Tíminn - 21.01.1956, Page 7
/I
17. blaS.
TÍMINN, laugardaginn 21. janúar 1956.
Hvar era skipin
Skipadeila S. í. S.:
Hvassafell lestar gærur á Norður-
lands- og Austurlandshöfnum. Arn-
arfell fór í gær -frá Þoi'lákshöfn á-
leiðis til New Yoi’k. Jökulfell fór 16.
1. frá Rotterdam áleiðis til Rvíkur.
Dísarfeií lestar saltfisk á Faxaflóa-
höfnum. Litlafell er í Rvík. I-Ielga-
fell'fór 17.1. frá Riga áleiðis til Ak-
ureyrar. Appian væntanlegur tii
Rvíkur 24.1. frá Brazilíu. Havprins
er í Rvík.
SkipaútgerS ríkisins:
Hekla fór frá Reykjavík í gær
austur um land í hringferð. Esja
fer frá Rvík á morgun vestur um
land í hringferð. Herðubreið fer
frá Rvík á mánudaginn austur um
land til Bakkafjarðar. Skjaldbreið
fór frá Rvík í gær vestur um land
til Akureyrar. Þyrill er væntanleg-
ur til Rvíkur í dag að vestan og
nörðan. Skaftfellingur fór frá Rvík
í gærkvöidi til Vestmannaeyja.
Eimskipafélag íslands:
Brúarfoss fer frá Hamborg 25.1.
til Antwerpen, Hull og Rvíkur. Detti
foss fór frá Rvík 17.1. til Ventspils,
GÖynia og Hamborgar.. Fjallfoss
fór frá ísafirði í.gærkvöldi til Skaga
strandar, Siglufjaröar, Húsavíkur,
Akureyrar, Patreksfjarðar og Grund
arfjarðar. Goðafoss kom til Rvíkur
18.1. frá Antwerpen. Gullfoss fór
frá Leith í gær til Kaupmannahafn-
ar. Lagarfoss.. fór frá Rvík 18.1. til
New York. Reykjafoss fer frá Ham-
borg á morgun til Rotterdam og
Rvíkur. Seifoss er í Rvík. Tröliaíoss
fór frá Nörfolk 16.1. til Rvíkur.
Tungufoss kom til Reykjavíkur 19.1.
frá Kefiavík.
Flugjerðir
Flugféiag Islands:
MillilandaiUug: Gullfaxi er vænt-
anlegur til Rvikur kl. 16.45 á morg-
un frá Hamborg og Kaupmanna-
höfn. — Innanlandsflug: í dag er
ráðgert að fljúga til Akureyrar,
Bíldudals, Blönduóss, Egilsstaða, ísa
fjarðar, Patreksfjarðar, Sauðár-
króks, Vestmannaeyja og Þórshafn-
ar.
Loftleiðir:
Hekla er væntanleg til Rvíkur kl.
07.00 írá Nö\y York. Flugvélin fer
kl. 08.00 áleiðis til Bergen, Stav-
anger og Luxemborgar. — Edda er
væntanleg ki. 18.30 frá Hamborg,
Kaupm.höfn, og Osló. Flugvélin fer
kl. 20.00 til New York.
Úr ýmsam áttam
Bindindissýningin
í Listamanhaskálanum er opin í
dag frá ki. 14—22. — Kvikmynd á
hverju kvöldi. Aðgangur ókeypis.
KvæSamannafelagiS Iðunn
heldur árshátíð sína í kvöld í fé-
lagsheimili Unginennafélags Rvíkur
við Holtaveg og hefst hún kl. 8,30.
Messur á morgun
Dómkirkjan:
Messa ki. 11. Prófessor Fr. Heiler
'frá Marburg-háskóla prédikar á
sænsku. Séra Jón Auðuns þjónar
fyrir altari. Síðdegisguðsþjónusta
kl. 5. Séi'a Óskar J. Þoriáksson.
Fríkirkjan:
Messað kl. 2. Séra Þorsteinn
Björnsson.
Nesprestakall.
Messa í kapellu háskólans kl. 2.
Séra Jón Thorarensen.
Bústaðaprestakall.
Messað í Háagerðisskóla ld. 2. —
Barnasamkoma kl. 10,30 árdegis á
sama stað. Séra Gunnar Árnason.
Laugarneskirkja.
Messa kl. 2 e. h. Séra Garðar
Svávarsson. Barnaguðsþjónusta kl.
10.15 f. h. Séra Garðar Svavarsson.
Langholtsprestakall.
Messa í Laugarneskirkju kl. 5.
Séra Árelíus Níelsson.
Fríkirkjan í Hafnarfirði.
Messa á morgttn' kl. 2.
BessastaSir.
Messa kl. 2. Séra Garðar Þor-
steinsson,
Reynivallakirkja.
Messa kl. 2 e. h. Séra Kristján
Róbertsson.
Háteigsprestakall.
Messa í hátíðasal Sjómannaskól-
ans kk 2 e. h. — Barnaguðsþjónusta
kl. 10.30 árdegís. — Séra Jón Þor-
varðsson.
Kaþólska kirkjan.
Lágmessa kl. 8,30 árdegis. Há-
messa og prédikun kl. 10 árdegis.
Líklegt, að kjör 12 Poujade-
þingmanna verði dæmt ógilt
Kjörbréíanefnd telur kjör þeirra ólögmætt
París, 20. jan. — Kjörbréfanefnd franska þingsins rann-
sakaði í dag gildi kjörbréfa hinna nýkjörnu fulltrúa. Lagði
hún til að kjörbréf þriggja þingmanna úr flokki Pierre
Poujade ýífu ekki tekin gild og taldi auk þess mikinn vafa
leika á gijdi kjörbréfa 9 annarra þingmanna úr sama flokki.
Fari svOiSáð meiri hluti þingsins
fallist á sjönarmið nefndarinnar,
verður þessuni 12 þingsætum
Poujade-manna skipt upp á milli
íhaldsmanna, róttækra og jafnað-
armanna.
Eru fulltrúar Poujade.
I forsendum fyrir áliti sínu
segja nefndarmenn, að Poujade-
þingmennirnir 12 segist vera full-
trúar Pierre Poujade. Þetta sé lög-
brot, þar sem í kosningalögunum
segi, að ekki megi aðrir bjóða sig
fram við listakjör en þeir, sem
séu fulltrúar sjálfstæðra flokka —
Þingið samþykkti í dag kjörbréf
400 fulltrúa af þeim 595, sem
kjörnir voru. Þingforsetar verða
kjörnir á þriðjudag.
Góður skíðasnjór á
Hellisheiði
Skíðafélögin í Reykjavík efna
til skíðaferða um helgina á Hell-
isheiði, eins og undanfarnar helg
ar, en þar er nú mikill og góður
skíðasnjór eins og víðar í ná-
grenni Reykjavíkur. Aðalskíða-
brekkan á Hellisheiði við Skíða-
skálann er úpplýst og bætir það
mjög úr við sldðaiðkun, þar sem
dagur er stuttur. Um síðastliðna
helgi voru milli 300—400 manns
á skíðum í yndislegu veðri á Hell
isheiði. Ferðir uppeftir verða í
dag kl. 2 og 6 frá BSR í Lækjar-
götu og á morgun kl. 10 fyrir hád.
Listasafn ríkisins
(Framhald af 8. síðu)
kemur og beint til pósthússins á
Selfossi með sömu bílum, og væri
það mjög mikið hagræði fyrir póst
húsið, ef sendendur frímerktu yfir
leitt bréfin sjálfir.
Fóstkassar látnir í té.
Þá hefir pósthúsið á Selfossi lát
ið bændum í té póstkassa, og voru
árið 1954 látnir á annað hundrað
trékassar, og geta allir fengið slíka
kassa, sem brúsapalla hafa, og eru
kassarnir látnir í té endurgjalds-
laust.
Mikil aukning.
Pósturinn, sem um pósthúsið á
Selfossi fer. vex frá ári til árs. og
má geta þess, að árið 1954 jókst
hann um 40%, en það ár bættust
við þjónustusvæði pósthússins
sveitirnar Ölfus, Laugardalur,
Fljótshlíð og Landeyjar.
Starfslið.
Árið 1951 er Kári Forberg tók
við starfinu á Selfossi unnu þar
sjö manns, en nú vinna þar tólf.
Á vakt daglega eru 4 stúlkur við
símaafgreiðslu og aðrar 4 við póst
afgreiðslu.
Gömul bygging og eldhætt.
Þar sem póstumdæmi Selfoss er
nú orðið svo stórt og umfangsmik-
ið, er það nijög til baga, hve póst-
húsið er orðin gömul bygging og
allt of lítil fyrir starfsræksluna i
dag. Það er timburhús, byggt 1930,
og er mikil þörf á stærra og betra
húsi. Þarna eru og að jafnaði
geymd mikil verðmæti, og geta
þau eyðzt á svipstundu, ef eldur
kæmi upp í þéssu gamla timbur-
húsi.
Það er mjög til baga, einkum
nú, er svo margir nýir símar hafa
bætzt við, að fullnægjandi síma-
skrá skuli ekki vera til. ÁG.
Um sauðfjárveiki-
varmr
Páll Zophóníasson flutti í gær
á þingi breytingartillögur land-
búnaðarnefndar við frv. um út-
rýmingu sauðfjársjúkdóma.
M. a. gat hann þess, að lagt
væri til, að bannað væri að flytja
sauðfé yfir varnarlínur næstu 9
ár eftir að fjárskiptum lýkur báð-
um megin við þær, nema vegna
fjárskipta. Ætti þá að fást úr því
skorið, hvort sjúkdómurinn sé bú-
inn eða ekki í viðkomandi héraði.
Sauðfjársjúkdómanefnd skal vera
heimiit að bæta að nokkru tjón
vegna banns við flutningum sauð-
fjár og nautgripa yfir varnarlínur,
ef sýnilegt er, að búfjáreigandi
verour fyrir varanlegu tjóni vegna
bannsins. Skal nefndin ákveða upp
hæð bótanna hverju sinni.
Vissu til hvers ref-
irnir voru skornir
París, 20. jan. — Franska stjórn-
in hefir mótmælt skýrslu þeirri,
sem brezka stjórnin gaf út í gær
um sölu á liálfónýtum skriðdrek-
um frá Bretlandi til Frakklands
og Belgíu, scm síðan voru gerðir
upp og sendir til Egyptalands.
Kváðust Bretar hafa selt þá sem
brotajárn. Franska stjórnin segir
hins vegar, að hinir brezku selj-
endur hafi vel vitað, að gera átti
vopn þessi upp að nýju og selja
um landi.
■iiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiniimiiiiiiimiiiiiiiiiiiimiiiiiiNM
I ÞÓRÐUI 6. HALLDQRSSON
{ BÓKHALOB- og ENDUR-
i SKOÐUNARSKRIFSTOFA
SKATTAFRAMTÖL
Ingðlfsstrætt 9B.
Slmi 82548
Bfl
1LDARMJOL
Nál. 80 tonn af gölluðu síldarmjöli eru til sölu.
Sýnishorn verða til sýnis hjá hr. Guðmundi Jónssvni
hjá J. Ásgeirsson & Jónsson, Austurstræti 7, Reykja-
vík, næst komandi mánudag, þriðjudag og miðviku-
dag. Tilboð, er greini verð og magn óskast afhent á
sama stað fyrir fimmtudagskvöld 26. þ. m.
Væntanleg tilboð verða opnuð þar kl. 10 að morgni
næsta dags (föstudags).
Til sölu er
mm
GOÐ JORÐ
í Árnessýslu, með eða án áhafnar. — Laus til ábúðar
í fardögum eða fyrr.
Arni Guðjónsson, héraðsdómsiögmaður,
Garðastræti 17. — Sími 2831.
aaga33«33S3333SSSS33333S3Sa33353S3gS333S3333SS«33S$5SS383S3S
| Hver dropl af Esso summ-
| ingsolíu tryggir yður há-
| marks afköst og lágmarks
viðhaldskostnað
| Olíufélagið h.f.
| Simi 816 00
PZLTAR ef þið eigíi stfiiK-
unato pá á és HRINGAN*.
Kjartan ÁsmundfaoD
gullsmlður
Aðalstrætf 8. Simi 12M
Reykjavfk
14 OG 18 KARATA
TRÚLOFUNARHRINGAR
Þúsundir vita
að gæfa fylgir hringtmum
frá 8IGURÞÓR.
Jaffaappelsínur
Ný og ljúffeng uppskera. Kr. 10,70 kg.
Epli — Síirónur
Félagsmenn. Kaupið ávextina í eigin búðum.
Við sendum heim samstundis.
Matvörubúðir
niiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiuiiiiin>iiiiiuiuiu
o
ABNAKUOL
pittiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiuiumiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiua
Eru skepnurnar og
heyið tryggt?
SAMviNmnniiiviaiaiDKuw
A fir A
KMflKI
iuilllllUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIÍIIIIIIIIIUIIIIUIIIIIIHIlMllflflflll