Tíminn - 04.02.1956, Page 2
.Íí.í J
TÍMINN, laugardaginn 4. febrúar 1956.
29. blað.
Perón hótar að koma aftur og drepa
milljón manns við það tækifæri
Skyndilega verður einn maður
óalandi og óferjandi af því ekki
er þörf að skríða fyrir lionum
lengur. Þetta er saga margra og
jafnfranit saga Peróns, fyrrver-
andi einræðisherra með forseta-
nafnbót í Argentínu. Það er ekki
langt síðan virðuleg blöð birtu
fregnir af Perón, eins og hverj-
um öðruin virðulegunt stjórn-
málamanni, en skyndilega er
hann orðinn fífl og úrhrak í dálk
um þessara sömu blaða. Hér er
ekki staður til að ræða um að-
draganda byltingarinnar í Argen-
tínu. Hún var fullkomlega sann-
fræðileg á yfirborðinu; þar sem
áttust við geistleg yfirvöld ka-
þólsk og einræðisherrann í upii-
hafi með ívafi og aðgerðum ann-
arra aðila argentískra undir loka
dægur.
Það fer ekki hjá því, að Perón
viðhefur nú það orðbragð, að bein
afleiðing þess er réttmæt spurn-
ing blaðsins Crítica í Buenos Ai-
res þess efnis, hvort þeim í Pan-
ama þyki ekki tími til kominn að
setja manninn í spennitreyju, en
hann dvelur í Panama í útlegð
sinni.
Blóð mun streyma.
Það má vera að við hér á norð-
urhveli jarðar séum það kald-
geðja, að okkur falli ekki, þegar
gefnar eru út opinberar yfirlýs-
ingar þess efnis, að blóð skuli
streyma, en Perón er höfundur
slíkrar skjalfestingar á hugarfari
sínu gegn núverandi ráðamönn-
um í Argentínu. Yfirlýsing þessa
gaf hann út nýlega frá bækistöð
sinni í Panama. Þar segir; „Full-
trúar mínir eru alls staðar (í Ar-
gentínu) og þeir undirbúa allt fyr
ir daginn (innrásardag Peróns).
Sá dagur getur komið hvenær sem
er. Það mun verða ofsaleg barátta.
Blóð mun streyma á strætum Ar-
gentínu. Ef til vill verða allt upp
í milljón manna drepnir“. Nú virð
ist eftir þessu að dæma, að mað-
urinn sé geðbilaður, einkum þeg-
Útvarpið
Útvarpið I dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
12.50 Óskalög sjúklinga.
13.45 Hjúkrun í heimahúsum.
16.30 Skákþáttur.
17.00 Tónleikar (plötur).
17.40 Bridgeþáttur.
18.00 Útvarpssaga barnanna; XIV.
18.30 Tómstundaþáttur barna og
unglinga.
18.55 Tónleikar. Vinsæl hljómsveit-
arlög.
20.20 Ávarp frá Hinu íslenzka bibl-
íufélagi.
20.30 Upplestur: Þórarinn Guðnason
læknir les kafla úr ferðabók
Vigfúsar Guðmundssonar: Um
hverfis jörðina.
20.55 Tónleikar: Sígaunalög.
21.20 Leikrit: Byrðin eilífa eftir
Leck Fischer, í þýðingu Þor-
steins Ö. Stephensen.
22.20 Danslög. 24.00 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
9.20 Morguntónleikar (plötur).
11.00 Messa í Dómkirkjunni.
13.15 Afmæliserindi útvarpsins; IV.
15.15 Fréttaútvarp til ísl. erlendis.
15.30 Miðdegistónleikar (plötur).
17.30 Barnatími.
18.30 Tónleikar (plötur).
20.20 Tónleikar (plötur).
20.30 Erindi: Jóhann Húss.
21.05 Langs og þvers.
22.05 Danslög. 23.30 Dagskrárlok.
Myndasaga
barnanna:
Æfintýri
í Afríku
Perón í útlegðinni í Panama.
Eva var allra presta maki.
ar hann fer að áætla að manndráp
in skuli standá á milljón.
Frekara siðferðisvottorð.
En þar með er ekki lokið þeim
siðferðisvottorðum, sem Perón gef
ur sér. „Ég forðaðist blóðsúthell-
ingar, þegar ég hafði völdin og
fór vel með andstæðinga mína
(pólitískar fangabúðir). Þessi mis
tök skulu ekki henda mig á ný.
Mörg höfuð skulu fjúka, þegar ég
kem aftur til Buenos Aires. Það
verður hryllilegt, en ekki hægt að
komast hjá því“. Bertrand Russell
bendir á það einhvers staðar í rit
um sínum, að ein alvarlegasta
veiki, sem menn gangi með, sé
þess eðlis, að þeir álíti sig ómiss-
andi. Og það hvarflar ekki að Pe-
rón, að svo kunni að ekki borgi
sig fyrir neinn aðila, að hann
stígi í valdastólinn að nýju yfir
milljón lík, jafnvel þótt hægt
væri að lofa honum að Argentína,
þjóð og land, hyrfi ekki af landa-
bréfinu, þótt hann sæti kyrr í Pa-
nama. Hvað ætli hann haldi að
verði um þjóðina, þegar hann fell-
ur frá og hvernig færi ef hann
fengi nú hjartaslag, áður en hann
lætur drepa milljónina? Skyldi
Argentínubúum bregða mikið, ef
„frelsari“ þeirra félli í valinn á
þessari örlagastundu. Þess ber að
gæta, að hann var rómaður leið-
togi þjóðar sinnar, þar til kaþólsk
ir sneru baki við honum.
Þeir eru skráðir.
Þá hefir Perón gefið upp Tiverj-
ir það eru sérstaklega, sem hann
hefir í hyggju að drepa. Tilkynnti
hann þetta í blaðaviðtali við New
York Herald Tribune ásamt fram-
angreindum yfirlýsingum varðandi
innrásina. Höfuð eftirtalinna
manna skulu fjúka: Liðsforingjar
í flugher og flota Argentínu; stór-
iðjuhöldar svo sem stærsti bjór-
framleiðandinn og stærsti vefnað-
arframleiðandinn; Alberto Gainza
Paz, útgefandi La Prenza; stjórn-
endur Uruguay, þar sem útlagar
Peróns skipulögðu uppreisnina og
að lokum klerkar kaþólsku kirkj-
unnar. Hann lét prestana hafa dá-
lítið til viðbótar fyrirhuguðum
dauðadómi og tók þá setningu úr
handriti nýritaðarar bókar, sem
hann nefnir: Valdið er réttlæti
villidýrsins. Segir þar að Eva heit-
in kona hans hafi: „innt af hönd-
um meiri góðverk á éinum degi
en allir prestar lands míns um
ævina.“
Gagnsókn nýju stjórnarinnar.
Hinir nýju stjórnendur Argen-
tínu með Aramburu forseta í
broddi fylkingar, notuðu tækifær
ið, eftir að Perón hafði gefið fyrr
greindar yfirlýsingar. til að skerpa
enn línurnar milli þeirra stjórn-
arhátta, sem nú ríkja í Argentínu
og þeiri'a, sem voru við lýði í tíð
Peróns. Enn eru í Argentínu mill
jónir fylgismanna Peróns, sem
eiga bágt með að sættá sig við orð
inn hlut. Stjórnin lét fara fram
opinbera rannsókn á fjárreiðum
þingmanna Peróns og kom í ljós,
að eignir þeirra höfðu aukizt úr
rúmlega sex og hálfri milljón pe-
sos í 206 milljónir í tólf ára stjórn
artíð foringjans. Forsetinn flutti
ræðu, þar sem hann varpaði sök-
inni af hinum almenna fylgis-
manni Peróns yfir á þá, sem fóru
með umboð kjósendanna. Og í
þriðja lagi hafði stjórnin orðið
sér úti um ritara Peróns í Panama,
Radeglia nokkurn, sem var síðast
í ritaraembættinu í nóvember síð-
astliðnum. Kom hann fram á blaða
mannafundi, sem fangi stjórnar-
innar, og sagðist álíta að Perón
væri truflaður á geðsmunum.
Hann ber það einnig, að Perón
vildi fá Nelly Rivas, sextán ára
gamla hjákonu sína til Panama, en
henni var snúið við fyrir nokkru,
er hún reyndi að flýja í gegnum
Paraguay. Radeglia kvaðst hafa
misst trúna á Perón og sagðist nú
vera að rita bók um hann, en tit-
ill á handrili væri: Villidýrið sem
hafði vald. Ólíklegt er að Perón
komizt aftur til valda. Og ekkert
hefir sannast í því að betra hafi
tekið við. En fari sem horfir eru
litlar líkur til að Perónistar í Ar-
gentínu haldi núverandi höfðatölu
til lengdar.
Bindindissýningin
til Aknreyrar
Akureyri í gær. — Bindindissýn-
ingin, sem haldin hefir verið í
Reykjavík að undanförnu, er nú
komin hingað til Akureyrar og
verður opnuð hér n. k. sunnudag,
í húsi Kr. Kristjánssonar við
Geislagötu.
SKT (jömfu danóarnir
í G. T.-húsinu í kvöld klukkan 9.:
Hljómsveit: Carl Billich
Söngvari: Sigurður Ólafsson.
Ath.! Þrír gestir fá góð verðlaun eins og síðast, sem
dregið verður um á dansieiknum.
Aðgöngumiðar frá kl. 8
ÍSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS3
tssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssscsaa
Atvinna
Óskum eftir stúlku til afgreiðslustarfa frá og með
1. maí n. k. eða síðar. Umsóknir sendist til kaupfé-
lagsstjórans fyrir 1. apríl n. k.
Kaupfélag Rangæinga.
•SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSI
AKRANES
Til sölu tveggja hæða steinhús á mjög góðum stað
í bænum. — Nánari upplýsingar veitir Valgarður Krist-
jánsson, lögfræðingur, sími 398, Akranesi.
íSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSa
Sýning í Listamannaskálanum:
Kjarnorka í þjónustu
mannkynsins
Sýningin verður opnuð í dag 4. febrúar
kl. 5,30 e. h.
Framvegis opin daglega kl. 14—22.
Aðgangur ókeypis.
*SSSSSSSSSSSS3SSSSS;SSSM»SSSS&S3SSSSSSSSSSS3SSSSSSSS$SSS333SSSSSSIC«S«
»5SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSÍSSSSSSS5SSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSS®a
Starfsstúlka óskast
í eldhús Kópavogshælis vantar frá 1. marz starfs-
stúlku, sem jafnframt getur aðstoðað ráðskonuna á
frídögum hennar. Upplýsingar í síma 3098 hjá ráðs-
konunni.
Skrifstofa ríkisspítalanna_
•sssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssss^ssssísssssssa
Bróðir minn.
iiHí'/í
Magnús Arnbjarnarson
lögfræðingur.
andaðisf að heimili mínu, Seifossi, 2. febrúar.
F. h. vandamanna,
Sigurgeir Arnbjarnarson.
wmsaneimem