Tíminn - 29.09.1954, Blaðsíða 4

Tíminn - 29.09.1954, Blaðsíða 4
TÍMINN, migvikudaginn 29. scptember 1954. 218. blaæ. I. „Blessaður maðurinn, kom jnn þetta gangandi með poka á bakinu,“ sagði Ásgerður í Torfabúð. „Það væsir ekki um mann hábjartan júnídaginn, ver- andi sinn eigin húsbóndi og geta tyllt sér niður á annarri hvorri þúfu,“ svaraði ég til þess að firra góðviljaða konu áhyggjum mín vegna. „Er maðurinn að sunnan?“ já.“ „Úr Reykjavík?“ „Svo á það að heita.“ „Ætlar maðurinn langt?“ „í kring.“ „Gangandi alla leið í kring og inn í ÓIafsvík.“ „Þetta er dótturdóttur okk ar. Hún heitir Friðbjörg“, og um leið leit Ásgerður til and litsfríðrar unglingstelpu, sem stóð við marann á rúmi afa sins. „Við gefum manninum kaffi, Fríða mín, það má ekki minna vera en hann fái kaffi.“ — Ásgerður færði litla bláleita könnu til á vélinni, tók lyngkvísl og smábuðlung og lét á eld. „Kannske vill hann heldur mjólk. Hún er dropsöm bless uð kýrin, og nytin hefir hækk að, síðan hún komst út í gróandann.“ Ég sagðist heldur kjósa kaffið. „Svo kemur nú Jón, hann hlýtur að fara að koma. Hann er hérna fyrir ofan að slíta lyng undir pottinn.“ Ég lét Ásgerði vita það, að ég væri kominn alla leið að sunnan til þess fyrst og síð ast að hitta Jón. Hún lét undrun sína í ljós yfir því, hélt að ég væri farinn að auka í eða gera að gamni mínu. Þá bæri eitthvað nýrra við, ef maður kæmi beina leið úr Reykjavík vestur und ir Jökul þeirra erinda. Ég dró ekki af um það, að ég segði satt. En Ásgerður var jafn efagjörn og áður og var ef til vill farinn að halda, að maðurinn væri eitthvað skrítinn. En kaffið rann eigi að síður í bollann af tæru örlæti, og hún bað mig að sýna sér það lítillæti að gera mér það að góðu. Jón var nú kominn úr lyng heiðinni, setztur á rúmið á móti mér og hafði fengið að heyra erindi mitt. „Jæja, kallinn, einmitt það, ætlar að fara að skrifa upp örnefni hérna .Jraman undir. Þau eru nú mörg, mý- mörg, bæði hérna suður og út með sjónum, um allt hraun, efst í eggjar og jökul.“ Ég kvaðst vita það, að þau væru mörg og sum sennilega merkileg. „En hvað vilja þeir syðra með svoleiðis, er nokkurt gagn f því, þetta eru bara venjuleg heiti.“ „Ég veit að sum þeirra eru óvenjuleg, en þótt svo væri ekki er nauðsynlegt að rita þau niður og varðveita frá gleymsku." „Ekki skal standa á mér að labba með þér hérna um landið, Það má ekki minna vera úr því að þú ert kominn alla leið hingað vestur.“ Með þessum hætti urðu fyrstu kynni mín af Ásgerði Vigfúsdóttur og Jóni Ólafs- syni í Torfabúð í Einarslóni undir Jökli. Þau bar að í -júnímánuði fyrir tuttugu og tveimur árum. Eitt sinn, þá er við séra Árni Þórarinsson á Stóra- Hrauni röbbuðum saman, féllu honum þannig orð: „Veiztu, elskan mín, að Asgerður og Jón 78 ára. Lúbvík Kristján.ssorL, ritstjóri: Enn er Dritvíkurmöl fyrir dyrum fóstra Upprifjanir á niræðisafmæli Jóns í Einarslóni annað merkilegasta fjall í heiminum er á íslandi, hitt er austur í Tíbet. Það er al- veg fádæma útstreymi frá þessum fjöllum. Annað þeirra er vestur frá hjá okkur, það er Snæfellsjökull. Gerðu það fyrir mig góði, að staldra ein hverntíma í Einarslóni. Það er eins og maður sé kominn 1 yfirnáttúrlegan heim, út- streymið frá Jöklinum er al- veg óskaplegt, les sig um skilningarvitin, og maður verður eins og uppnuminn.“ Og nú var ég kominn í Einarslón. En ég gat ekki gert mér grein fyrir útstreym inu. Heimurinn á þessum slóðum var mér hins vegar framandi, dulúð í lofti, seið- mögnuð fegurð í náttúrunni, landig eins og opin bók, ó- snert og ónumin. Stef lóunn ar á hólnum var þó sama og syðra. — Var það ekki auka atriði, hvort hér var örnefni á nokkrum stað, hlutu þau ekki öll að hverfa fyrir anda umhverfisins, var það ekki hann einn, sem hlaut að minna á sig, eftir að ég var horfinn af þessum slóðum En hvað um fólkið í Torfa- búð, var það mengað af út- streymi Jökulsins, var andi umhverfisins í eðli þess? Jón og Ásgerður höfðu fyrir nokkr um árum flutt þangað úr Ytri-bænum. — Átta börn þeirra hjóna höfðu fæðzt und ir þaki hans, leikið sér á gólfi hans, heilsað langþráðu vori úr lágum bæjardyrum, fyrst heyrt til lóunnar yfir á Hjallhólnum. Vor Ytri-bæj arbarna var löngu liðið. Sennilega átti ekkert barn eftir að hlaupa framar úr þeim dyrum inn til Ásgerðar og segja með sigurhreim: „Mamma, hún er komin, ég heyrði til hennar yfir á hóln um“. — En Ásgerður hafði einnig orðið að hlýða á aðr- ar fréttir, meðan hún var í Ytri-bæ. Einn dag um vetur, þegar jökull var kúfaður og nið af öldusvarranda bar yf- ir Hjallhólinn, kom fregn um það, að skip hefði farizt með allri áhöfn og á því tveir full tíða synir Jóns og Ásgerðar. Þegar ég kom í Torfabúð, voru einungis þrjú börn þeirra á lífi. Þrátt fyrir allt var hug- ur þeirra ómökkvaður, heiður sem tær vorhiminn yfir skjannahvítum jökli, gleði þeirra barnsleg og hlý, því að enn var túnið orðið grænt og haginn, og blessuð kýrin tekin að auka á sér. Torfa- búðarbærinn — hálft annað stafgólf — reyndust ekki lítil, þegar inn var komið í sam- vist Ásgerðar og Jóns. Hann stækkaði allur, færðist út og upp, nam, við haf og Jökul. Landið allt framan undir var þeirra jörð, þeirra hús, hafði verið það frá því að þau mundu fyrst til sín. II. Jón í Lóni lét ekki sitja við orðin tóm að fræða mig um örnefnin framan undir Jökli. Hann tifaði með mér 68 ára gamall, léttur í spori og teinbeinn. Hann benti og vísaði í allar áttir, virtist muna hverja þúfu og hraun- nibbu, að ég ekki tali um á- berandi staði. Hann hafði næman smekk fyrir því, hvár koma ætti að stöðum, svo að maður nyti einkenna þeirra. j „Það á aldrei að fara nið- ur á Djúpalónssand annars staðar en um Draugakleif“, sagði hann. I Ég sannfærðist um það þá og reyndar betur síðar, að hann söng rétt í því efni sem fleirum. En þegar komið er niður úr Draugakleif, blasir við manni ógleymanleg sýn, svo stórbrotið og töfrafengið landslag, að ég efast um, að , annars staðar með fram ströndum landsins sé að , finna líka þess. — Ég mátti hafa mig allan við að rita niður örnefnin eftir Jóni. Ég fann að þetta var gleðidagur hjá honum, það var eins og hann væri að ganga um milli kunningja, heilsa og kveðja. j „Ég held bara, að það séu mörg ár, síðan ég hefi nefnt sum þessi heiti,“ varð hon- um eitt sinn að orði. I Ég man ekki, hvað örnefn' in urðu mörg, sem ég reit eft ir Jóni, en mýmörg voru þau, eins og hann hafði orðað það á rúmi sínu heima í Torfa- búð. Og meðal þeirra voru: Krubbugil, Þernuklettar Söng klettur, Draugakleif, Sessar, Járnbarði, Svörtulón, Kórar, Maríusandur, Glímustofa,1 Trjámolavík, Taddavíkur, Tröllakirkja, Dauðsmanns- J hellir, Gáluvík. — Og þetta^ voru bara venjuleg heiti hafði; Jón sagt. En hann kunni meira en nöfnin. Hann kunnj einnig. að tengja sögur við mörg| þeirra. Aldrei hefir nokkur staður birzt mér svo sögu- búinn sem Dritvík og ná- grenni hennar, þegar ég sat við hlið Jóns á Suðurbarða og hlýddi á hann bregða upp myndum af lífinu i þessu fjölmennasta útveri landsins í margar aldir. Reyndar var Driftvíkurverið úr sögunni, þegar Jón fæddist, en Gísli fóstri hans hafði róið þar margar vertíðir. Þegar við Jón komum heim úr örnefna flandrinu, benti hann mér á tótt í Emarslónstúni og nefndi Hallfríðartóft. „Hún er, kall minn, kennd við hana Hallfríði Eiríksdótt ur úr Dritvík. Eiríkur bjó þar síðastur manna og reri mörg vor með Hallfríði og Helgu dætrum sínum. En Hallfríður dó fjörgömul og ég þá orðinn fulltíða.“ Það ýar bví ekki að undra, þótt Jón kynni frá mörgu að segja úr Dritvík. Hann hafði ást á þeim sögum, hon um fannst reisnin hafa ver ið mikil framan undir Jökl- inum, með Dritvík var og hét. Honum var það ekki lá andi. Ælti það eigi eftir að koma upp úr kafinu, að þorskurinn undir Jökli hafi ráðið miklu um stórpólitísk ar aðgerðir í upphaf, siða- skiptaaldar. kannske stutt að því, að veldi Jóns biskups Arasonar lauk með þeim hætti sem raun varð á? Einu sinni kom okkúr Jóni saman um það, að þorskur Jöklar- anna kynni að hafa gert strik í þann reikning. En nú verður að segja frá einu atviki af kynnum okk- ar Jóns þennan júnídag. — Kirkja var í Einarslóni í þrjár aldir. Hún var enn not uð í bernsku Jóns, en áður en hann fermdist var hún af tekin og rifin. Ekki sá nú lengur votta fyrir, hvar hún hafði staðið né kirkjugarð- urinn. En það var Jóni í ljósu minni, og fékk ég vitneskju um hvort tveggja. Hann sagði mér jafnframt, að Hol- ger Clausen kaupmaður hefði keypt hana til niðurrifs. Alt- aristaflan mundi hafa farið að Staðarstað, en klukkan væri í Stykkishólmskirkju. Jón lýsti nákvæmlega fyrir mér gerð klukkunnar, nefndi mér. mannsheiti, ;sem ætti að standa á henni og ártal, en ég ritaði niöur lýsingu hans jafnóðum. Ég ætlaði mér ^að reyna að ganga úr skugga um hve trútt minni Jóns væri. Nálega sextíu &v voru- nú liðin frá þvi hanh Sá klukk una seinast. Þegar ég kom næs.t í stykk ishólm, lét ég það vera mitt fyrsta verk að komast þar í kirkjuturninn, til þess að sjá hina gömlu klukku úr Einarslónskirkju. En þar birtist mér „§ú bitra stað- reynd, ,að klukkan .væfi ekki þar, eða Jón misminnti. um gerð hennar. Hringjarinn sagði mér, að það væri klukka í sáluhliði nýja kirkjpgarðs- ins og væri reynandi fyrir mig að líta á hana; Ég fór eftir þessari vísbendjngu .og þar var sú gamla Einars- lóns klukka komin, er hringt hafði Dritvíkurvermenn til kirkju. Þegar ég bar,lýsingu Jóns saman við reyndina, féll ég algerlega í stafi. Sjálf ur hefðí ég ekki getað betur gert hafandi hana fyrir aug um mér. En Jón hafði varð- veitt þessa nákvæmu mynd af klukkunni í sextiu ár. Hann hafði aldrei komið í Stykkishólm og því orðið að fara eftir sögu annarra um það, hvar klúkkan hafði lent. Heimur Jóns i Loni var ekki stór. Hann náði suður í Staðarsveit, vestur og út í kringum Jökul til Ólafsvík- ur, spannaði yfir 3 hreppa. En Jón þekkti heiminn sinn betur en nokkur annar mað- ur, sem ég hefi fyrir hitt. Það var þvi ekkj að ófyrir- synju, að ég hafði lágt leið mína vestur í Einarslón til þess að hitta Jón í Torfabúð. Þegar ég stöð á hlaðinu og kvaddi Ásgerði, bar hún enn sömu umhyggjuna fyrir mér og þegar ég kom. „Bless- aður maðurinn að fara og ganga þetta einn.“ Hún var kona smá vexti, augun blá, svipurinn hreinn og fagurt andlitsfallið. — Jón fylgdi mér út fyrir Járnbarða. Hann var mér innilega þakklátur fyrir að hafa komið, þakk- látastur fyrir það að hafa veitt sér tilefnj til að rifja upp kynni við gamla vini, fara niður í handraðarin og draga fram gömul djásn. „Vertu blessaður, vinurinn, gangi þér vel ferðin,“ voru kveðjuorð hans. in. Áratug síðar fór ég fram an undir á miðju sumri í blíðskaparveðri eins pg vér.ið hafði, er ég fór fyrst.þar um. Eg var ekkj lengur í framandi landi, dulúð loftsins yar horf in eða komin í skilningar- | vitin. Seiðmögnuð fegurðin , var máttug sem fyrr, en ekki j á sama hátt og þegar ég kynntist henni fyrst. Hafði kannske útstreymið frá Jökl J inum smogið mér í merg og ' bein? Ég má játa, að mér ' fannst ég missa mikils í að 1 komast ekki fram fyrir Jökul á hverju sumri. — í þetta sinn reið ég fyrír ofan garð á Torfabúð. Litla bláa kann an var horfin af kamínunni, Ásgerður kom ekki lengur þar til dyra til þess að blessa komumann með bakpoka. Mér fannst komig eitthvert tóm í sjálfan mig, og þó skein sól af háhimni á tárhreinan jökul og grágrænt hraun. Djúpalónssandur var óbreytt (Framhald á 6. síðu.)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.