Tíminn - 04.02.1956, Side 4
TÍMINN, laMgardagiim 4. febrúar 1956.
29. bla&
Yfir 1100 sveifabýli munu fá rafmagn á
3 fyrstu árum rafvæðingaráætluiiarinnar
Stóraukin framlög fil landbúnaðar, afvinnuaukningar i sjóþorpum og
íbúðabygginga samkvæmt nýju byggingalöggjöfinni
f umræSum, slíkum sem þess-
um, vill það tíðast við brenna,
að stjórnarandstaðan skrumskæli
staðreyndir og færi úr lagi rétt
rök, sér og sínum hagsmunum til
framdráttar, að því er hún h.vgg-
ur. Og ekki brugðu stjórnarand-
stæðingar þeirri venju í umræð-
um þeim, sem hér fóru fram í
fyrrakvöld. Hitt mun sannara, að t
þeir hafi aldrei lengra gengið í j
þá átt að rangfæra staðreyndir,'
og falsa frásagnir, þannig að sú 1
mynd, sem þeir drógu upp af
stjórnmálaástandinu var algerlega
og háskalega röng. Ég segi háska
lega röng, því að það er háska-
legt að villa um fyrir almenningi
í mikilsverðum málum, og það
stefnir til upplausnar, niðurrifs,'
eins og ljós dæmi sanna. En hér
verður að treysta því, enn sem
fyrr, að hinir almennu borgarar
hafi þroska og manndóm til þess |
að gera sér grein fyrir því, hvað ;
rétt sé, en láti ekki blekkjast af
rangfærslum og útúrsnúningum.
Að sjálfsögðu gengu kommún-
istar fram fyrir skjöldu um allar
staðleysur. Hví skyldu þeir nota
rétt rök? —- Borgaraleg rök. —
Þeirra Hlutverk er annað. Sam-
kvæmt eðli sínu og fyrirmælum
yfirboðara sinna eiga þeir að rífa
niður, beita sýndarrökum, villa
um í því skyni að rífa þjóðfélagið
á slig, þegar það er hægt. Þetta
eru menn farnir að þekkja, eða
ættu að vera það að minnsta kosti.
En alltaf virðast þeir treysta því,
að einhverjir ljái eyru að boðskap
þeirra. Iiins ætti að mega vænta
af þeim flokkum, sem kenna sig
við lýðræði, að þeir geri sér ljósa
þá ábyrgð, sem stjórnarandstöðu
fylgir. En ekki var því að heilsa
við umræðurnar í fyrrakvöld. Þeir
virtust sækja fram við hlið hv.
2. landskjörins Brynjólfs Bjarna-
sonar undir hinum austrænu
merkjum.
Áróður stjórnarand-
stöðunnar
Uppistaðan í ræðum stjórnar-
andstöðunnar allrar var í stuttu
máli þessi: Þær tvær ríkisstjórnir,
sem farið hafa með völd um síð-
ast liðin sex ár, hafa ekkert vel
gert þjóðinni til lianda. Ferill
þeirra er samfelldur hrakfalla-
bálkur, svo að nú er allt komið
í strand, virðist ástæðan helzt
vera heimska og illvilji jöfnum
höndum. Þessum augljósa sleggju
dómi var varpað fram í skjóli
hinna gífurlegu erfiðleika, sem
sjávarútvegurinn og þar með út-
flutningsverzlun þjóðarinnar hefir
átt við að etja um undanfarin ár.
Þessir erfiðleikar eru þannig vaxn
ir, að vissulega þarf samstillt á-
tök allrar þjóðarinnar til þess að
sigrasl á þeim. Mér virðist því,
að mjög skorti þjóðhollustu og á-
byrgðartilfinningu háttv. stjórn-
arandstöðu, því að vissulega verð-
ur að vænta þess, að stjórnarand-
staða í lýðræðisríki líti fyrst og
fremst á hag þjóðarinnar, en láti
ckki flokkssjónarmið ráða gerð-
um sínum og athöfnum. Þegar
vandamálin eru jafn geigvænleg
og nú, þar sem öll útflutnings-
verzlun þjóðarinnar á í hlut, þá
verður að gera því meiri kröfur
til stjórnarandstöðunnar um að
hún láti þröng flokkssjónarmið
ekki ráða of miklu, heldur taki
heilhuga þátt í bjargarráðstöfun-
um.
Ég mun þó ekki í þeirri stuttu
ræðu sem ég flyt hér ræða þessi
mál, þar sem það hefir verið gert
rækilega af öðrum ráðherrum, en
mun snúa mér að öðrum mála-
flokkum.
Ég mun nú fara nokkrum orð-
um um þá málaflokka, sem í um-
sjá minni og þeirra ráðuneyta, er
ég stjórna, hafa verið undanfarið.
Sumir um 6 ára skeið, en aðrir um
skemmri tíma. Þessi mál eru:
Ræða Steingríms Steinþórssonar kndbimaðar- og félagsmála-
ráðherra í eldhásumræðiinum
Kirkjumál, landbúnaðarmáL, raf-
orkumál, félagsmál. Auk þess hefi
ég litinn hluta samgöngumálaráðu
neytisins, s. s. Veðurstofu íslands,
svo og Rannsóknarráð ríkisins o.
fl. Ég skal nú fara örfáum orð-
um um hvern þessara málaflokka
og skýra mjög stuttlega frá helztu
aðgerðum varðandi þá hin síðustu
Endurreisn Skálholts
Þau valda sjaldan miklum póli-
tískum átökum, enda óeðlilegt að
svo sé, þó er það allmjög mis-
jafnt hvernig að þeim er staðið
á hverjum tíma. Á þessu sviði er
meira aðhafst nú en nokkru sinni
fyrr. Á þessu ári eru 900 ár frá
því að biskupsstóll var settur í
Skálholti. Verður það ávallt tal-
inn einn allra merkasti atburður
í sögu okkar íslendinga. Alþjóð er
kunnugt að Skálholt hefir verið
vanrækt, og það mjög til þessa.
Þessi annar höfuðstaður þjóðarinn
ar um margar aldir, hefir lent í
raðir venjulegra bændabýla, fátt
eða ekkert er þar, sem minnir á
liina fornu frægð staðarins og
þeirra miklu áhrifa, sem þaðan
bárust varðandi trúarlíf og alla
menningu þjóðarinnar. Núverandi
ríkisstjórn hefir tekið mál þetta
föstum tökum. Hafa þegar verið
veittar í fjárlögum síðustu ára 5
milj. króna til endurreisnar Skál-
holtsstaðar. Er nú unnið þar að
því að reisa virðulegt prestsset-
ur, kirkju o. fl. mannvirki, svo að
þetta elzta og merkasta trúar- og
menningarsetur verði á ný reist
úr rústum og gert að miðstöð ein-
liverra þátta menningarmála þjóð
arinnar. Þess má og geta að tvö
þrjú hin síðustu árin hefir meiri
fjárhæðum en nokkru sinni fyrr
verið varið til þess að reisa prests
setur og útihús á þrestssetrum
víðs vegar um land.
Steingn'mur Steinþórsson
— fá útflutningsuppbætur til
jafns við bátagjaldeyrisvörur. Er
áætlað, að það nemi um 15 milj.
króna. Ég tel þetta mikil og góð
tiðindi. Verði það svo, að hér megi j
framleiða landbúnaðarvörur til
útflutnings við ekki óhagstæðari
verði fyrir erlendan markað en
sjávarútvegsvörur eru framleidd-
ar fyrir, þá er það í raun og veru
glæsifegt fyrir landbúnaðinn og
ber þess vitni, að við getum marg
faldað útflutning landbúnaðar-
framleiðslu okkar.
Framlögin til sjóSa
Búnaðarbankans
Sjóðir Búnaðarbankans, Bygg-
ingarsjóður og Ræktunarsjóður
Óþurrkahjálpin svo og veðdeild eru lífæðar land-
Síðast liðið ár var á marga lund I búnaðarins. Vegna þeirra lána, er
erfitt íslenzkum landbúnaði. Sér- j þe*r hafa veitt, hafa hinar geysi
staklega voru það óþurrkarnir um|nl*klu framkvæmdir síðustu ára í
Suðurland og mikinn hluta Vest- ■ sveitum orðið. Þessar fram-
urlands, sem ollu feikna tjóni. (kvæmdir, hvort sem eru bygging-
Hafa slíkir óþurrkar ekki komið ar e^a ræktun, hafa verið miklu
i þessum landshlutum um marga
áratugi. Munu um tveir þriðju
hlular bænda landsins hafa orðið
fyrir þessum vágesti, að vísu í mis
munandi mæli, en þó allir mjög
tilfinnanlega. Ríkisstjórnin tók
þetta mál til meðferðar og varð
ásátt um að nauðsyn bæri til að
ríkið rétti hjálparhönd til þeirra,
sem fátækastir væru og mest af-
hroð hefðu goldið. Samkvæmt
þeim rannsóknum, sem gerðar
voru hafa um 12,5 milj. króna
með mjög vægum vöxtum verið
veittar sem lán til fóðurbætis-
kaupa, til þeirra bænda á óþurrka
svæðinu, sem verst eru settir. Þá
hafa verið veittar 700—800 þús.
krónur sem styrkur til þeirra
bænda er keypt hafa hey utan ó-
meiri nú hin síðustu ár en nokkru
sinni fyrr. Það hefir raunverulega
verið brotið blað í landnámssögu
íslands, svo hafa framkvæmdir
allar vaxið. Hverju er þetta að
þakka? Þar kemur margt til: Stór-
hugur og framkvæmdaþrek bænda,
betri og meiri vélar og verkfæri,
aukin tæknileg kunnátta til þess
að beita þeim. Þetta hefði þó ekki
reynzt einsætt, frekar en að fínn
og varanlegur bíll er einskisvirði j fengið rafmagn frá samveitum.
arnir jafnframt því að bölsótast
yfir, að ríkissjóður skyldi hafa
verið þess megnugur að lilaupa
undir bagga með fé til áfram-
haldandi umbóta í landbúnaði,
þá eru þeir með kjass-
mæli við bændur og annað sveita
fólk um að koma til samstarfs
við sig, sem hina einu sönnu
vini bændanna. Ja, mikið trvia
þeir á grunnhyggni þess fólks,
sem þeir tala þannig við.
Framkvæmd rafvæðingar-
áætlunarinnar
Ég mun ekki fara mörgum orð-
um um þessi mál, þó ekki vegna
þess að næg tíðindi séu ekki fyrir
hendi varðandi áframhaldandi
framkvæmdir, heldur vegna þess^
að landsmönnum er almennt kunn
ugt um gang þessara mála. Nú-
verandi ríkisstjórn ákvað að beita
sér fyrir hinni svonefndu 10 ára
áætlun um rafvæðingu allra meg-
inbyggðarlaga landsins. Áður
voru framkvæmdir í svo smáum
stíl að enginn eygði það takmark,
að raforku yrði komið um allt
land.
Þetta er þriðja ár 10 ára áætl-
unarinnar, og er búið að staðfesta
hana f;cir yfirstandandi ár. Fá um
1000 sveitabýli og aðrir notendur
í sveitum raforku frá samveitum
fyrstu 3 ár áætlunarinnar. Um 900
býli höfðu áður til ársloka 1953
ef benzínið vantar. Nei, það sem
mestu veldur er, að síðustu ríkis-
stjórnir hafa séð um að sjóðir Bún
aðarbankans hefðu fé til útlána.
Aldrei hefir neitt svipuðu fjár-
magni verið deilt út um sveitirn-
ar og þessi síðustu ár. Af tekju-
afgangi ríkissjóðs 1955 hafa sjóðir
þurrkasvæðisins og flutt heim til Þess*r fengið ^22 milj. króna til
sín. Einnig hefir nokkru fé verið ’ "
varið til niðurgreiðslu vaxta vegna
óvenjumikilla kjötbirgða, þar sem
slátrun var með langmesta móti.
Mestallt þetta fé hefir fengizt af
tekjuafgangi ríkissjóðs.
Verðuppbætur á
útflutt kjöt
Eitt það markverðasta, sem
gerzt hefir á þessu ári varðandi
landbúnað, er það að dilkakjöt
er nú flutt aftur á erlendan mark-
að, eftir 10—15 ára hlé. Munu
út verða fluttar ekki minna en
1500 smál. Útflultar landbúnaðar-
vörur — kjöt, gærur, ull, ostur
útlána og hliðstætt hefir verið
veitt nokkur undanfarin ár. Það
er þetta sem hefir gert hinar
miklu og glæsilegu framkvæmdir
í sveitunum að veruleika síðustu
árin.
Svo helltu stjórnarandstæðing-
ar sér yfir ríkisstjórnina í um-
ræðunum í fyrrakvöld fyrir það
að hafa búið þannig undanfarin
ár, að ríflegur tekjuafgangur
hefði orðið hjá ríkissjóði til þess
að verja til bráðaðkallandi nauð-
synjamála eins og ræktun og
endurbygging sveitanna er. En
óheilindin og yfirdrepsskapur-
inn er svo mikill, að kommúnist-
Nokkuð yfir 100 býli í sveitum
hafa þessi fyrstu 3 ár fengið raf-
orku frá einkastöðvum — vatns-
aflsstöðvum, dísilvélum. Þá hafa
og 8 kauptún eða sveitaþorp, sem
áður höfðu ekkert rafmagn eða
algjörlega ófullnægjandi, verið
tengd við samveitukerfi fyrstu 3
ár áætlunarinnar. Þá má og geta
þess, að nú er hafizt handa urn
að reisa orkuver — anna'ð fyrir
Austfirði við Grímsá á Völlum og
hitt fyrir Vestfirði við Mjólká í
Arnarfirði. Jafnframt er unnið að
því að leggja háspennulínur frá
þessum orkuverum, sem rafork-
unni verður síðan miðlað frá til
hinna ýmsu héraða.
Samkvæmt málflutningi stjórn
arandstæðinga í fyrrakvöld er
þessi starfsemi öll að því er
virðist eitt af hinum illu verk-
um núverandi ríkisstjórnar, því
að þar var ekkert undan dregið.
Fólkið í strjálbýlinu, hvort sem
er í sveitum eða í smáþorpum,
sem verið hefir í mvrkri og
kulda, en allmargt af því hefir
nú þegar fengið raforku til eigin
þarfa, eða sér hilla undir að
svo verði innan skamms, mun
vissulega minnast þess og rneta
það, hverjir hafa komið þessum
áætlunum í framkvæmd, en það
var fyrst tekið föstum og raun-
hæfum tökum af núverandi
ríkisstjórn.
I
Framiög fi! atvinnu-
aukningar í kaupíúnum
oa kaupstöðum
Félagsmál eru orðin geysistór
málaflokkur, sem heyrir 'und:r Fé-
lagsniálaráðuneytið, sem nú er
orðið eitt af umfangsmestu ráðu-
neytunum. Ég vJl leyfa mér. að
fara nokkrum orðum um helztu
þá málaflokka, er þar hevra til:
Undanfarin ár, eða allt frá 1952,
hefir nokkru af tekjuafgangi rík-
issjóðs verið varið til þeirra staða
utan Faxaflóa og Vestmannaeyja,
sem við erfiðust atvinnuskilyrði
hafa átt að búa vegna fiskleysis
eða af öðrum ástæðum. Alls hefir
árin 1951—1955 verið varið tif at-
vinnuaukningar til þessara staða
yfir 28 milj. króna. Fé þessu hefir
því nær eingöngu verið varið til
aðstoðar við bátakaup og til þess
að styðja iðjuver, er vinna úr sjáv
arafurðum, svo sem hraðfrystihús,
aðrar fiskverkunarstöðvar, fisk-
hjalla o. fl. Þetta er í fvrsta sinn,
sem fé jhefir verið varið til þess
að aðstoða sérstaklega þau hyggð
arlög, sem verst hafa orðið úti
vegna fiskleysis eða annarra ó-
happa. Fó þessu hefir verið ráð-
stafað í samráði og eftir tillögum
sveitarstjórna á hverjum stað.
Hefir mjög mikið gagn orðið að
þessari starfsemi og er í raun og
veru það fyrsta sem gert hefir
verið af hálfu ríkisvaldsins og Al-
þingis til þess að verja fé á skipu
legan hátt til þess að vinna að
jafnvægi í byggð landsins. Mun
ekki ofmælt, að sú ríkisstjórn, er
hóf slíka stefnu og starfsemi hafi
ýmsu orkað til góðs, en ekki ein-
ungis hið öfuga eins og stjórnar-
andstæðingar vilja vera láta.
Samkvæmt lögum um aðstoð til
vatnsveitna frá 1947 er hægt að
veita aðstoð ríkisins til þess að
koma upp vatnsveitum fyrir þau
þorp, sem hafa ófullnægjandi
vatnsból og svo dýrt er að, gera
fullkomna vatnsveitu að vatns-
skattur verði óeðlilega hár. Að-
stóð þessi er með tvennum hætti:
Ríkisábyrgð eða styrkur. En styrk
ur skal því aðeins veittur að fyrir-
sjáanlegt sé að hlutaðeigandi
sveitarfélag fái eigi risið undir
reksturskostnaði með veniulegum
vatnsskatti. Til ársloka 1955 hefir
ríkisábyrgð verið veitt til 23 sveit-
arfélaga, að upphæð um 7 milj.
króna. Styrkur hefir verið 'veittur
til 22 sveitarfélaga að upphæð
rúmlega 2,5 milj. króna.
1856 lán voru veitt til
smáíbúða
Þá verð ég að fara nokkrum
orðum um húsnæðismálin og að-
gerðir Alþingis og ríkisstjórnar í
þeim efnum. Það var eitt. sem
háttv. stjórnarandstæðingar, víttu
núverandi ríkisstjórn mjög fyrir
í fyrrakvöld, einkum var háttv. 2.
landskj. (Brynj. Bjarnason) stór-
orður í þeim efnum og íaldi að
öll lpforð hefðu verið svikin. Ég
læt staðreyndirnar tala og vil láta
í té eftirfarandi upplýsingar, sem
er að nokkru leyti viðbótarskýrsla
við þær upplýsingar, sem ég ga£
Alþingi í nóv. s. 1.
Á síðasta þingi voru að íilhlut-
un ríkisstjórnarinnar sett lög um
húsnæðismálastjórn, veðlán til í-
búðabygginga og útrýmingu heilsu
spillandi íbúða. Samkvæmt lögum
I þessum fellur niður sú lánastarf-
(Framhald á 5. síðu.)