Tíminn - 06.12.1955, Qupperneq 3
278. blag.
TÍIVIINN, þriðjuclaginn 6. descmber 1955.
dingcúpættií
Dánarminning: Sigurður Baí^ursson
bóndi á Lundarbrekku
V'ð hið óvæiita og liörmu-
legá andlát Sigurðar Baldurs-
sonac 4 Lundarbrekku í Bárð-
ardal, er sveitarhöfðingi fall-
inn í valinn um aldur fram.
Sigurður er fæddur aö Lund
arbrekku 27. sept. 1911, og
ólst hann þar upp með for-
eldrum sínum. Hann stundaði
nám við Samvinnuskölann og
útSkrifaðist þaðan vorið 1929-
Vorið 1933 kvæntist hann j
Önnu Steinunni Jónsdóttur
frá Sigurðarstöðum í Bárðar-
dal. Varð sambúð þeirra ást-
rik, en. skammvinn, og lézt
Steínunn vorið 1934. án þess
að þeim hjónunum yrði barna
auðið. 13. okt. 1940 gekk Sig-
urður að eiga Guðrúnu Krist-
jánsdóttur frá Hóli á Húsavík.
Lifir hún mann sinn ásamt
tvéim sonum þeirra ungum.
Sigurður reisti ungur bú á
Luhdarbrekku hálfri og' stund
aði búskapinn með dugnaði
og útsjónarsemi. Hann var og
áhugasamur um allt það, er
til framfara mátti horfa í land
búnaði. Enda þótt Sigurður
væri einyrki og ekki sterkur
til heilsu, lét hann það ekki
aftra sér frá því að bæta jörð
ina i stórum stíl. Hann jók;
túnið og bætti til mikilla muna, ^
byggði peningshús og hlöður
úr varanlegu efni og nú ný-
iega mjög vandað íbúðarhús
úr steini.
Skapgerð Sigurðar var heil-
steypt. Karlmannlegt hrein-
lyndi og drengskapur voru
aðalsmerki hans. Það var
metnaður hans að skila aldrei
hálfgerðu verki og lofa því
einu, sém hann var viss um
að geta staðið við. ________
Þegar Sigurður hafði tekið
afstöðu til mála, hélt hann ó-
hikað og afdráttarlaust fram
skoðunum sínum, hverjir sem
í hlut áttu. Ekki hygg ég, að
það hafi spillt vinsældum
hans. Jafnt andstæðingar sem
skoðanabræður fundu ein-
lægnlna í málaflutningi Sig-
urðar og virtu hana að mak-
leikum. _
Lyndiseinkunnir Sigurðar,
samfara góðum gáfum, sköp-
uðu honum traust og vináttu
og ollu því, að á hann hlóð-
ust ýmis konar trúnaðarstörf
í vaxandi mæli- Síðan 1937
Sigurður Baldursson
hefir hann verið endurskoð-
andi Kaupféiags Þingeyinga
og 1942 varð hann oddviti
sveitarstjórnar Bárðdæla-
hrepps. Auk þessara opinberu
trúnaðarstarfa eru ótalin þau
erindi, sem sveitungar Sigurð
ar fólu honum að reka. Leysti
hann jafnan hvers manns
kvöð efth beztu getu.
Hjónaband Siguroar og
Guðrúnar var hamingjusamt.
Guðrún var manni sínum ást-
rík eiginkona og öruggur fé-
lagi, því traustari sem meira
reyndi á.
Bárðdælir nær og fjær
kveðja í dag með söknuði og
trega ósérplæginn forustu-
mann og tryggan vin, og þykir
hann of snemma kallaður úr
fámennum hópi. Einnig mtan
ast þeir nú yngri bróður Sig-
urðar, Jónasar Baldurssonar,
hms efnilegasta manns, sem
hné í blóma lífs síns fyrir
fimm árum jafn óvænt og
Sigurður nú.
Sár harmur er kveðinn að
ástvinum Sigurðar, og er
skammt stórra högga milli í
þann knérunn. Þungbær er
sorg ykkar, en mikið var ykk-
ur gefið, sem áttuð slikan ást
vin, er Sigurður var. í hjört-
um ykkar geymið þið minn-
ingarnar urn Sigurð, hreinar
og bjartar svo að hvergi ber
skugga á. Sælir eru hjárta-
hreinir. Mætti það vera ykk-
ur huggun á þessari rauna-
stund.
Tómas Tryggvason.
Dánarminning: Guðríður Pétursdóttit
dvaldist Guðríður, þangað til
þau fósturforeldrar hennar
brugðu búi vorið 1892. Naut
hún þar hinnar einu fræðslu,
sem herini hlotnaðist, þegar;
frá er tekið það, sem lífsstarí
ið færði henni í önn og
reynslu.
Þegar þau hjón brugðu búi
vorið 1892 fluttust þau til Ingi
bjargar dóttur sinnar að
SyðraVatni í Skagafirði. Réð-
ist Guðríður þangað vorið
1893 og dvaldist þar unz hún
reisti sjálf bú vorið 1899. 8.
júni það ár gifÞst hún Frið-
rik Stefánssyni, skagfirzkum
að ætterni og reistu þau bú
á hluta af Valabjörgum Munu
þau hafa fieytt búi sínu á
utangarðsnytjum einum, og
mundi slíkt þykja þröngur
kostur nú, því að býlið var
nytjarírt fjallakot.
Vorið 1900 fengu þau til á-
búðar þriðja hluta úr jörð-
inni Valadal, en náðu haldi
á þeirri jörð, þegar á næsta
vori. Þar bjuggu þau við mjög
vaxandi sæmö og efnahag,
unz Friðri lézt, 16. júlí 1925.
Var Friðrik frábær að atorku
og ráðdeild, og húismóðirin
honum svo samhent, að á
betra varð ekki kosið.
Þeim hjónum varð þriggja
barna auðið. Hélt Guðriður
afram búskap með þeim, þar
í Valadal til vorsins 1927. Um
það ieyti efndu þau ttl eigin
heimila og leitaði Guðríður
þá trausts á vegum Sigþrúð-
ar dóttur smnar, og eyddi
mostum hluta ævi sinnar upp
frá þvi á heimili hennar.
Þetta er í fáum dráttum
saga Guðríðar Pétursdóttur,
— saga, sem vel má segja í
enn færri orðum, en hér er
gert. En hm raunverulega
saga, — hvort sem um er að
ræða sögu þjóðar eða em_
staklings, er ekki nema að
litlu leyti bundin við ártöl.
Bak við þau stendur persónan,,
önn hennar og athafnir, —
gildi hennar fyrir*umhverfið
og samtíðina, — áhrif hennar
á líf og starf þeirra, sem með
henni starfa og starfs hennar
njóta. Þegar þessir þættir eru
metnir, kemur persónan í
ljós, og er Guðríður þar eng-
in undantekning. Sé hún met
in eftir þeirri fyrirferð, sem
hún skapaði sér i hinni al-
mennu þjóðarsögu verður
hún ekki rúrnfrek. En þegar
hún er metin efth’ þeirri
hlýju, sem frá henni andaði
til þeirra, sem hún náði til,
þeim bjargráðum, sem hún
miðlaði þeim, sem við þrengri
kost sátu, þeirri blessun, sem
frá henni stafaði til þeirra,
sem bölvindar blésu um. verð
ur sæti hennar betur skipað,
en flestra annarra. Hennar
minnist ég æ, er ég heyri góðr
ar konu getið.
Guðm. Jósafatsson.
í dag bera sveitungar mín_
ir til moldar elzta borgara
sveitarfélagsins, konu, sem
meira en hálfa öld hefir haft
allnáin kynni af þeirri sve't,
sem nú kveður hana, þótt hún
hafi ekki dvalist innan henn
ar nema nokkurn hluta þess
árabils. Þótt allmargir þeirra,
sem nutu alúðar hennar og
risnu meðan hún réði heimili,
séu nú fallnir í valinn, munu
þó enn ýmsir í ófúnum föt-
um, sem hlýjum og þakklát-
um huga renna til húsfreyj-
unnar, sem yljaði gestum sín
um og heimamönnum í Vala-
dal, á fyrsta fjórðungi þess-
arar aldar.
Guðríður fæddist að Lundi
1 Þverárhlíð 8. júní 1867. For_
eldrar hennar voru hjónin
Pétur Brandsson og Sigþrúð-
. ur Slgurðardóttír,_,sem, iþiá.
munu hafa ver»ð þar í hús-
mennsku, eða a. m. k. við
mjög rírar nytjar. Foreldrar
hennar fiuttust á lítinn hluta
jarðarinnar Höfða í sömu
sveit vorið 1868, og bjuggu
þar við þröngan kost um
skeið. Hjá þeim dvaldist hún
til vorsins 1876. Þá var hún
tekin í fóstur af þeim hjón
um Hjálmi Péturssyni alþm.
og konu hans Helgu Árnadótt
ur, sem þá bjuggu að Hamr1
í Þverárhlíð. Þau hjón voru
þekkt að sæmd og risnu, og
mun neimili þeirra hafa ver-
ið í hópi h'nna fremstu í sam
tíð þess. Var þar þó mikil ó-
megð og víst ekki alltaf setið
yfir allsnægtum. Áttu þau
hjón margL-barna, og munu
auk þess hafa átt fyrh gamal
mennum að sjá. Á þessu fjöl_
hlífíhái Og glaóværa heimilU
á horui Péstliússtrætis ojí Trygjgvagötu
(rétt norðanvert við eldri sölubúö vora)
Ver&ti þar eí ba&síélum:
Úigerðarvörur
Vinnufatnaður
í hinni cldri sölubú& vorri verða iil sölu
Verkfæri
Máiningarverur
Véíaþéttingar
Verzlun 0. Ellingsen h.f.
Elzta og stærsta veiðarfæraverzlun landsins
355555555555555*55555555555555555555-555555555555555555555555555555555555
Landsbanki íslands
óskar að ráða til sín ungan mann
til sendiferða, nú þegar.
Umsóknir sendist skrifstofustjóra bankans
fyrir 9. desember.
E.s. Brúarfoss
fer frá Re.ykjavlk laugardag-
inn 10. þ. m. til austur. og
norðurlands. — Viðkomu-
staðir:
Fáskrúðsfjörður,
Reyðarfjörður,
Eskifjörður,
Norðfjörður,
Seyðisfjörður,
Húsavlk.
Akureyri,
- Siglufjörður,
;r tí y.Lsasfjörður, v >.
Nauðungaruppboð
verður haldið í tollskýlinu á hafnarbakkanum hér í
bænum eftir kröfu tollstjórans í Reykjavik o. fl., þriðju
daginn 13. desember ki. 1,30 e. h.. Seld verða alls konar
húsgögn, svo sem horðstofu- og dagstofuhúsgogn,
bókaskápar, skjalaskápar, peningaskápur, reiknivélar.
Ennfremur þvotta- og saumavél, málverk og útvarps-
tæki. Alls konar koparvörur: Kertastjakar, öskubakk-
ar o. fl. Þá verða og seldar ýmsar verzlunarvörur, vefn
aðarvara og fatnaður o. fl.
Greiðsla fari fram víð hamarshögg.
Borgarlós'etinn í Rcykjavlk.
Einkaritara
vantar við stóra stofnun hér í bænum. Umsækjandi
þarf að vera vanur vélritun og helzt að kunna ensku,
dönsku og hraðritun. Vinnuskilyrði eru ágæt. Starfið
er laust í byrjun næsta árs. Umsóknir merktar „Einka-
ritari“ leggist inn á afgreiðslu blaðsins og sé þar fram
tekið um menntum,- áður unnin störf og aldur, sömu-
leiðis heimilisfang og síma.