Tíminn - 29.06.1957, Síða 1
Fylgizt með tímanum og lesið
TÍMANN. Áskxiftarsímar: 2323
og 8 1300. — Tíminn flytur mest
og fjölbreyttast almennt lesefni.
41. árgangur.
Reykjavík, laugardaginn 29. júní 1957.
Inni í blaðinu:
Haga-fjölskyldan, bls. 2.
Ráðstefna brezka samveldisins,
bls. 4.
Skákþáttur Friðriks Ólafssonar,
bls. 5.
141. blaS.
í dag hefst heimsókn sænsku konungshjónanna
Hennar hátign Louise Svíadrottning.
Hans hátign Gustaf VI. Adolf Svíakonungur
Óformlegar viðræður um handrita-
málið við danska ráðherra í Höfn
Gylii Þ. Gíslason menntaraálarátSlierra korainn
hehm ai ráínerralnndi í Stokkhólmi, telur hand-
ritaraáSií á réttri hraut
Gylfi I-. Gíslason, menntamálaráðherra, kom heim í fyrra-
dag af fundi menntamálaráðherra Norðurlanda og úr Noregs-
för. Á heimleiðinni kom hann við í Kaupmannahöfn og átti
þar ásaint dr. Sigurði Nordal, sendiherra, óformlegar við-
ræður um handritamálið við nokkra ráðherra í dönsku ríkis-
stjórninni.
iræmingu á greiðslum til fræði-
Hefir menntamálaráðherra flutt j manna, sem taka að sér störf í ein-
ríkisstjórninni skýrslu um þessar j hverju öðru Norðurlandanna en
viðræður og er hún nú til athug- heimalandi sínu og ennfremur um
unar hjá ríkisstjórninni.
Ráðherrann skýrði frá þessu í
viðtali í gær. Hann kvaðsl að svo
komnu máli ekki telja rétt að birta
nánari greinargerð um þessar við-
ræður, nema að rétt væri að taka
fram að þær hefðu verið mjög vin-
samlegar, og persónulega er ég
þeirrar skoðunar, sagði dr. Gylfi
Þ. Gíslason. að málið sé nú á réttri
leið og er bjartsýnn á horfurnar.
Ráðherrafundurinn í Stokkliólini
. Ráðherrafundurinn var að þessu
sinni haldinn í Stokkhólmi dagana
13.—14. júní. Auk almennra við-
ræðna um mermingarmál á Norð-
urlöndum var einkum rætt um
endurbætur á skipulagsmálum há-
skóla og menntaskóla svo og sam-
Hundruð manna
farast í f ellibyl í
Bandaríkjunum
New Orlens 28. júní.
Ægilegur fellibylur hefir geis-
að í ýmsum suðurríkjum Banda-
ríkjanna síðan í gærmorgun. —
Fréttir frá Lousiana herma, að
óttast er, aS nokkur luindruð
mauna hafi farizt í náttúruliam-
förum þessum. Geysilegt tjón
hefir orðið á húsum og ýmsuin
eignum manna. Fellibylurinn
stefnir nú í áttina til MissQuri og
Arkar, sas.
að háskólapróf í einu landinu skuli
gilda í þeim öllum. Var ályktun
gcrð um þessi mál. Rætt var um
norrænan húsmæðra háskóla og
var Norðmönnum fatið að undir-
húa það mál og ennfremur um að
setja á stofn norræna stofnun til
rannsókna á þjóðkvæðum og er
gert ráð fyrir að hún verði í Dan-
mörku.
Norrænt samstarf á sviði lista.
Fjaliað var um norrænt samstarf
á sviði tónlistar og er gert ráð fyr-
ir, að það verði með líkum hætti
Qg þegar er hafið í leiklistinni.
Ályktun var gerð um það að
þýða finnsk og íslenzk fræðirit á
eitthvert hinna Norðurlandamál-
anna og taki löndin öll þátt í kostn-
aði af því.
Þá var ákveðið að bjóða fjór-
um anierískum prófessorum til
Norðurlanda til að kvnna sér
skólakerfið til þess að tryggja,
að stúdentar frá Norðurlöndum
fái aðgang að því stigi í amerísk-
um liáskólum, sem svari til
menntunar þeirra.
Konungsflugvélin lendir á Reykjavík-
urflugvelli kl. 15 í dag - Reykjavík í
hátíðarskrúða um þessa helgi þrátt
fyrir fremur óhagstætt veðurútlit
í dag hefst hin fvrsta opinbera heimsókn sænsks þjóðhöfð-
ingja til íslands er SAS-flugvél af gerðinni DC6, sem flytur
Gústaf VI. Adolí, konung Svíþjóðar, Louise drottningu hans,
Undén utanríkisráðherra og annað sænskt föruneyti, lendir á
Reykjavíkurflugvelli. Áætlaður komutími flugvélarinnar er
kl. 15. Veðurútlit er því miður ekki hagstætt. Áttin suðaust-
læg, skýjað loft og sennilega skúraveður. Hiti 10—13 stig.
En þrátt fyrir drungalegt veður
í dag eftir sumarblíðu undanfar-
inna daga, hýzt höfuðborgin há-
tíðarskrúða í dag í tilefni af heim-
sókn hinna tignu gesta.
Fánar og veifur eru við hún og
bærinn hefir verið prýddur og
fegraður undanfarna daga.
Úti á flugvelli heilsa konungs-
hjónunum forseti íslands og frú
hans, forsætisráðherra og aðrir
ráðherrar, ýmsir embættismenn,
svo og hið íslenzka fylgdarlið gest-
anna, sænski sendiherrann hér og
slarfslið hans, og íslenzki sendi-
herrann í Stokkhólmi, sem kom-
inn er til landsins í tilefni heirn-1 heimfylgd verður þannig, að
sóknarinnar.
Ekið verður þessa leið:
Frá Reykjavíkurflugvelli (um
kl. 15,20) um Miklatorg, Hring-
braut, Sóleyjargötu, Fríkirkju-
veg, Lækjargötu, Austurstræti,
Pósthússtræti, Kirkjustræti,
Templarasund, Vonarstræti og
Tjarnargötu að ráðherrabústaðn-
um. Fylgja forsetahjónin kon-
ungshjónunum til bústaðar
þeirra.
Fylgdarlið konungshjónanna býr
ao Hótel Borg.
Dagskráin að lokinni móttöku
Dagskráin að lokinni móttöku og
kl.
19,30 hefst móttaka forstöðu-
manna erlendra sendiráða í ráð-
herrabústaðnum og verður Undén
utanríkisráðherra viðstaddur. En
kl. 10,15 hefst kvöldverðarboð for-
seta að Hótel Borg. Kl. 20,10 aka
konungshjónin frá ráðherrabú-
staðnum að Hótel Borg. í þessaji
veizlu munu báðir þjóðhöfðingj-
Fimm bifreiðar flytja geslina, |arnir fly«a ræSur. Veizlunni lýkur
og verða konungur og forseti í 11 kl- 23, er sænsku konungs-
hinni fyrstu, þá drottningin og for- ^ ^°nin ai{,® a® ráðherrabústaðnum,
setafrúin, þá Undén utanríkisráð- i .....
Wóttakan á flugvellinum
Þegar konungshjónin hafa heils-
að forsetahjónunum, verða þjóð-
söngvar landanna leiknir, en að
því loknu mun forsetinn kynna við-
stadda fyrir konungshjónunum. j
Síðan hefst ökuferðin í bæinn. i
herra og Guðmundur I. Guðmunds-
son utanríkisráð'herra og sendi-
herra Svíþjóðar hér og fylgdarmað
ur sænska utanríkisráðherrans hér.
Þriðja og fjórða bifreiðin flytur
hirðmey drottningar og íslenzkt
fylgdarlið konungshjónanna.
jog litlu síðar aka forsetahjónin til
j Bessastaða og lýkur þar með fyrsta
degi heimsóknarinnar.
Sunnudagur
Á sunnudaginn er móttaka í Há-
skóla íslands, heimsókn í Þjóð-
Framh. á 2. síðu.
Lítil sem engin síldveiði nyrSra
- bræla á miðunum í gærdag
Skömmtunai-se^Sar af-
hentir í
mu
Úthlutun skömmtunarseðla fyrir
næstu 3 mánuði fer fram í Góð-
templarahúsinu uppi næstkomandi
mánudag, þriðjudag og miðviku-
dag, 1., 2. og 3. júlí kl. 10—5 alla
dagana. Seðlarnir verða eins og
áður afhentir gegn stofnum af
fyrri skömmtunarseðlum, greini-
lega árituðum. (Frá úthlutunar-
skrifstofu Reykjavíkur.
Kjarnorkuspreng-
ing mistókst
í Nevada
Las Vegas, 28. júní. — Sá at-
burður varð í dag x Nevada-eyði-
mörkinni í Bamdaríkjunuin, að
kjarnorkusprengmg mistókst. —
Hafði kveikjuútbúnaður bilað.
Máttu vísindamennirair, sem að
tilraununum unnu, klífa 150 m
liáan turn til þess að freista að
skrúfa sprengjuna sundur og
gera hana óvirka.
Milli 10 og 20 sænskir blaSamenn
hér við konungskomuna
Flestir fara aftur heim til Svíþjóíar strax ací heim-
sókninni lokinni' en nokkrir dvelja hér lengur
Margir sænskir blaðamenn eru
komnir liingað til landsins í til-
efni konungskomunnar. — Eru
nckkrir þeirra komnir hingað fyr
ir fáeinuin dögum og hafa notað
tímann til að kynna sér sitthvað
varðandi land og þjóð og svo und
irbúning konungskomunnar.
í gær voru komnir hingað sam
tals 9 sænskir blaðamenn og fjór-
ir ljósmyndarar, beinlínis vegna
konungskoinunnar. Eru blaða-
mennirnir frá samska ríkisútvarp
•inu, hinni opinberu fréttastofu í
Svíþjóð, Svenska Dagblaðinu,
Stokkholms tíðindum, Dagens
Nyheter, Aftonbladet, Göbergs
Handelstidningen og tveimur
vikublöðum Vecko journalen og
Se.
f gær voru margir blaðamenn
í ferðalagi austur að Geysi á veg
um ferðaskrifstofu ríkisins. —
Nokkrir blaðamenn verða liér
eftir er konungskomunni lýkur,
en flestir halda strax heim.
Ennfremur kemur hingað blaða
fulltrúi sænska utanríkisráðu-
neytisins Sven Backlund. Hann
mun að sjálfsögðu nota tækifær
ið og heimsækja systur sína, sem
hér er búsett, kona dr. Sigurðar
Þórarinssonar, jarðfræðings.
Allsherjarþingið
kallað saman
Sameinuðu þjóðunum — New
York, 28. júní: Bandaríkin fóru
þess formlega á leit í gær, að alls-
herjarþing SÞ. yrði kallað saman
hið fyrsta til að ræða Ungverja-
landsmálið enn frekar.
I gærdag barst engin sfld til
Siglufjarðar. Stormur var á mið-
unum, og mikill hluti flotans lá
inni. Leitarflugvél fór í sfldarleit
í gærmorgun, en sú för bar eng-
an árangur. Er blaðið átti tal við
Siglufjörð í gærkvöldi var ekki
búizt við að úr rættist í nótt.
Stormar á austursvæðinu.
Er fréttaritari blaðsins átti tal
við Raufarhöfn síðdegis í gær
var þar suðaustan stormur og
bræla á miðunum og litlar sem
cngar fregnir um sfldveiði.
Flotinn var þá á leið austur á
bóginn, en mörg skip höfðu þeg-
ar leitað vars við Raufarhöfn. —
Tvö skip, Smári og Víðir II. urðu
vör við nokkra sfld austur af
Bakkafjarðarflóa, en fengu lítil
köst af heldur magurri sfld. Er
það fyrsta síldin, sem í ár veiðist
á austursvæðinu.
Á Raufarhöfn er unnið af
kappi á öllum plönum til að und
irbúa söltunina og er mikill hug
ur í mönnum. Miklar endurbæt-
ur hafa verið gerðar á sfldarverk
smiðjunni senx getur væntanlega
tekið á móti sfld til bræðslu um
lielgina.