Tíminn - 11.04.1957, Side 6
6
km
Útgefandl: Framsóknarflokkurlnn
Ritstjórar: Haukur Snorrason,
Þórarinn Þórarinsson (áb).
Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargötu
Símar: 81300, 81301, 81302 (ritstj. og blaðamenn).
Auglýsingar 82523, afgreiðsla 2323.
Prentsmiðjan Edda hf.
,Fagna8arstundm og ,graíarþögnm ‘
ÓTTI þeirra, sem vita
sig hafa unnið óhappaverk,
birtist með ýmsum hætti.
M. a. kemur hann stundum
fram á þann hátt, að menn
reyna að kenna öðrum um,
— segja aðra hafa gert
það. Þessi viðbrögð eru al-
geng hjá þeim, sem eru
þroskaminnstir og reyna því
að réttlæta sig með blekking
um í stað þess að iðrast.
Þetta hendir nú oft rit-
stjóra Mbl., þegar þeir eru
að ræða öngþveiti efnahags
málanna og ofþenslu fjár-
festingarinnar. Seinast í
gær reynir Mbl. að kenna
Framsóknarflokknum um of
þenslu bygginganna í höfuð
staðnum.
Einu sinni enn skal því
saga þessara mála rifjuð
upp.
HIN STÓRIJ og örlaga-
ríku spor, voru stigin við
stjórnarmyndt(nina 1953,
þegar Sjálfstæðismenn
knúðu fram afnám Fjárhags
ráðs og raunverulegt afnám
fjárfestingarham'lanna.
í ræðu, sem Ingólfur Jóns
son flutti á Varðarfundi 25.
nóv. 1953, tók hann það skýrt
fram, að Sjálfstæðisflokkur-
inn’hefði haft forustu um af
nám fjárfestingarhamlanna.
Hann sagði m. a.:
„Það hefur verið að frum
kVæSi Sjlálfstæðisijlokksins,
er lýsti þvi yfir á lands-
fundi sínum í vor, að hann
vildi Fjárhagsráð afnumið,
að inn í mátefnasamning
ríkisstjórnarinnar hefur ver
ið tekið, að ráðið skyldi fellt
niðurý.
Ólafur Thors sagði. á sama
fundi samkvæmt frásögn
Mbl.:
„Áður fyrr þ'urfti þjóð-
in aðeins að glíma við harða
en gæðaríka náttúru lands-
ins, sem hún byggir, en síð-
ustu árin hefur hún auk þess
orðið að glíma við ótal ráð
og nefndir. Nú rennur upp
sú fagnaðarstund, að við sjá-
um til lykta þessarar glímu.
Við skulum líta til þess, að
það sem unnizt hefur, er fyr-
ír forgöngu Sjálfstæðis-
flokksins".
FRAMsóknarmenn gengu
nauðugir til þess leiks að af-
nema fiárfestingarhömlurn-
ar í jafn stórum stíl og gert
var. Sfpfna þeirra hefur jafn
an verið sú, að reynt yrði að
tryggja sem mest athafna-
frelsi, en þó innan þess
ramma, sem fjárhagskerfi
þjóðarinnar þyldi. Við það
sjónarmið vildu forkólfar
Sjálfstæðisflokksins ekki
sætta sig, enda voru margir
gæðingar þeirra í Reykja-
vík orðnir langeygðir eftir
því að geta byggt skrauthýsi
og skrifstofuhallir. Stjórnar
samvinnan hefði ekki tek-
ist, ef ekki hefði verið látið
undan þessari kröfu Sjálf-
stæðisflokksins.
Afstöðu Framsóknarmanna
tii þessara mála má bezt
marka af eftirfarahdi um-
mælum í Mbl. 26.:inöv. 3956:
„Á Alþingi veittu menn því
athygli, að enginn Framsókn
armaður tók til máls um
þetta frumvarp (frv. um af-
nám Fjárhagsráðs) og sjálf
sagt hefur því verið veitt
athygli, að blað Framsókn-
arflokksins hefur verið þög-
ult eins og gröfin um þess-
ar löngu umræður".
AFLEIÐINGARNAR eru
svo kunnar. Með því að
sniðganga það slitur af fjár
festingareftirliti, sem eftir
var, reistu gæðingar Sjálf-
stæðisflokksins skrauthýsi,
og stórhallir, eins og
Morgunblaðs-höllin er
gleggst merki um. Þetta
hafði þau áhrif að ofþensla
skapaðist á vinnumarkaðin
um, en hún leiddi síðan af
sér kauphækkanir og verð-
hækkanir. Þessar hækkanir
var reynt að bæta framleiðsl
unni upp með uppbótum og
niðurgreiðslum. Því er nú
komið sem komið er.
Það er vitanlega hreinn
útúrsnúningur hjá Mbl. að
telja það einhverja fylgis-
yfirlýsingu við þessa stefnu,
þegar Tíminn krafðist að
byggingamálin yrðu tekin
föstum tökum. Með því átti
Tíminn einmitt við að horf
ið yrði frá byggingu skraut-
hýsanna og stórhallanna en
meira yrði byggt af hóíieg
um íbúðum.
Aðrir og slíkir útúrsnún-
ingar Mbl. eru þýðaingarlaus
ir. Ummæli Ólafs Thors
um „fagnaðarstundina",
ummæli Ingólfs Jónssonar
um „frumkvæði Sjálfstæðis
flokksins“ og ummæli Mbl.
um „grafarþögn Tímans“
taka af öll tvímæli um
þessi efni. Málstaður Sjálf
stæðisflokksins verður að-
eins gerður verri með því að
afneita nú því verki, sem
hann hældist mest yfir áð-
ur.
TÍMINN, fimmtudaginn 11. apríl 1957.
ERLENT YFIRLIT:
Forsetakosningarnar í Áusiiuríki
Veríur frægasti skurtilækiiir Austurríkis næsti forseti þess?
HINN 5. maí næstkomandi
fara fram forsetakosnmgar í Aust
urríki, en forseti þar er þjó'ðkjör-
inn. Kosningum þessum er veitt
allmikil athygli, enda beinist at
hygli manna nú mjög að Austur
ríki. Ástæðan er m. a. nábýli
þess við u’ngverjaland og h.nn
mikli straumur ungverskra flótta-
manna þangað um skeið. Líklegt
þykir af þeim ástæðum, að Rúss
ar sjái eítir því að hafa sleppt
tangarhaldi sínu á Austurríki og
kunni þess að sjást merki ; sam
búð þeirra við Austurríkismenn
áður en langt um líður. Enn hafa
þó Rússar ekki látið bera á þessu.
Forsetakosningar fóru seinast
fram í Austurríki fyrir sex árum
síðan og varð þá frambjóðamii
jafnaðarmanna, Theodor Körner,
fyrir valinu. Þá varð að tvíkjósa.
í fyrra skiptið fékk frambjóðandi
Þjóðflokksins flest atkv. en þó
ekki tilskilin meirihluta. Var þá
kosið í annað sinn og náði Körn
er þá kosningu. Ástæðan var sú,
að Sjálfstæðisflokkurinn, sem tal
inn er hálffasistískur, dró frarn-
vissi, að jafnaðarmönnum myndi I
falla ilia að bíða ósigur fyrir ein |
hverjum af foringjuin Þjóðflokks
ins í forsetakjörinu. Hann tók það j
því til ráðs að bjóða Sjálfstæðis'
flokknum samvinnu um ópólitískt
forsetaefni. Þetta samkomulag náð
ist og maðurinn, sem varð fyrir
. valinu, var frægasti læknir Aust-
1 urríkis, Wolfgang Denk. Fiest
bendir nú til, að hann verði næsti
forseti Austurríkis.
WOLFGANG DENK er 76 ára
að aldri. Hann ber aldurinn vel
og er t. d. enn formaður austur
ríska heilsuverndarráðsins og for
| stöðumaður austurrísku krabba-
meinsrannsóknanna. Það er ckki
langt síðan að hann lót af kennslu
við háskólann, en þar var hann
prófessor um langt skeið, for
stöðumaður sjúkradeildar og rekt
or háskólans um skeið. Þau aust
urrísku heiðursmerki eru fá, sem
hann hefur ekki hlotið fyrir störf
sín.
Denk varð snemma mjög frægur
fyrir magaskurði sína, en síðar
gaf hann sig einkum að rannsókn
um á lungnakrabba. Fyrir þann
árangur, sem hann hefur náð á
því sviði, er hann frægur meðal
lækna um allan heim. Þegar hann
lét af störfum við háskólann fyr
ir tæpum þremur árum, hafði
hann nýlokið 500. lungnaskurð-
inum. Hann vildi þó ekki leggja
árar í bát, heldur brá sér til
Stokkhólms og fékk hinn þekkta
hjartalækni, Crafoord, til þess
að leiðbeina sér við hjartaskurði
á hinum svonefndu „bláu börn-
um“. Síðan hann kom til Austur
ríkis aftur, er hann búinn að gera
Gúmbjörgunarbátar
SCHARF
bjóðanda sinn til baka og fylkti
sár um Kctrner. Frambjóðandi
Þjóðflokksins hafði átt í brös-
um við Sjálfstæðisflokkinn.
FYLGI stjórnmálaflókkanna
í Austurríki er nú þannig hátt-
að, að aðalflokkarnir, Þjóðflokk-
urinn og Jafnaðarmannaflokkur-
inn eru nokkurn veginn jafnsterk
ir. Ríkisstjórnin byggist á sam
starfi þessara flokka og hefur
verið svo um skeið. Þeir hafa
þó ekki getað komið sér sainan
um forsetaefnið og hafa því boð-
ið fram sitt forsetaefnið hvor.
Margt bendir til, að nú geti farið
eins og síðast, að fylgismenn Sjálf
stæðisflokksins verði ióðið á vog-
arskálinni.
Eftir að allmiklar umræður
höfðu átt sér stað milli stjórnar-
flokkanna um sameiginlegt for-
setaefni, tilkynntu jafnaðarmenn
forsetaefni sitt, Scharf varafor
sætisráðherra. í samningaviðræð
unum höfðu þeir lagt áherzlu
á, að þeir ættu að halda forseta-
embættinu áfram, en Raab for-
sætisráðherra og forrnaður Þjóð-
flokksins vildi ekki sætta sig við
það. Jafnaðarmenn töldu sig geta
haldið sínu máli bezt til streitu
með því að tilkynna forsetaefni
sitt, því að Raab gæti ekki með
góðu móti boðið fram gegn vara-
forsætisráðherranum.
Raab er hinsvegar maður, sem
ógjarnan lætur hlut sinn. Hann
um 250 slíka skurði.
KEPPINAUTUR dr. Denks,
Adolf Scharf, er 67 ára gamall,
lögfræðingur að menntun. Hann
hefur lengi verið í fylkingarbrjósti
austurrískra jafnaðarmanna. í tíð
Dolfuss Schuschniggs og Hitlers
sat hann löngum í fangabúðum.
Hann hefur verið ráðherra sam-
fleytt síðan 1945. Ilann þykir
nokkuð kreddubundinn í skoðun
um, en er persónulega vel látinn
og mjög vinsæll í kunningjahópi.
Slíkt hið sama gildir um Denk,
svo að ekki verður gert upp á
milli forsetaefnanna að því leyti.
í ÁRÓÐRI sínum leggja jafn-
aðarmenn mjög mikla áherzlu á
það, að forsetinn þurfi að hafa
góðan kunnugleika á stjórnmál-
unum. Þar hafi Scharf mikla
reynzlu að baki, en Denk enga.
Einnig hampa þeir mjög and-
D E N K
stöðu Scharfs gegn fazistum og
nazistum. Hinsvegar ympra þeir
á því, en þó gætilega, að Denk
hafi um skeið átt sæti í ríkisstjórn
Dolfuss. Fylgismenn Denks benda
hinsvegar á það, að hann hafi
samt ekki veitt Dolfuss neinn
beinan stuðning, heldur eingöngu
tekið sæti í stjórninni sem ópóli
tískur embættismaður. Þeir benda
og á, að hann hafi aldrei verið
bendlaður við neinn stjórnmála
flokk.
Kommúnistar hafa enn ekki lát
ið neitt uppi um það, hvort for-
setaefnið þeir ætla að styðja.
Erfitt mun þó fyrir þá að styðja
Scharf, sem jafnan hefur verið
skeleggur andstæðingur þeirra.
Eins og áður segir, þykir Denk
nú líklegri til að bera sigur úr
býtum. Sennilegt þykir, að sigur
hans muni ekki hafa nein áhrif
á stjórnarsamstarfið, en hins-
vegar myndi Schárf hafa fallið
þungt, ef einhver pólitískur keppi
nautur hans hefði sigrað hann.
Ýmsir íslenzkir læknar rnunu
þekkja dr. Denk og einn þeirra,
Jónas Sveinsson, hefur verið nem
andi hans. Álit Denks má mikið
marka á því, að á alþjóðaþingi
skurðlækna, sem haldið var í
Kaupmannahöfn í fyrra, var hann
kjörinn forseti næsta alþjóða-
þingsins, sem haldið verður í
Mexico City í sumar.
Dr. Denk nýtur ekki síður hylli
alþýðu manna vegna þess, að hann
hefur að jafnaði unnið læknis-
störf sín endurgjaldslaust, þegar
efnaminna fólk hefur átt hlut að
máli. Hann hefur gert sér mjög
far um að hjálpa slíku fólki. í
framgöngu er hann mjög látlaus
og elskulegur. Fylgismenn hans
segja líka, að hann sé sannur
fulltrúi beztu eiginleika þjóðar
sinnar. Þ.Þ
VAÐSröFAA/
SNEMMA á yfirstand-
andi þingi fluttu þeir Har-
aldur Guðmundsson og Frið
jón Skarphéðinsson frumv.
um breytingu á lögunum um
eftirlit með skipum þess
efnis, að á hverju þilfars-
skipi skuli vera gúmbjörgun
arbátur, einn eða fleiri, og
stærð þeirra miðuð við það,
að þeir rúmi þá, sem á skip
inu eru.
Það hefur fengist vaxandi
reynzla fyrir því á síðari ár-
um, að gúmbjörgunarbátar
geta oft komið að liði, þegar
aðrir bátar gera það ekki.
Margar siglingaþjóðir eru
því að taka þá upp.
Eins og vænta máttl, hef
ur því frv. þeirra Haraldar
og Friðjóns fengið góðar und
irtektir á Alþingi. Þau á-
kvæði munu því verða hér
eftir í lögum, að gúmbjörg-
unarbátar verði á öllum ísl.
skipum. Með því verður ör-
yggi sjómanna aukið og ber
vissulega að fagna því eins
og öðrum framförum á þessu
sviði. ^
Kötturinn i fjörunni.
KONA í vesturbænum skrifar:
„Fyrir nokkrum dögum bar fyrir
mig sjón, sem mér finnst ástæða
til að vekja athygli á. Ég á heima
í húsi vestur við sjó, rétt hjá
Selsvörinni, og sést úr eldhús-
glugganum niður í fjöru. Dag
einn fyrir skömmu tók ég eftir
því, að lögregluþjónar komu í
fólksbíl, og staðnæmdist bíllinn á
vegarkantinum þarna á sjávar-
kambinum. Lögregluþjónn kom j
út, gekk aftur fyrir bílinn, opn-
aði farangursgeymsluna og tók í
rófuna á dauðum ketti og senti
honum af hendi fram í fjöruna,
en mikið vantaði þó á, að hann
kæmist í sjó fram. Að líkindum
hefir kötturinn orðið undir bíl
einhvers staðar og lögreglu-
mennirnir verið að koma hræinu
undan.
Kötturinn lá nú þarna í fjör-
unni, og að sjálfsögðu leið ekki
á löngu þangað til krakkarnir í
hverfinu uppgötvuðu þessa ný-
lundu. Þyrptust þeir kringum
köttinn, fóru að hafa hönd á hon-
um og velta honum til. Þetta
minnir mig á kýrskrokkinn, sem
Pétur Hoffmann fann í fjörunni
um daginn. Borgarlæknir lét þeg-
ar urða kýrskrokkinn, er hann
frétti um hann. Að vísu er katt-
arskrokkur minni um si£, en eigi
að síður á að urða hann eins og
önnur hræ en ekki fleygja hon-
um í fjöru, þar sem hann úldn-
ar og krakkar handfjalla hann.
Lögreglan átti auðvitað að urða
köttinn“.
Sami hlulinn seldur tvisvar.
ÞÁ ER HÉR annað bréf frá við-
skiptavini happdrættis Háskólans,
og þykir bréfritara nokkur Ijóð-
ur á þessari starfsemi hinnar
' æðstu menntastofnunar á landi
hér: „Ég hefi átt tvo miða í happ-
drætti Iláskóla íslands í umboði
. hér í Reykjavík. Ég hefi jafnan
endurnýjað þá reglulega, þótt
smátt hafi verið um vinninga til
þessa. Svo kom það fyrir núna í
febrúar og marz, að vegna fjar-
veru og annarra orsaka féll end-
urnýjun niður í tveim flokkum.
Þegar ég kom í þriðja sinn núna
(Framhald á 8. síðu).