Tíminn - 17.09.1955, Blaðsíða 6

Tíminn - 17.09.1955, Blaðsíða 6
6 TÍMINN, laugardaginn 17. september 1955. 210. blað. GAMLA BÍÓ “ Bess litla (Young Bess) j Heinisfræg söguleg MGM-stór- jmynd í litum — hrífandi lýsing æsku Elísabethar I. Englands- j drottningar. Jean Simmons, Stewart Granger, Deborah Kerr, Charles i.aughton. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 2. I ■♦♦♦<»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ | Þau hittust á Trinidad (Affair in Trínidad) Geysi spennandi og viðburðarík, ný, amerísk mynd. Kvikmynda- sagan kom út sem framhalds- saga í Fálkanum og þótti af- burða spennandi. Þetta er mynd sem allir hafa gaman af að sjá. Aðalhlutverk: Rita Hayworth, Glenn Ford. Bönnuð bömum. Sýnd kl. 5, 7 og 9. BÆJARBIO — HAFNARFIRDI - Sýnd kl. 7 og 9. Kátt er í hoti I Sprenghlægileg sænsk gaman- jmynd með körlunum hans Assa | Nisse og Bakkabræðrahætti jsveitunga hans og kemur áhorf Jendum hvarvetna í gott skap. Norskur skýringartexti. Sýnd kl. 3 og 5. [♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦< NÝJA BIO Ástarhreiðrið (Love Nest) Bráðskemmtileg, ný, amerísk gamanmynd um fornar ástir og nýjar. Aðalhlutver: June Haver, William Lundigan, Frank Fay, Marilyn Monroe. Aukamynd: Oiympíumeistarar, Skemmtileg og fróðleg íþrótta- mvnd og Myndir frá íslandi (úr þýzkri fréttamynd). Sýnd kl. 5, 7 og 9. Hafnarfjarð- arbíó Neyrinn og götu- stúlhan ! Ný, áhrifamikil, ítölsk stórmynd. ! Aðalhlutverkið leikur hin þekkta ítalska kvikmynda- | stjarna: ! Myndin var keypt til Danmerk- jur fyrir áeggjan danskra kvlk-| j myndagagnrýnenda og hefiri jhvarvetna hlotið feikna aðsókn.t jMyndin hefir ekki verið sýndjj j áður hér á landi. Danskur texti." Bönnuð börnum. Sýnd kl. 5, 7 og 9. AUSTURBÆJARBÍóf Kona handa ptibba (Vater braucht eine Frau) Mjög skemmtileg og hugnæm, ný, þýzk kvikmynd. Danskur skýringartexti. Aðalhlutverk: Dieter Borsche, Buth Leuwerík. (Léku bæði 1 „Freisting læknis- ins“.) Sýnd kl. 5 og 9. Sala hefst kl. 2. DELTA RHYTHM BOYS kl. 7 og 11,15. ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦< HAFNARBIO Síml 6444. Maðurinn frá Álamo (The Mán from Alamo) Hörkuspennandi, ný, amerlsk litmynd, um hugdjarfa baráttu ungs manns fyrir mannorði sínu Glenn Ford, Julia Adams. Bönnuð börnum innan 16 ára Sýnd kl. 5, 7 og 9. TJARNARBIO Ævintýri Casanovu (Casanovas Big Night) Bráðskemmtileg ný amerísk gamanmynd er sýnir hinn fræga Casanova í nýrri útgáfu. Myndin er sprenghlægileg frá upphafi til enda. Aðalhlutverk: Bob Hope, Joan Fontaine. Sýnd kl. 5, 7 og 9. TRIPOLI-BÍÓ Leigubílstfórinn (99 River Street) í Æsispennandi, ný, amerísk saka s málamynd, er gerist í verstu [ hafnarhverfum New York. — [Myndin er gerð eftir sögu Ge- [ orges Zuckerman. Aðalhlutverk John Payne, Evelyn Keyes, Brad Dexter, Peggie Castle. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð innan 16 ára. Að lokniam fumli (FT'amhald af 4. siðu). skipulag bygginga allra á bænum og bygging prestsset- urshúss ákveðin. í sambandi víð það á svo að byggja heima vistarbarnaskóla fyrir sveit- irfa, enda er Hrafnseyrarkall kennsluprestakall. Héraðsbúar horfa því íram á það, að á næstu árum verði Hrafnseyri byggð upp svo að þar verði myndarlegt prests- setur og sveitabýli. Slíkt er mjög samboðið minningu for setans, því að blómlegt at- vinnulíf og manndómur var alltaf takmark Jóns Sigurðs- sonar. Að ve’ sé búið og börn um veitt heilbrigt, uppeldi á fæðingarbæ Jóns Sigurðsson ar er einmitt. í samræmi við það, sem hann kaus þjóð shmi helzt. Afstaða til al pi ngismannsíns. Fundurinn vottaði Eiríki Þorsteinssyni einróma þakkir sínar og traust í málum hér- aðsins. Menn vita það og við urkenna, að Eiríkur þekkir vel þarfir atvinnulífsins í sýslunni og hann leggur hags munamálum þess liðsinni hvar sem er á löggjafarsvið- inu. Um framkvæmdir í sýsl unni sjálfri er það að segja, að Eiríki er það yndi að greiða fyrir því að nýtúegir hlutir komizt í verk. Það er þvi að vonum að menn við- urkenni baráttu hans í þeim efnum enda þótt efitthvað beri á milii um skoðanir á þjóðmálum og félagsmálum. Þess er þó rétt að geta, að fyrirmenn Sjlfstæðisflokks ins í sýslunni voru ekki í hópi þeirar áhrifamanna í félags- málum, sem völdust til fund arins aö þessu sinni. En vænt anlega eru líka í þeim hópi sanngjarnir menn, sem viður kenna augljósar staðryndir. NiðwrZagsorð, Þetta yfirlit geta menn skoð að efÞr vild sem liugleiöing- ar um þjóðmál eða frétta- bréf úr héraði. En hér hefir aðeins verið tæpt á ýmsu, sem langt mál mætti ræða um. Ef til vill gæti það þó orð ið upphaf r.ð ýtarlegri umræð um, ef öðrum þætti ástæða til að auka hér við eða gera athugasemdir. Hins vænti ég að mönnum megi verða ljóst, að þeim tima er sannarlega ekki varið til einskis, sem í það fer að byggja upp fundi eins og þing og liéraðsmálafundi Vestur- ísfirðinga. Hverjir greiða . . . (Framhald af 5. síðu). SÍS greiddi 1954 hvori meira né minna en 470.000 krónur í stríðsgróðaskatt og Reykjavík urbær fékk helminginn af þe»rri upphæð. Ekkert annað fyrirtæki greiðir sambærilega upphæð í þennan skatt, enda koma heildsalarnir sér hjá því mcð því að skipta félög- um sínum og koma starf- sem> sinni þannig fyrir, að þessi skattur verði sem minnstur. SÍS greiddi auk þess samvinnuskattinn, 75000 krónur, eða samtals að með- töldu útsvarinu 340.000 krón- ur Þ1 Reykjavíkurbæjar. Þeg ar Eimkip, IMPUNI, SÍF og Sameinaðir verktakar eru farnir að greiða sambærileg- ar upphæðir til Reykjavíkur- bæjar, getur Morgunblaðið byrjað að vega og meta, hvort Reykvík'ngar heri útsvaráfeyrð ar fyrir einhver félög í bæn- um. ____ J. M. Barrie: RESTURINN ogtatarastúlkan — Ekki fyrr en ég hef sent guði þakkarorð. Annars held ég, að okkur væri bézt að fara heim. Hvaða Ijós er þarna? — Það er víst i kofanum hennar Nanny Websters, sagði Munn. ___. — Ég hef nú aldiei vitað til þess fyrr að Nanny þyrfti ljós til að koma sér I rúmið, tautaði Tammas. Við skulum fará þángað heim, bætti hann við og núg skyldi ekki undra, þótt við fyndum þar bæði prestinn og tatara- stúlkuna. — Þeir urðu ásáttir um þetta, en höfðu ekki far'ð langt, þegar Spens tók stökk út undan sér og hrópaöi: — Gætið ykkar! Þarna kemur einhver akandi. Rétt á eftir sáu þeir hestvagn læknisins. í honum sat Rob Dow. ... — Ert þetta þú Rob? spurði Tammas. Nú sleppurðu ekki við að lenda í tukthúsið fyrir að hafa tekið vagn læknis'ns. Hefirðu nokkuð séð' til ferða séra Disharts. — Nei, það hef ég ekki, svarað'i Rob og ætlaði að aka á- fram. — Og ekki heldur séð tatarastúlkuna? — Hvað á þetta að þýða, sagði Rob og stökk niður úr vagninum. — Bara það, að presturinn kom ekki til bænasamkom- unnar í kvöld. í liess stað hljóp hann á eftir þessari heið- ingjastelpu, svaraði Tammas. — Þú ert lygalaupurí æpti Rob. Ef þú segir þaö einu sinni enn, að presturinn sé í tygjum við þennan kvenmann, þá skal ég snúa þ'g úr hálsliðnum. — Farðu nú heim og skilaðu vagninum, sem þú hefir stolið, en láttu sóknarnefndina um það eina að gera skyldu sína. Við verðum að komast eftir því, hvers vegna það er ljós í kofanum hjá Nanny. — Það var eins og eitthvað brysti í Rob Dow. Á þessu augnabliki hefði hann ái'eiðanlega verið reiðubúinn að myrða Tammas, en hann sagði aðeins: — Ég ætla að koma með ykkur. En með sjálfum sér hugs aði hann um það eitt hvernig hann gæti bjargað Gavin. Eftir örskamma stund voru þeir komnir að húsi Nanny, en í myrkrinu gat Tammas ekki fundið garðshliðið, Á með- an klifraði Rob yfir limgirðinguna og gekk að glugganum, en hmir heyrðu ekki varfærnislegt bank hans í gluggarúð una, sem kom Babbie til að hrökkva í kút. — Það eru ekki aðrir þarna inni en þau Nanny og Sand- ers, sagði hann þegar hann kom til baka aftur. Við svo búið skildu safnaðaröldungarnir og fóru hver heim til sín. Enginn vissi hvað varð af Rob Dow. Það eina, sem ég veit er það, Ws hann beið í nánd við hús Nanny og heyrði skömmu síðár, að það kom annar vagn upp veginn til Windyghoul. Þá var klukkan næstum níu. — Þú verður að fara til Spittal og segja Rintoul jarli hvernig öllu er háttað. — Já, ef þú óskar,.þess, sagði hún og leit á hann eins og hana furðaði á því, ,að hann skyldi ekki skilja að það var hans að taka úrslitaákvörðun í málinu. — En ég hef aldrei hræsnað svo, að ég segðist elska jarlinn. Hann veit, að ég geri það ekki. — Einmitt þess végha verðurðu að segja honum frá mér. Þú ert ekki lengur sáma konan og þú varst áður. — Jæja, þá er víst' hezt að ég fari sagði Babbie. Nei, þú mátt ekki fylgja mér. Það ert þú sem ert í hættu. — Þú skalt ekki óttast um mig. — Rétt áður en þú komst inn heyröist mér þið tala um bænasamkomu í kvöld. — Já, bænir.... Hann klemmdi saman munninn og hlust aði skelfdur á hljóm kirkyuklukknanna. Hann gat greini- lega séð fyrir sér söfnuðinn sitjandi á kirkjubekkjunum. Já, farðu Babbie, sagði hann, það er víst ekki guðs vilji að ég fái að bera byrðárnar með þér. Þau voru nú komin út í garðinn. — Já, nú fer ég ástin mín, sagði hún og gekk nokkur skref í áttina til hans, en þegar hann ekki svaraði sneri hún sér við og hélt á brott. Hvorugt þeirra heyrði hávaðann frá veiðivagninum, sem nálgaðist. Hins vegar heyrði Gavin, að hún opnaði garðs- hbðið. Þá nam vagpíjin einnig staðar. Hundur gelti og rétt á eftir heyrðist rödd Rintouls: — Þarna er ljós í glugga, McKenzie. Farðu inn og gáðu. Nú heyrði Gavin að Babbie grét hljóðlega og svo hvíslaði hún: — Ég er svo hrædd, Gavin. Á þessari stundu varð Gavin það fullljóst, að honum var um megn að láta hana fara frá sér. I-Iann hafði aðeins fá- ein ndartök tú að taka ákvörðun um framtíð þeirra og höndla hamingjuna. Og hann greip tækifærið. í hendings- kasti þaut hann til Babbie, þreif utan um hana og dró hana með sér brott frá kofanum. McKenzie kom að kofanum tómum og garðinum áuðum. — Ég gæti þó bölvað mér upp á, að ég sá einhvern ganga fyrir gluggann um leið og við ókum heim að húsiiiu. — Jæja við skulum ekki eyöa meiri tíma i þetta, 'sagðl jarlinn óþolinmóður. — Það er svo dimmt, að ég held þú veröir aö teyma hest- inn, McKenzie.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.