Tíminn - 01.02.1956, Blaðsíða 7

Tíminn - 01.02.1956, Blaðsíða 7
261 blaBL TÍMINN, miSvikudaginn 1. febrúar 1956. I— isí eru skipl in Skípadeild S. 1. S.: Hvassafell er í Hamborg. Arnar- feH er í New York. Jökulfell lestar á Austfjarðahöfnum. Dísarfell fór 25.: þ. m. frá Hafnarfirði áleiðis til Patras og Piracus. Litlafell losar á Norðuriandshöfnum. Helgafell vænt anlegt til Rvíkur á morgun. Appian ér 'i Rvík. Skipaútgerð ríkisins: Hekla er á Austfjörðum á norð- urléið. Esja fer frá Rvík kl. 20 í kvöld vestur um land í hringferð Herðubreið kom til Rvíkur í gær- kvöldi frá Austfjörðum og á að fara frá Rvík á morgun austur um land til Vopnafjarðar. Skjaldbreið fór frá Rvík í gærkvöldi ti! Breiðafjarð- ar. Þyrill fór frá Akureyri síðd. í gær áleiðis til Rvíkur. Skaftfelling- ur fór frá Rvxk í gærkvöldi til Vest- mannaeyja. Eimskipafélag íslands: Brúarfoss fór rfá Hamborg 30.1. lil Antwerpen, Hull og Rvíkur. Detti foss kom til Hamborgar 30.1. Skipið fer þaðan til Rotterdam og Rvíkur. Fjallfoss fór frá Akranesi í fyrri- nótt til Rotterdam, Antwerpen og Hull. Goðafoss f.ór frá Patreksfirði 30.1. tií Hvammstanga, Sauðárkróks, Sigiufjarðar og þaðan til Ventspils og Hangö. Gullfoss fór frá Leith í gær til Thorshavn og Rvíkur. Lag- arfoss kom til New York 26.1. frá Rvík. Reykjafoss kom til Rvíkur 30. 1. frá Rotterdam. Selfoss fór vænt- anlegá frá Akranesi í gær til Ghent. Tröllafoss kom til Rvikur 29.1. frá New York. Tungufoss fór frá Ak- urgyri 23.1.. til Belfast og Rotter- dam. Flugferðir Flugfélag ísiands: GuIIfaxi er væntanlegur til Rvík- Ur í dag kl.- 16.45 frá London og Glasgow. — Innanlandsflug: í dag er ráðgert að fljúga til Akureyrar, ísafjarðar, Sands og Vestmannaeyja. Loftleiðir: Saga er væntanleg í kvöld kl. 18. 30 frá Hamborg, Kaupmannahöfn og Gautaborg. Flugvélin fer áleiðis tU New York kl. 20.00. Pan American-flugvél er væntanleg til Keflavíkur í nótt frá New York, hélt áleiðis til Prest- wick og London. Til baka er flug- vélin væntanleg í kvöld og fer þá til New York. r Ur ýmsum áttum Bæklingur um nælonsokka. Neytendasamtökin hafa sent frá sér bækling um nælonsokka og hef- ir frú Elsa Guðjónsson tekið hann saman. Er þar að finna margan nyt- saman fróðleik um gerð sokka og meðhöndlun þeirra. Er þetta fyrsti bæklingurinn á árinu, en fjórir eru í undirbúningi. Meðlimir samtak- anna geta allir landsmenn gerzt, hvar . sem þeir eru búsettir. Skx-if- stofa samtákanna er í Aðalstræti 8, SÍmi 82722 og pósthólf 1096. Vetfarbrim skarðar fiafnargarðmn í Grímsey Fréttabréf frá Grímsey, 15. jan. Ekki-tókst að Ijúka framkvæmd- Um við hafnargerðina í haust, og stafaði það mestmegnis af óhag- stæðri veðráttu síðastliðið suniar og haust. Þefta hefur haft þær af- leiðíngar, að hafnargarðurinn hef- ur skemmzt töluvert nú í vetrar- briminu. Annars vona Grímseyingar að unnt verði;i að ljúka verkinu snemma í vor. Miklar vonir eru bundnar við mannvirki þessi. Öll fiskframleiðsla eyjabúa er farin héðán. Það síðasta fór 16. des. Annars var fiskmagnið miklu minna í ár en undanfarið, en sjó- menn stunduðu flestir vinnu við hafnargerðina. — G. J. FricSrikssjótíur (Framhald af 8. síðu) urbæjar 2125 kr. Starfsfólk KRON 1700 kr. Starfsfólk Ölgerðarinnar Egill Skallagrímsson 1675 kr. Lög- reglumenn í Kefavík 1100 kr. Tjarn arklúbburinn 535 kr. Vinnuflokk- ur Jóhanns Benediktssonar 430 kr. Jtotaryklúbbur Borgarness 350 kr. Auk þess hafa ýmsir einstaklingar Iagt í sjóðinn. Framkvæmdanefnd sjóðsins hefir beðið blaðið að flytja gefendum þakkir sínar. Rússnesk skip (Framhald af 1. eíðu). hardsen forsætisráðherra, sem einnig er í Kaupmannahöfn, kvaðst við því búinn að fara heim fyrir- varalaust, ef þess gerðist þörf. Strax og Lange kom til Osló sendi hann harðorð mótmæli til rúss- r.esku ríkisstjórnarinnar og var sendiherra Norðmanna í Moskvu falið að koma þeim á framfæri. Lange kvaddi einnig sendiherra Rússa í Osló, Arkadjev, á sinn fund og bar fram mótmæli og skýrði frá hversu alvarlegum aug- um norska ríkisstjórnin lítur á mál þetta. Rússncska sendinefndm afturreka? Innan fárra daga átti rússnesk sendinefnd skipuð sérfræðingum í fiskveiðum að koma í heimsókn íil Noregs. Átti hún að kynna sér síldveiðar Norðmanna. Norsku blöðin krefjast þess öll í dag, að þetta heimboð sé afturkallað þegar í stað. Fréttaritari NTB sneri sér seint í kvöld til utanríkisráðu- neytisins og spurðist fyrir um hvað áformað væri í þessu efni. Því var svarað, að utanríkisráð- herra væri að atliuga málið. Al- mennt virðist álitið, að norska ríkisstjórnin múiii afturkalla boð ið, enda er norskur almenning- ur æfur yfir þessum fáheyrðu aðförum Rússa og krefst viðeig- andi svars af hálfu Norðmanna. Nota bylgjulengd norskra skipa. Það hefir vakið jafnvel enn meiri gremju í Noregi en sjálf landhelgisbrotin, að rússnesku skipin nota — að því er virðist eingöngu — bylgjulengd þá, sem fiskiskip Norðmanna nota. Er þetta auðsjáanlega gert að yfir- lögðu ráði til þess að torvelda norskum síldveiðiskipum að fylgj- ast með ferðum rússnesku skip- anna og skýra varðskipunum frá stöðu þeirra. Stöðug símtöl og skeytasendingar Rússa á bylgju- lengd Norðmanna — 2,4 „megal- cykle“, en þeim var úthlutað henni á alþjóðaráðstefnu í Genf 1951 — hefir leitt til þess, að norsku skip- in eru nær sambandslaus hvort við annað og stöðvar í landi. í nótt þegar verið var að taka eitt rúss- nesku skipanna, gerði það og fleiri skip tilraunir til að trufla allar skeytasendingar og tókst það að verulegu leyti. Mótmæli verða send til alþjóða ritsímastofnunar- innar í Genf, svo og til rússnesku stjórnarinnar. Einstakt fyrirbæri., Ekki er búizt við, að dómar gangi í landhelgisbrotum þessum fyrr en í fyrsta lagi um næstu helgi. Er sjáanlegt, að Rússarnir muni beita fyrir sig öllum laga- brögðum, sem þeir geta í málinu. Gremja og reiði almennings í Nor egi yfir einstæðu aðförum Rússa er gífurlega mögnuð. Blöðin skrifa öll um málið á forsíðum sínum og ræða það í leiðurum. Rússar biðji afsökunar. Aftonposten krefst þess,. að rússneska ríkisstjórnin biðjist af- sökunar á eindæma yfirgangi veiði skipanna. Morgunbladet segir, að er- lendir togarar hafi aldrei sýnt svo strákslegan og ábyrgðarlaus- an yfirgang við strcndur Noregs, enda nmni velútbúinn stór fisk- veiðafloti aldrei í sögunni hafa gert sig svo freklega brotlegan við alþjóðalög. Blaðið Nationen segir, að Rúss- Bóndi varð bráðkvadd- ur, er hann gekk við fé Frá fréttaritara Tímans í Staðarsveit. S. 1. miðvikndag bar svo við í Haga hér í Staðarsveit, að bóndinn þar, Ingólfur Kárason, fannst örendur skammt frá bænum, og hafði hann orðið bráðkvaddur, er hann var að ganga við fé sitt. Um kl. 4 um daginn fór Ingólf- ur að sækja fé sitt, sem var á beit skammt frá túninu. Leið alllangur tími án þess að hann kæmi heim, og þegar kona hans fór að undr- ast um hann, fór hún út að svipast um eftir honum. Sá hún þá, að féð var komið heim að húsum, en mann sinn sá hún hvergi. Hringdi hún þá á næstu bæi og komu menn fljótt til leitar, en um það leyti, sem leitarmenn voru að leggja af stað, kom hundur Ing- ólfs, sem hafði fylgt honum, heim og gátu menn rakið slóð hans út fyrir túnið, þar sem þeir fundu Ingólf örendan. Hafði hann auð- sjáanlega verið á heimleið með féð en hnigið örendur niður. Ingólfur var rúmlega fimmtug- ur að aldri, atorkusamur og í röð beztu bænda. Hann lætur eftir sig konu, Elísabetu Hafliðádóttur, og tvö ung börn. ÞG. Þjóðvörn kfoön - Gils segir já - Bergur nei í atkvæðagreiðslu um 1. gr. frumvarpinu um Framleiðslu- sjóð gerðist sá einstæði atburður, að þingflokkur Þjóðvarnarliðsins klofnaði um málið. Það þótti tíð- indum sæta í heirni vísindanna, þegar kjarnorkuvísindamönnum tókst að kljúfa atómið — sem fram að því merkti hin smæsta eining, sem ekki var hægt að kljúfa. Svipað hefir nú gerzt Alþingi fslendinga og eiga þessir tveir kjarnorkumálasérfræðingar Þjóðvarnarliðsins heiðurinn af afrekinu. Ný leikrit í safni Menningarsjóðs Fyrir nokkru eru komin út 11. og 12. heftið af Leikritasafni Menningarsjóðs. Eru það eikritin „Konan, sem hvarf“ eftir Pál H. Jónsson, kennara á Laugum í Suð- ur-Þingeyjarsýslu, og „Júpíter hlær“ eftir brezka skáldið A. J. Cronin. Leikritið „Konan, sem hvarf" er 85 bls. og í fjórum þáttum. Það er samið með hliðsjón af sögunni „Smalastúlkan“ í þjóðsagnasafni Ólafs Davíðssonar. „Júpíter hlær“ er 80 bls. í þrem þáttum. Aðalpersónurnar eru lækn ar, eins og í fleiri leikritum hins víðkunna höfundar, A. J. Cronins. Leikrit þetta var valið til útgáfu einkum vegna þess, að það hent- ar mjög vel fyrir félög áhuga- manna um leiklist, enda hefir það hlotið miklar vinsældir víða er- lendis. Bæði leikritin eru prentuð í Prentsmiðju Hafnarfjarðar. Cfb&fH qeílí-ÁíZtty ar ætlu að standa öðrum þjóðum framar í því að virða landhelgi annarra, þar sem þeir hafa sjálfir fært út landhelgi sína í 12 sjómíl- ur. Ekki hafa þeir viljað leyfa Norðmönnum að stunda selveiðar í Hvítahafi, en Norðmenn hafa stundað þær veiðar öldum saman. Forsíðufrétt í brezkum blöðum. Brezku blöðin flytja fregnir af landhelgisbroti Rússa undir slór- um fyrirsögnum og sum hafa það á forsíðu. Fordæma þau aðfarir Rússa og telja þær einsdæmi. Ti- mes segir, að heimboð rússnesku sendinefndarinnar hafi verið sent á óheppilegum tíma, enda muni Rússar enga síld kaupa af Norð- mönnum á þessum vetri. 30 manns hefir lamast vegna lömunarveiki á Patreksfirði Frá fréttaritara Tímans á Patreksfirði. Ekkert lát virðist vera á löm- unarveikinni hér á Patreksfirði. Fólk var að gera sér vonir um að hún væri í rénun í desember, en þá var um 35 ný tilfelli að ræða. Janúar varð litlu betri, en þá XX X NRNKtN veiktust 33. Læknir hefur nú skráð 116 Iömunarveikitilfelli en af þcim er um þrjátíu lamanir að ræða. Fyrir utan skráð tilfelli mun vera töluvert um það, að fólk hafi fengið veikina, en svo væga, að ekki hafi komið til læknisráða. E Hver drcpl af Esso sumrn- | lngsolíu tryggir yður b&- | marks aíköst og lágmark* viðhaldskostnað f ©Iíitfélaglð h.f. Bíml 816 00 5 __ nuasiaiuimniiRrriiiTiiiii i riatuiuttiti mtiiituiumniiiiiiuaHi „Skjaldbreið” vestur um land til Akureyrar hinn 6. þ. m. Tekið á móti flutningi til Súgandafjarðar, Húnaflóa- og Skagafjarðarhafna, Ólafsfjarðar og Dalvíkur í dag. Farseðlar seldir árdegis á laugardag. Skaftfellingur fer til Vestmannaeyja á föstudag- inn. Vörumóttaka daglega. HiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiBiiiiiiaiiiiiiiiii) | Ungur maður! 1 á góðu búi í sveit óskar eft-1 I ir að kynnast stúlku á aldr- i I inum 25—35 ára með i 1 hjónaband fyrir augum. i I Svör sendist blaðinu fyr-1 I ir 15. maí í lokuðu umslagi, I i merkt SiðprúSur, og mun I | blaðið koma þeim svörum I i áleiðis. Algjörri þagmælsku I i heitið. , iiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiitiuutmitrumttmiciki | Eru skepnurnar og jT' heyið tryggt? , fflA»4rvEKTviirTnsixn3©iwcttAj«\ >4» ♦ FILTAH ef JsiS eífíi milt- nna, þi á én HBXKGARAi. Kjartan ÁsmundSfl«in guil&miður | AðalstrætJ 8. Eími 128® Reykjavlk KLUKKÖR Traustar klukkur á hóflegu verði. Klukkurnar með ljónsmerkinu. Gott úrval af smáum og stórum klukkum fyrirliggj- andi. Viðgerðastofa fyrír úr og klukkur. Afgreiðum gegn póstkröfu. A Jir Jk KHfllKI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.