Tíminn - 04.02.1956, Síða 4

Tíminn - 04.02.1956, Síða 4
TÍMINN, laMgardagiim 4. febrúar 1956. 29. bla& Yfir 1100 sveifabýli munu fá rafmagn á 3 fyrstu árum rafvæðingaráætluiiarinnar Stóraukin framlög fil landbúnaðar, afvinnuaukningar i sjóþorpum og íbúðabygginga samkvæmt nýju byggingalöggjöfinni f umræSum, slíkum sem þess- um, vill það tíðast við brenna, að stjórnarandstaðan skrumskæli staðreyndir og færi úr lagi rétt rök, sér og sínum hagsmunum til framdráttar, að því er hún h.vgg- ur. Og ekki brugðu stjórnarand- stæðingar þeirri venju í umræð- um þeim, sem hér fóru fram í fyrrakvöld. Hitt mun sannara, að t þeir hafi aldrei lengra gengið í j þá átt að rangfæra staðreyndir,' og falsa frásagnir, þannig að sú 1 mynd, sem þeir drógu upp af stjórnmálaástandinu var algerlega og háskalega röng. Ég segi háska lega röng, því að það er háska- legt að villa um fyrir almenningi í mikilsverðum málum, og það stefnir til upplausnar, niðurrifs,' eins og ljós dæmi sanna. En hér verður að treysta því, enn sem fyrr, að hinir almennu borgarar hafi þroska og manndóm til þess | að gera sér grein fyrir því, hvað ; rétt sé, en láti ekki blekkjast af rangfærslum og útúrsnúningum. Að sjálfsögðu gengu kommún- istar fram fyrir skjöldu um allar staðleysur. Hví skyldu þeir nota rétt rök? —- Borgaraleg rök. — Þeirra Hlutverk er annað. Sam- kvæmt eðli sínu og fyrirmælum yfirboðara sinna eiga þeir að rífa niður, beita sýndarrökum, villa um í því skyni að rífa þjóðfélagið á slig, þegar það er hægt. Þetta eru menn farnir að þekkja, eða ættu að vera það að minnsta kosti. En alltaf virðast þeir treysta því, að einhverjir ljái eyru að boðskap þeirra. Iiins ætti að mega vænta af þeim flokkum, sem kenna sig við lýðræði, að þeir geri sér ljósa þá ábyrgð, sem stjórnarandstöðu fylgir. En ekki var því að heilsa við umræðurnar í fyrrakvöld. Þeir virtust sækja fram við hlið hv. 2. landskjörins Brynjólfs Bjarna- sonar undir hinum austrænu merkjum. Áróður stjórnarand- stöðunnar Uppistaðan í ræðum stjórnar- andstöðunnar allrar var í stuttu máli þessi: Þær tvær ríkisstjórnir, sem farið hafa með völd um síð- ast liðin sex ár, hafa ekkert vel gert þjóðinni til lianda. Ferill þeirra er samfelldur hrakfalla- bálkur, svo að nú er allt komið í strand, virðist ástæðan helzt vera heimska og illvilji jöfnum höndum. Þessum augljósa sleggju dómi var varpað fram í skjóli hinna gífurlegu erfiðleika, sem sjávarútvegurinn og þar með út- flutningsverzlun þjóðarinnar hefir átt við að etja um undanfarin ár. Þessir erfiðleikar eru þannig vaxn ir, að vissulega þarf samstillt á- tök allrar þjóðarinnar til þess að sigrasl á þeim. Mér virðist því, að mjög skorti þjóðhollustu og á- byrgðartilfinningu háttv. stjórn- arandstöðu, því að vissulega verð- ur að vænta þess, að stjórnarand- staða í lýðræðisríki líti fyrst og fremst á hag þjóðarinnar, en láti ckki flokkssjónarmið ráða gerð- um sínum og athöfnum. Þegar vandamálin eru jafn geigvænleg og nú, þar sem öll útflutnings- verzlun þjóðarinnar á í hlut, þá verður að gera því meiri kröfur til stjórnarandstöðunnar um að hún láti þröng flokkssjónarmið ekki ráða of miklu, heldur taki heilhuga þátt í bjargarráðstöfun- um. Ég mun þó ekki í þeirri stuttu ræðu sem ég flyt hér ræða þessi mál, þar sem það hefir verið gert rækilega af öðrum ráðherrum, en mun snúa mér að öðrum mála- flokkum. Ég mun nú fara nokkrum orð- um um þá málaflokka, sem í um- sjá minni og þeirra ráðuneyta, er ég stjórna, hafa verið undanfarið. Sumir um 6 ára skeið, en aðrir um skemmri tíma. Þessi mál eru: Ræða Steingríms Steinþórssonar kndbimaðar- og félagsmála- ráðherra í eldhásumræðiinum Kirkjumál, landbúnaðarmáL, raf- orkumál, félagsmál. Auk þess hefi ég litinn hluta samgöngumálaráðu neytisins, s. s. Veðurstofu íslands, svo og Rannsóknarráð ríkisins o. fl. Ég skal nú fara örfáum orð- um um hvern þessara málaflokka og skýra mjög stuttlega frá helztu aðgerðum varðandi þá hin síðustu Endurreisn Skálholts Þau valda sjaldan miklum póli- tískum átökum, enda óeðlilegt að svo sé, þó er það allmjög mis- jafnt hvernig að þeim er staðið á hverjum tíma. Á þessu sviði er meira aðhafst nú en nokkru sinni fyrr. Á þessu ári eru 900 ár frá því að biskupsstóll var settur í Skálholti. Verður það ávallt tal- inn einn allra merkasti atburður í sögu okkar íslendinga. Alþjóð er kunnugt að Skálholt hefir verið vanrækt, og það mjög til þessa. Þessi annar höfuðstaður þjóðarinn ar um margar aldir, hefir lent í raðir venjulegra bændabýla, fátt eða ekkert er þar, sem minnir á liina fornu frægð staðarins og þeirra miklu áhrifa, sem þaðan bárust varðandi trúarlíf og alla menningu þjóðarinnar. Núverandi ríkisstjórn hefir tekið mál þetta föstum tökum. Hafa þegar verið veittar í fjárlögum síðustu ára 5 milj. króna til endurreisnar Skál- holtsstaðar. Er nú unnið þar að því að reisa virðulegt prestsset- ur, kirkju o. fl. mannvirki, svo að þetta elzta og merkasta trúar- og menningarsetur verði á ný reist úr rústum og gert að miðstöð ein- liverra þátta menningarmála þjóð arinnar. Þess má og geta að tvö þrjú hin síðustu árin hefir meiri fjárhæðum en nokkru sinni fyrr verið varið til þess að reisa prests setur og útihús á þrestssetrum víðs vegar um land. Steingn'mur Steinþórsson — fá útflutningsuppbætur til jafns við bátagjaldeyrisvörur. Er áætlað, að það nemi um 15 milj. króna. Ég tel þetta mikil og góð tiðindi. Verði það svo, að hér megi j framleiða landbúnaðarvörur til útflutnings við ekki óhagstæðari verði fyrir erlendan markað en sjávarútvegsvörur eru framleidd- ar fyrir, þá er það í raun og veru glæsifegt fyrir landbúnaðinn og ber þess vitni, að við getum marg faldað útflutning landbúnaðar- framleiðslu okkar. Framlögin til sjóSa Búnaðarbankans Sjóðir Búnaðarbankans, Bygg- ingarsjóður og Ræktunarsjóður Óþurrkahjálpin svo og veðdeild eru lífæðar land- Síðast liðið ár var á marga lund I búnaðarins. Vegna þeirra lána, er erfitt íslenzkum landbúnaði. Sér- j þe*r hafa veitt, hafa hinar geysi staklega voru það óþurrkarnir um|nl*klu framkvæmdir síðustu ára í Suðurland og mikinn hluta Vest- ■ sveitum orðið. Þessar fram- urlands, sem ollu feikna tjóni. (kvæmdir, hvort sem eru bygging- Hafa slíkir óþurrkar ekki komið ar e^a ræktun, hafa verið miklu i þessum landshlutum um marga áratugi. Munu um tveir þriðju hlular bænda landsins hafa orðið fyrir þessum vágesti, að vísu í mis munandi mæli, en þó allir mjög tilfinnanlega. Ríkisstjórnin tók þetta mál til meðferðar og varð ásátt um að nauðsyn bæri til að ríkið rétti hjálparhönd til þeirra, sem fátækastir væru og mest af- hroð hefðu goldið. Samkvæmt þeim rannsóknum, sem gerðar voru hafa um 12,5 milj. króna með mjög vægum vöxtum verið veittar sem lán til fóðurbætis- kaupa, til þeirra bænda á óþurrka svæðinu, sem verst eru settir. Þá hafa verið veittar 700—800 þús. krónur sem styrkur til þeirra bænda er keypt hafa hey utan ó- meiri nú hin síðustu ár en nokkru sinni fyrr. Það hefir raunverulega verið brotið blað í landnámssögu íslands, svo hafa framkvæmdir allar vaxið. Hverju er þetta að þakka? Þar kemur margt til: Stór- hugur og framkvæmdaþrek bænda, betri og meiri vélar og verkfæri, aukin tæknileg kunnátta til þess að beita þeim. Þetta hefði þó ekki reynzt einsætt, frekar en að fínn og varanlegur bíll er einskisvirði j fengið rafmagn frá samveitum. arnir jafnframt því að bölsótast yfir, að ríkissjóður skyldi hafa verið þess megnugur að lilaupa undir bagga með fé til áfram- haldandi umbóta í landbúnaði, þá eru þeir með kjass- mæli við bændur og annað sveita fólk um að koma til samstarfs við sig, sem hina einu sönnu vini bændanna. Ja, mikið trvia þeir á grunnhyggni þess fólks, sem þeir tala þannig við. Framkvæmd rafvæðingar- áætlunarinnar Ég mun ekki fara mörgum orð- um um þessi mál, þó ekki vegna þess að næg tíðindi séu ekki fyrir hendi varðandi áframhaldandi framkvæmdir, heldur vegna þess^ að landsmönnum er almennt kunn ugt um gang þessara mála. Nú- verandi ríkisstjórn ákvað að beita sér fyrir hinni svonefndu 10 ára áætlun um rafvæðingu allra meg- inbyggðarlaga landsins. Áður voru framkvæmdir í svo smáum stíl að enginn eygði það takmark, að raforku yrði komið um allt land. Þetta er þriðja ár 10 ára áætl- unarinnar, og er búið að staðfesta hana f;cir yfirstandandi ár. Fá um 1000 sveitabýli og aðrir notendur í sveitum raforku frá samveitum fyrstu 3 ár áætlunarinnar. Um 900 býli höfðu áður til ársloka 1953 ef benzínið vantar. Nei, það sem mestu veldur er, að síðustu ríkis- stjórnir hafa séð um að sjóðir Bún aðarbankans hefðu fé til útlána. Aldrei hefir neitt svipuðu fjár- magni verið deilt út um sveitirn- ar og þessi síðustu ár. Af tekju- afgangi ríkissjóðs 1955 hafa sjóðir þurrkasvæðisins og flutt heim til Þess*r fengið ^22 milj. króna til sín. Einnig hefir nokkru fé verið ’ " varið til niðurgreiðslu vaxta vegna óvenjumikilla kjötbirgða, þar sem slátrun var með langmesta móti. Mestallt þetta fé hefir fengizt af tekjuafgangi ríkissjóðs. Verðuppbætur á útflutt kjöt Eitt það markverðasta, sem gerzt hefir á þessu ári varðandi landbúnað, er það að dilkakjöt er nú flutt aftur á erlendan mark- að, eftir 10—15 ára hlé. Munu út verða fluttar ekki minna en 1500 smál. Útflultar landbúnaðar- vörur — kjöt, gærur, ull, ostur útlána og hliðstætt hefir verið veitt nokkur undanfarin ár. Það er þetta sem hefir gert hinar miklu og glæsilegu framkvæmdir í sveitunum að veruleika síðustu árin. Svo helltu stjórnarandstæðing- ar sér yfir ríkisstjórnina í um- ræðunum í fyrrakvöld fyrir það að hafa búið þannig undanfarin ár, að ríflegur tekjuafgangur hefði orðið hjá ríkissjóði til þess að verja til bráðaðkallandi nauð- synjamála eins og ræktun og endurbygging sveitanna er. En óheilindin og yfirdrepsskapur- inn er svo mikill, að kommúnist- Nokkuð yfir 100 býli í sveitum hafa þessi fyrstu 3 ár fengið raf- orku frá einkastöðvum — vatns- aflsstöðvum, dísilvélum. Þá hafa og 8 kauptún eða sveitaþorp, sem áður höfðu ekkert rafmagn eða algjörlega ófullnægjandi, verið tengd við samveitukerfi fyrstu 3 ár áætlunarinnar. Þá má og geta þess, að nú er hafizt handa urn að reisa orkuver — anna'ð fyrir Austfirði við Grímsá á Völlum og hitt fyrir Vestfirði við Mjólká í Arnarfirði. Jafnframt er unnið að því að leggja háspennulínur frá þessum orkuverum, sem rafork- unni verður síðan miðlað frá til hinna ýmsu héraða. Samkvæmt málflutningi stjórn arandstæðinga í fyrrakvöld er þessi starfsemi öll að því er virðist eitt af hinum illu verk- um núverandi ríkisstjórnar, því að þar var ekkert undan dregið. Fólkið í strjálbýlinu, hvort sem er í sveitum eða í smáþorpum, sem verið hefir í mvrkri og kulda, en allmargt af því hefir nú þegar fengið raforku til eigin þarfa, eða sér hilla undir að svo verði innan skamms, mun vissulega minnast þess og rneta það, hverjir hafa komið þessum áætlunum í framkvæmd, en það var fyrst tekið föstum og raun- hæfum tökum af núverandi ríkisstjórn. I Framiög fi! atvinnu- aukningar í kaupíúnum oa kaupstöðum Félagsmál eru orðin geysistór málaflokkur, sem heyrir 'und:r Fé- lagsniálaráðuneytið, sem nú er orðið eitt af umfangsmestu ráðu- neytunum. Ég vJl leyfa mér. að fara nokkrum orðum um helztu þá málaflokka, er þar hevra til: Undanfarin ár, eða allt frá 1952, hefir nokkru af tekjuafgangi rík- issjóðs verið varið til þeirra staða utan Faxaflóa og Vestmannaeyja, sem við erfiðust atvinnuskilyrði hafa átt að búa vegna fiskleysis eða af öðrum ástæðum. Alls hefir árin 1951—1955 verið varið tif at- vinnuaukningar til þessara staða yfir 28 milj. króna. Fé þessu hefir því nær eingöngu verið varið til aðstoðar við bátakaup og til þess að styðja iðjuver, er vinna úr sjáv arafurðum, svo sem hraðfrystihús, aðrar fiskverkunarstöðvar, fisk- hjalla o. fl. Þetta er í fvrsta sinn, sem fé jhefir verið varið til þess að aðstoða sérstaklega þau hyggð arlög, sem verst hafa orðið úti vegna fiskleysis eða annarra ó- happa. Fó þessu hefir verið ráð- stafað í samráði og eftir tillögum sveitarstjórna á hverjum stað. Hefir mjög mikið gagn orðið að þessari starfsemi og er í raun og veru það fyrsta sem gert hefir verið af hálfu ríkisvaldsins og Al- þingis til þess að verja fé á skipu legan hátt til þess að vinna að jafnvægi í byggð landsins. Mun ekki ofmælt, að sú ríkisstjórn, er hóf slíka stefnu og starfsemi hafi ýmsu orkað til góðs, en ekki ein- ungis hið öfuga eins og stjórnar- andstæðingar vilja vera láta. Samkvæmt lögum um aðstoð til vatnsveitna frá 1947 er hægt að veita aðstoð ríkisins til þess að koma upp vatnsveitum fyrir þau þorp, sem hafa ófullnægjandi vatnsból og svo dýrt er að, gera fullkomna vatnsveitu að vatns- skattur verði óeðlilega hár. Að- stóð þessi er með tvennum hætti: Ríkisábyrgð eða styrkur. En styrk ur skal því aðeins veittur að fyrir- sjáanlegt sé að hlutaðeigandi sveitarfélag fái eigi risið undir reksturskostnaði með veniulegum vatnsskatti. Til ársloka 1955 hefir ríkisábyrgð verið veitt til 23 sveit- arfélaga, að upphæð um 7 milj. króna. Styrkur hefir verið 'veittur til 22 sveitarfélaga að upphæð rúmlega 2,5 milj. króna. 1856 lán voru veitt til smáíbúða Þá verð ég að fara nokkrum orðum um húsnæðismálin og að- gerðir Alþingis og ríkisstjórnar í þeim efnum. Það var eitt. sem háttv. stjórnarandstæðingar, víttu núverandi ríkisstjórn mjög fyrir í fyrrakvöld, einkum var háttv. 2. landskj. (Brynj. Bjarnason) stór- orður í þeim efnum og íaldi að öll lpforð hefðu verið svikin. Ég læt staðreyndirnar tala og vil láta í té eftirfarandi upplýsingar, sem er að nokkru leyti viðbótarskýrsla við þær upplýsingar, sem ég ga£ Alþingi í nóv. s. 1. Á síðasta þingi voru að íilhlut- un ríkisstjórnarinnar sett lög um húsnæðismálastjórn, veðlán til í- búðabygginga og útrýmingu heilsu spillandi íbúða. Samkvæmt lögum I þessum fellur niður sú lánastarf- (Framhald á 5. síðu.)

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.