Tíminn - 24.07.1955, Side 5

Tíminn - 24.07.1955, Side 5
J«4v blað. TÍMINN, sumiudainn 24. jálí 1955. Laugard. 23. júlí Breytt viðhorf og auknar friðarvonir Það er bersýnilegt, að mikl- ar breytingar eru nú aö gerast í heiminum — breytingar, sem spá góðu um það, að friður muni haldast og styrjöldum verða afstýrt. Þessar breyting- ar virðast ná jafnt til almenn ings og forustumanna þjóð- anna og því renna undir þær svo traustar stoðir, að þær eru líklegar til mikilla og var anlegra áhrifa. Svo örar eru sumar þessar breytingar, að ýmsir eiga vafalaust erfitt meö að fylgj- ast með þeim og átta sjg á þeim. Það má t. d. alveg heita full víst, að hefði Eisenhower for- seti rétt fyrir forsetakjörið 1952 borið fram hina sögulegu tillögu um gagnkvæmt vígbún aöareftirlit Bandaríkjamanna og Rússa, myndi hann hafa beði<3 stóríelldan ósigur, ‘þrátt fyrir hinar miklu per- sónuiegu vinsældir sínar. Nú verður hins vegar ekki betur séð en að BandaríKjamenn standi nokkurn veginn sam- einaðir um þessa tillögu hans. Annað dæmi frá Bandarikj unum er það, að fyrir um tveimur árum síðan, var Mc- Carthy öldungadeildarmaður meðal voldugustu manna Bandaríkjanna. Ráðherrar og þingmenn reyndu að komast hjá því að lenda í deilum við hánh. Farið var að ræða um það i alvöru, að hann kæmi til greina sem forsetaefni í Bandaríkjunum. Nú er Mc- Carthy hms vegar fallin stjarna og vafasamt þykir, að hann muni halda sæti sínu sem - öldungadeildarmaður, þegar hann þarf aftur að sækja um endurkosningu eft- ir þrjú ár. Svipuð dæmi má yfirleitt nefna frá flestum lýðræðis- ríkjum um breytt viðhorf þar. Erfiðara er hins vegar að segja um það, sem er að ger- ast í löndunum austan járn- tjaldsins. Margt bendir þó td þess, að fráfall Stalíns hafi verið heimssögulegur viðburð ur. Þessi kaldræni einræðis- seggur hélt heiminum á barmi styrjaldar og tortíming ar, bæði vegna drottnunar- girni og tortryggni. Vafalaust eru eftirmenn Stalíns fylgj- „e.ndur rússneskrar heúnsveld- jSStefnu og kommúnisma eins og 'hann, en hins vegar hóf- legri í vinnubrögðum og á- hugasamari um að bæta kjör almennings. Vaxandi vit- meskja um eyðileggingarmátt kjarnorkusprengjunnar hefir og sín áhrif á þá, engu síður en aöra. Án efa á ekkert meiri þátt í vaxandi friðarstefnu beggja megin járntjaldsins en óttinn við kjarnorkusprengj- una, er myndi gera nýja styrj “öld hundraðfalda að eyðilegg ingu, miðað við fyrri styrjald- ir, — eyðileggingu, er myndi ná jafnt til beggja aðila. Viðhorfin eru óneitanlega að breyiast tU þessara mála hvarvetna í heiminum. Frið- arstefnan er að eflast.Barátta ,'milli kommúnismans og lýð- ræðisins mun að sjálfsögðu haldást áfram, en fylgjendur fceggja stefnanna munu leit- Hver er uppruni hinna duiar- fullu myndasfytta á Páskaey? Thor Heycrdahl nuin Firáðleg'a leggja upp í leiðangcir íil Páska- eyjar, til að freisla þess að fá svar við þeirri spurninga — — Hinn hugrakki norski landkönn- uður, Thor Heyerdahl, sem sigldi yfir Kyrrahaf á flpkanum Kon Tiki, er nú að útbúa leiðangur til Páska- eyjunnar. Hann ætlar að freista þess, að fá úr því skorið, hvaðan risastytturnar á þessari litlu eyju séu runnar. Vísindamenn hafa glímt við að fá svar við þessari spurningu allt frá því, að hollenzkir sjómenn fundu eyjuna fyrir um það bil 200 árum síðan. Þá stóðu styttur þær, I sem um er að ræða, víðs vegar á eyjunni, og sneru baki til hafs. Sumar voru meira en 30 fet á hæð, aðrar minni, en allar líktust hver annarri. Undir sumum þeirra voru ferhyrndar steinhellur, og var á- litið, að undir þeim væru grafir. Á Páskaeyjunni, sem er aðeins 166 ferkílómetrar að stærð — punktur á landabréfinu — gekk lífið sinn friðsæla vanagang. Hinir innfæddu umgengust stytturnar, án þess að hafa minnstu hugmynd um, hvað- an þær væru runnar. Seinna komu ógnartímar, margir af ibúum eyj- arinnar voru teknir til fanga af hvítum mönnum cg hnepptir í á- aauð. Enn sem Romið er hefxr ekki tekizt að upplýsa það, hvaða íólk það var, sem á sínum tima gerði stytturnar, eða hve langt er siðan. Thor Heyerdahl, sem fór Kon Tiki förina í því skyni að sanna, að ýmsar Kyrrahafseyjar væru byggð- ar fólki, sem fyrrum hefði flutzt frá S-Ameríku, ætlar nú að reyna að færa sönnur á það, að hið list- ræna fólk, sem gerði stytturnar á litlu eyjunni hafi einnig komið frá suður-ameríska meginlandinu. Hann mun ekki aðeins vinna álykt- anir sinar út írá styttunum, held- ur einnig frá myndletri, eða híero- glyfri, sem fundizt hefir á eynni, skorið í tré. Enn hefir ekki tekizt að þýða þetta myndletur. Heyerdahl mun varla takast að fá verulegar upplýsingar frá íbú- um eyjarinnar, frekar en öðrum, sem reynt hafa. fbúarnir eru um 250 að tölu, pólynesiskir að uppruna. Áður fyrr voru langtum fleiri ibú- ar á þessari einmana ey, sem ligg- ur 3200 km. frá ströndum Chile í suðurhluta Kyrrahafs. Miklar sögu- sagnir lifa með eyjarskeggjum, flest ar sprottnar af hinum dularfuliu styttum. En sögusögnum þessum hefir aldrei verið safnað saman, og ekki er hægt að sjá af þeim, hvers vegna stytturnar voru gerðar og hvað þær eiga að tákna. Hins vegar hafa menn glögga hug mynd um, hvernig þær voru gerð- ar. Páskaeyjan er klettótt eldgíga- ey. Stjitturnar eru gerðar úr eld- brunnum steintegundum, sem eru fremur mjúkar, og fundizt hefir styttuverkstæði á eynni. Þar eru alls konar styttur, sumar hálfgerð- ar, aðrar næstum fullbúnar. Einn- ig hafa fundizt byrjunardrættir að Svona eru risastytturnar, sem hmir tnnfæúdu nefna Mohat's. styttum í klettum og hálígerðar styttur, sem listamennirnir hafa greinilega hætt við, vegna þess að þeir rákust á harðari steintegundir, mitt inni í hinum mjúka hraun- steini. Hörðu steintegundirnar réðu þeir ekki við, vegna þess, að verk- færin voru einnig úr steini. Á „verk stæðinu" hefir fundizt fjöldi stein- verkíæra með egghvössum brún- um. Þau hafa greinilega verið fram- leidd í íjöldaframleiðslu hapda myndhöggvurunum, og þegar verk- færin hættu að bíta eða skörð komu í þau, heíir þeim verið hent og ný tekin í þeirra stað. Þeíta höggmyndaverkstæði undir berum himni er staðsett í gömlum eldgíg. Þaðan varð að draga stytt- urnar ofan úr fjöllunum og niður a'o ströndinni, þar sem þær voru reistar. Þar sem stytturnar vega allt að 50 smálestum, er hægt að gera sér í hugarlund, að þetta fólk hlýtur að haía haft mjög mikla skipulagsgáfu, cg einnig, að það hefir haít skipulagt samfélag, sem annað hvort hefir getað sett með- limina í þegnskylduvinnu, eða hald- ið þræla til að inna af höndum hina erfiðu vinnu. Alls hafa fundizt rúmlega 150 styttur á Páskaeyjunni. Þær eru næstum allar m;ög likar hver ar.n- arri. Andiitið er langt og hnakka- laust, með löi.g bátlaga eyru og líkanið nær niður að beltisstað. Fætur fyrirfinnast ekki, en stytt- urnar standa á sléttum fleti, cg i fjarlægð lítur helzt svo út, að hér sé um að ræða mennskar verur að hálíu leyti grafnar í jörð. Hvað tákna þessar höggmyndir? Vísindamennirnir halda því fram, að þetta eiri að vera myndir af for- feðrunum. En margar getgátur í þessu sambandi eru óleystar. Hvers vegna voru stytturnar i fyrsta lagi höggnar út? Hvers vegna snúa þær allar baki til haís? Hvað eiga þær að tákna? Hvers vegna hefir meiri hluta þeirra verið velt um koll? Svo virðist,. að flestar eða allar hafi staöið uppréttar, þegar eyjan fannst fyrir tveim öldum. Nú ligg- ! ur hins vegar meiri hluíinn annað | hvort á andliti eða baki. Margar ' styttur eru þar að auki meira og minna eyðilagðar. Var það jarðskjálfti, sem orsakaði fall styttanna? Eða hafa veðurguð- irnir það á samvizkunni? Eða er þet.a aðeins ein afieiöing af skræl- i in: jahætti mannanna? Hið síðast nefnda á vafalaust við um talsverðan hluta styttanna. Amerískur íeröamaður, sem rann- sakaði stytturnar árið 1921 og átti tal við inníædda um þær, rakst á gamlan mann meðal eyjarskeggja, sem mundi eftir að haía lifað það sem bain að styttunum var velt um koll. Hann skýrði svo frá: „Þegar ég var drengur, var ætt- kvisl hér á eynni, sem tók konu frá annarri ættkvísl og át hana. Son- ur konunnar fylltist- reiði, tók til fanga 30 menn af hinni ættkvísl-, inni, lokaði þá inni í helli nokkr- um og át- þá smátt og smátt, einn cg einn í einu. Af þessu urðu mikl- ar deilur á eynni cg til að hefna sín, velti annar ættbálkurinn einni styttti.... “ Síðan eru líklega liðin 90 ár. Ef til vill hefir áður gengið yfir tíma- bil, þegar var í tízku að velta stytt- um fyrir öðrum ættbálkum. En alla vega hljóta þessar styttur að haía haft djúpstæða táknræna þýðingu fyrir eyjarskegija allt til dagsins í dag. Hve gamlar eru höggmyndirnár? Vísindamenn álfta, að Pclynesar hafi fyrst komið til Páskaeyjarinn- ar fyrir 700—900 árum síðan. þann- ig að slíkur getur aldur styttanna verið. Mikil menningarhrörnun hlýt ur að hafa átt sér stað á eyjunni, þegar hörgmyndalistin varð gleymskunni að bráð. Á öðrum eyj- um í Kyrrahafi hafa ekki fundizt annars konar steinmyndir, t. d. á Marquesaeyjunum. Ef til vill liggja hér einhver bönd á milli Hvernig skýra eyjarskeggjar sjálf ir tilveru höggmyndanna og þá (Framhald á 6. síðu). Þáttur kirkjunnar iritiiiaiinniMiirmiiiiiiumiiiii ast við að heyja það án styrj- aldar, þar sem hún myndi hafa allsherjar glötun í för með sér. En þótt breytingarnar séu miklar og örar, sem nú er að gerast, mega menn ekki gera sér þær falsvonir, að allur á- greiningur milli stórveldanna muni jafnast á skömmum tíma. Þess vegna vöruðu allir framsýnir menn við því fyrir Genfarfundinn, að vænzt yrði of mikils af honum.Hann væri hins vegar liklegur til þess að verða mikilvægt spor í rétta átt, enda þótt ekkert meiri háttar ágreiningsatriði yrði endanlega jainað á honum. Fyrir íslendinga er vissu- lega. rétt að fylgjast með öll- um þessum málum og miða afstöðu sína við það. Það er að vísu of snemmt enn að segja að friðurinn sé tryggð- ur og varúðar sé ekki lengur þörf. En líkur benda hins veg- ar miklu meira til þ«ss, að friðarsteínan. muni sigra. Bar áttan milli einræðisins og lýð- ræðisins verður þá ekki háð með vopnum, heldur á þeim grundvelli, hvor stefnan reyn ist þjóðunum farsælli og betri, jafnt í andlegu sem líkam- legu tiliti. Verkefni lýðræðis- sinna er að tryggia sigur lýð- ræðisins í þessari baráttu, en láta hvorki emræðisstefnu kommúnista eða annarra aft- urhaldsmanna ganga þar með sigur af hólmi. Prédikun trésins Kcmdu vegmóði vinur. Hvíldu þig friðsæla stund i forsælunni undir greinum mínum. Horfðu á heiðríkj- una gegnum laufhaddinn minn, þar sem goisiarnir leika'og ástfangn'r söngvar- ar sólskinsins eiga sér hreið- ur. Alla mína löngu ævi hef ég varið hverri stund til að teygja mig hærra og hærra inn í heiðbláma himinsins, nær og nær hmni miklu móð ur sól. Þótt ég væri í upphafi cf- urlitið fræ hrakið af storm- um haustsms, unz það náði að kúra sig í mosasæng fjallsins, er ég nú hæst og himni næst af cllu því, sem lifir á jörðunni. Og þó eru mörg tré eldri en ég. Sum eru allt að þrem þúsundum ára að aldri. Saga mannkynsius gæti mestcll verið skráð á börk þeirra. Þau hafa lyft greinum yfir hinum forriu Egyptum, séð ísraelsmenn fara út úr Eg- yptalandi, veitt hermönmim Hannibals skjól fyrir brenn- andi hita dagsms og glatt börnin með björtu sumar- skrúði á dögum Alexanders mikla. Og einu sinni var tréð átrúnaðargoð heUla Iþjóða. á mestu hátiðum ársins safn aðist fólkið saman undir laufþakinu, söng og dansað’, hló og grét og horfði á him- in Guðs gegnum mustexi greina minna. Og um margar aldir veittu trén húsaskjól og byggmgar- efni, yl og ljós í vetrarkuld- anum fyrir heilar miljóna- þjóðir, kynslóð eftir kynslóð. Qg fennþá getur naumast nokkurt heimili án okkar verið. Borðin, skólarnir, rúm in, allt líf manna og aðbún- aður nætur og daga, er slung ið nærveru minni og þjón- ustu. Pappírinn, sem geym>r þessi orð, já, alla speki nú- tímans og vísindi og niður til fyrstu stafanna, sem barnshöndin mótar, og aft- ur upp til dýrmætustu og guðinnblásnustu ljóða skálds ins, allt er þetta unniö af lífskrafti þeim ,er blöðin mín litlu sóttu til himins í gleöi sinni yfir geislum vorsins og döggvum næturinnar. Og þó er enn ótalið hið mesta. Ég hef orðið tókn lífs- ins sjálfs í æðstu og göfgustu draunium mannkjmsmeistar- anna. í goðafræðinni er ég Askur Yggdrasils, baðmur aus inn hvítaauri heilags anda, er sjálfur guðinn gerði að hinztu hvílu. Og enn i dag mynda ég vöggu barnsins og líkkistu öld ungsins. Er þannig við upphaf og endi lífs á jörðu. Eg er lífsins tré í miöjum sælustaðnum Eden og skiln- ingstréð, sem olli öllum hvörf- um í sögu mannssálar. Og eg er tákn guðsríkisins í boðskap Jesús Krists, frækorn frá forn öld, sem á enn eilífa fegurð, vöxt, líf og starf. Og allra minnisstæðastj atburðurinn í allri minni sögu er, að hann, Drottinn sjálfur var festur upp á tréð, sem tákn hinnar eilífu leitar mannkyns aö full komnun, ég mun æ og að eilífu bera hann uppi sem þann kærleika, sem breiðir út faðm inn móti lífinu öllu á jörð (Framhald á 6. siðu). t

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.