Tíminn - 27.02.1957, Page 2
2
T í MIN N, miSvikudaginn 27. febrúar 195!.
Ríkislánin, vegna harðinda og þurra-
fúa, sem nú verða létt
Eins og sagt var frá í blaðinu í gær, var mikilvæg breyting
gerð á fjárlagafrumvarpinu, að miklar upphæðir ríkislána,
veittra vegna harðinda, hallæris og óþurrka og þurrafúa í skip
um, eru ýmist gefin eftir, eða innheimta þeirra ákveðin í mjög
vægu formi.
Stolið úlpu með átta
armbandsúrum
Núna á sunnudagskvöldið var
stolið kuldaúlpu af manni hér í
bænum. Hafði hann hengt úlpuna
upp meðan hann fékk sér hress-
iingu, en þegar til átti að taka var
þún horfin og með henni átta ný
armbandsúr, sem úlpueigandi hafði
geymt í einum vasanum. Úlpan
var tekin í anddyri Matstofunnar,
Aðalstræti 12, og eru það vinsam-
leg tilmæli rannsóknarlögreglunn-
ar, að þeir, sem verði úranna var-
ir, láti hana vita. Má búast við,
að reynt verði að selja þau. Úrin
voru í sellófan-umbúðum.
Nefndarálit
(Framhald af 12. slðu.)
inni og kynnu að draga þær álykt-
anir af orðum minnihlutans, að
þar hafi að þessu sinni misrétti átt
sér stað.
2. Þá segir minnihlutinn, að fjár
málaráðherra hafi „ekki talið sig
geta gefið fjárveitinganefnd nein-
ar upplýsingar um afkomu ríkis-
sjóðs á s. 1. ári.“
Þetta er rangt. Fjármálaráð-
herra lét nefndinni í té glögga
skýrslu um afkomu ríkissjóðs frá
ársbyrjun til 1. des., svo sem
venja hefir verið.
Þegar fjárlög hafa verið af-
greidd fyrir áramót, hefir ætíð
orðið að nægja áætlun um síðasta
mánuðinn, ef hafa hefir átt vio
setningu fjárlaganna hliðsjón af
heildartekjum ársins á undan, —
og svo er eins, þótt komið sé dá-
lítið framyfir áramótin. Áramóta-
uppgjör ríkissjóðsins liggur ekki
fyrir svo snemma árs.
3. í nefndaráliti minnihlutans
.segir orðrétt: „Þá lögðum við t.il
'í nefndinni, að sjóðum Búnaðar-
bankans yrðu veitt sem óáfturkræf
framlög fleiri lán ríkissjóðs en
lagt var til i frumvarpinu. Var sú
tillaga samþykkt í nefndinni."
Þetta er villandi frásögn og
pöng.
Þegar Sjálfstæðismenn hreyfðu
tillögu sinni í nefndinni, var fyrir
löngu búið af hálfu meirihlutans
að ræða um það við fjármálaráðu
aeytið að hækka þennan lið frá
jþví, sem hann var í frumvarpinu,
Og hafði ráðuneytið tekið að sér
áthugun á því, hvaða upphæðir
'gætu komið til greina, og fjár-
íoiólaráðherra lýst yfir því, að hann
jmundi að athugun lokinni senda
nefndinni tillögur um breytingar
á frv. í þessu efni. Tillögur sínar
;sendi ráðherrann í bréfi 14. febr.
Þær tillögur samþykkti fjárveit-
iinganefndin óbreyttar, en ekki til-
Ilögurnar, sem minnihlutinn hafði
hreyft, enda voru þær ekki sam-
Mjóða hinum og komu aldrei til
atkvæða.
Samtals eru lánin frá ríkissjóði
iil Búnaðarbankans, sem samþykkt
var að breyta í óafturkræf fram-
íög, kr. 42.625.250,00.
4. Minnihlutinn lætur í það
flkína, að hann hafi komið því til
Jieiðar, að fjárveitinganefnd flutti
við 2. umræðu tillögur um veru-
jýga hækkun á framlögum til vega,
örúa, hafna og skóla.
Allar þessar hækkunartillögur
Við frumvarpið voru gerðar — að
javí er heildarupphæð hvers liðar
snerti — með samkomulagi meiri
Mutans við fjármálaráðherra. í
övi sambandi höfðu yfirborðstillög
«r minnihlutans vitanlega ekkert
að segja.
en verið hefur undanfarið.
Ráðherrann sagði, að Bandaríkja
stjórn hefði til skamms tíma haft
hinar mestu áhyggjur af olíuskort
inum. Ástandið hefði þó gjör-
breytzt til batnaðar, þegar yfirvöld
í Texas leyfðu aukningu á olíufram
leiðslu, sem nemur 210 þús. tunn-
á dag. Hin ástæðan til þess að
Hækkun á oiíu og
benzíni
(Framh. af 1. síðu).
á benzíni og olíu var óumflýjan-
leg, en ríkisstjórnin hefir með verð
stöðvun sinni og verðlagseftirliti
dregið það marga mánuði, að verð
hækkunin kæmi, og með því létt
miklum útgjöldum af almenningi.
Þegar verðhækkunin nú kemur, er
hún ekki nándar nærri eins mikil
og svarar til hækkunar á farm-
gjaldi og verði erlendis.
Álagning stórlækkuð.
1 í þessari nýju verðlagningu
eru álagningarreglur þrengdar
mjög frá því sem áður var, og
álagning lækkuð verulega og olíu
félögin þannig látin taka á sig
verulegan hluta þeirrar hækkun-
ar, sem orðið hefir. Hafa olíu-
félögin fyllilega verið látin taka
á sínar herðar það, sem þeim
ber, af byrðum þeim, sem lagð-
ar hafa verið á einstaklinga og
félög til viðhalds frainleiðslunni.
Á það er rétt að minna, að olíu-
félögin fengu ekki nema hluta af
þeirri hækkun, sem þau fóru fram
á og töldu sig þurfa, og nemur
sá munur um 30 milj. kr. af heild
arinnflutningi eins árs.
Það er í fyrsta sinn í sögu lands
ins sem olíuverð hér hefir verið
lægra en t.d. á Norðurlöndum síð
ustu mánuðina. Þann mun voru
olíufélögin látin taka á sig. Með
því var bílstjórum og öðrum olíu-
notendum sparað stórfé.
Að sjálfsögðu verður verð á olíu
til fiskiskipa og báta óbreytt sam-
kvæmt lögunum um útflutnings-
sjóð.
Lækkar olían?
Allir vona að sjálfsögðu, að farm
gjald og olíuverð erlendis lækki,
svo að olía geti aftur lækkað hér.
Gilchrist, hinn opinberi saksókn
ari, segir, að „einstaklingur“ sá,
sem nefndur er í ákæruskjalinu á
hendur þremenningunum, sé Morr-
os. Þeir hafi afhent honum ýms
skjöl og upplýsingar allt frá 1947
til 1956 og þá hitt hann í New
York, París, Zurich og Vínarborg.
Réttarhöld í máli þessu eiga að
jhefjast 11. marz.
horfurnar væru nú góðar, væri sú,
að veður væri milt í Evrópu. Ráð-
herrann sagði ennfremur, að ein af
leiðing Súez-deilunnar myndi sú,
að olíuframleiðsla heimsins myndi
aldrei framar verða jafn háð sigl-
ingum um skurðinn og hún hefði
verið, þegar Nasser ákvað að þjóð
nýta hann.
Er svo að orði komizt varðandi
þessar breytingartillögur í fjárlög-
um þeim sem samþykkt voru í
gær:
Nýir liðir: a. Að afhenda með
skilyrðum, sem ríkisstjórnin setur,
Bjargráðasjóði íslands til eignar
10,5 milj. kr. skuldabréf dags. 31.
ágúst 1956, vegna óþurrkalána á
Suður- og Suðvesturlandi árið
1955 og ennfremur skuldabréf í
vörzlu Búnaðarbanka íslands upp-
haflega 3 millj. kr., útgefin 1950
og 1951 vegna harðinda og ó-
þurrka 1949—50 á Austur- og Norð
austurlandi.
b. Að gefa eftir svokölluð hall-
ærislán, veitt úr ríkissjóði til
bænda 1952, að upphæð 5 milj.
320 þús. kr.
c. Að taka að sér, eftir því sem
rannsókn leiðir í ljós að þurfa
þyki greiðslu á allt að 3,5 milj.
kr. lánum, sem ríkissjóður er í á-
byrgð fyrir vegna þurrafúa í fiski-
skipum.
Sú misritun varð í frásögn blaðs-
ins af þessu í gær að í staðinn
fyrir ríkislán, kom Bjargráðasjóð-
ur.
Bunaftarþing
(Framnaid af 12. sil*" -
ráðunautarnir og héraðsráðunaut-
arnir annast um, eru nú 30—40
dreifðir um allt land.
Hvoða til einangrunar.
Loks ræddi Ásgeir L. Jónsson
ráðunautur, um nýjung í einangr-
un, hvoðu, sem farið er að nota
hér á landi og ráðgert er að hefja
framleiðslu á hér. Sýndi hann
kvikmynd þessu til skýringar.
Ef Súezdeilan leysist og eðlileg
umferð kemst á um skurðinn með
vorinu, er full ástæða til að vænta
að farmgjöld stórlækki og olíuverð
um leið. Úr því verður tíminn þó
að skera.
Morros er meðal annars heims-
kunnur fyrir kvikmyndirnar „Tal-
es of Manhattan“ og „Carnegie
Hall“ svo og tónverk sitt „Parade
of the Wooden Soldiers."
Fréttir í fáum orðum:
Erlendar í fáum orðum...........
FUNDUR utánríkisráðherra í rikj-
um V-Evrópubandalagsins er hald-
inn í London þessa dagana. Er
rætl áform Breta um að fækka í
her sínum á meginlandinú úr 75
þús. í 50 þús. Sætir þessi ákvörð-
un mótmælum Norstads yfirhers-
höfðingja A-bandalagsins.
UNGVERJAR, sem flúið hafa frá
iandi sínu tii Austurríkis, eru nú
170.632. Af þeim hefir 115.605 ver-
ið útvegaður dvalarstaður í öðrum
löndum.
EISENHOWER og Mollet hófu við-
ræður sínar í Washington í gær.
ENDANLEGA var samþykkt í gær
tillaga Indlands á þingi S. Þ. um
Kýpur. Er þar lagt til að deiluað-
iiar semji beint um friðsamlega
lausn deilunnar.
PÓLSK verzlunarnefnd er komin til
Washington til að semja um aukin
viðskipti ríkjanna. Samningar eru
fyrir luktum dyrum og munu
standa 3 vikur tU mánuð.
V-Evrópa mun í marz fá 90% af fwí
olmmagni, sem ríkin þar þarfnast
New Orleans, 26. febr. — Aðstoðar innanríkisráðherra
Bandaríkjanna sagði á fundi olíu- og námuverkfræðinga, að
allar ho)-fur væru á því að ríki V-Evrópu, sem hafa búið við
sáran olíuskort undanfarna mánuði, muni í marz geta fengið
fullnægt 90% af raunverulegri þörf sinni. Er það miklu meira
Heimskunnur tónlistarmaður og kvik-
myndaframleiðandi uppvís að njósnum
New York, 26. febr. — Heimskunnur kvikmyndaframleið-
andi og tónskáld, Boris Morros, er einn aðalmaðurinn í nýju
njósnamáli, sem leynilögregla Bandaríkjanna hefir flett ofan
af. Þrír menn hafa verið handteknir og ákærðir fyrir njósnir
í þágu Rússa, en lögreglan þykist hafa sannanir fyrir því, að
upplýsingar þeirra hafi farið í gegnum hendur Morros. Hann
er fæddur í Rússlandi, stundaði tónlistarnám undir hand-
leiðslu Rimsky Korsakoff, flýði land eftir byltinguna, fékk
bandarískan þegnrétt, en hefir undanfarin fimm ár dvalið ut-
an Bandaríkjanna.
D I
Leynilögreglupresturinn
Presturlnn og ekkjan.
Bandarísk mynd frá Columbia.
Aðalhlutverk: Alec Guinness,
Peter Finic. SýningarstaSur:
Stjörnubíó.
Mikill refur er Flambeau og þótt
séra Brown sé manna snjallastur
að fást við þjófa, leikur Flambeau
á liann hvað eftir annað; óbetran-
legur krossþjófur unz hann kemst
í kynni við Lady Warren, sem hef-
ir syrgt mann sinn það lengi, að
séra Brown hefir ama af. Flam-
beau hressir ekkjuna með forláta
gjöf, sem hann stelur af henni til
að geta huggað hana enn meir
með því að færa henni gjöfina aft-
ur og enn stendur umboðsmaður
guðs á jörðinni uppi ráðalaus, enda
er þetta menntaður sportþjófur
gjörólíkur atvinnumönnum úr East
End, sem stela af nauðsyn og eru
samúðarvekjandi.
Séra Brown er kominn í hengjandi
vandræði út af Flambeau og er
hótað kirkjurétti og fangelsun á
veraldlega vísu mest vegna þess,
að hann vill frelsa sál mannsins og
lætur sig minnu skipta að kirkjan
heimtar kross, sem Flambeau stal.
Það verður mikil frelsun í lok
myndarinnar, krossinn kominn upp
á vegg og þjófurinn undirbýr sig
að hugga ekkjuna í þriðja og síð-
asta sinn. Alec Guinnes leikur
prestinn og er ekki að sökum að
spyrja; grínið mikið og gott og
dulið og liggur meir í heild mynd-
arinnar og anda hennar en einstök-
um atriðum. Myndin er byggð á«
Sögum Brown prests eftir enska
skáldið G. K. Chesterton. — I.G.Þ.
*
Fréttir frá landsbyggðinni
„Brúíkaupsfer'S<<
á Akureyri
AKUREYRI í gær. — Útvarps-
snillingar eru væntanlegir hingað
á laugardag til að taka upp þátt-
inn „Brúðkaupsferðin“ og fer sú
athöfn fram í Nýja bíó á laugar-
daginn. Verður tvísett í húsið og
eiga alls fern brúðhjón að spreyta
sig á spurningunum áður en yfir
lýkur.
Flugvélarnar eru líítaugin
AKUREYRI: — Nú er dauft með
samgöngur milli landshluta, heið-
ar ófærar og skipagöngur engar
að kalla má. En flugvélar Flug-
félags íslands koma hér á degi
hverjum, stundum tvisvar á dag,
og flytja farþega, póst og varn-
ing. Eru þær nú sem oftar líftaug
byggðarinnar og eina samband við
umheiminn .
SkíÖakennsIa á Akureyri
AKUREYRI í gær. —- Hér er kyrr
viðrasamt þessa daga, en talsvert
frost og er Pollinn að leggja. Geta
menn því væntanlega hafið skauta
íþrótt aftur af kappi, en þegar
snjóinn setti niður, lögðust af
skautaferðir en menn tóku upp
skíðaferðir í staðinn og eru þær
nú stundaðar af kappi, enda er
aðstaða ágæt. Mikill snjór og jafn-
fallinn og afbragðsskíðafæri um all
an bæinn, svo að ekki sé talað um
nágrennið. Enda er fjöldi á skíðum
á degi hverjum. Knattspyrnufélag
Akureyrar hefur skíðakennslu á
tveimur stöðum í sjálfum bænum
og eru brekkurnar upplýstar og
jafnan þröng á þingi. Við Brekku-
götu er kennt svig, en í brekkunni
fyrir ofan Aðalstræti stökk.
Varí bráðkvaddur
úti á götu
Vestmannaeyjum í gær. — S. 1.
sunnudag bar svo við hér í Vest-
mannaeyjum, að maður varð bráð-
kvaddur á götu úti. Var þetta sjó-
maður af vélbátnum Ársæli Sig-
urðssyni. Maðurinn hét Halldór
Gíslason, til heimilis í Hafnarfirði.
Hann var á fertugsaldri.
Egilsstöðum í gær. — Hér hefir
verið bjartviðri síðustu daga og
eru allar bílaslóðir opnar. Ferðir
snjóbíla eru nú tíðar yfir Fagra-
dal og Fjarðarheiði og einnig um
héraðið. Ófært er öðrum bílum
nema á kaflanum frá Egilsstöðum
að Grímsárvirkjun, en hann hef-
ir verið ruddur og er jeppafær.
Verktakar við Grímsá ráðgera nú
að sækja nauðsynlegt efni, sem
þeir eiga á Reyðarfirði, þangað á
sleðum, er snjóbíll dregur.
Ráðgert er, að árshátíð Eiða-
skóla verði um næstu helgi, en
horfur á aðsókn eru illar vegna
færisins. Snjóbílarnir anna litlum
flutningum, og gangfæri jafnvel
á skíðum er illt, því að snjórinn
er enn svo laus. Flugvél kom hing
að í dag, og fór margt farþega
með henni. ES
Fjölsótt Framsóknarvist
á Akranesi
Akranesi í gær. — Framsóknar-
vist Framsóknarfélags Akraness í
félagsheimili templara s. 1. sunnu
dagskvöld var fjölsótt eins og áð-
ur. Seldust allir aðgöngumiðar upp
á hálftíma og urðu margir frá að
hverfa. Samkoman var öll hin á-
nægjulegasta. Fyrstu verðlaun
kvenna í vistinni hlaut frú Kristín
Guðnadóttir, Kirkjubraut 3, hafði
189 slagi, en fyrstu verðlaun
karla hlaut Ingibergur Árnason,
Akurgerði 21, fékk 168 slagi. Auka
verðlaun fékk Sveinn Þórðarson,
Jaðarsbraut 41, fékk 168 slagi.
Eftir að stjórnandi vistarinnar,
Guðmundur Björnsson, kennari,
hafði úthlutað verðlaunum var
dansað af fjöri til kl. 1. Næsta
Framsóknarvist á Akranesi verð-
ur sunnudagskvöldið 10. marz.
Snjóbílar annast flutninga