Tíminn - 29.06.1955, Blaðsíða 2

Tíminn - 29.06.1955, Blaðsíða 2
TÍMINN, miðvlkudaginn 29. júni 1955. Sjukravottorö götulögregíu Stokkhólms ispp á mapveiki, hálsbólgu og fleira Götulögreglan í Stokkhólmi hefir sýkzt af íllvígri „sum- irve»ki“ og hafa ráðherrar orðið að rjúfa frí sín og leyfa ,að þeir yrðu sóttir í koptum til hvíldarstaða sinna út við ströndina, svo að landsfeður sænskir mættu ræðast við í konungshöllinni um þá húia miklu veiki, er herjar lög- regluliðið. Sænskir læknar hafa komizt í klandur út af lög reglupestinni, vegna þess að þeir eru tald’r hafa verið of frjálslyndir í sambandi við útgáfu sjúkravottorða. Annars er sjúkdómsgreiningin á þann veg, að lögreglan sænska þjá‘st af skorti á pe-vítamíni,(sé fjárvant og telji laun sín lág). Veikindin hófust með því, að sex hundruð lögregluþjónar í Stokk hólmi tilkynntu veikindi sín á ein- ■ rm og sania degi. Nemur það sex-; iíu af hundraði alls lögregluliðs! oorgarinnar. Plestir þeirra létu j iæknisvottorð fylgja tilkynningunni' jm veikindin, en hinir tilkynntu; að þeir myndu senda vottorð um veikindi sin siðar. S%. Sýkillirm. eru þau 8%, sem götu- lögreglan hefir ekki fengið í launa hækkun, þótt allir aðrir ríkisstarfs menn hafi fengið þá kauphækkun. Hundurinn liggur grafinn í því, að félag lögreglumanna hefir neitað að viðurkenna hina nýju kaupskrá rikisins og þar með 8% hækkun- :ina. Sextíu leynilögreglumenn voru fengnir til að stjórna um- íerSinni og áraði vel fyrir bandítta á meðan. Vanalega eru tólf tal- stöðvabílar á ferðinni á vegum lög reglunnar, en fyrsta veikindadag- :inn var ekki hægt að manna nema tvo. Magaveik* og hálsbólga. Eins og gefur að skilja stóð ýmislegt markvert á sjúkravottorð um lögreglumannanna. Mest bar þó á magaveiki og hálsbólgu, en þess háttar kvillar munu vera einna vinsælastir hjá iæknastétt- inni fyrir utan blessað kvefið. Einn lögreglumannanna hafði alveg prýðilegt sjúkravottorð. Hann hafði meitt sig í annarri stóru- íánni í fótbolta. Sagt er, að lækn- arnir hafi lagt sig alla fram um að hrekja framburð hvers lögreglu manns um veikindi sín, en það Útvorpíð UJtvarpið í dag. Fastir liðir eins og venjulega. 19.30 Tónleikar: Óperulög (plötur). .20.30 Erindi: Prá Þórði á Strjúgi (Jóhann Sveinsson frá Plögu cand. mag.). 20.55 Tónleikar (plötur). 21.25 Erindi: „Örlagavefur, — úr sögu tveggja fornkvenna" eftir 5orstein M. Jónsson skólastjóra (Halldór Þorsteins son flytur). 21.45 Garðyrkjuþáttur (Jón H. Björnsson skrúðgarðaarkltekt) 22.10 „Með báli og brandi", saga eftir Henryk Sienkiwicz, XXI. (Skúli Benediktss stud. theol.) 22.30 Dans- og dægurlög (plötur). 23.00 Dagskrárlok. Útvarpið á morgun. Fastir liðir eins og venjulega. 20.30 Erindi: Hvað geta íslenzkir bændur lært af stéttarbræðr- um sínum vestan hafs? (Árni G. Eylands stjórnarráðsfull- trúi). 21.00 Tónleikar: Aríur úr óperum eftir Puccini. 21.30 Upplestur: Séra Sigurður Ein- arsson í Holti les frumort kvæði. 21.45 Tónleikar: Jascha Heifetz leik ur á fiðlu (plötur). 22.10 „Með báli og brandi', saga eftir Henryk Sienkiwicz, XXII. (Skúli Benediktsson stud. theol.). 22.30 Sinfónískir tónleikar (plötur). 23.15 Dagskrárlok. Fengu þeir hálsbólgu e3a magave'ki gekk ekki betur en svo, að lang- flestir fengu sitt sjúkravottorð und irritað. Er það ekki andskotalaust fyrir sænsku lögregiuna til viðbót- ar við þau 8%, sem þeir fá ekki greidd, að verða að sinna skyldu- störfum sínum veikir, því enginn þarf að halda að sex hundruð manns geti fengið pottþétt sjúkra- vottorð á einum degi, ef ekki koma til langvarandi veikindi innan stétt arinnar. Þetta vilja vorir sænsku bræður samt sem áður ekki viður- kenna og segja að löggan sé að hlunnfara ríkið og brúka dóna- skap. BráðsmHandi veiki. Þegar fyrsti veikindadagurinn var iiðinn, bjuggust allir við því, að bundinn væri endi á útbreiðslu sjúkdómsins, en laugardagurinn rann upp með áttatiu og tvö ný til íelii. Öll þessi tilfelli voru í Gauta- bcrg og er útbreiðsluhraðinn of- boðslegur og þykir sýnt að veikin er bráðsmitandi. Undir kvöld á laugardaginn voru fimmtíu af veiku mönnunum í Stokkhólmi komnir til vinnu. Þykir sýnt, að þesir íimmt.u hafi aðeins borðað yfir sig, en ekki haft alvarlega magaveiki. Einhverjum erfiðleik- um hefir verið bundið að stjórna umferðinni í Stokkhóhni, en Sví- ar eru manna kurteisastir og þess vegna gekk umferðin nokkurn veg in hljóðalaust fyrir sig, þótt fáir væru til að stjórna henni. Hedlund innanríkisráðherra er sagður hafa verið á ferðinni yfir helgina í bif- reið sinni og gefið til kynna að allt væri rólegt. Jafnframt hefir) hann gert áætlun um að kalla lög- | regluna utan af landsbyggðinni til J bæjarins, ef veikindin verða ekkert I í rénun á næstunni. Læknarnir fá á baukinn. Þá víkur sögunni að læknunum. Skipuð hefir verið rannsókn á at- ferli þeirra í sambandi við vott- orðin. Sami iæknir er sagður hafa gefið út sextíu sjúkravottorð og annað er eftir því. Nokkuð bar á því, að lögreglulæknar undirrituðu vottorðin og þykir það taka í hnúkana. Heilbrigðismálaráðuneyt- ið hefir tekið málið í sínar hendur og leyfum vér oss að biðja fyrir ráðuneytinu, þar sem magakvillar ISóm, Mnkkan 11 Gamla bíói sýnir. Aðalhlut- verk: Lucia Bose, Capla del I'og-.;io cg Raf Vallone. Myndin er byggð á sönnum at- hurðum, skeðum ekki alls fyrir löngu. Það er auglýst eftir skrif- stofustúlku og fjöldi kvenna sækir um stöðuna. Þær þyrpast inn í húsið og bíða þess í stiganum, að röðin komi að þeim að verða próf aðar til starfans. Meðan beðið er, gerist það, að stiginn brotnar nið- ur og margar stúlknanna slasast illa, ein læzt af völdum meiðsla sinna. Við rannsókn málsins kem- ur fram, að ítalinn er þarna að spyrja alvöruþrunginnar spurn- ingar, en á því miður ekki önn- ur svör við spurningunni en þau, að yppta öxlum. Eftir að hafa séð þessa mynd, vaknar enn sú spurn, hvort ítalir standi ekki manna fremstir í kvikmyndagerð yfirleitt. Þeim er menningarlegur tígin- leiki svo í blóð borinn, að viður- styggðin í þessari mynd á í sér vaxtarbrodd fegurðar. Sjálf kvik- myndunin er meistaraverk. Leik- urinn nokkuð stríður en úttalaður og með hárri reisn. Persónugerðir margvíslegar og viðbrögðin eðli- leg, mannleg og venjuleg. Ekkert skrúð og engin tilgerð. Og þótt þessi mynd gæti verið tilbúning- ur, en ekki byggð á sönnum at- burðum, myndi enginn finna það. Það er eins og ítalskir kvikmynda menn hafi sjón og skilning á við allar Hollywoodborgir og undarlegt að úrættuð og spurnarlaus kvik- myndalist skuli geta þróazt við hlið ítalanna. Eins og allt annað, hefir verið reynt af einhverjum gáfnaljósum og spekingum að flokka ítalska kvikmyndalist og gefa henni nafn, svo hægt sé að afgreiða hana með uppsláttarorði. Róm," klukkan 11 er verðugt svar við þeim hundingjahætti. I. G. Þ. pKARinnJbnsson I LÖGGILTUS SK.JAIAWÐANDÍ OGOÖMTOLK.USIENSKU • KIUJVBVHI-sni 81B5S Ilringferð (Pramhald af 1. síðu). íarstaðaskóg. Síðan eins og leið liggur til Möðrudals og ’þaöan inn að Vatnajökli. Gengið verður í Kringilsár- rana og ekið í Herðubreiðar lindir og Öskju. Þaðan farið um Mývatn, Akureyri og til Reykj avíkur. Ekki er að efa að þetta verða hinar skemmtilegustu ferðir. Bílár Páls Arasonar ara nú að verða veðraðir í mismunandi loftslagi, enda er honum sama hvort hann stjórnar ferðum þeirra suður á Ítalíuskaga eða við Vatna jökul. og hálsbólga getur læknast á ein- um til tveimur dögum, svo sann- anir verða litlar í málinu. Nokkur hætta getur verið á því, að pe-vítamínskorturinn kunni að segja til sín víðar á Norðurlöndum hjá opinberum starfsmönnum, en fyrr hefir ekki verið vitað, að þess háttar skortur kæmi fram í maga- veiki, hálsbólgu og fótarmeiðslum fengnum í knattspymu. 142. blað. ...1 Orðsending frá Bólsturgerðinni Brautarholti 22 Ferðamenn, sem heimsækið höfuðstaðinn í sumarleyf- inu. Ef ykkur vantar húsgögn, þá komið beint tU okk- ar. V'ð bjóðum yður örugglega beztu og fallegustu húsgögnin. Eftirtalin húsgögn eru til á lager sem stendur: Sófasett útskorin, Hringsófasett, Létt sett alstoppuð, Armstólasett, Armstólar, Hallstólar, Handavinnustólar, Öreklappstólar. Svefnsófár, Sólhlífar, Sófaborð. Ðúsgögniii eru húin til af færustu fag- önnuni þessa bæjar. Sendum gegn póstkröfu sé þess óskað. Bólsturgerbin I. Jónsson h.f. Brautarholti 22. Sími 80388. 5SiSÍ4iÍ5ÍiSSÍ55Í5ÍSSÍÍ5Si4SSÍSi5S5Í5ÍSiÍSÍSiSSSÍSSi5S5SÍSSÍ5SÍ5Í5SSÍ5SiI Tilkynning Innflutningsskrifstofan hefir ákveðið eftirfarandi hámarksverð á unnum kjötvörum: Miðdagspylsur ...... Vínarpylsur og bjúgu Kjötfars ............. í heildsölu í smásölu . kr. 19,70 kr. 23,30 . — 21,25 — 25,20 . — 13,50 — 16,00 Söluskattur er innifalinn í verðinu. Reykjavík, 28. júní 1955. Verögæzlustjjórinn «S555SS55SSS5Í55SS555SÍ5SSS5SSSSSSS5SS5SSiSíiSSSÍÍÍ5ÍÍ5ÍSÍ5ÍSSSSÍ5SÍÍÍ5: Bátavél til sölu TÚ sölu er nýleg, ónotuð bátavél, diesel, 42—54 hestafla, með öxli, skrúfu og öllu tilheyrandi. VéUn er í fyrsta flokks standi tilbúin til niðursetningar 1 bát nú þegar. Hún er til sýnis í Vélsmiðjunni AFLI h.f., Laugavegi 171, Reykjavík. TUboð sendist undirrituðum fyrir 12. júll n. k. Þorvaldur Þórarinsson lögfræðingur, Þórsgötu 1, Reykjavík »4454S544S445545i454SS455544544445545554544aS4asgaaag«g»5»«y.'yr.r^rr.fTí^ WWVWWftWWWWóMWWWftWWWVWWWW* ÞÖKKUM af heílum hug auðsýnda vináttu við !• brúðkaup okkar og utanför. Hlökkum tU endurfunda. 3» Ebba Sigurðardóttii og Ólafur Skúlason WWIWIWWWWWVVVWVWWWWWwwyw'MVW> ÞÖKKUM INNILEGA auðsýnda samúð Og hlut- tekningu við andlát og jarðarför LOFTS ÞORSTEINSSONAR Haukholtum Börn, tengdabörn og barnabörn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.