Tíminn - 28.06.1955, Blaðsíða 4

Tíminn - 28.06.1955, Blaðsíða 4
4 TÍMINN, þrigjudaginn 28. júní 1955. 141. blaíí. Guómunclur J. Einarsson: Hvaðan Orðið er frjálst er maðurinn? Þegar ég las grein Árna G. í^orsteinssonar póstafgreiðslu manns á Patreksfirði í 112. tbl. Tímans, komu mér í hug orð Brands btskups: „Engi maður frýr þér v'ts, en meir ertu grunaður um græzku“. Grein mín í 63. tbl. sama blaðs er sjáanlega tilefni þessarar greinar Á. G. Þ. og efnið virð íst mest vera tilraun til að skopast að dæmum þeún, er ég tók máh mínu til stuðnings. Þessi gamanmál Á. G. Þ. get ég að mestu leitt hjá mér. En grein hans fræðir mig þó um nokkuð, er ég viss' ekki áður, nefnilega það, að hann sjálf- ur á skuld (að nokkru leyt* a. m. k.) á því ófremdarástandi í póstmálum sem verið hef'r hér í sýslunni nú um smn. Ókunnugleiki hans á sinni eigin sýslu, sem Ijósast sést á. því, að hann hehr lagt til við póststjórnina, að leggja niður stuttan og lágan fjall- veg, og með þvi slíta sundur beint póstsamband milli Aust ur- og Vestur-Barðastrandar sýslu, samband, sem verið hefir frá því fyrst að póstsam göngur hófust hér um sýsl- una. Ókunnugleiki hans kem ur ekki sízt i ljós í því, að hann virðist ekki vdja skilja, að til séu algengustu náttúru fyrirbrigði, eins og ísalög og stormar. Ég segi það satt, mér verður á að spyrja: Hvaðan er maðurmn? í áðurnefndri grein minni tók ég sem dæmi um, hversu fráleitt það væri að leggja póstleiðina yfsr Kleifaheiði niður, að bréf frá Haukabergi til Vestur-Botns, sem sent væri samkvæmt hinu nýja skipulagi, myndi verða nokk- uð langan tíma á leiðmni. Á. G. Þ. dregur upp nokkuð glæst ari mynd af ferðalagi Þessa bréfs, sem hann vill láta vera bréf milli elskenda, og er ekk ert við þvi að segja nema gott Hann vill láta það fara frá Haukabergi á fimmtudag og sýnir með því, að hann hugsar sér sumarferð. Til Reykjavíkur lætur hann bréf ið koma á föstudag og til Pat reksfjarðar á laugardag. Og allt gæti nú þetta skeð, og væri fróðlegt að gera Mraun með hvernig þetta gengi. En þegar htla bréfið er komið i hendur Á. G. Þ. póstafgreiðslu manns, þá er líka fyrir- greiðslu þess frá hendi póst þjónustunnar lokið. Þá á mót- takandinn að labba þessa litlu 12 km. frá Vestur-Botni að Geirseyri og vera þar til að taka á móti bréfmu sinu. Geta mætti sér þó Þl, þar sem Vestur-Botn er sveitabær, að móttakandinn hversu áhuga samur sem hann væri að öðru leyti, hefði nú ekki tíma t»l að vitja bréfsins fyrr en eftir vinnu á laugardaginn eða fyrsta lagi kl. 9 um kvöldið þann dag. Og skeð gæti bá. að Á. G. Þ. væri búinn að loka pósthúsinu og væri með lyk ilinn í vasa sínum norður í Tálknafirði, bví að ég held ég megi fullyrða, að hann er van ur að loka kl. 12 á laugardög um. Og hvað ætti þá vesalings ástfangni pilturinn að gera? Bíða tíl mánudags? Nei, ég held, að ef ég væri i hans sporum, að ég heíði hvíslað því að kærustunni gegnum símann, að hún skildi bara ekkert vera að skrifa mér, þvi að fvrst ég þyrfþ að sækja þréfið 12 km. leið út á Geirs- eyi'i, þá munaði mig ekki allt um að labba til hennar á laug ardagskvöldið eftir vinnu. Það væri ekki nema þriggja km. spotti lengra. Annars finnst mér það furðuiegt, að jafn glöggur maður og Á. G. Þ. er, skuh af- eintómri löngun t'i að stríða öðrum, gera sig að athlægi allra kunnugra manna hér í sýslunni með því að halda fram firrum sem enga stoð eiga i veruleikanum. Hvað viðvíkur þeim breyttu skilyrðum, sem Á. G. Þ. verð ur svo tiðrætt um í grein sinni, þá heÞr vist enginn á allri póstleiðinni frá Kfn. til Patreksfjarðar orðið var þeirra breyttu skúyrða, skipa ferðir eru ekkert fleiri en þær voru fyrir 12 árum norðanvert við Breiðafjörð, flugsamgöng ur eru engar, og isalög og stormar eru tíð fyrirbrigði jafnt nú sem áður. Og hafi verið þörf á að hafa þessar póstferðir eftir sýslunni áður, er þess ekkert síður þörf enn þá, þ^’í að þótt Patreksfjörður sjálfur hafi eins og Á. G. Þ. segú' a. m. k. 5 fastar ferðir til Rvíkur á hverjum hálfum mánuði, þá breytir það engu fyrir allan almenning í Barða strandarsýslu utan Patreks- fjarðar og Bíldudals. Á. G. Þ. upplýsir, að póstleiðin Patr.- Brl. hafi s. 1. ár kostað póst- sjóð kr. 27.183,00. Þennan kostnað telur hann að hægt sé að lækka með jafngóðri póstþjónustu þó (ef leiðm yf ir Kleifaheiði væri lögð niður) niður í kr. 6,000,00. En því mið ur færir hann engin rök fyrir þessari staðhæfingu og hefði þó verið full þörf á því sökum þess að þétta er vægast sagt ótrúlegt. En sé það nú satt, að þessi vegarspotti 15 km. frá Vestur-Botni að Haukabergi hafi kostað póstsjóð kr. 21, 183.00, þá væri full þörf á að reyna að finna ódýrara fyrir komulag og ég er ekki í vafa um, að það er h^egt. Á.G. Þ. gerir lítið úr þeim póstflutningi, sem verið hefir á leiðinni Kfn-Patr. og minn ist á „meðalaglasaflutning“, sem ekki sé borgað undir í pcsti. Ekki get ég dæmt um, hvað mikil brögð hafa verið að þessum flutningi, en varla finnst mér þörf á að leggja póstleiðina yfir Kleifaheiði niður vegna þeirra orsaka, að góðir drengir hafi stungið í vasa sinn lyfjaglasi, og ég er viss um, að Á. G. Þ. myndi hafa gert það sama, hefði hann verið póstur á þessari leið. Og ég er þess líka fullviss, að póststjórnin amast ekkert við slíkri þjónustu. En hvað viðvíkur póstflutningnum sjálfur, þá má geta þess, að árið 1954 fóru hér um úr A- Barðas.trandarsýslu til Pat- reksfjarðar 183 skrásettar send'ngar og að vestan í aust ursýsluna 274 skrásettar send ingar og lang mest yfir vetrar mánuðina. Ég hygg að gera megi ráð fyrir að óskrásettar sendingar séu tífalt fleiri en skrásettar og sést á þessu, að úr ekki mannfleira héraði en A-Barðastrandarsýsla er, þá er þetta vonum fremur mikill póstflutningur. Hvað viðkemur breytingum á þeim póstferðum, er ég drap á i grein minni segir Á. G. Þ., að þær hafi til orðið vegna breyttra aðstæðna. Nei. Það hafði engin breyting oröið á samgöngum við austursýsluna þegar ferðunum var fjölgað úr 15 í 24 á ári, en með þess- ari fjölgún á ferðunum var úti lokað að einn og sami maður gæti annazt ferðina á allri póstleið>nni. Sama er að segja um síðari breytinguira, þegar ferðunum var fjölgað upp i 40 á ári, aðrar samgöngur höfðu ekkert breytzt, þar tU s. 1. sumar að sérleyfisferðir hófust úr Reykjavik Þl Bíldu dals. Að öðru leyti eru sam- göngurnar nákvæmlega þær sömu og voru fyrir 12 árum. En nú vil ég spyrja: Hvers vegna á að vera að kosta póst ferðir efth endilangri- sýsl- unni einu sinni í viku yfir sum armánuðna, en leggja þær nið ur á kafla á leiðinni um vetr' armánuðina? Ég held, að þetta sé öfugt skipulag. Hvers vegna ekki að lofa fólki að bjargast nokkuð á eigin spýt- ur að sumrinu, þegar allir veg ir eru færir og úrræðin þess vegna miklu fleú'i, mætti ekki spara frekar á þann hátt, held ur en á þann hátt, sem Á. G. Þ. hefir lagt tU? Ég hygg að íbúar á póstleiðinni Kfn-Ptr. myndu yfirleitt sætta sig bet ur við þá breytingu heldur en ef fat'ið verður eftir tillögu póstafgreiðslumannsins á Pat reksfirði. Sannleikurinn er sá, að vikulegar landpóstferðir eftir endilangri sýslunni yfir sumarmánuðina, er ofrausn, sem fáir hlutaðeigendur hafa dáðst að. Og fyrst nú hafa verið teknar upp bemar sér- leyfisferðir úr Reykjavík til Bíldudals (og því verður von andi haldið áfram), þá eru landferðir eftsr sýslunni eins og verið hefir, algerlega óþarf ar. í þess stað á að láta sér- leyfisbifreiðina færa póst- flutninginn á bréfhirðingarn ar og bréfhirðingar svo ann- ast um dreifingu hverja í sínu umdæmi. Þær verða að gera það hvort sem er, og það hef ir í flestum tilfellum engan aukakostnað í för með sér, en myndi spara póstsjóði stórfé. Hitt er lokaráð að leggja tU að slíta beint póstsamb. inn- an sýslunnar sundur, og mjög óvinsælt meðal almennings í héraðinu. Skipulag, sem byggt er á. vanþekkingu stendur aldr ei lengi. Ég læt þá útrætt um þetta mál og ætla mér ekki að karpa meira um það við Á. G. Þ. En mætti ég vera svo djarfur að leggja póststjórninni ráð, myndi ég segja: Spyrjið fólk ið, sem býr á þessari póstleið, áður en þið ákveðið að fylgja ráðleggingum póstafgreiðslu mannsins á Patreksfirði. Það er fólkið, sem nýtur eða geld ur skipulagsins, en hann ekki. Sumaráætlait: AKIREYBI-AISIUR Frá Akureyri: miðvikudaga. Frá Áustfjörðum — Egilsstöðum: þriðjudaga. Jákann Kröger. Útgerðarmenn! v I Ilöfum flestar stærðir rafg'cyma | fyrir vélbáta | Um 70% vélbátaflotans notar nú eingöngu | PÓL A H rafgcyma. Sölustaðir: Keflavík: Aðalstöðin h. f. Akranes: Þjóðleifur Gunnlaugsson. Vestmannaeyjar:. Halldór Eiríksson og Neisti s.f. Nýtt Hinir góðkumiu karlmannafrakkar frá Cen- trotex nýkomnir. Gerið góð kaup, meðan úrval er nóg. Tékknesku frakkarnir úr ullargabardine og poplini, eru viðurkenndir að gæðum. Vefnaðarvörudeild. Sími 2723. Héraðsskólinn að Reykjum tekur aftur til starfa í haust með svipuðum hætti og áður, ef nægur nemendafjöldi skólann. *“ Umsóknir um skólavist skulu sendar for- manni skólanefndar, hr. Karli Hjálmarssyni, kaupfélagsstjóra á Hvammstanga, fyrir 20. ágúst næstkomandi. í umsókn skal greina frá aldri nemenda, námsferli og í hvaða ársdeild skólans nemand- inn óskar að setjast. Formaður skólanefndar veitir nánari upp- lýsingar. SKÓLANEFNDIN.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.