Tíminn - 16.06.1957, Qupperneq 1
Fylgist með tímanum og lesið
TÍMANN. Áskriftarsímar: 2323
og 8 1300. — Tíminn flytur mest
og fjölbreyttast almennt lesefni
41. árgangur.
Efnli
Landbúnaðarmál, bls. 4.
Munir og minjar og þáttur
kirkjunnar, bls. 5.
Blaðamannafundur í Hvíta hús-
inu, bls. 6.
ísafoldarprentsmiðja, bls. 7.
Reykjavík, sunnudaginn 16. júní 1957.
131. blað.
gur Eisenhowers um aðstoð við
eriend ríki samþykktar óbreyttar
morgun er
Á morgun er 17. júní, þjóðhátíðardagur íslendinga og verður að venju mikið um dýrðir bæði í höfuðborg-
inn iog í cðrum kaupstöðum og dreifðum byggðum I ndsins. Kl. 13,55 setur formaður þjóðhátíðarnefndar
hátíðina og verður síðan gengið til guðsþjónustu. Kl. 14,40 leggur forseti íslands blómsveig að varða Jóns
Sigurðssonar, en kl. 14,40 flytur Hermann Jónasson, forsætisráðherra, ræðu af svölum Alþingishússins. Kl.
14,55 flytur fjaflkonan, Helga Valtýsdóttir, ávarp. Kl. 1 > hefst íþróttahátíð dagsins á íþróttavellinum. Barna-
skemmtun á Arnarhólstúni kl. 16. Tónleikar við Austjrvöll kl. 17 oq skemmtun á Arnarhóli kl. 20. Loks
verður dansað á Lækjartorgi. Takið mikinn en prúðmannlegan þátt í hátíðahöldunum á fagnaðardegi
þjóðarinnar. — Myndin er frá þjóðhátíðinni í Reykjavik fynr nokkrum árum.
Sýningu Gullna Miðsins í Kaup-
mannahöín var afburSa vel tekið
Hofimdur' leikstjóri og leikendur hylltir ákaf-
iega. — Blötiin telja sýninguna merkan leik-
víðburíS. — Arndís fær gófta dóma
Frá fréttaritara Timans í Kaupmannahöfn í gær.
Frumsýning íslenzka ieikflokksins á Gullna hliðinu fór
fram í gærkveldi í Folketeatret og tókst ágætlega. í djúpri
þögn og með mikilli athvgli hlustuðu leikhúsgestir á Davíð
Stefánsson flytja prólógus að leiknum, og leiknum var fylgt
með lifandi eftirvæntingu allt til enda. Að leikslokum var
leikstjórinn, Lárus Pálsson, höfundurinn, og leikendur hyllt-
ir innilega.
Að því loknu kom Thorvald
Larsen fram á sviðið og flutti
ræðu, þar sem hann þakkaði gest
leikinn. Rétti hann Guðlaugi
Rósinkranz Þjóðleikhússtjóra lár-
viðarkranz til flokksins og bað
leikhúsgesti síðan að hylla ísland
með ferföldu húrrahrópi og einn
ig hina íslenzku gesti. Guðlaugur
Rósinkranz þakkaði móttökurnar
og sérstaklega Thorvald Larsen
með ræðu, og bað Islendinga að
hylla Danmörku og leikhúsið með
ferföldu húrrahrópi, og tóku leik
húsgestir einnig undir það. Loks
kom leikkonan Ellen Malberg
fram á sviðið sem fulltrúi danska
leikarasambandsins og færði Arn-
dísi Björnsdóttur fagran blómvönd
með fánalitum íslands, og enn
einu sinni var hún ásamt hinum
leikurunum hyllt ákaflega.
Góð blaðaummæli.
Morgunblöðin flytja öll greinar
um leiksýninguna, verkið og höf-
undinn og eru þau yfirleitt á einu
máli um það, að þrátt fyrir ann-
marka þá, sem framandi tunga
olli, hafi leiknum verið tekið af-
(Framhald á 2. siðu.)
Vaskleg björgun frá
drukknun í Siglufirði
SIGLUFIRÐI í gær. — í fyrra-
dag féll níu ára gamall drengur
hér á Siglufirði fram af bryggju,
svonefndri Htífliðabryggju, og
mundi vafalítið hafa drukknað,
ef röskur maður hefði ekki varp
að sér til sunds og bjargað hon-
um.
Maður, sem var að vinna á
plani þarna við bryggjuna, Sig-
urður Jakobsson, fyrrum bóndi
í Dalabæ, nú búsettur á Siglu-
firði, heyrði óp drengsins, og er
hann kom fram á bryggjuna
hafði drengurinn borizt svo langt
frá henni, að honum varð ekki
náð með stjaka af bryggjunni.
Sigurður hafði þá engin umsvif,
fleygði fötum og varpaði sér til
sunds. Tókst honum að ná
drengnum og synda með hann
til lands. Þykir þetta rösklega
gert af manni, sem er nær fimm-
tugu. Drengurinn var með öllu
ósyndur. B.J.
TaEtð mskfii sfgyr forsetans
Washington. 15. júní. — Öldungadeild Bandaríkjaþings
hefir samþykkt að fjárvéiting Bandaríkjanna til aðstoðar er-
lendum ríkjum skuli nema 530 milljónum dollara á næsta
fjárhagsári. Er þett.a svipuð upphæð og forsetinn hafði farið
fram á, og samþvkkt deildarinnar talin mikill sigur fyrir
forsetann. Ilefir þó staðið alllöng og hörð rimma um fjár-
veitinguna bæði á þingi og í blöðum, og andstæðingar fjár-
■veitingarinnar talið að bandarískum skattþegnum væri ó-
hóflega íþyngt með þessum stöðuga fjáraustri.
ur frjálsræði í alþjóðaverzlun, hef
ir og orðið til þess, að þeir sem
vilja að Bandaríkin sjálf taki upp
sömu stefnu og Bretar, hafa fengið
byr í seglin og orðið háværari í
kröfum sínum. Meðal þeirra eru
ýmsir viðskiptasérfræðingar í ríkis
stjórn Bandaríkjanna. Herter að
stoðar utanríkisráðherra virðist á
sömu skoðun og margir áhrifa
miklir iðjuhöldar. Mestur hluti
ráðherranna er samt algerlega and
stæður breyttri stefnu gagnvart
Kína.
Nú mun frumvarpið fara til
fulltrúadeildarinnar, en líklegt má
telja að það verði asmþykkt þar
óbreytt, úr því að það slapp í
gegnum öldungadeildina. í öld-
ungadeildinni voru allar breytinga
tillögur við frumvarpið felldar.
Eisenhower styður
frjálsari verzlun.
Eísenhower forseti ræddi í gær
nokkuð Um verzlunarmál í heim-
inum. Hann kvað Bandaríkja-
menn verða að líta á aðstæður
Fyrsti leikur Tékk-
' v • •
auna á þriðjudag
Fýrsti leikur tékkneska úrvals
liðsins í knattspyrnu, sem kemur
hingað í dag á vegum Víkings,
verður á þriðjudagskvöld kl.
8,30 við íslandsmeistarana Val.
Valur mun ekki styrkja lið sitt
í þessum leik, þó vitað sé, að
andstæðingarnir eru mjög slyng
ir knattspyrnumenn. f gær voru
Tékkarnir í Kaupmannahöfn og
léku þá við úrvalslið Kaupmanna
liafnar. Fréttir um úrslit í leikn
um höfðu ekki borizt er blaðið
fór í prentun.
Breta, Frakka og annarra þjóða,
sem líkt væri ástatt um, af sann-
girni. Sannleikurinn væri, að þjóð
ir sem byggju á litlum landsvæð-
um og byggðu tilveru sína á iðn-
aði og mikilli verzlun, yrðu að
hafa möguleika til að selja fram-
leiðslu sína, þar sem bezt verð
fengizt fyrir hana og njóta mikils
frjálsræðis í þessu efni. Þessi skoð
un hefur oft komið fram áður hjá
forsetanum, þegar rætt hefir verið
um vanilunarhömlux vestrænna
ríkja gagnvart kommúnistaríkjun
um.
Skiptar skoðanir.
Bretar hafa ákveðið, að stór
auka viðskipti sín við Kína. Yfir
leitt var þeirri ákvörðun tekið með
jafnaðargeði vestra. Yfirlýsingar
forsetans um að hann væri hlynnt
Verzlunarskólauum
41 stúdent útskrifast frá Menntaskól-
annm á Áknreyri á morgun
318 nemendur í skólanum í vetur
slitið í dag
Verzlunarskólanum verður slit
ið í dag. Ársprófum er lokið fyrir
nokkru, en í dag verður lærdóms
deildinni sagt upp, og útskrifast
|nokk^ir stúder(taæ. Skól^slitaafc
höfnin hefst kl. 2 e. h.
Menntaskólanum á Akureyri
verður sagt upp á morgun og
hest athöfnin í hátíðasal skólans
kl. 10,30 árdegis. Skólanum er
ætíð sagt upp 17. júní, og síðan
taka stúdentar virkan þátt í þjóð
hátíðarhöldum bæjarbúa.
Að þessu sinni slítur Brynjólf-
ur Sveinsson, settur skólameistari
skólanum, því að Þórarinn Björns
son skólameistari er erlendis; er
einn í hópi þeirra íslendinga, er
Norðmenn buðu að feta „í slóð
Egils Skallagrímssonar" nú á þessu
sumri.
Að þessu sinni útskrifast 41
stúdent, 27 úr máladeild og 14
úr stærðfræðideild. Prófum var
að vísu ekki alveg lokið í gær, er
blaðið átti tal við settan skóla-
meistara, ,en ætla má, að þetta
verði talan eigi að síður. Við skóla
slitin munu mæta 25 ára stúdentar
og 10 ára stúdentar, og munu þeir
minnast afmælisdagsins að venju.
154 í lieimavist.
100 stúdentar brantskráðir Mennta
skólannm í Reykjavík í gær
Menntaskólanum í Revkjavík var slitið í gær við hátíð-
lega athöfn. Kristinn Ármannsson rektor flutti ræðu við
skólaslitin, og síðan afhenti hann nýstúdentum skírteini.
100 stúdentar útskrifast frá Menntaskólanum að þessu sinni.
Nokkrir fulltrúar eldri stúdenta voru við skólaslitin og færðu
skóianum gjafir.
Skólaárið sem nú var að ljúka var 111. starfsár skólans. Nemend-
ur voru í upphafi skólaárs 452 tals
ins, 174 stúlkur og 278 piltar, í 3.
bekk voru 152 nemendur. Bekkj-
ardeildir voru 21, þar af 6 í 3.
bekk, og sóttu þær deildir skólann.
síðari hluta dags eins og undán-
farin ár. Undir árspróf gekk 361
nemandi, 336 nemendur luku prófi
og stóðust 311, en 25 féllu, og
voru þeir flestir í 3. bekk, Hæst-
ar einkunnir á ársprófi hlutu Sig-
urður Helgason og Gylfi ísaksson,
báðir ágætiseinkunn.
Stúdentsprófi er nú nýlokið, og
gengu undir það 95 skólanemend-
ur og 5 utanskóla, 69 úr • mála-
deild, en 31 úr stærðfræðideild. í
dag verða því brautskráðir 100
stúdentar úr skólanum, 4 með
ágætiseinkunn, 50 með I. einkunn,
45 með II. einkunn og 1 með III.
einkunn. í máladeild hlaut hæsta
einkunn Jónatan Þórmundsson, 6.
B, með ágætiseinkunn 9,66. Það
er hæsta einkunn sem tekin hefir
verið við skólann síðan núverandi
einkunnastigi var tekinn upp.
Tveir nemendur aðrir úr máladeild
hlutu ágætiseinkunn. Hæsta ein-
kunn í stærðfræðideild hlaut
Gylfi Guðnason, 6.X, ágætisein-
kunn 9,04.
Tveir fulltrúar 60 ára stúdenta,
þeir Sigurbjörn Á. Gíslason og Ól-
afur Daníelsson, veittu tvenn verð-
Framh. á 2. síðu.
Alls eru 318 nemendur í Mennta
skólanum á Akureyri í vetur, 94
í miðskóladeild og 224 í mennta-
Framh. á 2. síðu
Togarar fá síld á
Hornbanka
Togarar hafa að undanförnu
verið að fá fáeinar körfur af
síld í vörpuna, er þeir hafa verið
að veiðuni á Hornbanka og
Strandagrunni. Blaðið spurði
eiun kunnasta síldarskipstjóra
landsins að því í gær, hvort þessi
veiði boðaði eitthvað ákveðið urn
síldargöngur, en hann varðist
allra frétta. Sannleikurinn er,
sagði hann, að við höfum enn
ekkert að standa á, þrátt fyrir
allan undirbúninginn og allan
þann óhemju kostnað, sem nú er
lagt í, nema bjartsýnina, sem
kviknaði á vertíðinni í fyrra.