Tíminn - 16.06.1957, Page 8

Tíminn - 16.06.1957, Page 8
8 k blaíamannafundi (Framhald af 6. síðu). leyfi til að bera fram spurningar. ( Við þetta tækifæri voru á annað hundrað spurningar á takteinum; forsetanum gafst aðeins tom til að svara í milli 40 og 50 spurningum. Það er dálítið spennandi keppni, sem fer fram á þessum fundum. Blaðamennirnir spretta upp úr sæti sínu eins og undir væri fjöð- ur og segja: Mr. President: — Horfa síðan vonaraugum á hann, og reyna að leiða athygli hans að sér. En e. t. v. eru það 10—-20 menn, sem kalla í einu: Mr. Presi- dent. Forsetinn lítur yfir hópinn pg velur einhvern úr, og sá fær orðið. Hinir setjast, vonsviknir. En þeir fá brátt tækifæri aftur. Sumar spurningar fjalla um flókin alþjóðamál. Svarið er þá allýtarleg ræða, t. d. um afvopnunarmálin. Að þessu sinni voru þau merk- asta efnið sem um var rætt. Eis- enhower sagði tilheyrendum sín- um, að sér væri nú sagt, að full- trúar í afvopnunarnefndinni í London, virtust eiga x alvarlegri og eftirtektarverðri samræðum nú en nokkru sinni fyrr. Hann fór ekki dult með, að hann fagnaði því, ef um væri að ræða skref í átt til afvopnunar og friðar. En hann minnti á, að saga vonbrigð- anna væri löng. Hann fullvissaði tilheyrendur um, að allar skynsam legar tillögur, öll heiðarleg við- leitni, mundi hljóta hinar beztu undirtektir Bandaríkjastjórnar. Öllum spurningum svarað, flest- um ýtarlega. Aðeins þegar blaða- menn reyna að leiða forsetann út á hálar brautir flokkabaráttunnar heima fyrir, hvort hann ætli að .styðja tiltekinn íhaldsþingmann í ínæstu kosningum, er spurning af- Tgreidd með fáum orðum, sem í rauninni merkja ekkert. Fréttir — ekki stórfréttir Að samanlögðu engar stórfréttir, heldur stutt yfirlit um viðhorf til nokkurra stórmála, endurtekning fyrri yfirlýsinga, róleg útlistun á stefnu Bandaríkjanna, fumlaus og ákveðin ræða, ekki „brilliant", samt einlæg að því manni virðist. Þessi fundur stendur aðeins á- kveðinn tíma. Þegar stundin er komin, sprettur aldursforseti við- staddra blaðamanna upp úr sæti sínu og segir: Thank you, Mr. President. Sveitadrengjum verður bylt við Þá hrökkva saklausir sveita- drengir á svölunum í kút. Það er eins og hleypt sé úr startbyssu á hlaupabraut. Blaðamenn og út-1 varpsmenn — sem hafa verið iðn- ir með hljóðnema og sjónvarps- vélar — spretta upp úr sætunum og hlaupa til dyranna, hver sem betur getur. Úti fyrir eru síma- klefar. í þessu landi veltur á miklu að vera einni mínútu fyrr en ná- unginn með íréttirnar. Salurinn er allt í einu tómur, en forsetinn hefir horfið hljóð- lega út um hliðardyr meðan blaða- menn þreyttu hlaup og stökk við aðaldyrnar. Gestir sitja brátt einir á svölum, Japani, Kínverjar, Burmamenn, Þjóðverjar og ís- lendingur horfa undrandi á dyrn-- ar þar sem þyrpingin ryðst um, unz allir eru horfnir og tímabært er að halda af stað, þótt hægar verði farið. Að loknum fundi Innan fárra mínútna er komið út á götuna. Hitinn er víst orðinn 85 stig. íkornarnir hoppa enn á grundinni. Margar radíóstöðvar í Washington senda þegar út frétt- irnar um allt, sem gerðist á blaða- mannafundinum. Innan fárra mín- útna taka fréttamóttökuvélar í öllum fylkjum Bandaríkjanna að tifa og segja allt, sem gerðist á þessum fundi; litlu síðar fréttastof ur í flestum löndum heims. Áður en klukkustund er liðin, eru Landbúnaðarmál (Framhald af 4. síðu). meiru á því að verkið tekur þeim mun lengri tíma, sumpart vegna þess að verkinu seinkar og sum- part vegna meiri útgjalda til draga stjórans. Sé ekið með verkfæri í togi, sem er knúið beint frá aflflutningsás dragans og ef dráttarvélin hefir ekki sjálfstæðan aflflutning (inde- pendent power-take off), verður auðvitað ’ að halda hraða hreyfils- ins þannig, að aflflutningsásinn fái eðlilegan snúningshraða. Á dráttarvélum sem hafa tvö afl flutningsstig, geta menn, þegar að- stæður leyfa, notað hærra stigið og látið þannig dragahreyfilinn ganga með minni snúningshraða og fá þá hæfilegan hraða á vinnuvélina. T f M I N N, sunnudaginn 16. júní 1957. ViV.'.WAV.VAV.'AV.V.V.V'.VAV.AV.V.V.V.VV.V.V.V.V.V.V.V.V.’.V.V.VA Isafold (Framhald af 7. síðu). fold. Má þar nefna m.a.: síðasta bindið af ljóðmælum Matthíasar (væntanlegt í haust) og þriðja og síðasta bindið af sögum herlæknis- ins. Fyrr á árinu kom út íslenzk- dönsk orðabók eftir Ágúst Sigurðs son magister, og í haust er væntan leg dönsk-íslnezk orðabók, mikil bók um 1200 bls. Er það endur- skoðuð og að nokkru leyti endur- samin útgáfa af orðabók Freysteins skólastjóra Gunnarssonar, og hefir Ágúst magister annast útgáfuna ásamt þeim Freysteini og Ola Widding prófessor. í haust eru einnig væntanleg tvö hefti af Rauð skinnu Jóns Thorarensen, og eru það lokabindin af þessum vinsæla sagnaflokki. Þá eru einnig væntan leg lokabindin í heildarútgáfunni af ritverkum Jóns Sveinssonar (Nonna), en í nóvember n.k. eru hundrað ár liðin frá fæðingu Nonna. í haust koma út nokkrar bækur eftir íslenzka höfunda í sérstökum bókaflokki og má þar nefna skáld sögur eftir Guðmund L. Friðfinns son, Guðmund Daníelsson og Sigurð Hplgason. Einnig eru vænt anleg síðar tvær eða þrjár Ijóða- bækur. Hér hefir ekki verið getið um skólabókaútgáfu ísafoldar, en á vegum prentsmiðjunnar er mesta skólabókaútgáfa á landinu. Einnig eru ótaldar margar barna- og unglingabækur. Loks er svo að nefna bækurn- ar, sem koma út í tilefni af af- mælinu, er þeirra getið á öðrum stað. fyrstu útgáfur blaðanna til sölu á götunum. Menn ræða það, sem gerzt hefir. Ýmsum líkar vel, öðrum miður, margir segja: Hann sagði ekkert nýtt. En allt, sem hann sagði er þó komið á prent áður en 12 stund ir eru liðnar. Misjafnt mat Svona er misjafnt matið á frétt- unum. Eftir viku hefst annar blaða- mannafundur á sama stað. Um hann les maður samdægurs suður í Knoxville. _______________H. Sn. TRICHLORHREINSUN (ÞURRHREINSUNX BJ0RG SDLVALLAGDTU 7Á • SÍMI 32»37 DAP.fíA!! LÍQ G ’ Vaníi yður prenÍuríV }>á iimnið PRENTST OFAN LETUR Þökkum sýnda samúð við andlát og jarðarför Mörtu Guömundsdóttur, Lækjarbakka, Skagaströnd. Pétur Stefánsson, börn og tengdabörn. DAGSK hátíðahaldanna 17. júní 1957 I. SKRÚÐGÖNGUR: Kl. 13.15 Skrúðgöngur að Austurvelli hefjast frá þrem stöðurn í bænum. Frá Melaskólanum, SkólavörSutorgi og Hlemmi. Lúðrasveitir og fánaberar ganga inn á Austurvöll kl. 13,50. 13.55 14.00 14.30 14.40 14.55 15.00 II. HÁTÍÐAHÖLD VIÐ AUSTURVÖiL: Hátíðin sett af formanni Þjóðhátiðarnefndar, Þór Sandholt. Guðsþjónusta í Dómkirkjunni. Prédikun: Séra Jón Þorvarðarson. Einsöngur: Guðmundur Jónsson, óperusöngvari. Organleikari: Dr. Páll ísólfsson, tónskáld. Dómkirkjukórinn syngur. Forseti íslands, herra Ásgeir Asgeirsson, leggur blómsveig frá ís- lenzku þjóðinni að minnisvarða -Jóns Sigurðssonar. Forsætisráðherra, Hermann Jónasson, flytur ræðu af svölum Al- þingishússins. — Ávarp fjallkonunnar af svölum Alþingishússins. Lagt af stað frá Alþingishúsinu suður á íþróttavöll. Staðnæmzt við leiði Jóns Sigurðssonar. Forseti bæjarstjórnar, frú Auður Auðuns, leggur blómsveig frá Reykvíkingum. Karlakór Reykjavíkur og Karlakórinn Fóstbræður svngja. III. Á ÍÞRÓTTAVELLINUM: 1530 Ávarp: Gísli Haildórsson, formaður Í.B.R. — Skrúðganga íþrótta- manna. — StúJkur úr Ármanhi sýna fimleika með gjörðum. Stjórn- andi: Frú Guðrún Nielsen. Undirleikari: Carl Billieh. — Sýningar- og bændaglíma. Glímumenn úr Ármanni og U.M.F.R. Stjórnandi: Guðmundur Ágústsson. — Fimleikasýning. Kvennaflokkur úr Í.R. undir stjórn frú Sigríðar Valgeirsdóttur. — Frjálsar íþróttir. — Keppt verður um bikar þann, sem forseti íslands gaf 17. júní 1954. — Keppni og sýningar fara fram sambtímis. Leikstjóri: Jens Guð- biörnsson. IV. BÁRNASKEMMTUN Á ARNARHÓLI: Stiórnandi og kynnir: Ævar Kvaran. 16.00 Lúðrasveitir barnaskólanna leika. Stjórnendur: Karl O. Runólfsson og Paul Pampiebler. — Ávarp: Séra Bragi Friðriksson. — Ballett úr óperettunni „Sumar í Týról“. Anna Guðný Brandsdóttir og Helgi Tómasson. Undirleikari: Ragnar Björnsson. — Skemmtiþáttur: Árni Tryggvason, Bessi Bjarnason og Helgi Skúlason. Fimleikar. Telp-- ur úr Ármanni sýna undír stjórn frú Guðrúnar Nielsen. Undir- leikari: Carl Bilneh. — „Leikur dýranna“. Nemendur úr leiklistar- skóla Ævars Kvarans. V. TÖNIEIKAR VIÐ AUSTURVÖLL: 17.00 Sinfóníuhljómsveit íslands leikur. Stjórnandi: Páll ísólfsson. Ein- söngvarar: Kristinn Hallsson og Þorsteinn Hannesson. — Karlakór- inn Fóstbræður syngur. Stjórnandi: Ragnar Björnsson. VI. í TÍVÓLÍ* 15.00 Skemmtigarðurinn opnaður. — Aðgangur ókeypis. — Lúðrasveit Barnaskóla Austurbæjar. Stjórn.: Kari O. Runólfsson. — Skemmti- þáttur: Árni Tryggvason og Bessi Bjarnason. VII. KÖLBVAKA Á ARNARHÓLI: 20.00 Lúðrasveit Reykjavíkur. Stjórnandi Paul Pampichler. 20.20 Kvöldvakan sett: Ólafur Jónsson^ritari Þjóðhátíðarnefndar. — Lúðrasveitin leikur: „Hvað er svo glatt“. 20.25 Karlakór Reykjavíkur. Stjórnandp^Dr. Páll ísólfsson. 20.40 Borgarstjórinn í Reykjavík, Gunnar Thoroddsen, flytur ræðu. — Lúðrasveit Reykjavíkur leikur Reykjavíkurmarz eftir Karl O. Run- ólfsson. Höfundurinn stjórnar. ~~ 21.00 Áhaldaleikfimi: Piltar úr fimleikaöokki K.R. 21.15 Einsöngur- og tvísöngur: Evy Tibell og Guðmundur Jónsson. Undir- leikari: F. Weisshappel. 21.30 Gamanþáttur: HeJgi Skúlason. ■— 21.40 Þjóðkórinn syngur. Stjórnandi: Dr: Páll ísólfsson. VIII. DANS TíL KL. ^EFTIR MIÐNÆTTI: Erlendur Ó. Pétursson stjórnar cpmsinum. Að kvöldvökunm lokinni verður ,4.ansað á eftirtöldum stöðum: Á Lækjartorgi: Hljómsveit Kristjáns Kristjánssonar. í ASalstræti: Hljómsveit Björns R. Einarssonar. í Lækfargötu: Hljómsveit Óskará7 Cortes. Hljómsveit Aage Lorange leikur til skiptis á öllum dansstöðunum. 02.00 Dagskrárlok. Hátíðahöldunum slitið frá Lækjartorgi. .■.v.i titStVl; i

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.