Tíminn - 29.06.1955, Síða 4
4
TÍMINN, migyikudaginn 29. jání 1955.
142. blaf
Sambandsþing ung-
mennafélaganna
Fullkomin radíó-ljósmiðunarstöð
reist á Garðskaga í sumar
Slysavarnafélagið grelðir i'yrir
framkvæmdnm
Sambandsþ^ng Ungmenna-
íélags íslands veröur háð n.k.
íimmtudag og föstudag. Þmg
iS verSur háð á Akureyri, en
þar var fyrsta ísienzka ung-
mennafélagið stofnað í árs-
byrjun 1906, eða fyrir nær
50 árum.
Sambandsþing ungmenna-
félaganna er háð þriðja hvert
ár, og eru þar rædd málefni
félaganna. Liggja ýmis m*k-
ilvæg mál fyrir þessu þingi.
Héraðssambönd og einstök
ungmennaféiög um land allt
kjósa fulltrúa á þingið og
eiga rétt á að senda einn
mann fyrir hverja 120 félags
menn eða samtals um 100
fulltrúa.
í framhaldí af sambands-
þingrnu á Akureyri verður 9.
iþróttamót ungmennafélag-
anna, landsmót, háð á laug-
ardag og sunnudag, 2. og 3.
júlí. Er sýnt, að þátttaka í
þessu móti verður mjög mik
il. Aðstaða til íþróttakeppni
er ágæt á hinum nýja íþrótta
velli Akureyringa, en þar fer
mótið fram, svo og við sund-
iaugina, en einmitt þar var
á éinum tíma gerð einhver
fyrsta sundlaug á landinu.
Keppni í starfsíþróttum fer-
þó að mestu leytá fram á öðr
um leikvangi. og keppni í
starfsiþróttum kvenna fer
fram innan húss. En starfs-
íþróttir verða stór liður í
þessu móti. Aðrar keppnis-
greinar mótsins verða frjáls-
ar íþróttir, sund, handknatt-
leikur og glíma. Auk þess
verður sýningarglíma, flokk-
ur þingeyskra glímumanna
sýnir.
Laugardaginn 2. júlí hefst
dagskrá mótsins kl. 9 með
leik Lúðrasveitar Akureyrar
við Menntaskólann, og þar
verður mótið sett af for-
manni UMFÍ. Síðan veröur
gengið ta leikvallar, og í-
þróttakeppni hefst. Efttr mat
arhlé heldur keppnin áfram
til kl. 6, en kl. 8 um kvöldiö
hefst keppni í sundi. Að henni
lokinni verður ungmennafé-
lagsfundur við sundlaugina,
verður þar almennur söngur,
framsöguerindi og frjálsar
umræður.
Sunnudaginn 3. juli hefst
dagskrá enn með leik lúðra-
sveitarinnar, og kl. 9,30 verð
ur gengið í skrúðgöngu frá
Menntaskólanum til leikvall-
ar, og fer þá fram úrslita-
keppni í ibróttum.
Eftir hádegi verður sam-
koma á leikvelli, og hefst
hún með guðsþjónustu kl.
13,30. Sr. Sigurður Stefáns-
son, prófastur á Möðruvöll-
um, prédikar. Kirkjukór Ak-
ureyrar syngur og Lúðrasveit
Akureyrar leikur undir stjórn
Jakobs Tryggvasonar.
Valdimar Óskarsson, form.
Ungmennasambands Eyja-
fjarðar, setur samkomuna að
lokinni guðsþjónustu. Síðan
flytur Þorstéinn M. Jónsson,
skólastjóri, ræðu, Karlakór
Akureyrar syngur undir
stjórn Áskels Jónssonar, Da-
víð Stefánsson, skáld frá
Fagraskógi, les upp, Þórar-
inn Björnsson, skólameist-
ari, flytur ræðu og Guðmund
ur Jónsson, óperusöngvari,
syngur með undirleik Fritz
Weisshappel. Eftir þetta held
ur áfram úrslitakeppni í í-
þróttum, og jafnframt verða
ýmsar hópsýningar, glima,
fimleikar og ef til vill fleira.
Kl. 8 um kvöldið verður
enn keppt í nokkrum sund-
greinum, en síðan verða tú-
kynnt úrsút í keppnisgrein-
um mótsins og verðlaun af-
hent. Að lokum ávarpar for-
maður UMFÍ samkomuna og
slítur mótinu.
Ýmsar skemmtanir verða í
samkomuhúsum bæjarins
meðan mótið stendur, t. d.
leiksýningar, kvikmyndasýn-
ingar og dans. Bæði laugar-
dagskvöld cg sunnudags-
kvöld verður dansað á palli.
Landsmót ungmennafélag-
anna er ávallt merkisatburð-
ur, bæði vegna hinnar félags
legu þýðingar þess og íþrótta
árangurs. Mikil áherzla ei'
jafnan lögð á, að þátttaka í
iþróttum sé sem almennust,
en þó er líka ánægjulegt að
sjá emstaka afreksmenn,
sem skara fram úr og setja
ný met — og nokkrutn sinn-
um hafa íslandsmet verið
sett á laixdsmótum ungmenna
félaganna.
Undirbúningur þessa móts
hefir að rnestu leyti hvílt á
Ungmennasambandi Eyja-
fjarðár, sem unnið hefir af
miklum dugixaði. Horfir vel
um framkvæmd þess, enda
mun marga fýsa að leggja
leið sína til Akureyrar um
næstu helgi.
| annast bifreiðakennslu og
meðferð bifreiða.
| Upplýsingar I síma 82609
iítniuiiiniiiiiiiiiiiniimiiiiniiiiiniiiiiiuiiHiiiiiiiiiiiiir
Horfur eru á því að búið
verði að reisa fullkomna ra-
dio-ljósmiðunarstöð á Garð-
skaga fyx'ir næstu vetrarver-
tíð.
Samkvæmt tillögu forsætis
og sjávarútvegsmálaráðheiTa
Ólafs Thors, þá var samþykkt
á Alþingi i vetur að veita fé
á fjárlögum næstu þriggja
ára í þessu skyni kr. 120.000
— í hvert skipti. Nú hefir
Slysavarnafélagið boð'izt til
að greiða nú þegar allan kostn
að gegn væntanlegu fram-
lagi ríkissjóðs svo að stöð
þessi geti verið komin upp
fyrir næstu vetrarvertíð, en
það er rnikið áhugamál sjó-
manna og útvegsmanna á
Suðurnesjum og brennandi
áhugamál slysavarnadeild-
anna.
Slysavarnafélaginu hafa
nýlega borizt áskoranir með
eiginhandarundirskriftum
skipstjórnarmanna í Njarð-
víkum, Keflavik, Garði og
Sandgerð'i um að flýta eins og
hægt er fyrir uppsetiringu
þessara tækja.
Radiomiðunartæki þau,
sem hér um ræðir, eru mjög
fullkomin og sérstaklega fær
um að miða skip á talstööva-
bylgjulengdum, en það hefir
hingað til verið ýmsum vand
kvæðum bundið.
Áhugamöxxnum gafst sér-
stakt tækifæri til að skoða
eitt afbrigði þessara tækja
um borð í þýzka haframx-
sóknai-skipinu „Autiix Dhorn“
og wru mjög hrifnir af.
Adcoch radiomiðunarstöð
sú, er hér um ræðir, er sönxu
tegundar og notaðar eru til
skipamiöuxxar á þýzku strand
stöðvxinum. Eru það nijög
fullkonxin tæki og aö nxestu
Ieyti sjálfvirk, svo að mun
fyrirhafnarminna og örugg-
ara er að taka miðanir nxeð
þeim en eldri gerðunx nxiðun-
arstöðva, svo senx þeitxx, senx
hér hafa verið almennt not-
r.ðar í skipum og í landi.
Næmni hmnar nýju nxiðun-
arstöðvar á Garðskaga verð-
ur 25 sinnum meiri en gömlu
tækjanna, sem þar eru nú,
og hefir sú stöð þó komið að
nxjög miklu gagni síðan hún
var réisty en eftir að útsend-
ingartiðni fiskibátanna var
brevtt hefir það valdið örðug
leikum að nota stöðina nenxa
á hinni gömlu öldutíðni.
Nýja stöðin er eins og áð-
ur segir, miklu nænxari fyrir
nióttökú á veikum merkjunx
en aftur nxjög ónæm fyrir öll
unx truflunum á nálægunx
öldutíðnum er hún getur
hægiega útilokað og er það
mjög mikill kostur, þegar
taka á miðanir í miklunx
trxiílnnum.
Nýlégá barst Slysavarnafé
Iagi íslands að gjöf kr. 5.000,
00 frá'börnum hjónanna Guð
rúnar. Sigurðardóttur og Þor
leifs Rögnvaldssonar frá Ólafs
firöi til minningar um þau.
HORMONAEFNI fyrir garða og tún
EFNI: ít GRÓÐUR: ÁHRIF EFNISINS: MAGN Á 1000 m2: DREIFINGARTÍMI:
HERBASOL Kom Kartoflur Grænfóður Sáðgresi Drepur arfa % Itr.: 100 ltr. vatn í vikunni, sem kartöflu- grösm sjást. Þegar arf- inn hefir 2—4 verðandi blöð
HERBATOX D 50 Tún Korn Grasblettir Drepur njóla, elft- ingu, kúmen, vall- humal og hvönn. i/últr.: 50 Itr. vatn Þegax gróður er í sem örustum vexti, Einnig eftir slátt.
HERBATOX M 25 Tún Korn Grasblettlr Drepur sóleyjar, fifla, maríustakk, lokasjóð, o.fl. tegundir. 1 ltr\: 50/75 ltr. vatn Sami timi -
ANTERGONE 20 Grasblettír Garðlönd Stöðvar vöxt grass. Eykur geymsluþol garðávaxta. 2 Itr.: 100 Itr. vatn Strax eftlr slátt. 2—5 vikum áðúr en tekið er upp.
LINDAN 10 Rófur Kál Drepur kálmaðk 300 gr.: 100 ltr. vatn Frá þvi um miðjan júní.
KUPROTOX Kartöflur Gegn kartöflumyglu. 700 gr.: 100 ltr. vatn Slðast i júlí.
1
< !
::
Beztur árangur næst af efninu ef úöað er yfir gróðurinn með úðadælu, en hægt er að notast við garðkönnu þar sem um
litla bletti er að ræða, en þá ber að nota meira vatnsmagn.
HERBASOL er eitrað, önnur efni ekki.
HERBATOX efnin hafa engin áhrif á korn og gras.
ANTERGONE 20 er heppilegast að úða á vorin á grasbletti, þá þarf aldrei að slá þá.
Úðið í þiuru veðri og þegar útlit er fyrir áíramhaldandi þurrk.
Ofangreind efni eru ýmist fyrirliggjandi eða væntanleg bráðlega. — Úðadœlur (bakdælur) eru væntanl. um miðjan júlí.
Efrxi þessi verða seldi í smásölu í Reykjavík í Verzlunúxni Blóm & Ávextir, Hafnarstræti 5.
BJÖRGVIN SCHRAM, heildverzlun
Hafnarhvoli, 3. hœð. — Símar 82780 og 1653.
< -