Tíminn - 19.05.1955, Page 12
39. árgangur.
Reykjavík,
19. maí 1955.
112. blað.
Aukin vörusala og ágæt aí-
koma Kaupfélags Þingeyinga
Frá fréttaritara Tímans í Húsavík.
Aðalfundur Kaupfélags Þingeyinga í Húsavík var haldinn
í Laugarskóla dagana 4. og 5. maí s. 1. Sátu hann 92 fulltrúar
auk stjórnar og gesta. Baldur Baldvinsson, varaformaður
íélagsins, stjórnaði fundi í fjarveru Karls Kristjánssonar,
formanns félagsins. Finnur Kristjánsson, kaupfélag stjóri,
flutti skýrslu félagsins.
Sala erlendra vara hjá fél-
aginu ásamt innlendum iðn-
aðarvörum nam 15,1 millj. kr.
og var aukningin 2,3 millj. Öll
rala félagsins eða vöruvelta
nam 29 millj. kr. og var aukn-
ingin 5,7 millj. Stofnsjóður
fálagsmanna nam 1 millj. 273
þús. kr., hafði aukizt um 151
þús. kr. Sameignarsjóðir fé-
lagsins námu 2 millj. 252 þús.
k.r. og höfðu aukizt um 220
þús. kr. Innlánsdeild var 3,6
millj. kr. og hafði hækkað um
1 millj. Innstæður félags-
manna námu 3,6 millj. kr. og
höfðu aðeins lækkað.
Endurgreiðsla af vörusöiu
til félagsmanna nam 230 þús.
lcr, eða 6,5% af ágóðaskyldri
úittekt. Endurkosnir voru í fé-
lagsstjórn Baldur Baldvins-
son og Bjartmar Guðmunds-
ron, en aðrir í stjórn eru Karl
Kristjánsson, formaður, Úlfur
Indriðason og Illugi Jónsson.
Skemmtanir.
Fyrri fundardag að kvöldi
nnnaðist Reykdæladeild
: kemmtanir. Teitur Björnsson
flutti ávarp, en einnig töluðu
Jón Haraldsson, Tryggvi Sig-
tryggsson og Páll H. Jónsson
flutti kvæði og hann stjórn-
Búnaðarritið komið
ét
Búnaðarritið, sextugasta og
áttunda ár, er nýkomið út.
Ritstjóri þess er Páll Zóphón-
íasson, búnaðarmálastjóri.
R'tið er geysistórt að þessu
.stnni og flytur margháttað-
an fróðleik um búnað. Er
Iielzta efni þess þetta: Til-
raunir með búfjáráburð og
t'lbúinin áburð efth Karsten
Iversen, Nokkrir húðkvillar í
sauðfé, eftir Pál A. Pálsson,
Sauðfjárrækt á íslandi eftir
Halldór Pálsson, Skýrsla
búnaðav'máliastjiÝa 1954 og
búnaðarþings 1955, skýrslur
starfsmanna Búnaðarfélags
íslands, Hrútasýningar haust
i'V 1954 eftir Halldór Pálsson,
Slcýrslur nautgriparæktarfé-
laganna eftir Ólaf E. Stefáns
;;on o. fl. Ritið er rúmar 400
biaðsíður að stærð.
aði einnig söng Karlakórs
Reykdæla og Kirkjukór Ein-
arsstaðasóknar. Þá sýndi
glímuflokkur undir st j órn
Haraldar Jónssonar, en hann
hefir æft flokkinn í vetur eft-
ir forsögn eldri manna, og er
þetta tilraun til að endurvekja
íslenzka glimuna í þeirri
mynd, sem hún var áður í
Þingeyjarsýslu og talin hafa
náð mestum glæsibrag. Var
sýningunni mjög fagnað.
Jón Haraldsson á Einars-
stöðum afhenti KÞ málverk
af Pétri Jónssyni á Gautlönd-
um, gert af Aðalgeir Halldórs-
syni á Stóru-Tjörnum.
Yfir kaffiborðum voru og
ræðuhöld, kveðskapur og
söngur að vefíju.
Fyrirhugaðar framkvæmdlr.
Á fundinum voru rædd ým-
is framfaramál félagsins og
fyrirhugaðar framkvæmdir.
Ráðgert er t.d. að reisa útibú
við Mývatn og byrja á bygg-
ingu vöruskemmu í Húsavík
í sumar. — Þ. F.
Myndarlegt ársrit
Gagnfræðaskóli Vestmanna
eyja heíir nýlega sent frá sér
ársr't sitt. Blik, og er það að
venju mjög vel úr garði gert.
Skólastjórinn. Þorsteinn Þ.
Víglundsson, er ábyrgðarmað
ur ritsins og hefst það á hug
vekju eftir hann. Sigurðujr
Finnsson, kennari, skrifar
um tímamót í merku starfi.
Þá er skýrsla skólans. Grein
er efÞr Þorstein Jónsson Lauf
ási, sem nefnist Tvennir tím
ar, prýdd fjölmörgum mynd-
um frá gamalli tíð. Þá er þátt
ur nemenda, ýmsar stuttar
greinar og myndir. Sigfús J.
Johnsen skrifar vorþanka, og
saga er efúr Á'na úr Eyjum.
Grein er um Gagnfræðaskól-
ann 25 ára og í ritmu er og
þáttur skáta. Björn Sifússon
skrifar um Vestmannaeyja-
klaustur og einnig eru ýmsar
styttri greinar. Ársritið er
120 blaðsíöur, prýtt fjölmörg-
um myndum, og er það skól-
anum til hms mesta sóma.
Vistlegt veitÍBigahús viö
tjörnina hefyr sumarstarf
í dag hefur veitingahúsið Tjarnarcafé sumarstarfsemi sína
í hinum vistlegu sölum, sem eins og áður hefir verið getið
l«afa nýlega verið mjög endurbættir.
sín hinn þekkta og vinsæla
Mun veitingahúsið fram-
vegis hafa opið fyrir gesti í
hádegisverð, milli kl. 12 og 2,
síðdegiskaffi frá kl. 3 til 5,
fyrir kvöldverðargesti frá kl.
7 til 9 og loks dansað frá 9—
11,30.
Tjarnarcafé hefir ráðið til
píanóleikara Aage Lorange og
hljómsveit hans, og munu þeir
félagar leika fyrir dansi á
hverju kvöldi, en auk þess
mun Aage sjálfur leika á
píanó fyrir gesti meðan þeir
snæða hádegisverð og kvöld-
verð.
Eisenhower vill gjarnan
ræða persónulega við Zukov
Washington, 18. maí. — Eisenhower forseti hélt hinn viku-
lega fund sinn með blaðamönnum í dag. Ræddi hann eink-
um fyrirhugaðan stórveldafund. Kvaðst hann mundi fagna
því, ef han?i í sambandi við þann funá, fengi tækifæri tU
að ræða við Zukov marskálk um þróunina síðan 1945, og
kynni nokkuð gott að leiða af þeim viðræðum. Aðalverkefni
stórveldafundar taldi hann að yrðu sameining Þýzkalands,
frelsi undirokaðra þjóða, afvopnun og útþenslustefna komm-
informríkjanna.
Erlendar fréttir
í fáum orðum
□ Útrunninn var í gœr írestur
íyrir flóttamenn, sem fiytja
viija frá Norður-Viet Nam. S00
þús. hafa þegar verið fluttir
til suðurhluta iandsins.
□ Fiskveiðar ganga mjog vel við
Grænland. Hafa Færeyingar
fen ið ágætan afía undanfarið.
□ Verkfail er yfirvofandi hjá
yfirmönnum á sænska kaup-
skipaflotanúm.
Ársþlng Bridgesambantís ís
lands var haldlð í Reykjavík
föstudaginn 13. maí sl. Mætt
ir voru 23 fulltrúar frá 8 fé-
lögum. Forseti sambandsins
fyhr næsta tímabil var kjör-
inn Ólafur Þorsteinsson og
meðstjórnendur Rannveig
Þorstemsdóttir og Eggert
Benónýsson, Reykjavík, Björn
Sveinbjarnarson, Hafnarfirði
Óli Örn Ólafsson, Akranes',
Sigurður Kristjánsson, Siglu
firði og Karl Friðriksson,
Akureyri.
Eins og vitað' er, fara flokk
ar héðan í næsta mánuði á
Norðurlandamót í bridge, og
þlngið ákvað að leggja á-
herzlu á að héðan verð' send
sveit á Evrópumótið 1956.
Fullgildinga friðar
samninga verði
hraðað
Vínarborg, 18. maí. — Raab,
kanslari AustuÞ'íkis lagð' til
í þinginu í dag, að sendar
yrðu þingmannanefndir til
þjóðþinga fjórveldanna allra
tU að hraða fullgildingu frið-
arsamnmganna hjá þessum
ríkjum. Þá sagði Raab, að
Austur'íkismenn væru fúsir
til v'ðræðna við V-Þýzkaland
um hvern'g farið skyldi með
þýzkar eignir í Austurríki.
Eisenhower kvaðst ekki vita,
hverja Rússa myndu cenda til
stórveldafundar, en hann
mvndi fagna því, ef hann gæti
rætt við Zukov persónulega.
í Ekki sagðist hann hafa átt
j bréfaviðskipti við Zukov ný-
■ lega og hyggði ekki á þau.
Heimsókn til Belgrad.
Fréttamenn spurðu forset-
ann, hvað hann héldi að lægi
að baki heimsókn Rússa til
Belgrad í mánaðarlokin. For-
setinn kvaðst ekki vita það, en
ekki væri ósennilegt, að Rúss-
ar hyggðust fá Júgóslafa til
að gerast hlutlaust ríki svip-
að og Sviss. Hann benti þó á
í þessu sambandi, að hlutleysi
Fé á afréttinni virt
ist líða vel
Frá fréttaritara Tímans
á Fosshóli.
Menn af fremstu bæjum í
Bárðardal að vestan fóru fram
á afrétt í gær til þess að að-
gæta, hvern'g fé því, sem
þangað var komið, hefði reitt
af í hríðarverðrinu. Virtist
ekkert hafa orðið af því og
fé ekki fennt svo teljandi
væri að minnsta kosti enda
fór snjórinn minnkandi efúr
því sem framar dró. Menn
vona og, að fé hafi ekki hrak
ið í Skjálfandafljót eða önn-
ur vötn þar syðra. Einn eða
tveir gemlingar hafa þó far-
izt í Kálfborgará í Bá'ðardal.
SLV.
Austurríkis yrði vopnað hlut-
leysi, líkt og í Sviss. Mjög er
nú um það rætt, að hin nýja
stefna Rússa byggist á því að
sett verði á stofn belti af hlut-
lausum ríkjum allt frá Adria-
hafi til Eystrasalts, milli
kommúnistaríkjanna og V-
Evrópu.
Vísir að dulminja-
safni í Rvík
Blaðamenn ræddu í gær við
Sigfús Elíasson, formann fé-
lagsins Alvara. Skýrði hann
frá því, að félagið væri nú að
koma upp dulminjasafni í
Reykjavík, og felst það eink-
um í fyrirmyndum, sem teikn-
aðar eru eftir fyrirsögn Sig-
fúsar. Er fyrirhugað, að sýn-
ing á safninu verði í Reykja-
vík í haust, og einnig á fleiri
stöðum á landinu, svo sem
Akureyri, ísafirði og Seyðis-
firði. Fyrirhugað er einnig, að
senda sýnishorn til Norður-
landa.
Ágætur afli Stöðvar
fjarðarbáta
Frá fréttaritara Tímans
á Stöðvarfirði.
Vélbáturinn Vörður er ný-
kominn heim af vertíð við
Suðurland og hefir farið fjóra
róðra héðan. Aflaði hann vel
i síðasta róðri eða 12—14
skippund og var helmingur-
inn steinbítur. Trillubátar
hafa róið og aflað sæmilega,
en orðið stopult síðustu vik-
ur vegna ógæfta.
Byrjað er á vinnu við hafn-
arframkvæmdir hér. Er á-
kveðið að lengja bryggjuna
um 20 metra í sumar, og batn-
ar við það öll aðstaða til upp-
skipunar og athafna.
60 málverk og myndir og
kjörbækur á listmunauppboði
Upplioð Signrðar Benediktssonar á morgun
Sigurður Benediktsson heldur næsta listmunauppboð sitt
í Listamannaskálanum á morgun, föstudag, kl. 5 síðdegis.
Verða þar seld um 60 málverk og myndir og nokkrar gamlar
kjörbækur.
Munirnir verða til sýnis í
Listamannaskálanum kiukk-
an 2—7 í dag og á morgun kl.
10—16. Klukkan 15 stundvís-
lega, hefst svo uppboðið.
Myndir þær, sem hér er um
að ræða eru eftir Kjarval, Ás-
grím, Kristínu Jónsdóttur,
Scheving og fleiri. Er þar
margt afbragðsmynda.
Þá verða einnig seldar
nokkrar mjög fágætar kjör-
bækur, og má nefna hina
stóru þriggja binda útgáfu af
Heimskringlu, sem út kom
1777, en hún er hinn mesti
kjörgripur og meðal fágæt-
ustu bóka á landi hér. Þá er
þarna þýzk saga gyðinga,
gefin út í Strassbourg 1603,
líklega úr bókasafni biskups-
stólsins i Skáiholti.
Eitthvað fyrir alla
á kvöldvöku leikara
Á máiiudag ©g þriðjiidag I Þjóðleikluisiuia
Félag íslenzkra leikara efnir til hinnar árlegu kvöldvöku
félagsins n. k. mánudag og þriðjudag. Að venju verður
skemmtiskráin mjög fjölbreytt og koma fram á milli 20—30
þjóðkunnir listamenn, en skemmtunin verður í Þjóðleik-
húsinu.
Á kvöldvökunni verða 12
skemmtiatriði, þar af fjórir
leikþættir. Einnig verða gam-
anvísur og eftirhermur og
óperusöngvarar syngja. Allir
þekktustu og vinsælustu leik-
arar og söngvarar Reykjavík-
ur koma fram á kvöldvökunni,
svo ekki þarf að efa, að það,
sem verður á boðstólum þar,
verður við allra hæfi.
Aðgöngumiðar að báðum
skemmtununum verða seldir
í Þjóðleikhúsinu á laugardag
og verða þær ekki endurtekn-
ar.