Tíminn - 28.04.1954, Qupperneq 2
2
TÍMINN, migvikudaginn 28. apríl 1954,
94. blað.
Qgnir skemmdarverkanna vofa alls staðar
yfir og koma fram í margvíslegum myndum
AS undanförnu hafa menn haft
miklar áhyggjur vegna dularfullra
flugslysa, sérstaklega í sambandi
viS Comet-þrýstiloftsflugvélarnar.
Flcstir vilja samt forSast alla hjá-
trú, svo aS grunsemd um skemmd-
arverk er því aSeins fyrir hendi,
aS allar aSrar skýringar séu úti-
lokaSar.
Vera má, aS erfitt verSi að sanna
skemmdarverk, en þaS er ekki
ómögulegt. Eru þegar hafnar eftir
grennslanir í hinum nálægari Aust
urlöndum, en þangaS beinist grun
ur manna cinkum.
Rússar hafa alltaf álitiS skemmd
arverk mjög mikilvæg, og fvrir
ári stofnuðu þeir skemmdarverka
Skóla.
Tæknilega séð eru skemmdar-
verk á flugvélum ekki erfið.
Skemmdarverkin gerast víða. Far
þegaskipið Empress of Canada
brann i höfninni í Liverpool, gúm-
verksmiðja í Singapore stendur í
björtu báli, gufuvélar í herskipum
eru eyðilagðar, ítalskt orkuver er
gert óvirkt, þýzk járnbraut er sett
út af sporinu, rússnesk brú er
sprengd í loft upp. Allt eru þetta
nýleg tilfelli. Sums staðar voru
skemmdarverk sönnuð, en annars
staðar aðeins grunuð.
Mikilvirkur þáttur í hernaði.
Skemmdarverk nútímans eru orð-
in mikilvirkur þáttur í hernaði.
Hafa þau tvær hliðar, því að þau
draga bæði úr efnahagslegum og
andlegum styrkleika andstæðings-
ins.
Notkun þeirra er oft leyndardoms
full, en stundum hetjuleg. í annarri
heimsstyrjöldinni var tékkneskur
verkamaður að vinna í hergagna-
verksmiðju og stjórnaði hann járn
geymi yfir höfði sér, sem var fylkur
Utvarpid
Útvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
20,20 íslenzk málþróun (Halldór
Halldórsson dósent).
20.35 íslenzk tónlist: Píanólög (pl.).
20,50 Vettvangur kvenna. Erindi:
Vor og gróður (eftir frú Sigur
laugu Árnadóttur; frú Sigrið-
ur J. Magnússon flytur).
21,15 Með kvöldkaffinu. Rúrik Har
aldsson leikari sér um þáttinn.
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
22,10 Útvarpssagan: „Nazareinn"
eftir Sholen Asch; XIX.
22.35 Undir ljúfum lögum.
23,05 Dagskrárlok.
ítltvarpið á morgun.
Fastir liðir eins og venjulega.
20.30 Kvöldvaka: a) Jón Norðmann
Jónasson kennari flytur er-
indi: Frá móðurharðindunum.
b) Færeyski kórinn „Ljómur“
t syngur; Karl Oluf Buch stjórn
[ ar. c) Guðmann Þorgrímsson
| bóndi segir hulduíólkssögu. d)
Hallgrímur Jónasson kennari
flytur ferðaþátt: Lokið langri
ferð.
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
22,10 Úr heimi myndlistarinnar. —
Björn Th. Björnsson listfræð-
ingur sér um þáttinn.
22.30 Kammertónleikar (plötur).
23,05 Dagskrárlok.
Árnað heitla
Hjónaband.
Laugardaginn 17. apríl voru gef-
in saman í hjónaband af séra Emil
Björnssyni ungfrú Ólöf ísleiksdóttir,
Lokastíg 10, Rvík, og Daníel Þórir
Oddsson verzlunarmaður, Borgar-
nesi. Heimili ungu hjónanna er að
Borgarbraut 20, Borgarnesi.
Trúlofun.
Sumardaginn fyrsta opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Erla Erlends-
dóttir frá Hofsósi og Árni Guð-
mundsson, Böðmóðsstöðum, Laugar
dal.
bráðnum málmi. Þýzkir hermenn
tóku sér stöðu við hlið hans. Skyndi
lega opnaði hann gevminn, og beið
hann bráðan bana ásamt Þjóðverj-
unum.
Engin ákveðin vörn er til gegn
skemmdarverkum. Þegar Þjóðverjar
hernámu Tékkóslóvakíu, reyndu þeir
aö nota allar hugsanlegar varúðar-
ráðstafanir gegn þögulli andstöðu
verkamannanna. Samt hefir það
SkemmcfarverKamaður
smásprengja getur myrkvað stórborg
verið staðfest, að ferturasta hver
sprengikúia, sem framleidd var í
Pilsen, reyndist óvirk.
Vindlasprengjurnar.
Skemmdarverk geta verið ein-
faldasta form styrjaldarreksturs.
Má hér minna á vindlasprengjurnar.
Þær voru fcúnar til úr blýpípu á
stærð við vindil, sem var skipt í
tvo hluta með koparskilrúmi. í
hvoru hólfi fyrir sig var viss tegund
af sýru, sem tærðu sundur kopar-
inn. Þegar sýrurnar náðu saman,
sprakk sprengjan með blossa mikl-
um.
Tímann, sem iíða skyldi til spreng
ingarinnar, mátti ákveða með þykkt
koparskilrúmsins. Þunnt skilrúm
tærðist á fáum klukkustundum. en
þykkt skilrúm á nokkrum dögum.
Hitinn við sprenginguna bræddi blý-
ið, svo að ekki var unnt að finna
sjálfa orsökina. Auðveldleiki slíkr-
ar aðferðar er auðsær, enda voru
vindlasprengjur notaðar til þess að
sökkva skipum, en vissulega gætu
þær valdið flugslysum jafnauðveld-
lega.
Rússar hræðast skemmdarverb.
Það er athyglisvert, hve Sovétrík-
in eru mjög á varðbergi gegn
skemmdarverkum. Hin sovézka skil-
greining á skemmdarverkum sveifl
ast frá skemmdarverkum á vélum
til leti og getuleysis.
Einu sinni voru trotskysinnar mik
ilvirkir skemmdarvargar, en nú virð
ist N.T.S. (Samband samábyrgra
Rússa) hafa tekið við hlutverkinu,
en sá félagsskapur hefir sterk ítök
bæði innan og utan Sovétríkjanna.
Öðru hvoru koma opinberar fregnir
frá Rússlandi um, að skemmdar-
vargar hafi sprengt upp járnbrautar
brýr. Hinir raunverulegu atburðir
kunna að vera smávægilegir, en
pólitísku áhrifin eru meiri.
Skemmdarverkaskólar stofnaðir.
Fyrsti skemmdarverkaskólinn var
opnaður í Moskvu, og síðar var stofn
að útibú í Berlín. Nú er vitað um
að minnsta kosti þrjá slíka skóla
til viðbótar við skólann í Moskvu.
Einn er í Póllandi, annar í Austur-
Þýzkalandi og sá þriðjí, sem undir-
býr skemmdarverk í VestUrveldun-
um, er í Tékkóslóvakíu náiægt þorp
inu Straz pod Ralskem.
Námstímabilið er sex vikur að
jafnaði, en geta verið styttri. er nám
ið sérhæft fyrir vélar, skip, sendi-
tæki og önnur ei.nstök verkefni. Nem
endunum er kennt að valda sem
mestu tjóni með sem einföldustu
aðferðum, færa t. d. vél úr lagi eins
og af tilviljun, heldur en nota
sprengiefni, sem hætta er samfara
fyrir gerandann.
Áherzla er lögð á skemmdarverk
í dagblaðabyggingum og útvarps-
stöðvum, af því að nútímaríki án
frétta er í slæmu ástandi. Sprengjur
eru notaðar, þar sem þörf krefur,
og óhjákvæmilega koma þá fyrir til-
viljanakennd slys. Til skemmdar-
verka eru aðallega valdir mjög ungir
menn, af því að þeir eru auðsveip-
ari.
Pólitískur grundvöllur.
Skemmdarverkaskólinn starfar á
pólitískum grundvelli. Það er talið
fullkomlega lögmætt að nota
skemmdarverk gegn hinum vest-
rænu kapitalista-heimsveldis-fas-
istum, en það væri óumræðilegur
glæpur að beita sömu aðferðum
gegn hinum heilögu Sovétríkjum.
Stundum verður þeim þó fóta-
skortur. Þegar Klement Gottwald
var réttur og sléttur kommúnisti,
fór hann á skóla í Moskvu. Lýð-
ræðislegur félagi spurði hann
margra viðeigandi spurninga. Hvað
hefði Gottwald verið að læra? Gott-
wald varð gramur og hreytti út úr
sér; „Við lærðum að snúa ykkur úr
hálsliðunum". Þessa aðferð notaöi
hann svo gegn keppinautum sínum
og sumum óvinum, en að lokum
fékk hann svo að kenna á henni
sjálfur.
Birgðum safnað.
Aðeins iítill hluti skemmdarvarg-
anna er notaður til skyndiverka, en
allir verða að safna birgðum af
vörum, sem notaðar kunna að verða
á sínum tíma. Sumir hafa að
minnsta kosti farið eftir settum
pKglum. Árið 1950 fann franska
lögreglan 60 birgðageymslur
skemmdarvarganna.
Hið margþætta nútímaþjóðfélag
má auðveldlega lama með 8kmemd
arverkum. Vera má, að nú séu Rúss
ar að skipuleggja skemmdarverk,
sem eru glsepsamlegri en morð. Slíkt
er ekki aðeins ógnun gagnvart ein-
staklingnum, heldur einnig gagn-
vart samfélaginu.
Rafgeymar
(Framhald af 1. síðu.)
komið á fót. Nú hefir hann
kennt íslendingum verkið að
fullu og er sjálfur á förurn
til Indónesíu til að koma þar
í nýtízku horf gamalli raf-
geymaverksmiðj u.
Auk þess sem þarna er um
nýframleiðslu áð ræða, ann-
ast Pólar viögeröir á eldri
geymum og eins þeim, sem
ekki eru frá verksmiðjunni.
Framkvæmdastjóri Póla er
Magnús Valdimarsson.
Auglýsið í Timaiiicm
auglVsing
13m skoðirn bifreiða í
Keflavíkurkaupstail
Samkvæmt bifreiðalögum er hér mes tilkynnt, að
aðalskoðun bifreiða fer fram í Keflavík mánudagifm
3. maí til föstudagsins 7. maí næstkomandi að báðum
dögum meðtöldum.
Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðir sínar
að Bifreiðastöð Keflavíkur (áður afgreiðsla Sérleyfis-
bifreiða Keflavíkur) og fer skoðunin þar fram ofan-
grenda daga kl. 10—12 f. h. og 1—5,30 e. h.
Við skoöun skulu ökumenn leggja fram fullgild öku-
skrrteini.
Ógreiddur bifreiðaskattur, skoðunargjald og vátrygg
ingarjald ökumanna fyrir allt árið 1953 verða innheimt
um leið og skoðun fer fram. Séu gjöldin eigi greidd
við skoöun eða áðar, verður skoðunin ekki framkvæmd
og bifreiðin tekin úr umferð þar til gjöldin eru greidd.
Sýna ber skilríki fyrir því, að lögboðin vátrygging fyrir
hverja bifreið sé í gildi.
Athygli skal vakin á því, að umdæmismerki bifreiða
skulu ávallt vera vel læsileg. Er hér með lagt fyrir þá
bifreiðaeigendur, sem þurfa að endurnýja eða lagfæra
númeraspjöld á bifreiðum sínum, að gera það tafar-
laust nú, eða áður en bifreiðaskoðun fer fram.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar
á ofangreindum dögum, verður hann látinn sæta á-
byrgð samkvæmt bifreiðalögum og bifreið hans tekin
úr umferð, hvar sem til hennar næst. Ef bifreiðastjóri
(eða umráðamaður) getur ekki af óviðráðanlegum á-
stæðum komið með bifreið sína til skoðunar á réttum
tíma, er áriðandi, að þeir tilkynni það skoðunarmönn-
um. Slíkar tilkynniragar í síma nægja ekki.
Þetta er hér með tilkynnt öllum, sem hlut eiga að
máli.
Bæjarfógctinn í Keflavíknrkaupstað
25. apríl 1954.
A. GÍSLASON
| Jörö í Rangárvallasýslu, 1
| STÓRI-MOSIIVOLL í HVOLHREPPI, til sölu. Laus til |«
ý ábúðar í næ?tu fardögum.
| Upplýsingar gefa Gústaf A. Sveinsson hrl., sími 1171, |:
| og Guðmundur Ásmundsson hdl., símar 7080 og 82723 ||
(eftir skrifstofutíma). ||
| Tilboð sendist undirrituðum fyrir 10. maí næstk.
ISkiptaráðandinn í Reykjavík, 27. apríl 1951. |;
KR. KRISTJÁNSSON. . í;