Tíminn - 24.08.1956, Blaðsíða 7
T f M I N N, föstudaginn 24. ágúst 1956.
| Fjöfbreytí úryal af I
Á grasafjalli
AUSTURSTRÆTI
!iiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiimaíiiiimiiiiiiiiiiiiiiiH!iuiiiuiiiuuiuiiuiuiiiiiiiiiinmuiiiHiiiiiiiiiiiiiiii §
Höfmii ávallt fyrsta ftokks
kjötvöfur og grænmeti
Enda þótt á okkar tíS
menn ómerkt dund þaS kalli,
ég hef verið, ár og síð,
iðjusamur nú um hríð,
við að tína grös á grasafjalli.
Þetta telst ei tízkusport,
og trautt hefir maður nokkur
frægðarscgur um það ort
með ólíkinda veiðigort,
eins og stangveiði-garpar stundum segja okkur.
Hér fá menn í friði og ró
að fylla poka og vasa,
uppi á heiði er yndi nóg,
útsýn fríð um land og sjó,
hér kennir líka margra, góðra grasa.
En fjallagrösin forðum samt
fremstrar hyili nutu,
drýgt þau hafa skorin skammt,
skapað næring, korni jafnt,
brauðfætt þjóð er bargir aðrar þrutu.
Víst þeir hlutu verðugt hrós,
sem velferð þjóðar studdu,
og cnnuðust bezt um ær og fjós,
cf.uðu mest fil lands og sjós,
— en ómaklega er hljótt um „Grasa-Guddu".
Föstudagur 24. ágúst
Barthólómeusmessa. 237. dag-
ur ársins. Tungl í suðri kl.
3,12. Árdegisflæði kl. 7,51.
Siðdegisflæði kl. 20,06.
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur.
Barnadeildin er opin eins og venju-
lega: þriðjudaga, miðvikudaga og
föstudaga kl. 1—3. Bólusetningar á
mánudögum kl. 1—3.
Helgidagsvörður U. R.
í Læknavarðstofunni sími 5030, er
sem hér segir eftirfarandi sunnu-
daga:
26. ágúst Jón Hj. Gunnlaugsson.
2 sept. Kristjana Helgadóttir
9. sept. Jóhannes Björnsson.
16. sept. María Hallgrímsdóttir.
23. sept. Oddur Ólafsson
30. sept. Ólafur Jóhannsson.
Skipadeild SÍS.
Hvassafell er væntanlegt til Sölves
borgar í dag. Arnarfell fór 18. þ. m.
frá Siglufirði áleiðis til Ábo og Hel-
sinki. Jökulfell er í Hamborg. Dísar-
fell losar á Skagafjarðarhöfnum.
Litlafell losar á Vestfjarðahöfnum.
Helgafell er í Wismar, fer þaðan á
morgun til Flekkefjord, Haugasunds
og Faxaflóahafna. Vormann Rass er
í Þorálkshöín.
Fiugfélag íslands hf.
Sólfaxi fer til Glasgow og London
kl. 8 í dag og er væntanleg aftur til
Reykjavíkur kl. 23,45 í kvöld. Fer síð
an til Hamborgar og Kaupmanna-
hafnar kl. 8,30 x fyrramálið. Gulifaxi
fer til Osló og Kaupmannahafnar kl.
11 í dag. Væntanlegur aftur til
Reykjavíkur á morgun kl. 19,45. —
í dag er ráðgert að fljúga til Akur-
eyrar, Egilsstaða, Fagurhólsmýrar,
Flateyrar, Hólmavíkur, Hornafjarðar,
ísafjarðar, Kirkjubæjarklausturs,
Vestmannaeyja og Þingeyrar. — Á
morgun til Akureyrai’, Blönduóss,
Egilsstaða, ísafjarðar, Sauðárkróks,
Siglufjarðai’, Skógasands, Vestmanna
eyja og Þórshafnar.
Loftleiðir hf.
Leiguflugvél er væntanleg kl. 9 frá
New York, fer kl. 10,30 til Osló,
Kaupmannahafnar og Hamborgar. —
Hekla er væntanleg kl. 22,15 frá
Luxemborg og Gautaborg, fer kl.
23,30 til New York.
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
Húð- og kynsjúkdómadeild, opin
daglega kl. 1—2, nema laugardaga
kl. 9—10 f. h. Ókeypis lækningar.
i\i Snorrabr. 56. — Sími 2853, 80253
\' Útibú, Melhaga 2 — sími 82936.
| VESTURBÆINGAR - VESTURBÆINGAR
Hjá okkur fáÉö þíð aSlt í matínn
| Serídtsm heim
1 Kjöt — Fisk — MýHendisvörur
HAGAMEL 39. SÍMI 80224
I Sími 80224 Sítói 8Ö224
siiijiiijiiiiiijuiHiiHiiiiiiiiuiiiiiiiiimiumiiiiiiiiiiiHiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiuuHiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiuum:
Úívarpsdagsskrá vikunnar
er seld í söiuturninum viö Arnarhól.
Fundur hjá Blaðamannafélaginu.
Fundur verður haldinn hjá Blaða-
mar.nafélaginu á þriðjudaginn ki.
1,30 í Naustinu (upp). Ræddir verða
samningar. Mjög áríðandi að allir
mæti (stundvíslega).
Ufvarpið I dag:
10.10 Veðurfregnir.
12.00 Hádegisútvarp.
13.15 Lesin dagskrá næstu viku.
15.30 Miðdegisútvarp.
110.30 Veðurfregnir.
19.25 Veðurfregnir.
19.30 Tónleikar: Harmonikulög.
19.40 Auglýsingar.
20.00 Fréttir.
20.30 „Um víða veröld".
20.55 íslenzk tónlist: Tónverk eftir
Jón Noi’dal (plötur).
2115 Upplestur: Kristján skáld frá
Djúpalæk les kvæði.
21.25 Tónleikar: Lconi Rysanek, Sig-
urd Björling og kvennakór
óperunnar í Covent Garden
syngja lög úr „Hollendingnum
fljúgandi* eftir Wagner (pl.).
122.00 Frétlir og veðurfr. — Kvæði
kvöldsins.
22.10 „Róbinson"; VIII.
22.30 Létt lög (plötur): a) Erni Bie-
ler og Rudi Hofstetter syngja.
hans leika,
23.00 Dagskrárlok.
Landsmót Samvinnumanna
Merki mótsins voru öll tölusett.
Mánudaginn 6. ágúst voru dregin út
6 númer, og hafa þau hlotið eftir-
farandi vinninga:
Nr. 4004, Hekluúlpa, og eftirtalin
númer hlutu ullarteppi frá Gefjuni:
2014, 4027, 4009 og 1773.
Þriggja vinninga hefir þegar verið
vitjað. Hekluúlpuna, sem kom á rniða
nr. 4004 hlaut Sigurjón Guðbergsson
frá Dýrastöðum, Borgárfirði. Nr. 4027
og 4009 hlutu Kristján Tryggvason,
Hjarðarhaga 24 Reykjavík og Þórunn
Óskarsdóttir Háteigsvegi 9, Reykja-
vík.
Ósóttir vinningar óskast sóttir sem
fyrst og skal þeii’ra vitjað til Óskars
H. Gunnlaugssonar, SÍS Austurstræti
153
Láréft: 1. og 19. ísl. kaupstaður
(þgf.), 6. „Gamli . . . “ (kvæði), 8. til
lands, 10. sjór, 12. horfði á, 13. 1001,
14. fiskhús, 17. sjáðu!
Lóðrétt: 2. fljót í Mið-Evrópu, 3.
fangamark (ísl. skáld), 4. á tré, 5.
veiða, 7. ósjó, 9. lík, 11. röð og gergla
15. í fljóti (þgf.), 15. húð, 18. fanga-
mark (félagsskapur).
í gær voru gefin saman í hjóna-
band ungfrú Ingibjörg Jónsdóttir
símamær og Jósteinn Magnússon.
Heimili þeirra er á Ásvallagötu 7.
Þann 18. ágúst voru gefin saman
í Akureyrarkirkju ungfrú Kristbjörf
Bernhai’ðsdóttir og Guðmundur Jó
hannesson þjónn. Heimili þeirr;
verður að Garðavegi 13 B Hafnar
firði.
Laugardaginn 18. ágúst voru gef
in saman í hjónaband af sóknar
prestinum í Grundaþingum, ungfrt
Helga Árnadóttir hreppstj. Jóhamr
essonar, Þverá, og Halldór Pálssor
skipasmiður. Heimili þeirra er .
.Ytri-Njarðvík.
— Nei sko! Pabbi þinn hefir eklci aldeilis iíkamsvöxt til að klæSati
sundskýluj