æðnaði. Erlendis hafa mörg I skipafélög látið setja þetta efni í i rúmfatnað til að auka slitþol . hans. •Hamborg gefur íslandi 10 smálestir af eplum Voírarhjáljiin fær eplin til íilhlutuuar þcim, sem nii njóta hjálpar liennar Borgarstjórn Hamborgar hefir gefið íslandi 10 smálestir af eplum, og er sending þessi, sem hingað kom með Brúar- fossi í fyrradag, hát$ á fimmta hundrað kassar. Maður hverfur af vél- bát á Reykjavíkurhöfn Síðastliðinn laugavdag livarf Kjartan Guðmundsson, maður íúmtega hálf-fimmtugur, heimilisfastur á ísafirði, af vélbátn- um Hafborgu, þar sem hún lá við Ægisgarð í Reykjavík. Sást hann um þrjúleytið liggjandi í rúmi, en var saknað nokkrum klukku- tímum síðar. Fékk að sofa í skipinu. Kjartan hafð’i verið á Haf- borgu á Grænlvndsmiðum í þar eð lvann átti engan sama- stað í iandi. Siðan á laugardag hefir ekki til Kjartans spurzt, og eru mikl sumar, og eftir aí? skipið kom ar líkur til þess, að hann hafi heim hafði hann, ásamt fleiri j drukknað í höfninni, þótt ekki mönnum, fengið að sofa í því, | hafi lík hans fundizt. Séra Friðrik Friðriksson er sá íslenzkur æskulýðsleiðtogi, sem skarað hefir svo greinilega fram úr öllum, að fyrirmynd hans að göfugu starfi í þágu íslenzkrar og raunar einnig danskrar æsku verður ævarandi leiðarljós þeirra, sem vilja æskunni vel. Séra Friðrik hefir haft var- anleg áhrif til góðs á þúsund- ir æskumanna í þessu landi og allir sem honum hafa kynnzt, eiga honum eitthvað að þakka. Það er því mikill fengur að því, að bókaútgáfan Lilja hefir gef- ið út eina af hans fegurstu skáldsögum, sem hann nefnir Drengurinn frá Skern, og gefið hér með íleirum tækifæri til að kynnast nokkrum sjónarmiðum þessa göfuga kennimanns. Áður hefir sama bókaútgáfa gefið út sögur hans Sölva og Söguna af Hermundi Jarlssyni. Hinir miklu rithöfundarhæfi- lekiar séra Friðrlks hafa um of fallið í skuggann, vegna þeirra miklu ítaka, sem æskulýðsleið- toginn séra Friðrik Friðriksson á í þjóðinni. En hollari og betri lestur en þessar bækur séra Frið riks er vart hægt að hugsa sér, jafnframt því, sem þær eru af- burða skemmtilegar og við- búrðaríkar, og skrifaðar á fag- urri og þróttmikilli íslenzku. Gjöf þessi er gefin í þakk- lætisskyni fyrir margháttaða hjálp, sem íslendingar hafa veitt bágstöddum Þjóðverj- um eftir ófriðarlokin. Til vetrarhjálparinnar. Ríkisstj órnin hefir nú ráð- stað þessari góðu gjöf til göð gerðarstarfsemi og vetrar- njáíþar víðs vegar um land. Úthlutun í Skáta- heimilinu. Hjá vetrarhjálpinni í Reykjavík hefir blaðið feng- ið þær upplýsingar, að hún hafi'ákveðið að'úthluta epl- unum í Skátaheimilinu við Snorrabraut á sunnudaginn kemur til þeirra, sem fengið hafa aðstoð frá vetrarhjálp- inni, og verður nánari tilhög un úthlutunarinnar auglýst síðar. Vetrarhjálpin vill þó nú þegar minna fólk á það, að það verður að koma með um fcúðir utan um eplin, poka eða tösku. Fer bókasafn Þor- steins M. Jónssonar til Kennar askóla ns? Meðal viðbótartillagna fjár- veitinganefndar er heimild til handa ríkisstj.órninni að verja fé til að tryggja með samningi, að hið mikla bókasafn Þorsteins M. Jónssonar, skólastjóra á Ak- ureyri verði eign Kennaraskóla íslands', cnda verði á skilyrði seljanda fallizt af ríkisstjórn- inni. Námskeið í hjálp í viðlögnm í V.-Skaft. Að undanförnu hefir Jón Odd geir Jónsson, fulltrúi Slysa- varnafélags íslands haldið nám skeið í Vestur-Skaftafellssýslu. Voru námskeiðin haldin á Kirkjubæjarklaustri, Múlakoti á Síðu og í Meðallandi og voru öll námskeiðin vel sótt af ung- um sem gömlum og mikill á- hugi ríkjandi. Lokunartími sölubúða Sölubúðir eru í dag opnar til klukkan sjö, á morgun til kl. sjö, á laugardaginn til tólf á miðnætti, og á *aðfangadag, mánudag, til klukkan tvö. um líf krists Bókagerðin Lilja hefir á undanförnum árum vakið á sér athygli fyrir ,úð gefa út í skemmtilegum útgáfum góð- ar bækur er hafa varanlegt gildi fyrir þá er þær lesa, bækur tr'úarlegs eðlis, sem fundið hafa leiðir út til þeirra, sem að jafnaði hafa ekki áhuga fyrir slíkum bók- menntum. Nægir þar að nefna bækur, eins og Kyrtil- inn, Qui Vadis og Fabiolu. Nú er komin út hjá þessari sömu bókagerö skáldsaga, sem líkleg er til að vekja verðskuldaða athygli hér sem annars staðar. Heitir hún Með eigin augum og er eftir sænska rithöfundinn og kennimanninn Bo Gierts. í þessari bók er lýst í skáld söguformi, en þó á tratistan og ábyggilegan hátt frá sam- tíð Jesú Krists, lífi hans og starfi meðal.mannanna. Höf- undur bókarinnar hefir hlot- ið verðskuldaða ’frægð og við urkénningu fyrir þessa bók og var hann nýlegá gerður biskup í Gautaborg. Þórir Kr. Þórðarson hefir þýtt bók- ina á sérlega lipurt og fallegt mál. Nýtízku skó- og karlmanna- fatabúð í Hafnarfirði Kaupfélag Hafnfirðinga hefir nú í jólakauptíðinni opnað myndarlega og fallega nýtízkubúð, þar sem eingöngu er verzlað með skófaínað alls konar og karlmannafatnað. Búð þessi er í byggingu þeirri, þar sem Hótel Þröstur áður var, og liggur því við mesta umferðahornið í Hafn arfirði. 1 Hin nýja búð Kaupfélags Hafnfirðinga er talsvert óvenjuleg að innréttingu. Þar eru sterkir, en þó mildir litir. Borð og hillur eru úr dökkum tairkivið. Á gólfi verzlunarinnar er komiö fyrir fallegum sýningarskápum upplýstum, en lokuðum, þar sem fólk getur áttað sig á hinum ýmsu skótegundum og ákveðið sig í næði áður en þaö kemur að búðarboröinu til afgreiðslu. i Er þetta fyrirkomulag í skóverzlunum nokkuð al- gengt viða erlendis, en hefir ekki verið tekið hér upp með þessu sniði, fyrr en Kaupfé- lag Hafnfirðinga gerir það nú. Fyrirkomulag verzlunarinn ar er þannig, að rúmgóðum afgreiðslusal er skipt i tvennt. Er annar hluti hans einvörðungu skódeild, en hinn fyrir karlmannafatnað. Vei'ðarfæradeildin. Þess má ennfremur geta, að hin nýja og myndarlega i veiðarfæradeild félagsins og I sölubúð er í þessu sama húsi, en sú deild var opnuð í nóvem berbyrjun. Kaupfélagsstjór- inn í Hafnarfirði er Ragnar Pétursson. Reykvíkingar til inn- kaupa í Hafnarfi'rði. Það er ánægjulegt fyrir Hafnfirðinga að koma til jóla innkaupanna í hina nýju og sérlega vönduðu skófatnaðar og karlmannafataverzlun kaupfélagsins, þar sem eing- göngu nytsamar jólagjafir eru á boðstólum. Það hefir einnig verið all- ,mikið um það, að Reykvíking ar hafa lagt leið sína til Hafn arfjarðar í þeim erindum að gera innkaup í hinum skemmtilegu og vönduðu sér- verzlunum, er kaupfélagið er nýbúið að opna þar.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.