Tíminn - 22.12.1951, Qupperneq 1

Tíminn - 22.12.1951, Qupperneq 1
Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson Fréttaritstjóri: Jón Helgason Útgefandi: Framsóknarflokkurinn Skriístofur 1 Edduhúsi Fréttasímar: 81302 og 81303 Afgreiðslx. [mi 2323 Auglýsingasími 81300 Prentsmiðjan Edda 35. árgangur. Reykjavík, laugardaginn 22. desember 1951. 291. blað. Ilcr sést hinn nýi forsætisráðherra Sýrlands, Fawsi Silo, sá er tók við eftir stjórnarbyltinguna á dögunum. Hjá hcnum til hægri silur Adib Shishekly, yfirhershöfðingi, potturinn og pannan í „byltingunni“. Silo forsætisráðherra er talinn mjög hliðhollur vesturveldunum. Ljósahátíð, þegar raf- magnið kom í sveitina Niina fyrir jólin hafa allmargir bæir í Reykholtsdal og Fljótshlið fengið rafmagn frá nýjum rafvei’tum, sem unnið hefir verið að lagningu á í sumar. Ungmennafélagið í Reyk holtsdal fagnaði þessum tímamótum í sögu sveitarinnar á skcmmtilegan og smekklegan hátt með sérstakri ljósahátíð, sem það efndi til. Hátiðin var haldin í hinu myndarlega samkomuhúsi fé- lagsins í dalnum, Logalandi, sem nú var í fyrsta sinn upp lýst með rafmagni frá hinni nýju orkuveitu. Ljósahátíðin. | Samkoman hófst með því að spiluð var Framsóknarvist, en að lokum var stiginn dans. Um 100 manns sóttu samkom una, og voru þar á meöal menn, sem unnið höfðu að raflögnum heima á bæjun- um og allmargir af þeim mönnum, sem unnið höfðu að því að koma upp og tengja hina nýju orkuveitu r»m dal- inn. 26 bæir í Reykholtsdal. Samkvæmt upplýsingum, sem Tíminn hefir aflað sér, hafa um 26 hús fengið raf- magn frá Reykholtsdalsveit- unni og eru þó nokkrir bæir 6k brott frá slösuð- um manni Um það bil klukkan hálf-sex í fyrradag var ekið á mann, er var á ferð á Suðurlandsbraut, skammt innan við Lækjar- livamm, Bjarna Helgason, Sam túni 54. Hlaut hann veruleg meiðsl, meiddist í baki og skrám aðist í andliti, svo að hann ligg ur rúmfastur. Maður, sem á hann ók, ók á brott sem hraðast, og hefir hann ekki fundizt enn. Fólk það, er að kom, eftir að slysið varð, hef ir ekki getað gefið vísbendingu um það, hvaða ökun'íðingur þarna var að verki. í dalnum, sem farið hefir ver ið framhjá að þessu sinni og því oröið afskiptir. Vonir standa að sjálísögöu til, að næstu rafveituframkvæmdir þar hefjist með því að leggja á þá rafmagn, áður en lengra verður haldið. Þessi nýja lína upp í Reyk- holt er lögð frá Bæ í Borgar- firði, en þangaö komst raf- veitan frá Andakilsárstöðinni í fyrra. Fljótshlíð. í Fljótshlíöinni er nú unn- ið að því að tengja nokkra bæi við hina nýju rafveitu þar. Fá þar um 9 bæir raf- magn frá veitunni, sem þar var lögð í sumar. Nokkrir bæir á rafveitu- svæðinu í Fljótshlíðinni eiga fyrir allgóðar vatnsaflsstöðv- ar, enda hagar þar víða vel til slíkra virkjana. Þeir, sem hafa aflstöðvar, sem farnar eru að eldast og ekki eru traustar, taka rafmagnið, en þar sem góðar og nýjar heim ilisstöðvar eru fyrir, er ekki tekin orká frá veitunni. Þrjú mænuveikitil- felli á sama bæ í Skorradal Þrír unglingar að Grund í Skorradal hafa nú sýkzt af mænuveiki, og er álitið, aö smitun frá Akranesi sé aö ræða, þar sem mænuveiki var allútbreidd í haust. Ekkert af unglingum þess- um hefir þó lamazt, en stúlka um fermingaraldur er all- þungt haldin. Mun henni hafa slegiö niður. Hvalveiðibátur slitnar upp, rekur upp við Kalastaði í Hvalfirði í fyrrakvöld og fyrrinótt var ofsarok af austri í Hvalfirði, og slitnaði þá upp annar af tveimur hvalveiðibátum. sem voru í vetrarlagi undan Miðsandi á Hvalfjarðarströnd. Var þetta Ilvalur II. Rak bátinn á grunn við Lækjarós hjá Kala staðum. Sigurnagli við bauju, sem Hvalur II lá við, mun hafa bilað í veðrinu, og rak bátinn nú út fjörðinn. Barst hann yfir skerjaklasa framan við Kalastaði, en rak síðan að landi, unz hann stóð á grunni við Lækjarós, neðan við tún- ið á Kalastöðum. Stendur hann þar á réttum kili. Ekki koniizt að skipinu af landi. Þórir verkstjóri í hvalstöð- inni undir Þyrilsklifi fór út að Kalastöðum, er kunnugt varð um strand bátsins, en ekki varð aö honum komizt af landi. Loftur Bjarnason í Hafnarfirði, framkvæmda- stjóri hvalveiöifélagsins, fór einnig upp eftir í gærkvöldi. Röðull sendur á vettvang. Klukkan niu i gærmorgun var togarinn Röðull að fara út á veiðar, og var hann feng inn til þess að fara inn í Hval fjörð til þess að freista þess að draga hvalveiðiskipið á flot. Skipstjóri á Röðli er Þor steinn Eyjólfsson. Bátur úr Reykjavík var fenginn til þess að fara upp í Hvalfjörð meö víra til þess að nota við björgunina, og mun Skógarfoss hafa farið þá ferð. Ök á símastaur og hljóp brott í fyrrakvöld var bifreiðinni R-22 ekið á ljósastaur á Lauf- ásvegi móts við húsið 37. Maður, sem þarna var á gangi, sá bif- reiðastjórann og farþega fara út úr bifreiðinni og hlaupa á brott. Var bifreiðin allmikið' skemmd. Lögreglan hóf leit að bif- reiðastjóranum, en hann fannst hvorki í fyrrinótt né í gær, þar til klukkan var orð- in fimm, að hann gaf sig fram. Var málið í rannsókn í gær- kvöldi, en grunur lék á, að bif- reiðarstjórinn hefði verið drukk inn. , Bifreiðin lá á hlið- inni á Hafnarfjarð- arvegi í fyrrinótt valt bifreiðin R- 4410 á Hafnarfjarðarvegi við Fossvogskirkjugarð. Fannst bif reiðin yfirgefin liggjandi á hlið inni þvert um veginn. Búðir opnar til miðnættis í dag verða búðir opnar til miðnættis, eins og venja hef- ir verið á laugardaginn fyrir jól. Á aðfangadag verða búðir opnar til klukkan tvö. Á þriöja í jólum veröur opn að aftur klukkan tíu. fLögreglustjóri heitir á 1 ! 'alla að gæta varfærni í umferðinni á götunum Undanfarna daga hafa verið allmikil brögð að bifreiða- árekstrum og umferðaslysum í Reykjavík, og má vafalaust rekja það til meiri umferðar en venjulega nú rétt fyrir jólín. Beðið átekta. Ekki var þó aðhafzt í gær, heldur átti að bíða birtunnar nú með morgninum. Lá Röð- ull á Laxvogi, sunnan fjarðar ins gegnt Kalastöðum, og vél báturinn í námunda við hann. Þótti líklegt, að þeir freist- uðu að koma taugum í hval- veiðibátinn, er birti af degi. Af þessu tilefni hefir lög- j rcglustjóri snúið sér til Tím ans og beðiö hann að brýna fyrir fólki, jafnt bifreiða- j stjórum sem hjólreiðamönn um og gangandi’ fólki, að gæta ýtrustu varkárni á göt um bæjarins nú í dag, er j búast má við því, að umferð in verði allra mest, og svo Tvær smámeyjar önnur vó 4 merkur, hin 5 Um þessar mundir eru tvær ungar og ærið smávaxnar dömur í tvíbýli í yl og mjúkum reifum í fósturkassa fæðing- ardeildar Landspítalans — tæki, sem ætlað er til hressing- yfirleitt um hátíðarnar. Sé nægrar varúðar gætt, á að vera hægt að komast hjá öllum umferðaslysum og óhöppum, og borgararnir verða allir að leggjast á eitt um það þessa daga, þegar umferðin er sérstaklega hættuleg. Þess er að vænta, að þessari’ áskorun lögreglu yfirvaldanna verði fullur gaumur gefinn, og þannig komið í veg fyrir óþarft tjón og óþörf slys, þótt ös sé á götunum. Vatnsflóð ógna flóttamönnum * ardvalar fyrir þá, .sem sérstaklega eru veikburða,: er þeir líta heimsins ljós í þessari stofnun. í Israel Litla ögnin, Yngri daman fæddist i fyrri viku, og vó hún þá fjórar rnerkur og gæti notað meðal- stóran skókassa fyrir rúm. Þótt ekki sé hún enn til stór- ræðanna, eru vonir til þess, að hún hjarni við og hver veit nema hún verði allra kerl- inga elzt. Foreldrarnir eru farnir að hugsa um að skíra hana Ögn. Sambýlisdaman. Hin daman í fósturkassan- um er lítið eitt eldri, og hún var líka dálítið stærri og þyngri. Hún vó nefnilega fimm merkur þegar hún fæddist. Nú bíða báðir foreldrarnir í voninni um að fá hinar ungu meyjar heim til sín eftir há- tíðarnar. Miklar rigningar hafa verið í Palestínu undanfarna daga svo að flóð eru í ám og vötnum. Hafa vegir gerspillzt, svo að samgönguteppa er víða, eink- um í ísrael. Genesaretvatnið hefir vaxið mjög og flóð yfir bakka og undir tjaldbúðir innflytjenda, sem þar höfðu að setur. Hafa þeir orðið að flýja og yfirgefa tjöld sín og eigur hundruðum saman.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.