Tíminn - 27.02.1957, Qupperneq 6

Tíminn - 27.02.1957, Qupperneq 6
TÍMINN, miðvikudaginn 27. febrúar 1957, ®Sm» ERLENT YFIRLIT: Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Ritstjórar: Haukur Snorrason, Þórarinn Þórarinsson (áb.). Skrifstofur í Edduhúsi við Lindargötu. Símar: 81300, 81301, 81302 (ritstj. og blaðamenn), auglýsingar 82523, afgreiðsla 2323. Prentsmiðjan Edda h. f. Aukin framlög til ræktunar I FYRRADAG var lagt ífram á Alþingi frumvarp til laga um landnám, ræktun og byggingar í sveitum. Frum- varp þetta er að miklu leyti byggt á eldri lögum um þessi efni, en felur þó í sér miklar endurbætur á ýmsum svið- um. Það er undirbúið af fimm manna nefnd, seni var falið það verkefni sam- kvæmt þingsályktunartil- lögu, sem Framsóknarmenn fengu samþyktta á seinasta Þingi. Samkvæmt frumvarpinu jmunu árleg framlög ríkisins til umræddra framkvæmda aukast árlega um 8—9 millj. króna miðað við síðastl. ár. Hér á eftir verður gerð nán- ari grein fyrir því, hvernig Þessu fjármagni verður skipt. MESTA nýmæli frv. er Það, að 4 millj. kr. skuli var- ið á þessu ári og síðan 5 millj. kr. árlega næstu fimm árin til ræktunarfram- icvæmda á jörðum, sem 'hafa nú oflitla ræktun. Það fé, sem er þannig veitt, skal veitt sem óafturkræft fram- lag, en eigi má það þó nema aneiru en 50% af ræktunar- og girðingarkostnaði, ásamt jarðræktarstyrk. Landnáms- stjóri skal hafa umsjón með 'þessum fjárveitingum. Á undanförnum árum hef wr löggjafinn stutt að þvi á ýmsan hátt að greiða fyrir xæktun litlu býlanna. Það iiefur þó ekki reynst full- nægjandi. Á flokksþingi IFramsóknarmanna í fyrra var ákveðið, að flokkurinn Ibeitti sér fyrir nýju átaki á þessu sviði. Það hefur nú fengist fram. ANNAÐ nýmæli frv. er 'það, að árlegt framlag ríkis fns til ræktunarframkvæmda í byggðahverfum og nýbýlum skuli hækkað úr 2Vz millj. kr. upp í 5 millj. kr. og sé greitt fram til ársins 1981 i stað 1967, eins og ákveðið er í núgildandi lögum. Fram- íagið er hækkað vegna þess, að verðlag hefur breyzt og að gert er ráð fyrir aukinni væktun. Á seinasta flokksþingi Framsóknarmanna var á- ifcveðið að beita sér fyrir aukn 'Um framlögum til þessara framkvæmda. ÞRIÐJA nýmæli frv. er Tpað, að nýbýlastjórninni er þeimilað að veita nýbýla- mönnum allt að 25 þús. kr. framlag til íbúðabyggingá. Reynzlan sýnir, að flestir ný býlamenn skulda mikið fyr- ir utan föstu .lánin, og hindra þessar lausaskuldir þá í því að koma sér upp bústofni. Það er því nauðsynlegt að frumbýlingum sé veittur auk inn styrkur og hefur nefnd- in, sem samdi frv., talið bezt að hafa hann í þessu formi. Gert er ráð fyrir, að ríkið leggi árlega fram \xk millj. kr. í þessu skyni, í fyrsta sinn 1957. Seinasta flokksþing Fram- sóknarmanna samþykkti, að flokkurinn beitti sér fyrir aukinni aðstoð við frumbýl- inga. AF ÝMSUM öðrum ný- mælum frv. má nefna þessi m. a.: Landnámsstjóri skal vinna að því að gera uppdrætti að byggð landsins og á grund- velli þeirra, í samráði við stjórnir sveitarfélaga og hér aða, áætlanir um framtiðar- skipun byggðarinnar. Hækkað sé skilyrði varð- andi stærð nýbýla, sem eiga rétt til aðstoðar. Ræktanlegt land nýbýlis skal vera minnst 25 ha. í stað 12 ha. samkv. núgildandi lögum. Einnig eru gerðar meiri kröf ur til stærðar beitilands. Felld eru niður núgildandi .lagaákvæði um byggðafélag, en í þess stað heimilað að veita félagsbúum tveggja eða fleiri bænda sömu aðstoð og nýbýlamönnum. Heimiiað er að veita garð- yrkjubýlum, er hafa minnst 2 ha. af landi og 1 sek. lítra af 85 ° C heitu vatni, sömu að stoð og venjulegum nýbýl- um. Sama ákvæði er tekið upp um handverksmenn, ef þeir ráða yfir 6 ha. af rækt anlegu landi og tilsvarandi beitilandi. Er þetta gert til þess að greiða fyrir því, að slíkir menn setjist að í sveit unum. ! & EINS og yfirlit þetta ber með sér, felur hið nýja frv. í sér mörg merk ákvæði til hagsbóta fyrir sveitirnar. Mikilvægast er samt að fram lög skuli aukin til ræktunar og byggingar í sveitum og þá ekki sízt til litlu býlanna. Með því er stigið nýtt óg merkilegt spor til að koma landbúnaðinum sem mest í nýtízkuhorf. Nýtt stjórnarform í Indónesíu Breytingin rökstudd meÖ því, aí vestrænt lýÖræíi henti þar ekki „Hlutleysr Tímans ÞJÓÐVILJINN varpar í ígær nokkrum hnútum að Tímanum fyrir að hafa ver- íið hlutlaus í Iðjukosningun- um. Af hálfu sumra Alþýðu flokksmanna hefur Tíman- um einnig verið álasað fyrir 'ipetta, en af öðrum ástæð- ;um. Að dómi Tímans er það mjög óheppilegt, að verka- lýðsfl. svonefndu haldi áfram deilum í verkalýðs- hreyfingunni, líkt og átti sér stað á seinasta Alþýðusam- bandsþingi og í IÖjukosning unum nú. Þar eiga báðir flokkarnir sína sök og hefur Tíminn enga löngun til að blanda sér í deilur um það. . SÍÐASTLIÐINN fimmtudag birti Soekarno, forseti Indónesíu, þjóð sinni opinberan boðskap, sem fól í sér gerbreytingu á stjórnar- háttum landsins. Soekarno íil- kynnti, að hann myndi setja á fót svokallað þjóðráð, sem myndi móta stefnu og athafnir ríkisins í öllum meginatriðum. Hlutverk ríkis- stjórnarinnar yrði hér eftir að fylgja fram ákvörðunum þjóðráðs- ins og hlutverk þingsins að gagn- rýna störf þess og stefnu. Með þessum boðskap Soekarno er lýðræðisskipulag það, sem stjórnarskrá landsins mælir fyrir um, raunverulega úr gildi numið. Samkvæmt stjórnarskránni er stjórnarskipunin mjög sniðin eftir vestrænum fyrirmyndum. Sérstakt þing skal annast löggjafarstarfið og jafnframt ráða skipun ríkis- stjórnarinnar. Þetta fyrirkomulag hefir gefizt Indónesíu illa. Þing Indónesíu skipa 260 þingmenn, en þingflokkar eru ekki færri en 29. Þessi flokkasundrung hefir valdið því, að myndun starfhæfrar stjórn- ar hefir mátt heita útilokuð. Hver stjórnarkreppan hefir rekið aðra og engri stjórn hefir því gefizt kostur að snúa sér að hinum marg- háttuðu verkefnum, er bíða hins nýstofnaða ríkis. Stjórnarhættir allir hafa því farið mjög í handa- skolum, en margs konar spilling þróazt í ríkum mæli. Á síðastliðnu hausti var svo komið, að fyllstu horfur voru á því, að ríkið myndi brátt liðast sundur. Einstakir lands hlutar, einkum þó Sumatra, heimt- uðu mjög víðtæka sérstjórn. RÁÐANDI mönnum Indónesíu hefir Iengi verið Ijóst, að ríkjandi stjórnarskipun bæri dauðann í sér. Hatta, varaforseti, sem var annar aðalleiðtogi sjálfstæðisbaráttunnar, ásamt Soekarno, lagði niður emb- ætti sitt síðastliðið haust í mót- mælaskyni. Soekarno lét líka meira og meira í það skína, að rót- tækra breytinga væri þörf. Eink- um gerði hann þetta eftir heim- komu sína frá Kína, en hann dvaldi þar um nokkurt skeið s. 1. haust. Hann taldi það fyrirkomu- lag Kínverja að ýmsu leyti til fyr- irmyndar að láta einn sterkan að- ila hafa forustuna meðan unnið væri að viðreisn landsins. I boðskap þeim, sem Soekarno birti á fimmtudaginn, gerði hann allítarlega grein fyrir þeirri ákvörð un sinni að fyrirskipa breytta stjórnarhætti. Reynslan hefir sann- að okkur, sagði hann, að vestrænt lýðræði hentar ekki því þróunar- stigi, sem við erum á. Við höfum verið sjálfstæðir í ellefu ár, en sjálfstæðið hefir ekki fært okkur eins mikinn ávinning og við gerð- um okkur von um. Það hefir vant- að allt jafnvægi í stjórnarfar okk- ar. Ein ríkisstjórn hefir hrökklazt frá af annarri, án þess að geta gert verkefnunum nokkur skil. Þeir, sem hafa lent í stjórnarandstöðu hverju sinni, hafa hagað sér af fullkomnu ábyrgðarleysi. Þeir hafa aðeins hugsað um að steypa stjórn- inni og ota fram sínum tota, en ekki skeytt um þjóðarhagsmuni. Þjóð, sem þarfnast uppbyggingar á öllum sviðum, þolir ekki slíkt stjórnarkerfi. Hér eftir verðum við að byggja upp lýðræðiskerfi, sem hentar þeim aðstæðum, er við búum við, SASTROAMIDJOJO, sem verið hefir forscetisráðherra undanfarið og er Soekarno mjög handgenginn. en forðast erlenda eftiröpun, sem samrýmist ekki þeim kringumstæð um, sem hér eru fyrir hendi. HIÐ NÝJA þjóðráð, sem Soe- karno hyggst að skapa, verður skipað fulltrúum allra helztu flokka landsins og stéttarsamtaka, fulltrúum allra atvinnugreina, íull- trúum frá hernum, fulltrúum frá æskulýðs- og kvennasamtökum, fulltrúum frá trúarflokkum og loks fulltrúum frá ríkisstjórninni, en þeir fá ekki atkvæðisrétt. Ekki er fullljóst, hvernig kjöri þessara full- trúa verður háttað, en sennilega mun forsetinn ráða sjálfur mestu um val þeirra. Hann verður svo sjálfur formaður þjóðráðsins. Svo er látið heita, að þjóðráðið hafi ekki nema ráðgefandi vald, en ber- sýnilega verður það meira í reynd. Það sést á því, að löggjafar- valdið er tekið af þinginu og ríkis- stjórnin er að mestu gerð valda- laus eða vinnur eftir „línunni" frá þjóðráðinu. Starfsemi stjórn- málaflokka verður leyfð áfram, en innan þröngra takmarka. Þeir fá aðstöðu til að gagnrýna, en ekki til að ráða á annan hátt. Margir kunnugir menn telja, að raunverulega hafi það hér gerzt, að Soekarno hafi tekið sér einræð- isvald, en setji þjóðráðið upp sem skálkaskjól til að leyna því. Það muni afnumið síðar, ef það reyn- ist forsetanum óþægt í taumi. SÁ FLOKKURINN, sem hefir orðið einna fyrstur til að lýsa blessun sinni yfir hinni nýju skip- an, er kommúnistaflokkurinn. Hann hefir að undanförnu verið utan ríkisstjórnarinnar. Ýmsir telja þetta merki þess, að Soekarno muni sveigja stjórnarfarið í átt til kommúnismans. Til andmæla þessu er hins vegar bent á, að her- inn fær fulltrúa í þjóðráðinu, en hann er mjög andstæður kommún- istum. Einnig er talið, að Soekarno hafi tryggt sér fullan stuðning Hatta, sem er mikill andstæðingur kommúnista. Hann hefir lengi ver- ið þess fýsandi, að vald forsetans væri aukið. Til samkomulags við Hatta, mun Soekarno hafa fallizt á að veita einstökum Iandshlutum aukna sjálfstjórn. Hatta hefir lengi verið talsmaður slíkrar breytingar. Margt bendir til þess, að hin nýja skipan muni í framtíðinni verða til þess að styrkja verulega aðstöðu hersins, því að þegar fram líði stundir verði Soekarno að j byggja mjög völd sín á honum. Eins og sakir standa, eru persónu- legar vinsældir þeirra Soekarno og Hatta svo miklar, að meðan þeir standa saman, hafa þeir meirihiuta þjóðarinnar að baki sér. Það get- ur hins vegar breytzt, ef hið nýja stjórnarkerfi gefst ekki vel. ÞÖTT ráðstöfun Soekarno sé spor aftur á bak frá sjónarhæð vestræns lýðræðis, er erfitt að hall- mæla henni, þegar litið er á all- ar málsástæður. Þótt lýðræðis- skipulag gefist vel, þar sem það er búið að þróast lengi, eins og í Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum, er ekki þar með sagt, að það henti jfrumstæðum þjóðum, sem aldrei (hafa vanizt því. Þær þurfa fyrst að ; öðlast meiri almenna menntun og ! félagsþroska. Fyrir Soekarno hefir ifarið líkt og Kemal Ataturk, sem hugðist að taka upp vestrænt lýð- ræðisskipulag, en sveigði brátt frá þeirri stefnu, þegar honum varð ljóst, að hún hentaði ekki Tyrkj- um að óbreyttum ástæðum. Fyrir fylgismenn lýðræðisins er ekki rétt að krefjast þess, að lýð- ræðisskipulag sé tekið upp af þjóðum, sem ekki hafa vanizt því, fyrr en þær hafa náð vissu þroska- stigi. Lýðræðinu er það ekki á- vinningur, að það sé tekið upp, þar sem það á ekki við, og verður þvf aðeins viðkomandi þjóðum til von- brigða. Mikil spurning er, hvort vestræn ir stjórnmálaleiðtogar hafi gert sér þetta nægilega ljóst í sambýli við þjóðir, sem aldrei hafa vanizt lýðræði. Þetta gildir t. d. um Rússa og margar Asíu- og Afríkuþjóðir. Þ.Þ. "SAÐSrorAAt Aöalatriðið er, að reynt sé að vinna að sáttum og sam- komulagi í verkalýðshreyf- ingunni og hún verði gerð starfshæfari og ábyrgari á þann hátt. Beztu menn beggja ættu að vinna að því. Ný viðhorf og breytt- ar aðstæður skapa fyrir því aukna möguleika. Annars heldur sú ömurlega þróun á- fram, að biðlað sé til íhalds ins á víxl og yfirboð og sundr ung lami bæði verkalýðs- hreyfinguna og þjóðfélagið. . Ferskeytlan lifir. UMRÆÉURNAR hér í baðstof unni um húsganginn, sem Lúð- vík Kemp taldi rangt með farinn í útvarpi, sýna m. a. að víða er lifandi áhugi fyrir ferskeytlunni. Hún er enn á vörum alþýðunnar. Furðulega margir láta í Ijós álit sitt á mönnum og málefnum með því að varpa fram stöku. Hér í baðstofunni hefir Refur bóndi verið einna iðnastur við það og voru enn eftir hann nokkrar stökur, er hann lauk máli sínu sér um daginn, og fara þær hér á eftir. Þessi vísa er kveðiií í haust: Djúp að hylja hjartasár, harmakyljum eyðir. öll skal dylja angurstár eins þótt skiljist leiðir. Ennfremur eftirfarandi stökur: Öfund fæðist af því nóg, einn að gæða njóti. Á því græðir enginn þó annar mæðu hljóti. Krókaleiðum kröppum á komast menn í vanda. Villugjörnum vegum hjá vörður þurfa að standa. I Svo er hér ein nýleg. Mörgum þykir mesta hnoss, mælsku hinna snjöllu. Þögnin stundum þreytir oss þó er hún bezt af öllu. Hlýtt á útvarp. í ÚTVARPSþættinum „Um helgina" hlýddi ég á hinn 100 ára gamla öldung Jón Þórðarson, en það var á þrettándakvöld. Þá kvað ég: Góður finnst mér söngur sætur sjálfur þó ég hljóðin spari. Hlýjaöi mér um hjartarætur hundrað ára forsöngvari. Bið ég honum allrar blessunar. Þá er hér ein vísa kveðin til stúlku. Undir þínum verndarvæng, vænstu naut ég gæða. Ei var þó um eina sæng okkur hjá að ræða. 1 Sjálfsmynd. EG KVEÐ svo um sjálfan mlg (Framhald á 8. síSu.)

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.