Tíminn - 19.05.1955, Blaðsíða 4
TÍMINN, fimmtudaginn 19. maí 1955.
112. blaff.
Á.G. Þorsteinsson: Orðið er frjálst
Tímarnir breytast og menn-
irnir stundum með
í 63. tölublaði Tímans þ. á.
skrifar Guðmundur J. Einarsr
son Brjánslæk, grein undir
f yrirsögninni: „Allir vegir
liggja til Rómar.“
Grein þessi fjallar að mestu,
þegar frá eru skildar land-
fræðilegar uppiýsingar, um
póstferðir í Barðastrandar-
sýslu, fyrr og nú, og er nokkur
gustur á greinarhöfundi.
Það er ekki vegna þess, að ég
telji ekki póststjórn íslands,
sem um þessi mál á að fjalla,
fullkomlega færa um að svara
fyrir sig, heldur af því, að ef til
vill á ég einhverja sök, ef um
sök er að ræða, á því að enn
hefur ekki verið lögð áherzla á
að útvega póst á póstleiðina
Patreksfjörður — Brjánslæk-
ur, síðan slysið varð fyrir ára-
mótin síðustu, að pósturinn
varð úti. Ég taldi þá svo litlar
líkur til að nokkur maður feng
ist hér til að fara þessar ferð-
ir, að hætt var við, að því
sinni, að auglýsa þær eða
bjóða þær út. Mér er ekki
kunnugt um hvað endanlega
verður gert í því máli. Ef til
vill verða þessar greinar okkar
Guðmundar lesnar, þegar um
það verður fjallað.
Enda þótt ýmsum ríkisstofn
unum, svo sem pósti og síma,
sé ætlað það sem höfuðverk-
efni, að þjóna landsfólkinu, í
þéttbýli og dreifbýli, eftir því
sem fært er talið á hverjum
tíma, þá hljóta þó einhvers
staðar að vera takmörk fyrir
þeim kröfum, sem láta ber eft-
ir. Ekki sizt af fjárhagsástæð-
um. Öllum þykir, að mér heyr-
ist, nóg að borga fyrir þjón-
ustu þessara stofnana, og mik
ill haliarekstur á þeim er líka
illa séður. Þess vegna veröa
forráðamenn þeirra að reyna
að sameina þetta tvennt, sem
bezta þjónustu, fyrir sem hóf-
legast gjald.
Á síðastliðnu sumri var ég
beðinn þess, af póststjórn, að
gera tillögur um breyttar
póstferðir hér um nágrennið,
sem verkuðu á áðurgreindan
hátt. Ég varð auðvitað við
þessari beiðni, eftir því sem
ég hafði vit til. Það var far-
ið eftir þessum tillögum min-
um, að öðru leyti en því, að
póststjórn vildi þá ekki leggja
niður póstferðirnar yfir
Kleifaheiði, sem ég hafði lagt
til að gert yrði.
Póstflutningur á leiðinni
Patreksfjörður — Brjánslæk-
ur, kostaði póstsjóð á s. 1. ári
kr. 27.183.00. Allar líkur benda
til þess, að mögulegt hefði
verið, og verði í framtíðinni,
að inna þessa þjónustu af
hendi, að engu lakar fyrir við-
komandi fólk, fyrir ca. kr.
6000.00 á ári.
Sparnaður á þessari póst-
leið einni, mundi þá nema
um 21.000.00 kr. á ári og væri
þeim peningum áreiðanlega
betur varið til annarra hluta
heldur en þeirra, að láta menn
kafa ófærð yfir fjallvegi al-
veg að erindislausu.
Til dæmis teldi ég skynsam-
legra að póststjórnin legði
bréfhirðingunum til hentug
afgreiðsluborð, með nauðsyn-
legum blaðahólfum, svo ekki
þyrfti að veiða hverja póst-
sendingu upp af gólfinu jafn-
óðum og hún væri afhent.
Þá vil ég taka til athugunar
ummæli Guðmundar Einars-
sonar í áður nefndri grein.
Hann upplýsir að póstur hali
ALLT A SAMA STAÐ
einhverntíma verið látinn
ganga eftir endilangri sýsl-
unni, sami maður. Þetta er ef-
laust rétt, og ég man eftir þess |
um pósti, frá því ég var ungl- í
ingur. Hann gisti stundum hjá (
okkur á Lambeyri, og léi okk-
ur geyma stóra, hvíta hestinn
sinn, meðan hann fór gang-
andi til Bíldudals. Þessu var i
seinna breytt, segir Guöniund-
ur. Hvers vegna? Spyr ég.'
Varla af illgirni einni saman. |
Nei, þessu var breytt vegna
þess, að aðrar samgöngur
breyttust, þannig að hægt var
að hafa meiri not af þeim. Svo
var þessu aftur breytt, segir
Guðmundur. Jú, póstleiðin
yfir þingmannaheiði var alla
tíð talin mikil mannraun og
stórhættuleg einum manni að
vetrarlagi. Þess vegna var því
breytt, og farin sjóleiðin fyrir
framan.
Þá dregur Guðmundur fram
mjög átakanlega mynd af því
hvað bóndinn á Haukabergi
eigi bágt með að koma póst-
sendingu til bóndans í Vest-
ur-Botni, með þessu rang-
láta skipulagi, sem nú er upp
tekið. Þá gerir hann auðvitað
ráð fyrir ísalögum á Breiða-
firði, svo ekki gefi að Brjáns-
læk í einn lítinn mánuð. En
ham> gleymir að gera líka ráð
fyrir verkfalli í Reykjavik, svo
skipa- og flugferðir leggist
niður hálft ár eða svo. Þá
færi nú þetta fyrst að verða
alvarlegt, ef um væri að ræða
bréf frá kærustunni á Hauka-
bergi til unnustans í Vestur-
Botni. Bændurnir mundu
bara tala um þetta í síma,
því hann er á báðum bæjun-
um.
Ef við sleppum nú þessum
óskaplegu hindrunum, sem
orðið geta á einni póstleið, en
látum kærustubréfið fara
undir venjulegum kringum-
stæðum, og múnar það litlu
hvort um er að ræða sumar
eða vetur. Við látum bréfið
fara með pósti frá Hauka-
bergi, líklega í Landrover, að
kvöldi fimmtudags, koma að-
eins við á Brjánslæk. Fara
þaðan með bát til Stykkis-
hólms, og koma til Reykja-
víkur á föstudag, seinni part-
inn, en til Patreksfjarðar fyr-
ir hádegi á laugardag. Væri
nú unnustinn áhugasamur,
þá mundi hann vera staddur
á pósthúsinu á Patreksfirði
þennan laugardag og hirða
bréfið strax, svo það færi ekki
fleiri í milli.
Nú hagar svo til, að póst-
bátur kemur að Brjánslæk
vikulega að sumrinu, og hálfs
mánaðarlega að vetrinum.
Póstur gengur eftir endilangri
ströndinni, með viðkomu á
hverjum bæ, í sambandi við
bátsferðina. Barðaströnd hef-
ur þess vegna póstsamgöngur
að engu lakari en aðrar sveit-
ir hér nærliggjandi. Um sam-
bandið við Patreksfjörð er það
að segja, að á þeim hálfa mán
uði, sem líður milli bátsferða
að Brjánslæk, eru að minnsta
kosti 5 áætlunarferðir milli
Patreksfjarðar og Reykjavik-
ur. Það er þess vegna alveg
vandalaust að koma öllum
pósti milli þessara staða
hálfsmánaðarlega, eða jafn
oft eins og meðan farið var
yfir Kleifaheiði. Það kostar
póstsjóð aðeinS nokkru minna,
þvl með þessu móti notar
Framh. & 9. slðu.
Þegar þér veljið yður landbúnaðarbifreiðina, þá hafið reksturskostnaðinn í
huga.
WILLYS-jeppinn er ekki einasta cdýr í innkaupi heldur og í rekstn.
Sannið yður þetta sjálíir með samanburði á varahlutaverði.
Hinar almenn vinsæidir WILLYS jeppans eru því að þakka, að WILLYS-
jeppinn er sterkur og ódýr í rekstri.
1955 gerðin er stærri og sterkbyggðari og hefir fengið fallegra útlit. Athugið,
að yíir 2000 Willys-jeppar eru í umíeið á vegum landsins. Það tryggir ódýrari
varaliluÞ.
Úivegum ódýr jeppastálhús írá Bandarikjunum með jeppanum. .
ÞAÐ ER AÐEINS EINN „JEEP“ OG HANN ER FRAMLEIDDUR HJÁ WILLYS.
Einkaumboð á íslandi;
H.F. EGILL VILHJÁLMSSON
ILaugaveg IIS. — Síml 81812. — Símnefni: EgíII
Rinso bvær áva/t
og kostar^Sur minna
Með því að nota Rinso fáið þér glæstast-
an árangur. Það er ekki aðeins ódýrara
en önnur þvottaefni, heldur þarf minna
a/ því og einnig er það skaðlaust hönd-
um yðar og fer vel með þvottinn, því að
hið freyðandi sápulöður hreinsar án þess
að nudd? burfi þvottinn til skemmda.
VERNDID HENDUR OG VOTT