Tíminn - 24.07.1953, Síða 6
TÍMINN, föstudagrinn 24. júlí 1953.
164. blaö.
Kvennuklœhir
Áfburða spennandi amerísk
mynd um gleðidrós, sem giftist
til fjár og svífst einskis í ákafa
sínum að komast yfir það.
Hugo Haas
Beverly Michaels
Allan Nixon
Bönnuð innan 12 ara.
Sýnd kl. 7 og 9.
Allra síðasta sinn.
NÝJA BÍÓ
„Við ætlum
að skilja44
Hin vinsæla norska kvikmynd
um erfiðleika hjónabandsins.
Aðalhlutverk:
Ranði Konstad,
Espen Skjönberg.
Sýn dkl. 5,15 og 9.
Verð aðgöngumiða kr. 5.00 —
10,00 — 12,00.
Guðrún Brunborg.
TJARNARBÍÓ
Krýuing Elisaliet-
ar Euglandsdrottn
ingar
(A Queen is crowned)
Eina fullkomna kvikmyndin, er
gerð hefir verið af krýningu
Elisabetar Englandsdrottning-
ar. Myndin er í eðlilegum litum
og hefir alls staðar hlotið gífur-
lega aðsókn.
Þulur: Sir Laurence Olivier.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Allra síðasta slnn.
Vegna mikillar aðsóknar verður
þessi frábæra mynd sýnd í örfá
skipti ennþá.
BÆJARBÍÓ
— HAFNARFiRÐI —
Eldfjöðrin
Ný, amerísk kvikmynd um viður
eign Indíána og hvítra manna.
Eölilegir litir.
Sterling Hayden,
Barbara Rush.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Simi 9184.
Sýnd kl. 9.
Plast-
einangrunarbandið
margeftirspurða
er nú loksins komið.
VÉLA- OG
RAFTÆKJAVERZLUNIN
__ Sími 8 12 79
Tryggvagötu 23
Auglýsið í Tímanum
AUSTURBÆJARBÍÖ
Hermaðurinn frá
Kentucky
(The Fighting Kentuckian)
Mjög spennandi og viðburðarík,
amerísk borgarastríösmynd.
Aðalhlutverk:
Jolin Wayne,
Vera Ralston,
Oliver Hardy.
Bönnuð börnum.
AUKAMYND: Hinn afar vin-
sæli og frægi níu ára gamli
negradrengur: SUGAR CHIIjE
ROBINSON.
Sýnd kl. 7 og 9.
GAMLA BIÓ
Konan á bryggju 13
(The Woman an Pier 13)
Framúrskarandi spennandi og
athyglisverð, ný, amerísk saka
málamynd.
Robert Ryan,
Laraine Day,
Jolin Carter.
Sýnd kl. 5,15 og 9.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
TRIPOLI-BÍO
Brunnurinn
(The Weil)
Óvenjuleg og sérstaklega spenn-
andi amerísk verðlaunakvik-
mynd.
Richard Rober,
Henry Morgan.
Sýnd aðeins i kvöld kl. 7 og 9.
Njósnari
riddaraliðsins
Afar spennandi amerísk mynd I
eðlilegum litum um baráttu milli
Indíána og hvítra manna.
Rol Cameron,
Sýnd kl. 5.
Bönnuð börnum.
HAFNARBIO
Hermannaglettur
Sýnd kl. 5.
Ráðshonan á
Grund
(Under falsk Flag)
Marianne Löfgrren
Ernst Eklund
Caren Svendsson
Sýnd kl. 7 og 9.
Allra síðasta sinn.
Bláskógaheiði
(Framh. af 4. síðu),
hverjum ástæðum, verið flutt
þangað frá sínum fyrri stað,
sem er nokkru vestar, og til-
tölulega nýlega fundinn.
Þannig sést, að Biskups-
brekka er nákvæmlega á þeim
stað, sem söguleg og hefð-
bundin rök hafa óumdeilan-
lega skipað höfuð-örnefni
staðarins „Sæluhús“, til stað-
setningar, en það er nánar til-
tekið sunnan hæðanna með-
fram gamla reiðveginum, og
ber því að færa það þangaö,
ef fært þykir, því það er tæp-
lega rétt staðsett uppi á hæð-
inni, eins og kortið sýnir það
nú. Biskupsbrekka er í raun-
inni örlítill blettur, sem sýnd-
ur er með vörðubroti, þar sem
tjald biskups á að hafa staðið.
Ég tel því, að þessu örnefni
væri örugglega borgið með
því, að staðsetja það með
smáu letri þvert yfir austur-
enda aðalörnefnisins, um leið
og það er staðsett eins og að
ofan segir.
Vil ég svo vænta þess, að
framanskráðar bendingar um
leiðréttingu á þeim mistök-
um, sem orðið hafa við stað-
setningu þeirra sögulegu ör-
nefna, sem hér hafa verið
rædd, verði teknar til vinsam-
legrar athugunar af þeim, sem
með þessi mál fara, og að sú
athugun leiði til skjótra um-
bóta, eftir því sem kringum-
stæður leyfa.
Fr. B.
Erlent yftrllt
(Framhald af 5. síðu).
Það er áreiðanlega óhætt að
fullyrða það, að Bandaríkin hafa
hagnast á Asíut'ör Stevensons.
Hann hefir gert ráðamönnum
austur þar ljósara en áður, að
Bandarikjamenn standa saman
um meginstefnuna í utanríkis-
málunum og að Asíumenn þurfi
ekki að óttast hina nýju stjórn
Bandaríkjanna, eins og nokkuð
bar á í fyrstu. Hann skýrði fyrir
stjórnmálamönnum og almenn-
inni í Asíu viðhorf Bandaríkj-
anna á þann veg, að það mun
hjálpa til að bæta sambúðina.
Framkoma hans hefir tvímæla-
laust verið með þeim hætti, að
hún hefir aukið traustið á
Bandaríkjunum og dregið úr tor
tryggni í þeirra garð.
3
Gerist áskrifendur að
tmanum
Áskriftarsími 2323
Bilun
MARGARET WIDDEMER:
UNDiR GRÆNUM PALMUM
' Eyja ástarinnar
21.
:
:
gerir aldrel orð á nndanj
sér. — |
Munið lang ódýrustn •( j
nauðsynlegustu KASKÓ-1
TRYGGINGUNA. j
Raftækjatryggingar h.f^ !
Sími 7661.
yVjiniiitujarájjjölcl
SJ.RS.
afiiiimmiiiiiiiiiiiiaiimiiiiiimiiiiiifc'WiiiiiiuuiuimnB
£ :
! Bergur Jónsson |
I s
Hæstaréttarlögmaður... — j
I Skrifstofa Laugavegi 68. j
Sfmar: 6833 og 1322.
Áskriftarsími
Tímans:
2 3 2 3
i
Auglýsiö í Tímanum
var ætlaður, upp úr pappaöskjunni, sem klædd var innan
með silfurpappír. •
„Handa dóttur minni“, sagði hún hálfhátt. 'tíön óskaði
þess með sjálfri sér, að þessi kjóll hefði ekki komið. Hann
mundi aðeins valda stúlkunni enn meiri vonbrigðum ,með
að fá ekki að fara á dansleikinn. Hún flýtti sér að leggja
hann aftur niður í öskjuna. En það var of séint. Dyrnar
að herbergi Laní opnuðust inn í hjónaherbergið. eirns og
við átti um prestdóttur. Þegar hún var áð brjóta ■kjölinri
saman, heyrði hún rödd dóttur sinnar: „Varstu að tala við
mig, mamma?“ Svo kom hún sjálf inn. „Ó, en hvað hann
er fallegur.“ Augu ungu stúlkunnar ljómúðu "sem sííöggv-
ast við þá sjón, sem fyrir hana bar. Hverri 'ungfi stúlku
hefði þótt slkur kjóll undrafagur, en Elín vissi, hvað hér
var á ferðinni. Slíkur kjóll mundi vekja óskipta athygli
hér á Hawaí, þar sem flestar konur, ungar sem gamlar
fylgdu eldri tízku og siðsamlegri að því er talið var. Kon-
urnar tvær horfðu þögular á kjólinn um stund, og þær dáð
ust báðar að honum í hjarta sínu.
Laní sneri sér undan og ætlaði að ganga brott, pn. þáð
varð móður hennar of mikil raun. ,7
„Farðu í hann og sjáðu hvernig hann fer þér að minnsta
kosti“, sagði hún. Hún vissi þó, að þetta voru úgætileg orð.
En hún afsakaði sjálfa sig með því, að hún yrði-þó áð skrifa
Desire, hvernig kjólinn hefði farið dóttur sinni. Og hana
langaði einnig mjög til að sjá það sjálfa. . ,
Laní klæddist kjólnum þegjandi. Hún sþennti bréitt flos
beltið, hagræddi fellingum pilsins og leit svo brosándi á
móður sína. Elín gat ekki dulið aðdáunarsvipinp, sem kom
á andlit hennar. ________
j „Ég held, að saumakonan hafi verið að reyna-áð líkja
’ eftir þjóðbúningatízku héðan frá Hawaí. Ég held, að þú
getir notað þennan kjól síðar, ef honum er breytt ■-svolítið.
Hún hefir ekki vitað, hve há þú ert orðin“. Hún beygði sig
jtil að aðgæta pilsfaldinn. Hún vildi ekki "viðtlrkéhna það,
ekki einu sinni fyrir sjálfri sér, hve fögur henni fannst
dóttirin vera orðin. .
■ Laní brosti, hljóð og annars hugar.
„Hún veit vafalaust ekki heldur, að jafnvel innlendu
konurnar hér láta sauma samkvæmiskjóla sína. í París."'
Nanóle segir — — —“. <>.■ >í■■ • > *«!,.•-)
Hún þagnaði skyndilega. •’ !!
„Hvað segir hún?“ •••■" ' “'•”'
r:; I; ril í i: í í
„Aðeins það, að konungurinn hafi keypt fagran þjóðbún-
ing handa frú Strong — þú kannast við hana, stjúpdóttur
rithöfundarins Stevensons — til þess að vera í, en hún
vildi ekki vera í honum en bað um kjól frá Worth“.
' Elín minntist. þessa, og hún vissi, að dálæti koríungsins á
þjóðbúningunum, sem huldu sem allra minnst af hinum
brúnu, fögru líkömum Hawaí-dætra, var éítt hefztá' mis-
klíðarefnið milli konungsins og trúboðanna. Nú kvað íóta-
taka Miles við í stiganum, og þær heyrðu það jafnsnemma,
mæðgurnar.
| Hann stóð í dyrunum að vörmu spori. „Hvað á þetta að
þýða?“ sagði hann, en röddin var fremur þreytuleg en reiði
leg.
j „Desire frænka sendi okkur þessa kjóla fyrir konungsdans-
leikinn. Hún vissi ekki, að þú hefðir bannað okkur mömmu
að fara þangað“, sagði Laní rólega. Tvenn spönsk augu ipætt-
ust og mátti lesa óhamingju í báðum.
j „Hún ætlaði að fara að afklæðast kjólnum“, sagði Elín.
1 „Þetta er mín sök, Miles, ég bað hana að fara í hann til þess
að sjá, hvernig hann færi henni“.
I „Hvers vegna þarf það að vera sök einhvers?“ spurði harin.
„Hvers vegna horfið þið báðar á mig eins og ég væri Simon
Legree?“
J Laní greip hvíta kjólinn sinn af stólnum og gekk inn í her-
; bergi sitt, því auðvitað gat ung stúlka ekki haft kjólaskipti
', í augsýn karlmanns, jafnvel þótt hann væri faðir hennar. •
Hún lokaði dyrunum.
I Elín leit kvíðafull á Miles. Þessi ókyrrð í skapi hansrsem
komið hafði fram í augnaráði hans og orðum, var svó 'ólík
hinni venjulegu og óbifandi festu hans. „Er eitthvaö rángt
við þetta, Miles?“ sagði hún. „Gáðu að þvi að ganga ekki
hattlaus aftur út í þetta sterka sólskin“. ; .7
i „Ég var ekki hattlaus. Ég skrapp til hans George Grace‘“
J Hún gekk út að glugganum og tók saumakörfuna sína. Hún
vissi, að honum yrði auðveldara að segja það, sem hon.upi íá
á hjarta, ef hún hefði einhverja vinnu i höndum og.hprföi
ekki á hann. Hún beið og brimhljóðið barst þeim að eyrum
inn um opinn gluggann. Frá hafinu barst einnig svalandi
blær. Svo leit hún sem snöggvast á hann. Hann hafði hallað
, sér til hálfs út af í hægindið og líktist fremur hálfvöxnum
dreng en öldruðum manni í þessari stellingu -fahnst- hériríi.'
„Hefir hún borið sig upp undan því við þig, að henni skyldi
vera bannað að fara á dansleikinn?“ sagði hann lágt.
Hún hristi höfuðið. „Nei, hún er stillt og hógvær óg lætúr
ekki á neinu bera. Ég hafði vonað, eins og við töluðum urri,'
að þátttaka í lífi og skemmtunum unga fólksins mundi hafa-
góð áhrif á hana“.
„Segðu mér það. Hún er kannske undir ásókn frá éiri-
hverri synd. Áður fyrr sýndi hún góðan vilja til trúariðkaua.
En við erum öll syndarar eins og guð veit“.