Tíminn - 16.06.1957, Qupperneq 7

Tíminn - 16.06.1957, Qupperneq 7
T í M I N N, sunnudaginn 16. júní 1957. 7 Merkilegt menRÍngarfyrirtæki er 88 ára í dag: lsafoldarpreiitsmiðja hefur gefið út urn 2500 bæk- ur, og auk þess prentað fjölda bóka fyrir aðra í dag eru liðin 80 ár síðan ísafoldarprentsmiðja tók til starfa, en hún mun vera ann að elzta fyrirtæki landsins, næst á eftir Reykjavíkurapó- teki. Með stofnun prent- smiðjunnar og bókaútgáfu þeirri, sem henni fylgdi, var stigið merkilegt spor s sjálf- stæðis- og menningarbaráttu þjóðarinnar, enda var stofn- andinn enginn annar en Björn Jónsson, síðar ráð- herra. A/iá óhætt fu'iyrða, að Isafoldarprentsmiðja hefir gegnt vel mjög merku iilut- verki á því tímabili, sem er liðið frá stofnun hennar. BJÖRN JÓNSSON stofnandi ísafoldar og stjórnandi um meira en 30 ára skeið. Þjóðhátíðarsumarið 1874 kom heim írá námi við Kaupmanna- hafnarháskóia Björn Jónsson cand. phil., síðar ritstjóri og ráðherra. A námsárum sínum við Hafnarhá- skóla, varð hann mjög handgeng- inn Jóni Sigurðssyni forseta, og fyrir áeggjan hans, lagði hann útá blaðamanna- og stjórnmálabraut sína, sem varð eins og kunnugt er heilladrjúg fyrir land og þjóð. Við heimkomuna, 1874, stofn- aði Björn ritstjóri til blaðaútgáfu, og kom 1. tölublað af ísafold út 19. sept. 1874 og var prentað í Landsprentsmiðjunni í Reykjavík. Um áramótin 1876—77 urðu eig- endaskipti á Landsprentsmiðjunni, og strax í ársbyrjun lagði Björn drög að því að kaupa sjálfur prent smiðju til landsins, fyrst og fremst til þess að verða sjálfum sér nóg- ur og óhóður öðrum um blaðaút- gáfu, en þá strax var ísafold orðið forustublað í sjálfstæðisbaráltu okkar Islendinga. Þann 16. júní 1877 kom svo fyrsta tölublaðið út af ísafold prentað í ísafoldarprent- smiðju og við þanti dag er miðað, þegar talað er um að ísafoldar- prentsmiðja sé 80 ára þessa dag- ana. Merkur áfangi í sögu ísl. prentlistar Með stofnun ísafoldarprent- smiðju er brotið blað í sögu prent listarinnar á íslandi. Mest vegna þess að þá fyrst kemst prentiðnin imdan stöðnunartilhneygingum stiftyfirvalda og landsst.iórnar, scm um aldir höfðu haft allan veg og yanda af rekstri prentverks hór á fslandi. Við taka ungir bjartsýnis- menn, sem hafa hugann opinn fyr- ir nýjungum á þessu sviði sem öðrum, enda verður hröð þróun í prentiðn næstu áratugi hér á landi. Björn Jónsson átti drjúgan þátt í þessari þróun, Qg minnast menn fyrstu hraðpressunnar, sem til landsins kom, og gat prentað 600 arkir á klukkustund, með að- stoð tveggja manna, sem ýmist handsneru éða fótstigu þessa á- gætu „hraðpressu“. Nokkrum ár- um síðar flutti Björn til landsins hraðpressu sem knúin var o!íu- mótor, og þótti eitt af undrum ver- aldar í þá tíð. Björn keypti Lands- prentsmiðjuna 1886 af Einari Þórð arsyni og komu þá í ísafoldarprent smiðju ýmsir gamlir munir frá Hrappseyjar- og Hólaprentverkum. svo sem leturkassar o. f 1., en þessi tvö elztu prentverk landsins sam- einuðust síðan í prentverkið að Leirárgörðum, var flutt þaðan í Viðey og var nefnt Landsprent- smiðjan upp frá því, þar til Ein- ar Þórðarson keypti og átti um nokkur ár. Þannig er ísafoldar- prentsmiðja nátengd þessum elztu prentsmiðjum iandsins og eigin- lega arftaki þeirra. Árni Ola hefir fært rök að því að nokkrir bóka- hnútar, sem til voru í ísafoldar- prentsmiðju um 1920 hafi komið þangað frá Hólum og mjög trúlega skornir af sjálfum Guðbrandi biskupi. Fyrstu ár prentsmiðjunnar voru afköst hennar um 13 arkir, (um 200 bls..) prentaðar á mánuði. Ekki mun fjarri sanni að sömu af- köst sé hægt að inna af hendi í prentsmiðjunni nú, áttatíu árum seinna, á hverjum degi eða um skemmri tíma. Eins og áður segir fékk prentsmiðjan, þegar hún var orðin tuttugu ára, hraðpressu og þótti þá (árið 1897) miklum tíð- indum sæta, að hraðpressunni fylgdi mótor „sem hafði 10 íil 12 manna af]“. Mótorinn var eitt hest afl, knúinn steinolíu, og „eyddi ekki nema einum potti á klukku- slund“. Nú eru í prentsmiðjunni átta setningarvélar, margar ný- tízku pressur auk annarra véla. Allfaf verið eign Björns Jónssonar og niðja hans Saga ísafoldarprentsmiðju er mest tengd Birni Jónssyni og niðj- um hans. Ólafur sonur Björns, eignaðist prentsmiðjuna árið 1909, en þá hafði Björn átt hana og rekið í meira en 30 ár eða frá 1S77 til 1909, er hann varð ráð- herra. Ólafur stjórnaði prentsmiðj unni til dauðadags, en hann and- aðist árið 1919, aðeins 35 ára að Nuverandi stjorn ísafaldarprentsmiðju skipa (talið frá vinstri). Björn Ólafsson, Pétur Ólafsson, sem jatnframt er forstjóri prentsmiðjunnar, og Henrik Sv. Björnsson. aldri. Eftir lát Ólafs var ísafoldar- prentsmiðja gerð að hlutafélagi. Stofnendur hlutafélagsins voru ætt ingjar og vinir Ólafs, en stærsti hluthafinn hefir ávallt verið frú Borghildur Björnsson, ekkja Ólafs. Fyrsti formaður hlutafélagsins var Sveinn Björnsson, síðar forseti ís- lands, en aðrir formenn hiutafé- lagsins hafa verið hver á eftir öðr- um Ágúst Flygenring, útgerðarm., Ólafur Johnson stórkaupm., Jón Hermannsson, fyrrv. tollstjóri og Pétur Ólafsson. hagfræðingur. Framkvæmdastjórar hafa verlð hver á eftir öðrum, Herbert Sig- mundsson, Gunnar Einarsson og Pétur Ólafsson. Núverandi stjórn prentsmiðjunnar skipa Pétur Ól- afsson, formaður; Henrik Sv. Björnsson og Björn Ólafsson, allir sonarsynir Björns Jónssonar. Fyrstu 10 árin var prentsmiðj- an í svokölluðu „Dokt.orshúsi“ (Aðalstræti 9), en árið 1886 hafði Björn Jónsson lokið við að reisa iiúsið, sem nú er við Austurstræti |8 og þar var prentsmiðjan þar til i árið 1943. er hún var flutt í nú- | verandi húsakynni við Þingholts- istræti 5. Húsið við Austurstræti ; 8 varð 70 ára gamalt í júlí síðast liðið ár. Heppin með sfarfsfólk ísafoldarprentsmiðja hefir frá upphafi verið lánsöm með starfs- fólk. Á næsta ári, árið 1958, mun Gisli Guðmundsson, sem öllum Reykvíkingum og raunar öllum landsmönnum er kunnur m. a. fyrir söng í kirkju og þjóðkór, gcta haldið upp á 70 ára starfsaímæli í ísafoid. í april síðastliðnum hélt prentsmiðjan upp á 60 ára starfs- afraæli Þórðar bókbandsmeistara Magnússonar. Einfríður Guðjóns- dóttir hefir starfað í ísafold í meir en 50 ár og meirihluti starfsmanna ■ hafa verið í ísafeld um eða yfir 20 ár. Verkstjórar í prentsmiðj- unni á þessum tímamótum eru allt i ungir menn. en hafa þó staríað þar ! í tvo áratugi, þeir Árni Valdimars i son, Guðgeir Ólafsson og Guðmund i ur Gíslason. Auk þeirra starfa með framkvæmdastjóra Viggó H. |V. Jónsson, Sigurpáll Jónsson og Björn Jónsson. | Upphaflega var prentsmiðjan | stofnuð fyrst og fremst til þess að prenta blaðið ísafold. Blaðið ÍÓsa- fold var í áratugi, fyrir og eftir : aldamót, áhrifamesta blaðið á ís- landi. Blaðið var stofnað þjóðhá- tíðarsumarið 1874 og annaðist Björn ritstjórn þess þar til 1909, I en síðar Ólafur sonur hans, þar til 11919. Síðar varð ísafold gefin út " sem hluti af Morgunblaðinu, en Ólafur Björnsson stofnaði Morg- unblaðið (árið 1913), ásamt Vil- hjálmi Finsen, síðar sendiherra. Miki! og fjöiþætt bókaútgáfa Strax á fyrsta ári ísafoldarprent smiðju fyrir áttatíu árum hóf Björn Jónsson bókaútgáfu. Fyrsta bókin, sem ísafold gaf út var Dýra fræði eftir Benedikt Gröndal, „með 88 myndum“, tæpar 200 blað síður, verð 2,25. í þann tíð kostaði 10 arka (160 bls.) bók kr. 1,50 óbundin, en í bandi kr. 1,75 —• tuttugu og fimm aura fyrir bandið. Dýrafræðin kom út 1878, en næsta hók var Steinafræði eftir Bene- dikt Gröndal. Þessi stai'fsemi prentsmiðjunnar jókst og áratug síðar voru komnar út 106 bækur á forlagi ísafoldar. Það mun láta nærri að ísafoldarprentsmiðja hafi gefið út alls um 2500 bækur og rit. Á.rið 1927 var hafin undir- búningur að heildarútgáfu rita Jónasar Hallgrímssonar, má telja að sú útgáí'a marki tímahvörf í bókaútgáfu hér á landi. Síðan hef- ur ísafoldarprentsmiðja gefið út heildarútgáfur fléstra eldri höf., svo sem Bólu Hjálmars, Sig. Breið fjörðs, Ben. Gröndals, Kristínar Sigfúsdóttur, Einars Benediktsson ar, Jóns Magnússonar, Jóns Sveins sonar (Nonna), Guðmundar skóla skálds Guðmundssonar, Mattíasar af ísl. úrvalsljóðum, 4 bindi af Joehumssonar. Auk þess 12 bindi Sögum ísafoldar, Þjóðsagnasöfn Guðna Jónssonar, Rauðskinna Jóns Thorarensens og Frá yztú nesjum Gils Guðmundssonar. Þá er og í undirbúningi heildarútgáfa af verkum Þorsteins Erlingssonar og fleiri. Margar nýjar bækur væntanlegar Rekstur prentsmiðjunnar í dag byggist fyi'st og fremst á prentun fyrir ýmsa aðila á bókum, blöðum og timaritum, skýrslum og skýrslu formum, auglýsingamiðum og j vörumiðum, í raun og veru öllu (því, sem einstaklingar og fyrir- j tæki þurfa að láta prenta. En ailk j þess rekur prentsmiðjan uinfangs J mikla bókaútgáfu, eins og áður er * ix i-v £ • • , ., _• : vikið að. Á þessu ári jnunu koma ar eSa (talið fra vinstri) Gisli ,. , , , ., • í ut margar nyjar bækur hja Isa- GuSmundsson i 70 ar, EinfriSur Guðionsdottir i 50 a/, og Þórður Magr.ússon i 50 ar. (Framhald á 8 síðu) Þrir elrtu starfsmenn IsafoldarprenísmiSju hafa starfal bar samaniagt 180

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.