Tíminn - 13.06.1957, Blaðsíða 8
Veðrið:
Sunnan gola, smáskúrir en bjart
é milli.
Hiti kl. 18:
Reykjavík 10 stig, Akureyri 13,
London 17, París 18, Kaupmanna
höfn 13, Meistaravík 1... ; —-
Fimmtudagur 13. júní 1957.
Horfur á mikilli þáfttöku i
sumarsíldveiöum nyrðra
Mesti fiásetafiSutor á vorsiMveiðum á Akra-
nesi om 16 þús. krónor á rúmum mánoði
Horfnr eru á því að í sumar verði gerðir út á síld fleiiú skip
en nokkru sinni. Kunnugir telja að líklegt sé að íslenzk síld-
veiðiskip fyrir Norðurlandi í sumar verði ekki færri en 300,
en voru um 180 í fyrra, þegar flest voru.
Enginn hörgull er á því að fá verður líka talsvert hærra en i
sjónvenn á stldveiðiskipin og fyrra. Einkum er mikill munur á
sækjast tnenu mjög eftir skips- verði bræðslusíidarinnar nú og t
• fyrra. Bræðslusíldarmálið verður
Munu þess dæmi að tnenn yfir-
gefi góða vinnu í landi og ráðist
á síld. Útgerðarmaður einn sagði
blaðamanni frá Tímanum í gær,
að þetta minnti á hina gömlu
„góðu daga“, þegar það var keppi
kefli ungra manna við sjávarsíð
una að ráða sig á báta og skip,
og taka þannig sem virkastan
þátt í atvinnulífinu.
Hátt síidarverð í suntar.
Verð það, sem greitt verður fyr
Ir síldina í sumar til sjómanna
Ekki hætta á
ioflúefizu í Evrópu
að siiioi
Genf, 12. júní. — Fuiltriiar
hinnar aiþjóðlegu heilbrigðis-
stofnunar í Genf létu svo um
mælt í dag, að engtn yfirvofandi
hætta væri á því, að infiúensu-
faraldurinn, setn nú herjar Asíu,
bærist til Evrópu strax. Hætta
var talin á, að maður, sem kom
frá Indónesíu til Hollands í s. 1.
viku sjúkur af inflúensu, liefði
borið veikina, en nú væri komið
í ljós, að svo væri ekki. Inflú-
ensan breiðist þó allört út í Jap-
an og Indlandi. Víðtækar ráðstaf
anir liafa verið gerðar í ríkjum
Vestur-Evrópu til að hindra að
inflúensan berist þangað, og eru
menn settir í sóttkví við komu
að austan. Fulltrúi Pasteur-stofn
unarinnar sagði, að varla mundi
líða langur tími þangað til bólu-
efni gegn þessum nýja vírusi
fyndist.
nú 95 krónur, en mun hafa verið
75 krónur í fyrra. Saltsíldarverðið
er einnig mikið hærra en í fyrra.
Er því sýnt að mikið er I aðra
hönd við síldveiðarnar, ef síldin
kemur á annað borð, en fátt er
jafnt óvíst og koma síldarinnar.
Sumarið í fyrra var að mörgu
leyti líflegra hvað síldveiðarnai
snerti, að minnsta kosti um tíma
en verið hefir í mörg sumur og
nú þegar síldarvertíð er framund
an eru menn bjartsýnir á að siid
in komi, eins og jafnan, þegar
menn standa andspænis ráðgátu
síldveManna í upphafi vertíðar.
Um 18 Akranesbátar
norður á síld.
Fréttaritari Tímans á Akranesi
símaði í gærkveidi, að bátar þar
væru nú sem óðast að búast til
síldveiða. Fara líklega 18 bátar
þaðan norður til síldveiða, en voru
11 í fyrra. Búið mun að ráða á
flest eða öll síldarskipin og enginn
hörgull á sjómönnum til síldveiða.
Mikill vorsildarafli á heimamiðum.
Reknetaveiði á heimamiðum er
nú hætt og tók skyndilega fyrir
afla. Síldveiði var ágæt lijá Akra-
nesbátum síðari hluta aprílmánað-
ar og í maímánuði, en ltil í júní.
Aflahæsti báturinn á vorsíld-
veiðunum frá Akranesi er Svan-
ur, skipstjóri Sigurjón Kristjáns-
son. Aflaði báturinn um 2000
tunnur og mun hásetahlutur vera
um 16 þúsund krónur og er það
gott fyrir ekki lengri tíma, en
kemur sér vel eftir óvenju tekju-
litla vetrarvertíð.
Nú er nokkurt hlé á síldveiðum
frá Akranesi, en strax um og eftir
20. júní má búast við því að bát-
arnir fari að halda norður fyrir
land til sumarsíldveiðanna.
Flugmenn þreyta keppni í „gó8flugi“
næstkomandi þriðjudagskvöld
VertSiIaiin eru veglegur silfurbikar, sem hJ. Sbell
á Íslandi hefir gefiU
í byr jun næstu viku verður háð hér á landi flugkeppni, hin
fyrsta af því tagi, sem háð er hér. Flugmálafélag íslands
gengrA fyrir keppninni, en verðlaun eru veglegur silfurbikar.
Það er forsaga þessarar keppni
að fyrir nokkrum árum gaf h.f.
Shell á íslandi bikar, sem vera
skyldi verðlaun í flugkeppni er háð
yrði árlega, en af framkvæmdum
hefir ekki orðið fyrr en í ár. Er
þess að vænta að keppt verði um
þennan bikar árlega hér eftir. Þeir
Björn Jónsson framkvæmdastjóri
öryggisþjónustu flugumferðastjórn
arinnar og Ólafur K. Magnússon
hafa tekið að sér að undirbúa
keppnina og ganga frá keppnisregl
um, en dómnefnd skipa Björn
Jónsson, Örn Johnson og Alfreð
Elíasson. Keppnin fer fram næst
komandi þriðjudagskvöld en næsta
góðviðriskvöld ef veður hamlar á
þriðjudaginn.
Öllum íslenzkum flugmönnum
er heimilt að taka þátt í keppn-
inni og leyfilegt er að nota hvaða
flugvél sem er. Þetta er tvímenn-
ingskeppni, þ. e. a. s. tveir menn
verða á hverri vél, og verður a. m.
k. annar beirra að hafa fullkomin
flugmannsréttindi. Lagt verður
upp af Reykjavíkurflugvelli, og
verður flugmönnunum afhent lok-
að umslag skömmu áður en þeir
leggja af stað. Þar er skýrt frá
þrautum þeim, sem þeim er ætlað
að leysa á fluginu. Þrautirnar eru
fyrst og fremst miðaðar við al-
menna flugkunnáttu og góða at-
hyglisgáfu en ekki er ætlazt til
að menn þreyti kappflug eða ann-
að slíkt. Á þremur stöðum þar
sem flogið er yfir verða menn til
athugunar á fluginu, en lent verð-
ur aftur í Reykjavík. Verðlaunin
verða afhent sigurvegara á flug-
daginn 1957. Þátttökutilkynningar
verða að berast flugumferðastjórn
fyrir mánudagskvöld.
Miklar framkvæmdir
á Akranesi
Frá fréttaritara. Tímans
á Akranesi.
Mikið er nú um verklegar fram
kvæmdir á Akranesi og unnið að
stórvirkjum, bæði við hafnargerð
og byggingu sementsverksmiðjunn
ar. Hinir þýzku verktakar vinna að
hafnartframkvæmdum og er verið
að byggja bryggju framan við hina
fyrirhuguðu sementsverksmiðju.
Við sementsverksmiðjuna sjálfa
er unnið að byggingarframkvæmd-
um og einnig byrjað að setja niður
vélar, sem komnar eru til verk-
smiðjunnar frá Danmörku. En það
an kemur mikið alf vélakosti.
Myndir þessar eru frá aðalfundi Kaupfélags Eyfirðinga á Akureyri á
(lögumim. Á efri myndinni sjást við borð stjórnar og fundarstjóra tal-
ið frá vinstri: Björn Jóhannsson, Eiður Guðmulidsson, Bernharð Stef-
ínsson, Brynjólfur Sveinsson, Þórarinn Kr. Eldjárn, Marinó Þorsteins
son, fundarstjóri að störfum, Helgi Símonarson og Jakob Frímannsson.
Á neðri myndinni sést yfir fundarsalinn meðan á fundi stendur, og
hér til hliSar sést Jakob Frímansson, franikvæmdastjóri, flytja skýrslu
sína um rekstur félagsins sl. ár. (Ljósm.: Gísli Ólafsson).
ForsæfisráSherra útlagastjóraar
í heimsókn á Islandi
Sí'Sam 1940 hefir August Rei há'ð óslitna
baráttu fyrir frelsi lands síns
Síðastliðinn laugardag kom hingað til lands August Rei,
forsætisráðherra útlagastjórnar Eistlands, sem aðsetur hefir
í Stokkhólmi. August Rei dvaldi hér um hvítasunnuna, en
hann var á leið til Stokkhólms
ara sínum, dr. Horm.
Rei er nú sjötíu og eins árs
gamall. í æsku sinni tók hann þátt
j í baráttunni gegn rússneska keis-
j araveldinu og hlaut að sitja í fang-
| elsi nokkur ár. Eftir byltinguna í
i Rússlandi hlutu Eistar frelsi sitt,
: og stofnað var lyðveldi. Þá varð
Rei ráðherra og síðar forseti stjórn
lagaþingsins og fleiri embættum
! gegndi hann í þágu lands síns.
1923 var hann kjörinn forseti lýð-
veldisins, síðar varð hann utanrík-
isráðherra, og loks varð hann
frá Bandaríkjunum ásamt rit-
sendiherra Eistlands í Moskvu
1938. Þeirri stöðu gegndi hann í
júní 1940, þegar Rússar sendu
Eistum úrslitakosti sína. Hann
komst nauðuglega undan frá
Moskvu mánuði síðar, þegar Rúss-
ar lögðu Eistland undir sig.
Rei flúði til Stokkhólms og tók
þar strax upp baráttu fyrir frelsi
þjóðar sinnar og hefir haldið henni
óslitið áfram síðan. Hann hefir
ritað bækur og greinar um vanda-
mál Eystrasaltslandanna á sænsku
og ensku og farið víða um lönd.
Síðan 1947 hefir hann verið for-
sætisráðherra útlagastjórnar Eist-
lands, en allir stjórnmálaflokkar
Eista í útlegð standa að henni.
Helsingfors í gær. — Vináttu-
heimsókn Krustjovs í Finnlandi
lauk í gær, og við það tækifæri
birti hann og Sukselainen forsætis
ráðherra Finna sameiginlega langa
tilkynningu um vináttu þjóðanna
og nánara samstarf. Jafnframt var
því lýst yfir, að viðskipti landanna
yrðu mjög aukin á næstunni eða
um 10% á þessu ári. Kvaðst Suk-
selainen vera mjög ánægður með
hinar finnsk-rússnesku viðræður
og væri enginn, vafi á, að þær
mundu leiða af sér mjög bætta
sambúð Finna og Rússa á næstu
árum, samfara stórauknum við-
skiptum,, báðum þjóðunum til
gagns.
Rnowlands fráleita
Washington, 12. júní. — Um-
ræður voru enn í dag allmiklar í
blöðum vestan hafs og austan um
tillögu Knowiands um hlutleysi
Noregs og að Rússar sleppi tök-
um á Ungverjalandi. Yfirhershöfð-
ingi Atlantshafsbandalagsins Laur-
is Norstad lét svo ummælt að
hann varaði mjög við því að gera
nokkrar tilraunir til þess að ýta
Noregi úr Atlantshafsbandalaginu.
Benti hann á, að landamæri Nor-
egs og Rússlands lægju saman, og
legði Á-bandalagið niður stöðvar
sínar í Noregi, væri öll varnarlína
vesturveldanna í norðri opin og
óvarin, og að NATO-löndin
fimmtán hefðu skuldbundið sig til
þess að verja þessi landamæri, ef
á þau yrði ráðizt.
August Rei