Tíminn - 12.06.1953, Blaðsíða 2
TÍMINN, föstudag-inn 12. júni 1953.
129. blað.
Langamma eiginmannsins borg-
aði jörðina með fjallagrösum
Rætt við Sigurlaugu Giiðmundsdóttiir, 85
ára, ekkju Guðmuiiclar aljcingismanns I Ási
Frú Sigurlaug Guðmunds
dóttir, ekkja Guömundar al-
þingismanns að Ási í Vatns-
dal, er 85 ára í dag. Dvelur
hún hjá fósturdóttur sinni
að Vesturgötu 11 og er hress
í anda og glöð í bragði, eins
og hún hefir alltaf verið um
dagana, þó að erfiðir hafi
þeir oft verið og langir við
erilsaiht annríki á stórbýli
norðan lands í 61 ár.
Blaðamaður frá Tímanum
leit inn til gömlu konunnar í
gær í tilefni af afmælinu til
aö spyrja Sigurlaugu um sitt
hvað úr langri ferð um lífs-
ins veg.
Ég var ellefu ára, þegar ég
kom að Ási í Vatnsdal, segir
Sígurlaug. Annars er hún
fædd að Haukagili í Vatnsdal.
En frá Ási fluttist hún svo
eftir 61 ár og er búin að vera
í Reykjavík síðan 1942.
— Hvernig kanntu við þig
1 Reykjavik?
— Ágætlega. Þó einkenni-
legt sé með sveitakonu eins
og mig, þá hef ég alltaf farið
hálf leið frá Reykjavík. Þann
ig hefir það verið frá því að
ég fór þangað til dvalar í
fyrsta sinn 16 ára gömul. Vera
má, að þetta sé mikið vegna
þess, að í Reykjavík var ég
hjá einstöku yndælisfólki,
nefnilega þeim hjönum Sól-
veigu og Sigfúsi Eymundssyni
bóksala-
Maðurinn á Alþingi, en hún
við búsýsluna heima.
Annars lágu leiðir Sigurlaug
ar ekki ákaflega oft til Reykja
víkur. Hún hafði öðrum
hnöppum að hneppa við bú-
sýslu á stóru búi, ekki sízt
vegna þess, að maður hennar
Guðmundur alþingismaður
var langdvölum að heiman
við þingstörf í 'Reykjavík á
um 20 þingum og við ýms
önnur trúnaðarstörf.
Það féll því í hlut Sigurlaug
ar að annast bústjórnina
heima meðan bóndinn var í
burtu við skyldustörfin. Hún
segir það gæfu þeirra hjóna
Útvarpið
Útvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
20,30 Útvarpssagan: „Sturla í Vog
um“ eftir Guðmund G. Haga
lín; XXII. (Andrés Björns-
son).
21,00 Tónleikar (plötur).
21,15 Erindi: Leitin að upptökum
Nílar (Högni Torfason frétta
mgður,).
21.45 Tónleikar (plötur).
22,10 Heima og heiman.
22.20 Dans- og dægurlög (plötur).
23,00 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Fastir líöir eins og venjulega.
12,50 Óskalög sjúklinga (Ingibjörg
Þorbergs).
20,30 Tónleikar (plötur).
20.45 Leikrit: „Örþrifaráð" eftir
Gabriel Timmory. Leikstjóri:
Þorsteinn Ö. Stephensen.
21.20 Tónleikar: Pia Tassinari og
Ferruccio Tagliavini syngja
(plötur).
21.45 Upplestur: Gretar Fells rit-
höfundur les frumort ljóð.
22,10 Danslög (plötur).
24,00 Dagskrárlok.
Árnað heilla
Sjötug
verður í dag frú -Guðný Jóns-
dóttir, Silfurteig 4, Reykjavík.
við búskapinn, að þau áttu
því láni að fagna að hafa
jafnan í sinni þjónustu önd-
vegisfólk, sem sumt var heim
ilisfast hjá þeim í áratugi.
| Bjuggu þau Sigurlaug og
Guðmundur alkunnu rausnar
i’búi að Ási- Voru þar að vetr-
inum 12—14 manns í heim-
ili, en 18—20 að sumrinu. Oft
hefir því verið í mörgu að
snúast hjá húsmóðurinni á
þessu stóra heimili. Þau hjón
in tóku til sín sjö fósturbörn,
sem öll urðu hin mannvæn-
legustu. Þrjá drengi, sem þau
eignuðust, misstu þau í
fyrstu bernsku-
Sigurlaug er fróð kona og
þjóðsögum og minningum, er
komin sé þetta á nýræðisald
ur. Mest þykir mér gaman að
þjóðsgum og minningum, sem
geyma fróðleik um land og
þjóð.
Konungsjörð seld á uppboði.
Hún sagði blaðamanni Tím
ans að lokum skemmtilega
sögu af því, hvernig það at-
vikaðist að langafi Guðmund
ar keypti Ás í Vatnsdal. Var
það árið 1805. Jörðin var kon-
ungsjörð en seld þá á opin-
beru uppboði.
Guðmundur langafi Guð-
mundar eiginmanns Sigur-
laugar stundaði margar ver-
tíðir sjóróðra sunnan lands-
Var jafnan formaður hjá
Ólafi skrifara í Viðey. Vor eitt
er hann kom heim úr verinu
ásamt fleiri Norðlending-
um, styttu þeir sér leið um
heiðarnar og fóru. yfir Vatns-
dalinn hjá Ási.
Sáu þeir margmenni mikið
þar heima og fóru þangað til
að forvitnast. Stóð þá svo á,
að verið var að selja þessa
jörð úr eigu konungsins og
stjórnaði sýslumaðurinn upp
boðinu á staðnum.
Guðmundur fór að bjóða í
jörðina og fór svo að sýslu-
maður sló þessum ókunna,
skagfirzka ferðamanni jörð-
ina. Sýslumaður bað menn að
taka þetta ekki of alvarlega.
Hann hafði aldrei séð þennan
mann fyrr og óvíst væri, hvort
hann gæti lagt fram nokkra
tryggingu fyrir jörðinni.
dögum á Skagaströnd- Kona
Guðmundar var mikil dugn-
aðarkona og hagsýn. Hún fór
i til fjallagrasa á hverju sumri.
Aflaði mikilla grasa og lagði
þau sem verzlunarvöru inn
á Skagaströnd. Andvirðið lét
hún til að borga af jörðinni.
Svo var alla tíð þar til skuld-
inni var lokið. Þannig var
jörðin goldin með fjallagrös-
unum einum saman. —gþ.
7 unglingar
(Framhald af 1. siðu).
koma peningaskápnum út úr
verzluninni og rjála við aðra
muni, sem þeir höfðu á brott
með sér, spiluðu þeir á
grammófón, til þess að koma
í veg fyrir, að fólk í húsinu
heyrði annarleg hljóð, ef það
vaknaði við hávaðann, sem
var því fylgjandi, að tosa
þungum peningaskáp út i
bifreið. Einn þeirra setti upp
hnefaleikahanzka og fór í
nokkrar lotur við annan, sem
varðist með byssuskefti. Af
þessu má sjá, að þjófarnir
virðast hafa gefið sér tíma
til að skemmta sér dálítið,
jafnframt því að láta greip-
ar sópa um verzlunina.
Peningaskápurinn
ekki fundinn.
Lögreglan mun hafa kom
izt á snoðir um, að pen-
I ingaskápurinn væri grafinn
í grjóturð inni í sandnámí.
i Brá hún skjótt við og ætl-
aði sér að ná skápnum, en
þá var búið að „stela“ hon-
um þaðan. Álitið er, að þjóf
unum hafi enn ekki tekizt
að opna skápinn, og því sé
allt, sem í honum er, ó-
hreyft enn.
Borgaði jörðina með
f jallagrösum.
Tryggingu hef ég ekki aðra
hér á staðnum en ásjónu
mína, sagði Guðmundur, en
ferðafélagar hans úr verinu
sögðust þá fúsir taka ábyrgð
á drengskap og kaupgetu Guð
mundar og við það sat.
Kaupverð jarðarinnar var
1600 ríkisdalir og átti það
að greiðast á ákveðnum gjald
, Komu daginn eftir
inn í verzlunina.
I Þjófarnir voru það biræfn-
ir, að þeir komu daginn eft- •
ir innbrotið inn i verzlunina •
til þess að lcaupa skot. Einn- j
ig mun eitthvert slangur af
! unglingum þeim, sem vissu '
, um þjófnaðinn og hverjir
, frömdu hann, hafa komið
inn í verzlunina, dagana eft- j
ir innbrotið, án þess að bera
við að skýra frá því, sem þeir
I vissu.
I_______________________________
Fjölgaði þegar
söngurinn hófst
Það' mun ekki hafa verið
alls kostar rétt, að aðeins j
300 manns hafi sótt Tívólí- j
fund Alþýðuflokksins í
fyrrakvöld, að þvi er athug-
ulir menn segja. Hitt er rétt,
að grcinargóðir menn litu
yfir söfnuðinn um klukkan
hálf-tíu, þegar ræðuhöldin
voru hafin, og þá var söfn-
uðurinn alls ekki stærri. En
veður batnaði þegár á leið
og þegar hinir ágætu söngv-
arar og leikkonur tóku að
skemmta, mun söfnuðurinn
hafa verið farinn að nálg-
ast þúsund. Rétt er að segja
þetta krötum til hugarhægð
ar, þótt þessi staðreynd
sýni, aö menn komu ekki í
skemmtigarðinn til að
hlusta á ræðumennina, og
orð þeirra munu ekki hafa
náö nema sex hundruð eyr-
um hvað þá fleiri.
Nemendasamband Menntaskólans í Reykjavík
ÁRSHÁTÍÐ
Nemendasambandsins verður að Hótel Borg þriðjudag-
inn 16. júní og hefst með borðhaldi kl. 18,30. Aðgöngu-
miðar verða seldir í anddyri Hótel Borgar (suðurdyr)
á morgun (laugardag) kl. 14—17.
Pantaðir miðar óskast þá sóttir sem fyrst.
Að gefnu tilefni, skal það tekið fram, að menn úr
„Jubil“árgöngum verða sjálfir að sjá um að vitja miða
sinna. Stjórnin.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»
Sérleyf isf erðir
Reykjavík - Borgarnes
til 30. septemher 1953
Frá REYKJAVÍK:
Mánudaga kl. 13 og kl. 17.
Miðvikudaga — 13
Fimmtudaga — 17
Föstudaga — 17
Laugardaga — 14
Frá BORGARNESI:
Sunnudaga kl. 17
Mánudaga — 8
Þriðjudaga — 13
Fimmtudaga — 8
Föstudaga — 8 og kl. 13
Afgreiðsla í Reykjavík hjá Frímanni í Hafnarhúsinu.
Kaupfélag Borgfirðinga
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<»♦♦♦♦<
i
♦
i
!
>♦♦♦♦♦»
Ungling
vantar til blaðburðar
t SKERJAFIRÐI
Afgreiðsla Tímans
Lindargötu 9 A. — Simi 2323-
Sogsvirkjunin |
vill taka á leigu tvær 10 hjóla bifreiðar um þriggja
mánaða skeið. Kaup koma til greina. Talið við efnis-
vörðinn. Símar 3910 og 3865.
Rafmagnsveita Rcykjavíkctr
Hjartkær eiginkona mín,
GUÐNÝ MARGRÉT BJÖRNSDÓTTIR,
sem andaðist 5. þ. m., verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju kl. 4,30 síðdegis í dag (föstudag). — Blóm og
kransar afbeðnir, en þeim, sem vilja minnast hinnar
látnu, er bent á líknarstofnanir. — Athöfninni verður
útvarpað.
Magnús Svéinsson.
aananwmw
UTBREIÐIÐ TIMANN