Tíminn - 19.05.1955, Side 12

Tíminn - 19.05.1955, Side 12
39. árgangur. Reykjavík, 19. maí 1955. 112. blað. Aukin vörusala og ágæt aí- koma Kaupfélags Þingeyinga Frá fréttaritara Tímans í Húsavík. Aðalfundur Kaupfélags Þingeyinga í Húsavík var haldinn í Laugarskóla dagana 4. og 5. maí s. 1. Sátu hann 92 fulltrúar auk stjórnar og gesta. Baldur Baldvinsson, varaformaður íélagsins, stjórnaði fundi í fjarveru Karls Kristjánssonar, formanns félagsins. Finnur Kristjánsson, kaupfélag stjóri, flutti skýrslu félagsins. Sala erlendra vara hjá fél- aginu ásamt innlendum iðn- aðarvörum nam 15,1 millj. kr. og var aukningin 2,3 millj. Öll rala félagsins eða vöruvelta nam 29 millj. kr. og var aukn- ingin 5,7 millj. Stofnsjóður fálagsmanna nam 1 millj. 273 þús. kr., hafði aukizt um 151 þús. kr. Sameignarsjóðir fé- lagsins námu 2 millj. 252 þús. k.r. og höfðu aukizt um 220 þús. kr. Innlánsdeild var 3,6 millj. kr. og hafði hækkað um 1 millj. Innstæður félags- manna námu 3,6 millj. kr. og höfðu aðeins lækkað. Endurgreiðsla af vörusöiu til félagsmanna nam 230 þús. lcr, eða 6,5% af ágóðaskyldri úittekt. Endurkosnir voru í fé- lagsstjórn Baldur Baldvins- son og Bjartmar Guðmunds- ron, en aðrir í stjórn eru Karl Kristjánsson, formaður, Úlfur Indriðason og Illugi Jónsson. Skemmtanir. Fyrri fundardag að kvöldi nnnaðist Reykdæladeild : kemmtanir. Teitur Björnsson flutti ávarp, en einnig töluðu Jón Haraldsson, Tryggvi Sig- tryggsson og Páll H. Jónsson flutti kvæði og hann stjórn- Búnaðarritið komið ét Búnaðarritið, sextugasta og áttunda ár, er nýkomið út. Ritstjóri þess er Páll Zóphón- íasson, búnaðarmálastjóri. R'tið er geysistórt að þessu .stnni og flytur margháttað- an fróðleik um búnað. Er Iielzta efni þess þetta: Til- raunir með búfjáráburð og t'lbúinin áburð efth Karsten Iversen, Nokkrir húðkvillar í sauðfé, eftir Pál A. Pálsson, Sauðfjárrækt á íslandi eftir Halldór Pálsson, Skýrsla búnaðav'máliastjiÝa 1954 og búnaðarþings 1955, skýrslur starfsmanna Búnaðarfélags íslands, Hrútasýningar haust i'V 1954 eftir Halldór Pálsson, Slcýrslur nautgriparæktarfé- laganna eftir Ólaf E. Stefáns ;;on o. fl. Ritið er rúmar 400 biaðsíður að stærð. aði einnig söng Karlakórs Reykdæla og Kirkjukór Ein- arsstaðasóknar. Þá sýndi glímuflokkur undir st j órn Haraldar Jónssonar, en hann hefir æft flokkinn í vetur eft- ir forsögn eldri manna, og er þetta tilraun til að endurvekja íslenzka glimuna í þeirri mynd, sem hún var áður í Þingeyjarsýslu og talin hafa náð mestum glæsibrag. Var sýningunni mjög fagnað. Jón Haraldsson á Einars- stöðum afhenti KÞ málverk af Pétri Jónssyni á Gautlönd- um, gert af Aðalgeir Halldórs- syni á Stóru-Tjörnum. Yfir kaffiborðum voru og ræðuhöld, kveðskapur og söngur að vefíju. Fyrirhugaðar framkvæmdlr. Á fundinum voru rædd ým- is framfaramál félagsins og fyrirhugaðar framkvæmdir. Ráðgert er t.d. að reisa útibú við Mývatn og byrja á bygg- ingu vöruskemmu í Húsavík í sumar. — Þ. F. Myndarlegt ársrit Gagnfræðaskóli Vestmanna eyja heíir nýlega sent frá sér ársr't sitt. Blik, og er það að venju mjög vel úr garði gert. Skólastjórinn. Þorsteinn Þ. Víglundsson, er ábyrgðarmað ur ritsins og hefst það á hug vekju eftir hann. Sigurðujr Finnsson, kennari, skrifar um tímamót í merku starfi. Þá er skýrsla skólans. Grein er efÞr Þorstein Jónsson Lauf ási, sem nefnist Tvennir tím ar, prýdd fjölmörgum mynd- um frá gamalli tíð. Þá er þátt ur nemenda, ýmsar stuttar greinar og myndir. Sigfús J. Johnsen skrifar vorþanka, og saga er efúr Á'na úr Eyjum. Grein er um Gagnfræðaskól- ann 25 ára og í ritmu er og þáttur skáta. Björn Sifússon skrifar um Vestmannaeyja- klaustur og einnig eru ýmsar styttri greinar. Ársritið er 120 blaðsíöur, prýtt fjölmörg- um myndum, og er það skól- anum til hms mesta sóma. Vistlegt veitÍBigahús viö tjörnina hefyr sumarstarf í dag hefur veitingahúsið Tjarnarcafé sumarstarfsemi sína í hinum vistlegu sölum, sem eins og áður hefir verið getið l«afa nýlega verið mjög endurbættir. sín hinn þekkta og vinsæla Mun veitingahúsið fram- vegis hafa opið fyrir gesti í hádegisverð, milli kl. 12 og 2, síðdegiskaffi frá kl. 3 til 5, fyrir kvöldverðargesti frá kl. 7 til 9 og loks dansað frá 9— 11,30. Tjarnarcafé hefir ráðið til píanóleikara Aage Lorange og hljómsveit hans, og munu þeir félagar leika fyrir dansi á hverju kvöldi, en auk þess mun Aage sjálfur leika á píanó fyrir gesti meðan þeir snæða hádegisverð og kvöld- verð. Eisenhower vill gjarnan ræða persónulega við Zukov Washington, 18. maí. — Eisenhower forseti hélt hinn viku- lega fund sinn með blaðamönnum í dag. Ræddi hann eink- um fyrirhugaðan stórveldafund. Kvaðst hann mundi fagna því, ef han?i í sambandi við þann funá, fengi tækifæri tU að ræða við Zukov marskálk um þróunina síðan 1945, og kynni nokkuð gott að leiða af þeim viðræðum. Aðalverkefni stórveldafundar taldi hann að yrðu sameining Þýzkalands, frelsi undirokaðra þjóða, afvopnun og útþenslustefna komm- informríkjanna. Erlendar fréttir í fáum orðum □ Útrunninn var í gœr írestur íyrir flóttamenn, sem fiytja viija frá Norður-Viet Nam. S00 þús. hafa þegar verið fluttir til suðurhluta iandsins. □ Fiskveiðar ganga mjog vel við Grænland. Hafa Færeyingar fen ið ágætan afía undanfarið. □ Verkfail er yfirvofandi hjá yfirmönnum á sænska kaup- skipaflotanúm. Ársþlng Bridgesambantís ís lands var haldlð í Reykjavík föstudaginn 13. maí sl. Mætt ir voru 23 fulltrúar frá 8 fé- lögum. Forseti sambandsins fyhr næsta tímabil var kjör- inn Ólafur Þorsteinsson og meðstjórnendur Rannveig Þorstemsdóttir og Eggert Benónýsson, Reykjavík, Björn Sveinbjarnarson, Hafnarfirði Óli Örn Ólafsson, Akranes', Sigurður Kristjánsson, Siglu firði og Karl Friðriksson, Akureyri. Eins og vitað' er, fara flokk ar héðan í næsta mánuði á Norðurlandamót í bridge, og þlngið ákvað að leggja á- herzlu á að héðan verð' send sveit á Evrópumótið 1956. Fullgildinga friðar samninga verði hraðað Vínarborg, 18. maí. — Raab, kanslari AustuÞ'íkis lagð' til í þinginu í dag, að sendar yrðu þingmannanefndir til þjóðþinga fjórveldanna allra tU að hraða fullgildingu frið- arsamnmganna hjá þessum ríkjum. Þá sagði Raab, að Austur'íkismenn væru fúsir til v'ðræðna við V-Þýzkaland um hvern'g farið skyldi með þýzkar eignir í Austurríki. Eisenhower kvaðst ekki vita, hverja Rússa myndu cenda til stórveldafundar, en hann mvndi fagna því, ef hann gæti rætt við Zukov persónulega. í Ekki sagðist hann hafa átt j bréfaviðskipti við Zukov ný- ■ lega og hyggði ekki á þau. Heimsókn til Belgrad. Fréttamenn spurðu forset- ann, hvað hann héldi að lægi að baki heimsókn Rússa til Belgrad í mánaðarlokin. For- setinn kvaðst ekki vita það, en ekki væri ósennilegt, að Rúss- ar hyggðust fá Júgóslafa til að gerast hlutlaust ríki svip- að og Sviss. Hann benti þó á í þessu sambandi, að hlutleysi Fé á afréttinni virt ist líða vel Frá fréttaritara Tímans á Fosshóli. Menn af fremstu bæjum í Bárðardal að vestan fóru fram á afrétt í gær til þess að að- gæta, hvern'g fé því, sem þangað var komið, hefði reitt af í hríðarverðrinu. Virtist ekkert hafa orðið af því og fé ekki fennt svo teljandi væri að minnsta kosti enda fór snjórinn minnkandi efúr því sem framar dró. Menn vona og, að fé hafi ekki hrak ið í Skjálfandafljót eða önn- ur vötn þar syðra. Einn eða tveir gemlingar hafa þó far- izt í Kálfborgará í Bá'ðardal. SLV. Austurríkis yrði vopnað hlut- leysi, líkt og í Sviss. Mjög er nú um það rætt, að hin nýja stefna Rússa byggist á því að sett verði á stofn belti af hlut- lausum ríkjum allt frá Adria- hafi til Eystrasalts, milli kommúnistaríkjanna og V- Evrópu. Vísir að dulminja- safni í Rvík Blaðamenn ræddu í gær við Sigfús Elíasson, formann fé- lagsins Alvara. Skýrði hann frá því, að félagið væri nú að koma upp dulminjasafni í Reykjavík, og felst það eink- um í fyrirmyndum, sem teikn- aðar eru eftir fyrirsögn Sig- fúsar. Er fyrirhugað, að sýn- ing á safninu verði í Reykja- vík í haust, og einnig á fleiri stöðum á landinu, svo sem Akureyri, ísafirði og Seyðis- firði. Fyrirhugað er einnig, að senda sýnishorn til Norður- landa. Ágætur afli Stöðvar fjarðarbáta Frá fréttaritara Tímans á Stöðvarfirði. Vélbáturinn Vörður er ný- kominn heim af vertíð við Suðurland og hefir farið fjóra róðra héðan. Aflaði hann vel i síðasta róðri eða 12—14 skippund og var helmingur- inn steinbítur. Trillubátar hafa róið og aflað sæmilega, en orðið stopult síðustu vik- ur vegna ógæfta. Byrjað er á vinnu við hafn- arframkvæmdir hér. Er á- kveðið að lengja bryggjuna um 20 metra í sumar, og batn- ar við það öll aðstaða til upp- skipunar og athafna. 60 málverk og myndir og kjörbækur á listmunauppboði Upplioð Signrðar Benediktssonar á morgun Sigurður Benediktsson heldur næsta listmunauppboð sitt í Listamannaskálanum á morgun, föstudag, kl. 5 síðdegis. Verða þar seld um 60 málverk og myndir og nokkrar gamlar kjörbækur. Munirnir verða til sýnis í Listamannaskálanum kiukk- an 2—7 í dag og á morgun kl. 10—16. Klukkan 15 stundvís- lega, hefst svo uppboðið. Myndir þær, sem hér er um að ræða eru eftir Kjarval, Ás- grím, Kristínu Jónsdóttur, Scheving og fleiri. Er þar margt afbragðsmynda. Þá verða einnig seldar nokkrar mjög fágætar kjör- bækur, og má nefna hina stóru þriggja binda útgáfu af Heimskringlu, sem út kom 1777, en hún er hinn mesti kjörgripur og meðal fágæt- ustu bóka á landi hér. Þá er þarna þýzk saga gyðinga, gefin út í Strassbourg 1603, líklega úr bókasafni biskups- stólsins i Skáiholti. Eitthvað fyrir alla á kvöldvöku leikara Á máiiudag ©g þriðjiidag I Þjóðleikluisiuia Félag íslenzkra leikara efnir til hinnar árlegu kvöldvöku félagsins n. k. mánudag og þriðjudag. Að venju verður skemmtiskráin mjög fjölbreytt og koma fram á milli 20—30 þjóðkunnir listamenn, en skemmtunin verður í Þjóðleik- húsinu. Á kvöldvökunni verða 12 skemmtiatriði, þar af fjórir leikþættir. Einnig verða gam- anvísur og eftirhermur og óperusöngvarar syngja. Allir þekktustu og vinsælustu leik- arar og söngvarar Reykjavík- ur koma fram á kvöldvökunni, svo ekki þarf að efa, að það, sem verður á boðstólum þar, verður við allra hæfi. Aðgöngumiðar að báðum skemmtununum verða seldir í Þjóðleikhúsinu á laugardag og verða þær ekki endurtekn- ar.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.