Tíminn - 29.06.1955, Qupperneq 6

Tíminn - 29.06.1955, Qupperneq 6
6 TÍMINN, migyikudagmn 29. júni 1955. 142. blaff. GAMLA BÍÖ Róm, klukkan 11 (Roma, Ore 11) ! Víðfræg ítölsk úrvalskvikmynd I gerð af snillingnum G. De Sant- jis („Beizk uppskera") og 6amin j af Zavattini (samdi „Reiðhjóla- [þjófinn") Aðalhlutverk: Lucia Bocé, Carla Del Poggio, Raf Vallone. Sænskir Bkýringartextar. Aukamynd: Fréttamynd: Salk-bóluefnið, valdaafsal Churchills o. fl. Sýnd kl. 5, 7 og 0. N>,». Maðurinn í Effelturninum Geysi spennandi og sérkennileg frönsk-amerísk leynilögreglu- mynd í eðlilegum litum. Charles Laugthoií Burgess Meredith. Sýnd kl. 7 og 9. Bráðspennandi amerísk mynd í eðlilegum litum. Aðalhlutverkið leikur hinn þekkti og vinsæli leikari Cornel Wiide, ásamt Teresa Wright. Sýnd kl. 5. Dóttir Kaliforníu Bráðspennandi amerísk mynd í eðlilegum litum. Aðalhlutverkið leikur hinn þekkti og vinsæli leikari Cornel Wilde, ásamt Teresa Wright. Sýnd kl. 5. BÆJARBIO HAPNAafFIRÐI - Morfín Frönsk-ítölsk stórmynd í sér- flokki. — ASalhlutverk: Daniel Gelin, Elenora Rossi-Drago, Barbara Laage. Myndin hefir ekki verið sýnd hér á landi áður. Danskur skýr- ingartexti. Bönnuð börnum. Sýnd kl. 7 og 9. Sími 9184. NÝJA BÍO Sayan af Amebr Hin fræga ameríska stórmynd í litum, gerð eftir samnefndri skáldsögu, sém komið hefir út í íslenzkri þýðingu. Linda Darnell, Cornel Wilde, George San/ders. Sýnd kl. 5 og 9. Bönnuð börnum yngri en 12 ára ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ TRIPOLI-BÍÓ IMútíminn (Modem Timea! Þetta er talin Bkemmtilegasta mynd, sem Charlie Chaplin hef- ir framleitt og leikið 1. í mynd þessari gerir Chaplili gys að véla menningunni. Mynd þessi mun koma áhorfendum til að veltast um af hlátri frá upphafi til enda. — Skrifuð, framleidd og gtjórnuð aí Charlie Chaplin. Sýad kl. 6, 7 og #. ■ AUSTURBÆJARBÍÓ Verðlaunamyndin: llúsbóndi á sínu heimili (Hobson’g Choice) Óvenju fyndin, og snilldarvel j gerð, ný, ensk kvikmynd. Þessij kvikmynd var kjörin „Bezta j enska kvikmyndin árið 1954.“ Myndin hefir verið sýnd á fjöl-J mörgum kvikmyndahátíðum | víða um heim og alls staðar hlot í ið verðlaun og óvenju mikið hrós j gagnrýnenda. Sýnd kl. 5, 7 og 0. Allra síðasta sinn. •♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ HAFNARBÍÓ Bim8 «4M Virkið við ána (Stand at Apache River) Spennandi og viðburðarík, ný,l amerisk litmynd um hetjulegaj vörn 8 manna og kvenna gegnj árásum blóðþyrstra Indíána. Stephen McNaliy, Julla Adams, Hugh Marlow. Bönnuð börnum innan 18 ára.j Sýnd kl. 5, 7 og 0. Týndi drengurinn (Little boy lost) Ákaflega hrífandi, ný, amerisk mynd, sem fjallar um leit föður iað syni sínum, sem týndist í Frakklandi á stríðsárunum. Sagan hefir birzt sem fram- haldssaga í Hjemmet. Aðalhlutverk: Bing Crosby, Claude Dauphin. Sýnd kl. 5, 7 og 0. Hafnarfjarð' arbíó Karnival í Texas Fjörug og’ skemmtileg banda-S rísk músík- og söngvamynd íj litum. Aðalhlutverk: Esther Williams, Red Skclton, Howard KeeL Sýnd kl. 7 og 0. Tengill h.f. HEIÐI V/KLEPPSVEG Raflagiiir Ylðgerðir Efnissala Ragnar Jónsson hæstaréttarlögmaður Laugavegl 8 — Sími 7752 Lögfræðistörl pg elgnaumsýsla Erlent yflrlit (Pramh. af 5. síðu.) þótt ekki virtist liggja mikið eftir hann í fyrstu. Meðal forustumanna vesturveld- anna virðist sú stefna ríkjandi, að þeim beri að haga afstöðu sinni á fundinum eftir framkomu Rússa. Ef stefna Rússa sé lítið eða ekki breytt, verði vesturveldin að halda fast við sitt. Sýni Rússar hins veg ar tilhliðrunarsemi og samkomulags vilja, beri vissulega að reyna að mæta þeim á miðri leið. Þá er lögð á það áherzla af hálfu forvígismanna vesturveldanna, að vænlegasta leiðin til árangurs sé sú, að Rússum verði ljóst, að sam heldni vestrænu þjóðanna verði ekki rofin og þeir geri sér því ekki neinar falskar vonir um sundrungu þeirra. Það væri líklegra til að draga úr samningavilja Rússa en nokkuð annað. Þ. Þ. Hver stöðvar . . ? (Framhald af 5. síöu). framkvæmd er stöðvuð. Væri fróðlegt að heyra emhver rök fyrir því, að svo nauðsynleg framkvæmd, sem var leyfð fyrir nýár, skuli ekki leyfð en tafin mánuð eftir mánuð. Það er ekki nóg að fram- leiða vaxandi magn af land búnaðarvörum án þess að gera samsvarandi ráðstafanir til að búa afurðirnar sem bezt í hendur húsmæðranna og koma upp kerfi til að selja þær. Þetta vill Sambandið gera og fær því ekki betur séð en að unnið sé vísvitandi gegn augljósum hagsmunum bændastéttarinnar og neyt- enda með því að bregða fæti fyrir þetta mál. Ber því að vona, að mál þetta verði afgreitt hið fyrsta, svo að kjötiðnaðarstöðin missi ekki bezta byggingar- tíma ársins að óþörfu. Erlendur Einarsson. Aðalfiimlnr . . . (Framhald af 3. stóu). höfðu í hyggju að gera það við fyrsta tækifæri. Mættar voru gestír á fund inum: Frú Sigríður Finnboga dóttir, frú Herdís Jakobsdótt ir, heiðursforseti S.S.K., frú Guðlaug Narfadóttir frá Al- V.R.R. og flutti hún erindi um áfengismál. Síðari dag- inn mættu einnig frú Arn- heiður Jónsdóttir námsstj. í handavinnu og hafði hún sýningu á fyrirmyndum að handavmnu barna og ungl- inga, og frú Sigríður J. Magn ússon, sem flutti erindi um kvenréttindamál. Formaður S.S.K. er frú Halldóra Guðmundsdóttir, Miðengi, ritari frú Sigurlaug Erlendsdóttir, Torfastöðum og gjaldkeri frú Ingibjörg Jónsdóttir, Stokkseyri. = : I TÉKKNESKU ( karlmanna- ( skórnir KOMNIR AFTUR. Aðalstræti 8, Laugavegi 20, Garðastræti 6. i I uauiiimiiniiiMiimiiiiiiHiiniiiiiimiHiiiiixiiiKiiiuiui 73. Ib Henrik Cavling: KARLOTTA hafði strax þekkt skriftina, þótt hún hefði ekki séð hana í fjögur ár. Bréfið var frá John Graham. Luxemburararaarði yið vatnið klukkan 16. J. G. John var í París og hann vildi hitta hana kl. 16. Karlotta starði fram fyrir sig. Hún hafði ekki gleymt John, þótt hún hefði ekki heyrt neitt frá honum allan þennan tíma. Henri hafði sagt henni að hann hefði komizt heilu og höldnu til Englands, en hvaðan hann hafði þær upplýsmgar hafði hann ekki skýrt frá. Jú, Karlotta elskaði John enn þá. Um nætur svo hundruðum skipti hafði hún verið hjá honum í draumalandi. Það fyrsta, sem hún fann til nú var léttir. . Hann var að minnsta kosti lifandi. Vitundin um að hann væri í París, ef M vill aðeins nokkra km. frá henni var yfirþyrm- andi og hjarta hennar hamaðist í brjósti hennar. Skyndilega var ems og allar áhyggjur og sorgir hyrfu frá Karlottu. Þegar Birta nokkrum augnablikum síðar kom inn í stofuna, ætlað1 hún vala að þekkja vinkonu sína. Augu Karlottu voru geislandi græn og það var svo langt síðan Birta hafði séð bregða fyrir í þeim þessum sérkenni- lega glampa, að hún gat ekki munað, hvenær það var. — Hvað hefir komið fyrir, Karlotta? — Er ekki hægt að sjá þaö á mér? — Jú, það mætti ef til vill geta sér þess tU. Birta settist í sæti sitt andspænis Karlottu og leit á hana forvitnislega. Án þess að segja orð, rétti Karlotta henni bréf- ið. Hörmungar stríðsins höfðu fyrir löngu sameinað bernsku- vinkonurnar að nýju, svo að þær áttu ekki lengur nein leyndarmál hvor fyrir annarri. Birta las hið stutta bréf. — John Graham, gat hún sér strax tU, — en það er ekkl neitt vatn í Luxemborgargarðinum. Karlotta hló aftur. — Það er sjálfsagt tjörnin, sem hann meinar. — Það er þó gott að Henri er ekki heima, Karlotta. — Hví þá það? — Honum myndi ekki geðjast að þessu. Þú veizt, hvað hann er hræddur við að þú teflir á nokkra tvísýnu. Karlotta yppti öxlum. Hefði hann verið heima, myndi ég ekki hafa sagt honum frá þessu. Hann getur ekki þolað John. — Nei, en það er nú ekkert undarlegt, þótt svo sé. Er ást þín á honum sú sama? Karlotta staröi svo lengi út um gluggann, að Birta hélt að hún hefði ekki heyrt spurninguna. Svo sagði Karlotta lágt: — Já, það er hún og mun ávallt verða sú sama. í fyrsta sinn í marga mánuði hafði Karlotta áhuga á fatnað'i sínum. Eftir hádegisverð fór hún að,athuga fata- skápa sína. Þeir voru þrátt fyrir styrjöldina mjög vel birgir af alls konar kjólum og fötum. Henri sá um það. Það var ekki sá hlutur tU, sem Henri gat ekki náð í. Karlotta hafði enga hugmynd um hvernig hann fór að þessu, en hún var viss um að hann fékk það í gegnum þýzkar hendur. — Ég á að hitta Jóhn, ég á að hitta John, endurtók hún í sífellu við sjálfa sig. Hún þreytttst aldrei á að endurtaka nafn hans. Hvernig skyldi hann annars líta út. Hafði styrjöldin breytt honum? Var hann orðinn eldri? Auðvitað var hann bað. Hún var sjálf eldri. Ilún athugað1 andlit sitt í speglinum. Nei, hún var enn ekki orðin hrukkótt. Það var annars merkilegt með allar þær áhyggjur, sem að henni steðjuðu. Hún minnt- ist Henris. Peningarnir höfðu ekki fært honum mikla gleði. Hann var orðúin alveg grár fyrir hærum, þótt hann væri enn ekki orðinn fertugur. Kalotta settist á rúmstokkinn og hugsaði sig Um. Ekki dugði að vera of vel klædd, það vakti of núkla eftirtekt í París í þá daga. Hún varð líka að vera í einhverju, sem ekki stmgi mjög í stúf við föt Johns. Hann var auðvitað dulbúinn, en varla í samkvæmisfötum. Svo ákvað hún að fara í ein- faldan svartan kjól. Þegar hún var komin í hann, virtist henni hann samt full dapurlegur. í skúffu einni fann hún knipplingakraga, sem Henri hafð1 einu s'nn1 keypt í Chan- tilly. Hann bætti mikið úr skák. Jafnvel þó að úti væri hlýr vordagur vildi Karlotta samt ekki ganga solckalaus. Nú var einmitt tækifæri til að reyna þessa merkilegu nýju sokka, sem Henri hafði gefið henni fyrir nokkrum dögum. Þeir voru amerískir og úr hýju efni, sem hét nælon. Henri hafði sagt henni, að eftir striðið mundi þetta efni valda byltmgu á heimsmarkaðinum vegna þess hversu sterkt það værÉ Hvaðan Henri hafði fengið sokkana vissi hún ekki. Ef þem væru frá Þýzkalandi, fannst henni þeir í meira lagi ein- kennilegt herfang. Karlotta sneri sér fyrir framan spegilinn og skoðaði sjálfa sig í krók og kring. Litlu rússkinnsskórnir hennar voru dá- lítið snjáðir á tánum, en v^ð því var ekkert að gera. Henri gekk einna verst að útvega henni slcó vegna þess live htla fætur hún hafðí. Það var barið "að dyrum og Birta kom inn. Hún tók and- ann á lofti, þegar hún sá Karlottu. — Hamingjan sanna og sæla, Karlotta. Hann fellur í stafi, þegar hann sér þig. Birta hafði oft furðað sig á því, að styrjöldin skyldi ekkl hafa haft meiri áh'rif á Karlottu en raun var á. Sjálf hafði Birta látið mikið á sjá.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.