Tíminn - 21.01.1956, Qupperneq 8
40. árgangur.
Reykjavík,
21. janóar 1956.
17. biað,
■.........
Erlendar frétíir
í fáum orðnm
□ S. 1. miðvikudag fórust 22 menn,
en fjórir særðust, er tékknesk
flugvél fórst í Tatnafjöllunum í
austurhluta landsins.
□ Dágóð síldveiði var i gær á mið-
unum við Vestur-Noreg.
□ Súdan hefir gengið í Araba-
bandalagið.
□ 13 grískumælandi unglingar voru
handteknir á Kýpur í gær.
□ Tékkneskt fyrirtæki hefir boðizt
til að byggja flugvöll mikinn,
sem Sýrlendingar ætla að koma
sér upp í Damaskus.
□ Afvopnunarnefnd S. Þ. mun
koma saman n. k. mánudag. —
Einkum verður tillaga Eisen-
howers um eftirlit úr lofti at-
huguð.
□ 450 þús. járnbrautarstarfsmenn
í Bretiandi hafa fengið 7%
launahækkun. Kostnaðarauki af
þessu verður um 25 millj. sterl-
ingspunda á ári.
Dregur saman með
Rússum og Persum
Teheran, 20. jan. — Stærsta viku-
rit í íran, Teheran Moussawpa,
fullyrðir, að samningar standi nú
yfir milli Rússa og Persa um nýj-
an griðasáttmála. Hafi sendinefnd
persneskra þingmanna, undir for-
ustu fyrrv. forsætisráðherra Mo-
hammed Shed, • rætt við fulltrúa
rússnesku stjórnarinnar um samn
ingagerðina og Shed rætt það séi
staklega við Molotov utanríkisráð-
herra.
Danir sáttasemjarar
í deilum Araba og
Israels
Stokkhólmi, 20. jan. — Þegar
utanríkisráðherrar Norðurlanda
koma saman til fundar í Kaup-
mannahöfn í marz n. k. samkv.
venju, má vænta tillögu frá
danska ráðlierranum um að rík-
isstjórnir Norðurlanda taki að
sér að miðla málum í deilum
fsraels og Arabaríkjanna. Birttist
frétt þessi í blaðinu Göteborg
Handels- og Söfartstidning og
fréttaritari blaðsins í Höfn bor-
inn fyrir henni. Hafi mál þetta
verið rætt í utanríkismálanefnd
danska þingsins. Blaðið Informa
tion segir, að yfir 100 áhrifa-
menn hafi snúið sér til H. C,
Hansen forsætis- og utanríkis-
ráðherra varðandi tillöguna.
Dr. Adenauer í liðs-
könnun
Bonn, 20. jan. — Fyrsta hersýn-
ing hins nýstofnaða vestur-þýzka
hers var í dag. — Dr. Adenauer,
Blank, landvarnaráðherra og Spe-
idel, hershöfðingi, könnuðu liðið.
Stóðu þarna í fylkingum 1500 her
menn, klæddir hinum nýja bún-
ingi vestur-þýzka hersins, með
stálhjálma á höfði. Einnig voru
skoðuð bandarísk vopn, sem hern-
um hafa vcrið send. Adenauer
kanzlari flutti ræðu og minnti
hermennina m. a. á að hinn nýi
her væri undir stjórn þingsins.
Búlpnin fær orlof
Moskvu, 20. jan. — Það var opin-
berlega tilkyrint í Moskvu í dag,
að Bulganin, forsætisráðherra,
hefði tekið sér frí frá störfum.
Sé hann að hvíla sig og dvelji ut-
an Moskvu. Það hafði vakið at-
hygli, að nokkrar undanfarnar vik
ur hefir forsætisráðherrann ekki
mætt við hátíðlegar opinberar at-
hafnir.
Konungur Jórdaníu skoíar herflugvél
Vopnasendingar til Arabalandanna fyrir botni Miðjarðarhafsins eru meðal
stórpólitískustu atburða í heimsfréttunum þessa dagana. Hér sést Hussein
konungur í Jórdaníu skoða eina af sex Vampire-þrýstiloftsflugvélum, sem
land hans hefir nýlega fengið að gjöf frá Bretlandi.
Mörg mál rædd áfulltrúaráðs
sambands ísl. sveitarfélaga
Fulltrúaráðsfundur Sambands íslenzkra sveitarfélaga var
settur í Kaupþingssalnum í Reykjavík kl. 2 í gær af formanni
sambandsins, Jónasi GuSmundssyni, skrifstofustjóra.
Auk stjórnar sambandsins voru
allir fulltrúar mættir, eða vara-
fulltrúar þeirra, nema Bjarni Þórð
arson, bæjarstjóri í Neskaupstað.
í byrjun fundarins var dagskrá
útbýtt, og er gert ráð fyrir að
fundurinn standi yfir í 4 daga.
Ritarar fundarins eru Þorvaldur
Árnason og séra Sigurður Haukdal.
Kosnar voru fjórar nefndir í
fundarbyrjun: Fjármálanefnd, alls
herjarnefnd, trygginganefnd og
skattamálanefnd.
Á dagskrá fundarins eru 11 mál.
Meðal annars verður rætt um
breytingar á almannatryggingalög-
unum, bókhald kaupstaða, hreppa
og sýslufélaga. Hlutdeild sveitar-
stjórna í undirbúningi að löggjöf
um atvinnuleysistryggingar. Sam-
ræmingu á launakjörum fastra
starfsmanna kaupstaða. Frumvarp
til laga um breytingar á lögum
Bjargráðasjóðs íslands.
250 kg. gulls stolið í ið-
andi umferð á götu í Genf
Mesta rán, sem um getur í Svisslandi
Genf, 20. jan. — Lögreglunni í Sviss hefir enn ekki tekizt
að verða neins vísari, er leitt gæti til handtöku þeirra bíræfnu
þjófa, sem í gær rændu 250 kg. af hreinu gulli um miðjan
dag á fjölfarinni götu í Genf. Verðmæti gullsins er nálægt
fjórum og hálfri milljón íslenzkra króna. Er þetta mesti þjófn-
aður, sem um getur í skjölum svissnesku lögreglunnar.
Lögreglan segir, að ránið hafi
auðsjáanlega verið framkvæmt
samkvæmt nákvæmlega gerðri á-
ætlun og þjófarnir hafi fylgt henni
í hverju einasta smáatriði.
Óvarinn vörubíll.
Ránið var framið skammt frá
járnbrautarstöð einni í Genf um
miðjan dag á fimmtudag. Var gull
ið flutt á óvörðum vörubíl og ó-
læstum. Skyldi bílstjórinn bílinn
eftir stutta stund mannlausan og
viðhafði ekki einu sinni þá varúð
að taka svisslykilinn úr bílnum. í
einu vetfangi snöruðust þjófarnir
inn í bílinn, óku brott og voru
horfnir í iðandi umferðarösinni,
áður en nokkurn varði.
Bílstjórinn skrapp inn.
Gullið kom með flugvél frá
Frakklandi. Voru gullstangirnar í
10 trékössum. Vörubíll frá flutn-
ingafyrirtæki einu var sendur á
flugstöðina til að taka á móti
„sendingunni“.. Bílstjórinn ók síð
an að skrifstofu fyrirtækisins í
borginni og skrapp inn til að láta
vita, að hann hefði lokið erindinu.
Það fylgir ekki sögunni, hvort hon
um var kunnugt um, hversu dýr-
mætan farm hann flutti, en ó-
sennilegt er það, að hann hefði
þá bæði gleymt að læsa bílnum
og taka með sér svisslykilinn.
Enn í Sviss.
Öll farartæki, sem fara út úr
Sviss, eru vandlega rannsökuð, og
litlar líkur taldar til að ránsfeng-
urinn sé kominn út fyrir landa-
mærin.
Frá pósthúsinu á Selfossi er daglega sendur
póstur á rómlega 400 staöi á Suðurlandi
Margir nýir notendasímar lagiSir á Selfossi.
Rætt vi<5 Kára Forberg, póst- og símstjóra.
Frá fréttaritara Tímans á Selfossi.
Nýlega er lokið alimiklum framkvæmdum við að leggja
notendasíma á Selfossi og nágrenni, en þeim framkvæmdum
varð þó ekki að fullu lokið vegna frosta í jörðu fyrir hátíð-
arnar. Fréttaritari blaðsins á Selfossi kom nýlega að máli
við Kára Forberg, póst- og símstöðvarstjóra á Selfossi og
ræddi við hann um símamálin þar í nágrenninu og fyrirkomu-
lag póstsendinga í héraðinu.
Reykjavík, einkum um annatímann
að deginum, getur þó tafið nokk-
uð fyrir og orsakað bið.
Lokuð málmhylki eru nú utan
um allar rafhlöður, en algengasta
bilun símans er sú, að tenging
rofnar. Á Selfossi er nú allur sími
kominn í jörð.
Að þessu sinni voru lagðir inn
36 notendasímar, en vegna frost-
anna er eftir að leggja um 20 not-
endasíma, sem menn bíða nú eftir.
Sími á hverjum bæ.
Einnig var lagður sími á 7 bæi
í Hraungerðishreppi, og er þá
kominn sími á hvern bæ í þeim
lireppi. Undir stöðina á Selfossi
heyra tveir hreppar, auk Selfoss,
Hraungerðishreppur og Sandvík-
urhreppur.
Mikil aukning síma hefir átt
sér stað í þessu stöðvarumdæmi
síðan 1951, en þá voru símarnir
um 100, nú eru þeir rúmlega 200.
Sambandið við Reykjavík.
Afgreiðsla símtala milli Selfoss
og Reykjavíkur er góð, en of-
hleðsla á sjálfvirku stöðinni í
Póstur með mjólkurbílum,
Póstafgreiðsla á Suðurlands-
undiriendinu er yfirleitt mjög
greið og byggist á daglegum ferð
um mjólkurbílanna, sem taka al-
an póst á Selfossi í sveitirnar frá
Ölfusi austur undir Eyjafjöll, og
er póstur í þessar sveitir lesinn
sundur og sendur daglega. Er
það á rösklega 400 mjólkurpalla,
og yfirleitt eru nokkur heimili
um hvern mjólkurpaU.
Mestallur póstur af þessu svæði
(Framhald á 7. síðu).
Gamall maður meið-
ist í Hafnarstræti
Um klukkan 16 í gær varð gam
all maður, 78 ára að aldri, fyrir
bifreið í Hafnarstræti, hlaut mik-
ið höfuðhögg, missti meðvitund og
var fluttur í sjúkrahús. Maðurinn
heitir Jóhannes Ásmundsson til
heimilis í bragga númer 1 við
Elliðaár. Rannsóknarlögreglan bið
ur sjónarvotta að slysi þessu að
koma og gefa upplýsingar.
Norræna tónlistar-
hátíðin
íslenzk tónskáld, sem vilja fá
verk flutt á næstu norrænu tón-
listarhálíð, eru beðin að senda
nýrri verk sín fyrir hljómsveit
eða verk stofutónlistar eða kirkju-
tónverk ekki síðar en 27. þ. m. til
Tónskáldafélags íslands.
íslenzk dómnefnd til að gera
tillögur um val verkanna hefir
verið skipuð. Hátíðin verður að
þessu sinni haldin í Helsingfors,
og hljómleikaskráin verður end-
anlega ákveðin á fundi Norræna
tónskáldaráðsins í næsta mánuði.
Árshátíð FUF er í
kvöld
PAUL ARLAND
Árshátíð ungra Framsóknar-
manna í Reykjavík hefst kl. 9 í
kvöld að Röðli. Mikil aðsókn er
að hátíðinni, og verður fólk, semx
ekki vill missa af henni, að
tryggja sér miða, helzt árdegis
í dag í skrifstofu Framsóknar-
félaganna í Edduliúsinu. — Her-
mann Jónasson, formaður Fram
sóknarflokksins mun flytja ræðe,
en síðan verða ýms skemmtiat-
riði, svo sem að frægur fjöllist-
armaður, Paul Arland, sýnir
töfrabrögð ineð fiska. Hjálmar
Gíslason syngur gamanvísur, og
eitt óvænt atriði verðiir til
skemmtunar. Að lokiim vérður
dansað. Hljómsveit Baidurs
Kristjánssonar léiRur og Haukur
Morthens syngur. Állt framsóka
arfólk velkomið.
--------- ■ i r i '; i. 1 |
2 ,4 Z . æZ
Heimsmet í skauta-
hlaupi
Davos, 20. jan. — Mesta skauta-
hlaup, sem hér hefir verið háð,
fór fram í dag og aldrei hefir
jafn góður árangur náðst í ol-
ympíubrautinni í Davos á 1500 m.
Nýtt heimsmet var sett, nýtt vall-
armet og 12 þjóðármét, en tilvon-
andi þátttakendur á Ólympíuleik-
unum í Ítalíu kepptu, Heitp^met-
ið setti Rússinn ílichgjlóv og
hljóp hann vegalengdinrt á*2Í09,1.
mín. og er það vj0 úr sek. betra
en eldra heimsmetið, sem. landi
hans, Grisjin, setti á AlþiþtAta í
fyrravetur. Bezti tílni, segi áður
hafði náðst í Davos, var 2:13.3
Vísitalan orðio 175 s.
Kauplagsnefnd hefir reiknað út
vísitölu framfærslukostnaðar í
Reykjavík hinn 1 .janúar þ. á. og
reyndist hún vera 175 stig. — (Frá
viðskiptamálaráðuneytinu).