Tíminn - 12.06.1953, Síða 6

Tíminn - 12.06.1953, Síða 6
TÍMINN, föstudaginn 12. júní 1953. 129. blaðL PJÓDLEIKHÖSID ' LA TRAVÍATA j ópera eftir G. Verdl Gestir: Hjördis Schymberg hirð- söngkona og Einar Kristjánsson óóperusöngvari. Sýningar í kvöld, laugardag og sunnudag kl. 20. Pantanir sækist daginn fyrir sýningard., annars seldir öðrum. Ósóttar pantanir seldar sýning- ardag kl. 13,15. Aðgöngumiðasalan opin frá kl. 13,15 til 20. Tekið á móti pönt- unum. Símar 80000 og 8-2345. Ath.: Vegna jarðarfarár Yngva Thorkelssonar leiksviðsst jóra, verður aðgöngumiðasalan lokuð frá kl. 13,15—15,30 í dag 11. 6. ♦♦♦♦♦<♦♦♦♦♦♦•►♦♦<> f Siml 81938 Kvpnsjóræn- inglnii Geysispennandi og viðburðarík ný amerísk mynd um konu, sem kunni að elsica og hata og var glæsiieg samkvæmismanneskja á daginn, en sjóræningi á nótt- unni. Jon Hall, L»sa Ferraday Kon Randeli, Douglas Kenn. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Síðasta sinn. Bönnuð börnum innan 16 ára. NÝJA BÍO Klœhir Karotínu (Edbuard et Caroline) Hin bráðskemmtilega franska gamanmynd, sem sýnd er nú um gjörvalla Evrópu við fá- dæma aðsókn og vinsældir, og talin er í flokki allra beztu gam anmynda siðustu ára. Aðalhlutverk: Daniel Gelin, Anne Vemon. Sýnd kl. 9. iWerlti Zorro Hin fræga ævintýramynd með Tyrone Power. Sýnd kl. 5 og 7. BÆJARBIÖ — HAFNARFIRDI - Trommur Apahhanna Mjög spennandi og áhrifarík, ný, amerísk mynd í eðlilegum litum Steven Mac Merry, Colen Gray. Bönnuð börnum innan 14 ára. Sýnd kl. 7 og 9. Sími 9184. HAFNARBÍÖ SIERRA Spennandi og skemmtileg, ný, amerísk kvikmynd í eðlilegum litum eftir skáldsögu Stuart Hardy og fjallar um útlaga, er hafast við í hinum fögru og hrikalegu Sierra-fjöllum. Audie Murphy, Wanda Hendrix og frægasti þjóðvísnasöngvari Ameríku: Burl Ives, er syngur mörg iög i myndinni. Sýnd kl. 5, 7 og 9. AUSTURBÆJARBÍÓ | Jamaica-hráin (Jamaica Inn) Sérstaklega spennandi og við- burðarík kvikmynd, byggð á samnefndri skáldsögu eftir Daphne duMaurier , sem komið hefir út í ísl. þýðingu. Aðaihlutverk: Charies Eaughton, Maureen O’Hara, Robert Newton. Bönnuð böi-num innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. ♦♦♦►»«>♦ ►♦♦♦♦♦< TJARNARBÍÓ Æshurómantíh (The Romantic Age) Létt og skemmtileg, brezk gam- anmynd, sem gerist í einum þekktasta kvennaskóla Eng- iands. Aðalhlutverk: Mai Zetterling, Hugh Williams. Sýnd kl. 5, 7 og 9. GAMLA BÍÖ I»rír biðlar (Please Believe Me) Skemmtileg, ný, amerísk gam- anmynd frá Metro Goldwyn Mayer. Deborah Kerr, Peter Lawford, Robert Waiker, Mark Stevens. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Aukamynd: Krýning Elisabetar II Englands- drottningar. TRIPOLI-BÍÖ Um ókirna stigu (Strange World) Sérstaklega spennandi, ný, am- erísk kvlkmynd tekin í frum- skógum Brasilíu, Bolivín og Perú, og sýnir hættur í frum- skógunum. Við töku myndarinn ar létu þrír menn lífið. Aðalhlutverk: Angelica Hauff Alexander Carioa Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð börnum. XSERVUS GOLD X —iíX/hJ 0.10 HOLLOW GROUND 0.10 ■p mm YELtOW BLADE mm r SERVUS QOLD rakblöðln helmKfrægu Bilun gerir alðrel orS á undan sér. — Munið lang ódýrustu ♦* nauðsynlegnstu KASKÓ- TRYGGINGUNA. Raftækjatryggingar hí., Siml 7611. RANNVETQ ÞORSTEINSDOTTIR, héraðsdómslögmaður, Laugaveg 18, siml 80 205 Skrlfstofutími V. 10—1*. ' | Utbreiðlö Timaiin —— Á víðavangi (Framhald aí 5. síðu) við komið vegna þess, að varðskipin létu ekki sjá sig. Hinsvegar forðast blaðið að minnast á það, sem er aðai atriðið þessa máls, en það ( er þetta: Hversvegna gerðu dómsmálaráðherrann og landhelgisgæzlustjórinn ekki neitt til að auka gæzl- una á þeim tíma, þegar vit að var, að ágangur togar- anna yrði mestur? Mbl. stendur vissulega nær að gefa eðlilegar skýringar á þessu dularfuila aðgerðar- leysi en að eyða rúmi sínu undir mái, sem miklu minna skiptir. Hví var tillögu Þórðar vísað frá? »nK»tH»<»um»iMtmunn»»HinwiHimnH»H»K»HH»nHH»unK»ttwi MARY BRINKER POST: Anna Jórdan 123. dagur. - Annað atri3i ætti Mbl. að skýra í þessu sam- bandi: Hversvegna vildu Sjálfstæðismenn ekki sam- þykkja það í bæjarstjórn Reykjavikur, að skipstjór- um hjá bæjarútgerðinni yrði vikið frá störfum, ef þeir gerðu sig seka um land helgisbrot af ásetningi eða vítaverðu gáleysi? Slík á- lyktun hefði vissulega ver- ið áhrifamikið plagg út á við og sýnt að íslendingar vildu ekki þola sínum skip um landhelgisbrot. íhaldið í bæjarstjórninni vísar þess ari tillögu þó frá og fær til þess aðstoð Alþýðuflokks- íhaldsins, þ. e. Jóns Axels og Co. Hvaða áhrif getur þessi afstaða haft út á við? Verður hún ekki túlkuð þannig, að íslendingar ætli að taka vægilega á brotum sinna manna? Það er vissulega sitthvað, sem bendir tii þess, að þrátt fyrir öll stóru orðin sé Sjálf stæðisflokkurinn enn í sam ræmi við fortíð sína í þess- um málum. Kára-þættlr (Framhald aí 6. síSul. lenzkum og erlendum veiði- þjófum í myrkri næturinnar ir:n í landhelgina, til þess að rupla þar og ræna góðfiski rétt fyrir utan landsteinana hjá fátækum fiskimönnum, er á ströndinni bjuggu eða nágrenni hennar. Sýndist ýmsum það einkennileg „til- viljun“, að flestir eða allir, sem upp komst um þetta „Kvislings“-starf voru áber- andi menn í Mbl.-flokknum. Og ennþá finnst mörgum við fyrstu athugun, að það sé dálítið einkennilegt, að það skuli vera eins og álög á stærsta blaði landsins, sem er að ýmsu leyti myndarlega úr garði gert (miðað við fá- mennið), að það skuli ævin- lega gerast málsvari þess, sem miður fer í þjóðfélaginu. Það er ekki að ástæðulausu, þótt fjöldi mætra manna um land allt, sem ekki eru flækkt ir fastir í net Mbl.-flokksins, skuli jafnan hafa það fyrir vegvísi, að þegar Mbl. er far ið að berjast með eða á móti einhverju, að þá taka þeir það sem leiðbeiningu um að verið sé á rangri leið að fylgja því sem þetta stærsta blað landsins heldur fram. fslendingaþættir (Framhald af 3. BÍðu). hlýt að senda þessa litlu samúðar- og afmæliskveðju, og biðja þeim, þessa heims og annars, blessunar Guðs og huggunar í hverri raun. Jarþrúður Einarsdóttir frá Tóftum Tuttugasti hafli. Nítján hundruð og seytján og það var verið að selja stríðs- skuldabréf á torgum. „Látið arineld ei deyja“ og „Það er löng, löng leið“, voru dægurlögin og herbúðirnar við borg- ina voru fullar af ungum mönnum, sem höfðu verið tekn- ir frá námi til að gegna herþjónustu. Kaupið var svo hátt, að daglaunamenn hikuðu ekki við og gátu greitt tólf dali fyrir eina silkiskyrtu. Þetta voru uppgangstímar fyrir Seattle og Pólstj örnuna, sem hafði verið komin nokkuð langt niður, áður en stríðið hófst. Hugi og Emilía hrifust með þessari góðærisöldu. Þau byggðu nýtt hús í Laurelhurst. Hugi keypti sér skemmti- siglingabát. Marika var send í kvennaskóla. Þau lifðu hátt og fagurlega. Hugi bjó við lítillegan hjartafeil og var því ekki kvaddur til herþjónustu. Þar að auki var hann ósnort- inn af stríðsáróðrinum og móðursjúkri föðurlandsvináttu. Hann var orðinn mikill efnishyggjumaður. Hugi hafði ekki séð Önnu, frá því hann fylgdi henni á skipsfjöl, er hún lagði upp í för sína til San Francisco. Allt og sumt, sem hann hafði frétt af henni síðan, var það, að Margrét Brookes hafði séð hana í San Francsico á Fairmontgistihúsinu, þar sem hún hafði búið, eftir að hafa ferðast erlendis í eitt ár. Það hafði ve.rið fyrir fimm árum síðan. Síðan hafði enginn heyrt neitt frá henni. Enginn, utan Huga, virtist heldur hafa áhuga fyrir því, hvað um hana hafði orðið. Hún hafði gleymst fljótlega, eftir að hún hvarf frá Seattle. j Aldrei þeytti skip svo eimpípu sína, að Hugi minntist ekki Önnu, þótt þar fyrir utan að honum yrði sjaldan hugs- að til hennar. I Hann var góður verzlunarmaður, en þegar Pólstjarnan hafði átt við mesta erfiðleika að stríða, hafði honum lang- að mest til að hlaupa frá öllu saman. Hann hafði í raun- . inni engan áhuga á viðskiptum, né hvort þau heppnuðust 'fyrir honum eða ekki, öfugt við aðra verzlunarmenn í Seattle, sem settu allt að veði til að veita málum sínum framgang. I Viðskiptin voru honum, eins og tafl var sumum mönnum. Maríka dóttir hans var honum til stöðugrar ánægju, eink- ium og sér í lagi, þar sem hann fann fljótt, að hún hafði 'fengið meira af eigindum hans í erfðir, en móður sinnar. Þau fóru oft í gönguferðir um hafnarhverfið og litla stúlk- an hreyfst af því iðandi lífi, sem þar ríkti löngum, eins og hann sjálfur. Á vissan hátt var sambúð Emilíu og hans viðundandi. Þótt ekki væri um neina ástríðu að ræða, né rómantík í hjónabandi þeirra, hafði þeim tekizt með árunum að skapa á milli sín úmburðarlyndi, þögult samkomulag um það að búa saman. Emilía var góð húsmóðir. Hún sá prýðilega um iheimilið, hún gætti þess að bjóða alltaf réttu fólki. Og er hún varð eldri að árum, bar hún gamansama umhyggju fyrir manni sínum, sem hafði eyðilagt fyrir henni um alla iframtíð, óraunverulegan draum hennar um rómantískt líf. Það þarf eld, hugmyndaauðgi og rautt blóð til að vera mót- tækileg fyrir slíkar hugsveiflur ástar og ástríðu. Eftir því sem hún varð eldri, fitnaði hún og varð gild- vaxnari. Hún einbeitti sér að því að halda holdafari sínu í skefjum. Það tvennt tók hug hennar allan, að halda útliti sínu ungu og ala barnið upp, auk þess að gæta þess að þjóð- félagsstaða hennar breyttist ekki og fyrir það var Hugi ,henni mjög áríðandi maður. Þegar hann virtist veita öðr- ium konum of mikla athygli í veizlum, var það ekki vegna i þess, að hún væri hrædd um að glata ást hans, sem afbrýði- .semin gaus upp í henni, heldur var hún að verja stöðu sína. j Tök stríðspennunnar fóru að linast, en það sem raun- |Verulega hafði nær eyðilagt skipaútgerð Huga og alla aðra iSkipaútgerð í Seattle voru hin tíðu verkföll. Þau hófust með allsherjarverkfalli árið 1919, og upp frá því voru þau öðruhverju að skella á. Stundum kom til átaka í þessum verkföllum. Eftir nokkurt þóf, tókust samningar á milli , verkalýðsins og skipaeigendanna, sem sáu fram á, að farm- ur lá undir skemmdum, en þar sem skipaáætlanir fóru allar út um þúfur í þessum átökum, sneri ferðafólk sér til járn- brautarlestanna og ferðaðist með þeim. I Þetta voru slæmir tímar fyrir hafnarhverfið og frá því breiddust erfiðleikarnir út yfir alla borgina og höfðu lam- andi áhrif á allt viðskiptalíf, þar sem skipaútgerðin var hjartað og æðaslátturinn í lífi og grósku borgarinnar. Þrátt fyrir þetta hélzt þó allt í horfinu í nokkur ár, en árið 1924 voru eignirnar farnar að ganga úr sér og skipin, sem áður höfðu litið vel út, voru nú veðurbarin og óhrjá- leg að sjá. Skipstjórar Huga voru sí og æ að klifa á því, að skipin þyrftu endurnýjunar við og endurbóta, en það voru engir peningar fyrir hendi, til slíkra framkvæmda, nema í ýtrustu nauðsyn. Slitnir skipskatlar ollu seinagangi á skipunum, sprungu og slösuðu vélamenn. Eitt skipið var orðið svo lekt, að það varð skyndilega að leita hafnar í einni áætlunarferðinni. Að lokum, árið 1925, komst Hugi ekki lengur hjá því að fá lánaða tuttugu þúsund dali, eöa láta gera fyrirtækið upp.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.