Tíminn - 25.10.1952, Blaðsíða 6

Tíminn - 25.10.1952, Blaðsíða 6
6. TÍMINN, laugardaginn 25. október 1952. 242. blað. \f i|i -f/ ÞJÓDLEIKHÚSIÐ Litli Kláus oy stóri Kláus Sýning i dag kl. 15,00 Leðurhlakan Sýning í kvöld kl. 20,00 Síðasta sinn. TónleiUar Árni Kristjánsson og Björn Ólafsson. Sunnudag kl. 15.00 „REKKJAN« Sýning sunnudag kl. 20.00 Aðgöngumiðasalan opln frá kl. 11,00—20,00. Sími 80000. Aííí fyrir yullið Afburða tilþrifamikil ný am- erísk mynd byggð á sönnum at- burðum úr sögu Arizonaríkis, er sýnir að lífið er meira spenn andi en nokkur skáidsaga. Glen Ford Ida Lupino Sýnd kl. 5 og 9. Bönnuð innan 12 ára. Ðraumyyölan mín Hin vinsæla mynd. Sýnd kl. 7. NYJA BíÓ Þrír vtilsar J Bráðskemmtileg frönsk óper- ettukvikmynd með músík eftir Jóhann og Óskar Strauss. Leik- urinn fer fram í París árin 1867, 1900 og 1939. Aðalhlutverk: Yvonne Printemps Pierre Fresnay Sýnd kl. 5, 7 og 9. J ARBiÖ - HAFNARHRÐ! - _ _________________0* Suðrœnar syndir Viðburðarík og spennandi am- erísk kvikmynd. McDonald Carey Shelley Wintern Bönnuð innan 14 ára. Sýnd kl. 9. Kraftar i köylum Sýnd kl. 6. Sími 9184. r HAFNARBÍO Ofjarl rœninyj- anna (Wyoming Mail) Afburða spennandi og atburða- rjk ný amerísk mynd í eðli- legum litum, afar hröð við- burðarás með spennandi at- riði hverja mínútu. Stephen McNally Alexis Smith Howard Da Silva Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. >♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Ctbreiðlð Tlmaim LEIKFÉM6! REYKJAVÍKOFÓ Úlafur liljurós ballett. Miðillinn Ópera í 2 þáttum eftir Gian Corlo MenottL Sýning annað kvöld, sunnudag, kl. 8. Aðgöngumiðar seldir í Iðnó frá kl. 4—7 í dag. Sími 3191. 1 k Austurbæjarbíó J jJÉíjj hef œtíð elskað ÞUf (I’ve Always Loved You) Stórfengleg og hrífandi amer- ísk músíkmynd í eðlilegum lit- um. — í myndinni eru leikin tónverk eftir Chopin, Mozart, Rachmaninoff, Bach, Schu- bert, Beethoven, Wagner o. m. fl. — Allan píanóleikinn annast 5 hinn heimskuxmi píanósnill- i ingur Arthur Rubinstein. | Aðalhlutverk: Catherine McLeod, Philip Dorn. | Þetta er kvikmynd, sem heillar | jafnt unga sem gamla. \_______Sýnd kl, 7 og 9.____ i Mótel Casablaneu | Hin sprenghlægilega og spenn- | andi kvikmynd með hinum ó- | viöjafnlegu Marx-bræðrum. Sýnd kl. 5. Sala hefst kl. 2 e. h. TJ ARNARBSÓ v---------------------- Smiður huyratcki (Whispering Sniith) Afar spennandi ný amerísk mynd í eðlilegum iitum. Aðalhlutverk: Alan Ladd Brenda Marshall William Demarest Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7 wg 9. GAMLA BÍÖ Alþjóða-dtms- meyjar (International Burlesque) Ný amerísk kvikmynd tekin á frægum skemmtistöðum víðs- vegar um heim, París, Kairo, Istanbul og Suður-Ameríku. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Börn innan 16 ára fá ekki aö- gang. ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦'♦♦♦♦< TRIPOLi-BÍÖ í Guli hálskláturinn (The Scarf) Sérstaklega spennandi og dul- aríull ný, amerisk sakamála- mynd. . ^ John Ireland Mercedes McGambridge Eulyn Williams Bönnuð börnum. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Blikksmiðjan GLÓFAXI Hraunteig 14. Sími 7236. Keflvíkingar sækja á fjarlæg mið Frá fréttaritara Tímans í Keflavík. Þrír Keflavíkurbátar, Gull- borg, Andvari og Skíðblaðnir stunda línuveiðar og liggja úti. Tveir þeirra hafa eink- um stundað veiðarnar á fjar lægum miðum, annar fyrir Austurlandi og lagt upp á Fá- skrúðsfirði, en hinn við Vest mannaeyjar og lagt þar upp. Bátarnir hafa aflað sæmi- lega þegar gefur, en tíð er á- kaflega stirð og ekki hægt að stunda sjó af kappi. Einn útilegubátur kom heim af veiðum í gær með 4— 5 lestir af ágætum fiski, að- allega ýsu. Eagði hann á Hafnarleir. Lloyd C. Douglas: I stormi lífsins Góð afkoma Pípn- og steinagerðar Stokkseyrar Frá fréttaritara Tímans á Stokkseyri. Aöalfundur Pípu- og steina gerðarinnar h.f. á Stokkseyri var nýlega haldinn, og er af- koma fyrirtækisisn góð. Ilef- ir verið framleitt mikið af pípum og hleðslusteinum og öðru byggingarefni. Stjórn félagsins skipa Böðvar Tómas son, Haraldur Bjarnason og Ólafur Jóhannesson, en fram kvæmdastjóri er Björgvin Sigurðsson. Að jafnaði vinna sex menn að steinagerðinni, en ekki er þó unnið í frost- um á vetrum. Bók um baráttnna við áhyggjurnar Lífsgleði njóttu heitir bók, sem komin er út á vegum Prentsmiðju Austurlands. Er hún eftir hinn kunna amer- íska rithöíund Dale Carnegie og er eins konar handbók um varnir við áhyggjum, eins og segir i undirheiti. Bók þessi nefnist á ensku: How to stop worrying and start living og hefir verið mjög lesin vestan hafs síðustu ár. Bók þessi er allstór, fjörlega rituð og kom ið þar víða við á vettvangi daglegs lífs og umgengni manna. Þýðinguna hefir Jó- hannes Lárusson gert. »»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ Ieldurinn Gerir ekki boð á undan sér.í Þeir, sem eru hyggnir, tryggja strax hjá I SAMVINNUTRYGGINGUM <>♦♦♦♦♦♦♦ SlimilIlillllMlllUIIUIilllllllllllllllllllllllllllLPIIIIIItlllllI HANNVEIG f ÞORSTEINSDÖTTIR, héraðsdómslögmaður, | Laugaveg 18, sími 80 205. „ | Skrifstofutími kl. 10—12.1 iTiiiiiiiuiiiijiiiiiiniiimuuiiiiiiiuiuiiiiiiiuiiuiiiiiuicis 39. dagur Nancy horfði út í bláinn og augu hennar voru órannsak- anleg, þegar Bobby hætti lestrinum og leið á hana. „Jæja, ertu nú viðbúin hverju sem er?“ spurði hann. „Ef svo er, ætla ég að lesa næsta kafla.“ „Ég fór ekki úr húsi Randolphs fyrr en klukkan fjögur um nóttina og þegar ég hverf þaöan út.í myrka nóttina, var mér Ijóst, að líf mitt mundi aldrei framar verða samt og áöur. Samt sem áður er það augljóst, aö starf mitt tók gerbreytingum eftir þetta, og lánið lék við mig á þeim vettvangi. Og þessi breyting átti rætur sínar aö rekja í þeim mætti, sem Randolph gæddi mig þessa nótt.“ Þaö varð löng þögn, og Bobby og Nancy horfðust í augu. „Lengra er ég eiginlega ekki kominn,“ sagði Bobby. „Nógu langt, íinnst' mér,“ sagði Nancy og andvarpaði þungan. „Þá skulum við láta svo sem dagur sé á lofti,“ Bobby reis á fætur og leit á úr sitt. „Við getum ekki að því gert, þótt Hudson læknir hafi ritaö þetta hálfsturlaður af vökum og þreytu, þegar hann hefir séö sýnir og heyrt annarlegar raddir. Ef til vill hefir hann alls ekki ritað þetta sjálfur. Ef til vill á þetta alls ekki við hann sjálían. Hvað ségir þú um að hætta við lesturinn og láta sem viö höfum aldrei litið í þetta?“ Nancy drap fingrum hugsandi á borðið. „Mér leilcur hug- 1 ur á að vita, hvað stóð á þessu biblíublaði.“ j Hann hló. „Þetta er eins og Hudson læknir hefði sagt það. !Nú spyrð þú sömu spurningar og hann. Ég skal lika viður- , kenna það, að mér leikur hugur á að vita það.“ Hann greip jföstu taki um handlegg hennar. „En það er líklega sama jhvernig við veltum þessu fyrir okkur, við munum verða ! neydd til að lesa þetta. Ef til vill er bezt fyrir okkur aö gera það þegar í stað. Ertu reiðubúin?“ Hún kinkaöi kolli án þess að.líta upp. „Varaðu þig samt, ekkert er líklegra en það nái sama valdi yfir okkur og honum,“ sagði Bobby. Bobby kveikti sér í sígarettu og gekk út að glugganum og stakk höndunum í vasana. Svo sneri hann sér að henni og studdi olnbogunum í gluggakistuna og horfði á hana. „Ég ætla ekki að kafa lengra í þetta forað. BÆér er ekk- ert gefið um slíkan þvætting. Þú getur gert það, ef. þú vilt, en ég ætla að draga mig í hlé.“ Hann lyfti höndum ■ ir.eð út- glenntum fingrum. Það var harður hljómur í rödd Nancy, er hún svaraði. „Þú getur ekki dregið þig í hlé. Þú ert kominn of larigt, og þú veizt það vel sjálfur. Það er búið að ná of föstum tökum á þér, og sama er að segja um mig. Ég getr ekki snú- iö við. Ég skil nú, hvað það var, sem rak Hudson lækni á fund Randolphs þessa nótt. Það liggur eitthvað falið í þessu, sem ekki verður komizt hjá, ef til vill eitthvað yfirskilvit- , legt eöa óheilbrigt, en enginn kemst undan því, ef það hefir ,einu sinni náð tökum á honum. Þú veröur að hlíta skipun þess fyrr eöa síðar. Það læsir ósýnilegum örmum um þig og dregur þig að sér — ómótstæðilega.“ „Hættu þessu Nancy, þetta' er óráöshjal.“ Watson læknir hefði varla getað valið sér óheppilegri tíma til heimsóknar. Honum var sagt, að gestur væri hjá Naney Ashfors, og auðséð var, að bæöi hún og gesturinn voru önn- um kafin. Ilann ætlaði að fara aö hverfa á braut aftur án þess að trufla þau, þegar Nancy korti fram og kallaði til hans. „Komið hingað irin. Þér þekkið Merrick.“ „Já, ég man eftir honum,“ sagði hann og tók í hönd hans. Svo sneri hann sér að Nancy og bar fram erindið. „Folson er nú mjög hætt kominn og það dregur sífellt af honum. Eftir eina eða tvær klukkustundir verður hann orðinn alveg rænulaus. Hann var að spyrja um yður fyrir nokkrum mín- útum. Ef til vill viljið þér gera svo vel aö líta inn til hans. Það virðist enginn ættingja hans ætla að koma til hans. Líklega er enginn þeirra í borginni.“ Nancy reis orðalaust á fætur og bjóst til að fara. „Viltu bíða mín andartak?“ Bobby kinkaöi koili. „Ég ætla að halda áfram að skrifa þetta upp. Þér liggur ekkert á. Ég verð hér, þegar þú kem- ur aftur. Dyrnar lokuðust að baki þeim. Og hann hélt lestrinum áfram: Ég rétti hönd mína ákaf- ur eftir blaöinu, sem • Randolph rétti mér, en hann hristi höfuðið. „Nei, ekki strax,“ sagði hann og brosti að ákafa mínum. „Ég skal lofa yður að sjá það, en ég verð aö segja yður dá- lítið um það fyrst. Á blaði þessu er skráð forskrift um það, hvernig hægt sé að öölast það töfraafl, sem ég talaði um áðan. Ef þessari íorskrift er fylgt nákvæmlega, 'getið þér náð hvaöa takmarki, sem þér óskið, gert allt sem þér viljið, orðið það, sem hugur yðar stendur til. Þetta eru ekki innan- tóm orð, því að ég hefi sjálfur reynt þetta. Það hefir komið mér að haldi, og það mun líka koma yður að haldii" Sambland. óþolinmæði og tortryggni olli mér hláturs- kviðu, en hann lét sem hann heyröi það ekki. „Þér sáuð hvað ég var að vinna að, er þér komuð inn í vinnustofuna í morgun?" „Já, það var fagur minnisvarði," svaraði ég af hrifningu, sem ég skildi ekki.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.