Tíminn - 06.01.1956, Qupperneq 4
:c,
TÍMINN, fö&tudagiim 6. janúar 1956,
4. blaff.
Því htefir verið haldið fram
af ýmsum, og kom fram hjá
forráðamönnum U.M.F.Í. á Ak
ureyri á síðastliðnu sumri, að
Ungmennafélag Akureyrar
væri fyrsta ungmennafélag
landsins. f" beinu framhaldi
af þessari fullyrðingu hafa
nokkur blaðaskrif orðið um
þetta mál í Akureyrarblöðun
um. Hefi ég meðal annars les
ið tvær greinar um þetta mál
í blaðinu íslendingi eftir Ólaf
Jónsson frá Skjaldarstöðum.
Þar er á það bent, að þrjú
ungmennafélög a. m. k. hafi
verið sto'fnuð í nágrenni Ak-
ureyrar alllöngu fyrir stofn-
un Umf. Akureyrar, sem stofn
að var 7. janúar 1906. Ólafur
Jónsson frá Skjaldarstöðum,
nú1 á Akureyri, greindur mað
ur og greinargóður, hefir sagt
mér, að Umf. Skriðuhrepps
hafi verið stofnað 1903, en
fyrsti vísirinn að því félagi
var Umf. Öxndæla, sem stofn
að var árið 1900. Umf. Skriðu-
hrepps starfaði í fyrstu í
þrem deildum, Öxndæla-,
Hörgdæla- og Skriðudeild, og
héldu deildirnar sameigin-
lega fundi emu sinni í mánuði.
Þar voru rædd ýmis áhuga-
mál félaganna, og blað var
gefið út.
Umf. Öxndæla kom sér upp
sundpolU og gróðurreit á
fyrsta tug aldarinnar, að vísu
af vanefnum, enda varð hvor
ugt til frambúðar. En verkin
sýndu viljann. — Ólafur tel
íur, að það sé einróma álit
allra þeirra, sem fylgzt hafi
með þróun og starfi þessa
félagsskapar, að hann hafi
náð hámarki þroska og starfs
getu á árunum 1905—1907, og
Bernharð Stefánsson alþm.
Segir, að Umf. Öxndæla hafi
starfað með fullum blóma til
ársins 1918.
í fréttabréfi úr Öxnadal
frá Stefáni Bergssyni á Þver
á, sem birtist í Norðra 17.
maí 1907, segir meðal annars
frá stofnun Umf. Öxndæla
árið 1900. Þar segir:
„Fjyrsti vísirinn til Ung-
mennafélags Skriðuhrepps
var sá, að árið 1900 mynduðu
fáeinir drengir í Öxnadal, er
allir voru um og innan við
fermingaraldur, félag til
glímu- og leikfimiæfinga.
Féiag betta var að sjálfsögðu
bæði barnalegt og ófullkomið
í fyrstu, enda naut það lítilla
leiðbeininga frá eldri og hæf
ari mönnum. En brátt kom
það í ljós, að meiri festa og
samheldni átti sér þar stað
en menn bjuggust við. Félag
ið hefir því blómgazt vonum
fremur vel og telur nú um 60
meðiimi.
Flestir eru félagar þessir
innan við og um tvítugsald-
ur, aðeins fáir menn eldri.
Félagið er jafnt fyrir konur
sem karla, enda telur það nú
allmargar ungfrúr meðlimi
sína.
Á sumardaginn fyrsta hélt
félagið skemmtisamkomu að
Ytri-Bægisá. Var hún mjög
vel sótt, og mun mannfjöld-
inn hafa verið hátt á þriðja
hundrað manns. Samkoman
var sett kl. 12 á hádegi af
formanni félagsins, Stein-
grími Stefánssyni, búfræðing
á Þverá. Gekk svo fólkið skrúð
göngu til kirkjunnar, þar sem
sóknarpresturinn, séra Theo-
dór Jónsson, flutti þar til
vaida góða ræðu. Eftir að
kiomið var úr kirkju, voru
ýmsar skemmtanir við hafð-
ar, svo sem lesin upp kvæði,
haldnar ræður, mælt fyrir
minnum íslenzku æskunnar,
ungmennafélagsskaparins,
hinnar íslenzku ríkisstjórnar
og fleiri. Margir hinir ’ungu
Kjartan Bergmann:
Hvenær var fyrsta ungmenna-
félagið stofnað?
menn sýndu hma forníslenzku
og fögru íþrótt, giímuna, og
mátti þar sjá „táp og fjör og
fríska menn“.
Til nánari skýringar er hér
birt bréf Steingríms Stefáns
sonar, sem prentuð var í Skin
faxa, 9. tbl. 1. árg. 1910.
Bréf til Skinfaxa.
Kæri „Skinfaxi“ minn!
Þú hefir verið mér kærkom
inn gestur í þau skiptin, sem
þú hefir heimsótt mig. Veit
ég, að fleirum en mér er og
verður koma þín kær, þvi að
ræður þínar eru fróðlegar og
fjörugar; þú ræður æskunni
hollt og gott, því að þú vdt
örva hana til framfara í fé-
lagsstarfinu, safna henni und
ir eitt merki og kenna henni
að „elska, byggja og treysta
á landið“.
Meðal annars ert þú við og
við að segja lesendum þínum
frá ungmennafélögunum úti
um landið. Datt mér því í hug
að setjast nú niður með penna
í hönd og hripa þér nokkrar
línur um ungmennafélagið í
æskudalnum mínum. það heit
ir Ungmennafélag Öxndæla.
Eg var einn af stofnendum
þess félags, og hefi verið með
limur þess síðan. Mér er fé-
lagið því sérlega kært, og við
það eru bundnar sælar minn
ingar mínar, og sama munu
aðrir meðlimir þess segja.
Ungmennafélag Öxndæla
er stofnað hinn 14. maí árið
1900. Stofnendur þess voru
10 að tölu, karlar og konur,
allir innan fermingaraldurs,
(nánar tiltekið 7 drengir og
3 stúlkur).
Þú getur því víst nærri,
Skinfaxi minn góður, hvernig
skipulagið hefir verið fyrstu
mánuðina, þar sem svo ungir
áttu í hlut, enga reynslu eða
samband annarra félaga að
styðjast við og fjölda marga
örðugleika við að stríða, sem
beir þekkja bezt, sem reynt
hafa, en það gekk allt vel
eftir vonum. Síðan hefir með
limum fjölgað ár frá ári, en
enginn sagt sig úr félaginu,
sem hefir átt heimili í daln-
um. Tilgangur félagsins hef-
ir ætíð verið hinn samf að
æfa íþróttir, efla andlegt og
líkamlegt atgervi, glæða ætt
iarðarást og vera skemmt-
andi.
Félagið heldur samkomur
a. m. k. 12 sinnum á ári, þar
sem fram fer söngur, ræðu-
höld. upplestur og ýmsar í-
bróttir. Þá gefur félagið út
blað, sem nefnist Stúfur.
Hann flytur greinar í bundnu
ov óbundnu máli og er oft
allgamansamur. Þykir hann
«em lít.ill og Ijúfur. kærkom
inn á skammdegiskvöldunum-
í vor er var kom félagið upp
sundoolli. kostaði hann all-
mikið. Á sundkennsla að
byrja á næsta vori. Einn fé-
lagsmanna er búinn að læra
sund, á síðan að kenna hin-
um.
Þá er félagið að koma upp
samkomuhúsi í félagi við sveit
ina. Og ráðgert er. að það
komi upp dálítilli gróðrarstöð
í vor. hiá samkomuhúsinu.
U. M. F. Ö. var eitt af
stofnendum sambands U. M.
E í. að Þingvöllum 1907 og
hefir verið í sambandinu s’ð-
an og vill hvetja önnur félög
til að ganga i það.
-.V;.vg:—.... . r.. .
Stcingrímur Stcfánsson
Formaður félagsins er Bern
harð Stefánsson á Þverá,
hann var emnig fyrsti for-
maður þess.
Svo ekki meira að sinni.
Eg óska þér góðs gengis.
Þinn einlægur
Steingrimur Stefánsson.
í blaðinu Degi, Akureyri,
14. júní 1950, er frá því skýrt,
að þann 4. sama mánaðar
hafi Umf. Öxndæla átt 50 ára
afmæli. Höfundur greinarinn,
ar er Bernharð Stefánsson
alþm. Þar segir:
„Þann dag (4. júní) árið
1900, sem þá var annar hvíta
sunnudagur komu nokkrir
drengir saman að Bakka í
Öxnadal til að stofna
félag. Hlaut það nafnið í-
þróttafélag Öxndæla í fyrstu
en nokkrum árum síðar var
nafninu breytt í Ungmenna-
félag Öxndæla, eins og það
heitir enn í dag.
Með nafnbreytingunni var
þó ekkert nýtt félag stofnað,
heldur aðeins skipt um nafn
með lagabreytingu, svo um
sama félagið er að-ræða þessi
! 50 ár. Ekki breytir það held-
| v.r neinu þar um, að félagið
var sjálfstæð deúd í öðru
stærra félagi um 6 ára skeið.“
Þ. e. Umf. Skriðuhrepps, en
þá var Öxnadalur í Skriöu-
hreppi forna.
Þá segir Bernharð ennfrem
ur: „Frá upphafi hefir félag
ið haft sama tilgang og starf-
að á svipaðan hátt og önnur
ungmennafélög landsins.“
Misræmið í frásögn bræðr
anna Steingrfms og Bern-
harðs um stofndag félagsins
stafar af því, að undirbún-
ingsstofnfundur var haldinn
14. maí. en lög félagsins ekki
sambykkt fyrr en 4. júni.
Steingrímur Stefánsson á
Þverá, bróðir Bernharðs al-
þingismanns. var aðalhvata-
maður félaersstofnunarjnnar.
í bréfi t.il mín minnist Ólafur
■Jónsson hans með þessum
orðum:
„Steingrímur var einn af
aðalstofnendum félagsins og
fyrsti ritstjóri blaðs félagsins.
Skorað'i hann á félagsmenn,
bæði í blaðinu og á fundum
félagsins, að láta td sín heyra.
Var hann óþreytandi á að
brýna fyrir unglingunum, að
jafnframt því, sem þeú æfðu
og stæltu líkama sinn með
vmsum íþróttum, þyrftu þeir
að æfa oa auðga anda sinn
með þvi að mynda sér sjálf-
stæðar skoðanir á hinum
ýmsu málefnum, og læra að
láta þær í ljós, bæði í mæltu
og rituðu niáli, enda hafa
margir af þeim mönnum, er
á unglingsárum tóku þátt í
stofnun og starfi félagsins,
orðið vel máli farnir og prýði
. lega ritfærir.“
Steingrímur dó ungur, þrí-
tugur að aldrí.
í minningarriti U: M. F. í„
: útgefnu 1938, stendur á bls.
342: „U. M. F. Dagsbrún í
Höfðahverfi: U. M. F. Dags-
brún var stofnað 4- júní 1905
og var því eitt af fyrstu ung-
mennafélögunum á íslandi.“
Á bls. 343 er svo mynd af for-
mönnum félagsins frá byrj-
un. Þetta félag er látið reka
lestina í söguágripi félag-
anna- En i upphafi söguágrips
ins er U. M. F. Akureyrar taÞð
fyrst og þá sem elzta ung-
mennafélag landsins, stofnað
7. jan. 1906; fylgú og grein-
inni mynd af stofnendum fé-
lagsms.
í áðurnefndri bók er þess
getið, að nokkru eftú stofnun
U. M. F. Akureyrar, eða 11.
marz 1906, hafi verið rætt um
stofnun sambands U. M. F- í.
Þá var og skipuð útbreiðslu-
nefnd, með fullt framkvæmda
1 vald í þessum málum. U. M. F.
lA. er þannig frumherji að
I stofnun U. M. F. í.
Það er athyglisvert, að að-
eins rúmum tveim mánuðum
eftir stofnun U. M. F. Akur-
eyrar skuÞ þvi vera hreyft
að stofna samband ungmenna
félaga. Vissulega bendir þetta
til, að þeim í U. M- F. Akur-
eyrar hafi þá verið kunnugt
um, að til væru starfandi ung
mennafélög. Mál þetta verð-
ur þó auðskilið, þegar þess er
gætt, að sá, sem hugmyndina
á og málið flýtur, er enginn
annar en Bernharö Stefáns-
son frá Þverá í Öxnadal, sem
gerzt hafði félagi í U. M- F. A.
þegar eftir stofnun þess, en
hann dvaldi þá við nám í
Gagnfræðaskóla Akureyrar.
Má ætla, að bak við þá hug-
mynd Bernharðs um stofnun
sambands ungmennafélaga
hafi einmitt staðið sú reynsla,
sem hann hafði þegaT hilotið
af deildasambandinu í Ung-
mennafélagi Skriðuhrepps.
Það er vert að benda á Það,
að þess er sérstáklega "getið
varðandi undirbúning stofn-
unar U. M. F. L að á fundi
U. M. F. A. þann 14sjvpí,(Í907)
eru lesin upp bréf viðvíkjandi
sambandinu frá Umf. Öxn-
dæla og Umf. Skriíuhrepps.
Fyrsta sambandsþing U.M.F.L
sóttu sjö fulltrúar frá fimm
félögum.
Ungmennafélag Akureyrar:
Jóhannes Jósefsson og Guð-
mundur Guðlaugsson.
Umf. Skriðuhrepps: Bern-
harð Stefánsson.
Umf. Reykjavíkur: Guð-
brandur Magnússon, Helgi
Valtýsson og Jón Helgason.
Umf. Bolvíkinga og ísa-
fjaröar: Arngrímur F. Bjarna
son (vildi ekki ganga í sam-
bandið vegna bindinþisákvæð
is sambandslaganna).
Þingið var háð á Þingvöll-
um og i Reykjavík í sámbandi
við komu Friðriks, konungs
VIII. Þessi ungmennafÁlög
gengu í U. M. F. í. á fyrsta sam
bandsþingi;
1. Umf. Akureýrar.
2. Umf. Skriðuhrepps; Eýja-
fjarðarsýslu.
3- Umf. Öxndæla, Eyjafjarð
arsýslu.
4. Umf. Dagsbrún, Höfða-
hverfi, S-Þing.
5. Umf- Reynirj Árskógs-
strönd.
6. Umf. Reykjavíkur, Rvík.
7. Umf. Morgunstjarrian,
Fljótsdalshéraöi. N-Múl.
Ég hef með grein þessari
fært sterk rök fyrir þvi, að
Ungmennafélag Akureyrar sé
ekki fyrsta ungmennafélagið
hér á landi, heldur hafi verið
hér starfandi þróttmikil ung-
mennafélög þegar það var
stofnað, t. d. Umf. Skriðu-
hrepps, Umf. Öxndæla og
Umf. Dagsbrún og e. t. v.
fleiri ungmennafélög. Hitt er
svo rétt, að Umf. Akureyrar
hefir á margan hátt verið for-
ustufélag, sem hefir átt þrótt
miklum áhugamönnum á að
skipa og verið frumkvöðull að
stofnun Ungmennafélags ís-
lands.
Ég vænti þess, að stjórn
Ungmennafélags íslands vriji
nú taka mál þetta tri ræki-
legrar athugunar og láta hér
gilda það, sem sannast reynist.
SSSS5SS5SSS555SÍSSSÍSÍS55SS55SÍ55S55SSSSSSÍSSSÍ53SÍ5SÍ5SS5SSSSSSSSSSSSS3
ÚTGERÐARMENN
Allar slærðir raffgeyma fyrri véllsáta
Meiri hluti vélbátaflotans notar nú eingöngu
PÓLAR - RAFGEAMA
ÚTSÖLUSTAÐIR:
AKRANES .............. Þjóðleifur Gúrinlaugsson
BORGARNES .... Bifreiða- og trésm. Borgarness h.f.
KEFLAVÍK...................... Aðalstöðin h.f.
VESTMANNAEYJAR .... Verzl. Haraldar Eii'íkssonar